Alþýðublaðið - 10.02.1993, Side 1
Pétur Blöndal, stjórnarformaður Veðs hf
„Veð hf. létti af mörgum krossi"
- aðeins ein ibúð í Setbergshlíð hefur selstfrá í áigúst, -framkvœmdir á fullriferð - Pétur
segist hafa kvittun fyrir lóðumfrá Hafnarfjarðarkaupstað - Bœjarstjórinn ósammála
- 47% ávöxtun bréfa í Veði hf hefur ekki staðist
„Ég tel að menn megi vera
ánægðir að þurfa ekki að
eiga við gjaldþrota fyrir-
tæki“, sagði Pétur Blöndal,
stærðfræðingur og stjórnar-
formaður Veðs hf. í samtali
við Alþýðublaðið í gær.
Hann sagði það af og frá að
þau viðskipti sem fram fóru
milli Veðs hf. og SH-verk-
taka síðla sumars í fyrra
þurfi neinnar rannsóknar
við. Þvert á móti létti Veð hf.
af mörgum krossi, - SH-
verktökum og ekki síst þeim
sem fasteignaviðskipti áttu í
Setbergshlíð. (ijaldþrot SH-
verktaka hefði orðið annað
og verra, ef ekki hefði verið
gripið tímanlega í taumana.
„Menn eru einfaldlega að
rugla saman og átta sig ekki á
því að þama var peningum
breytt í eignir. Veð hf. keypti á
eðlilegu verði þær fram-
kvæmdir sem SH-verktakar
voru með í Setbergshlíð. Við
greiddum 62,5 milljónir króna
í beinhörðum peningum, auk
þess sem verktakar og efnissal-
ar keyptu hlutabréf fyrir 21
milljón til viðbótar."
í Setbergshlíð vom bygg-
ingalóðir fyrir 99 íbúðir. SH-
verktakar höfðu þegar selt 55
íbúðir, en 44 vom eftir. Pétur
Blöndal segir að frá þvf í ágúst,
þegar Veð hf. tók við stjóm
byggingaframkvæmdanna,
hafi ein íbúð selst. Eftir er að
selja 43 íbúðir á þessu bygg-
ingasvæði.
„Menn geta keypt þessa
eign af okkur, ef einhver aðili
hefur peninga og þorir að taka
áhættuna“, sagði Pétur. Hann
sagði að framkvæmt hefði ver-
ið fyrir 12-15 milljónir á mán-
uði í Setbergshlíð frá í ágúst,
eða fyrir rúmar 70 milljónir
króna. Framundan væri átak í
að selja íbúðir á svæðinu og
sagði Pétur að vel liti út með
sölu þeirra að mati fasteigna-
sala.
Varðandi það að Pétur ætti
inni fé hjá þrotabúi SH- verk-
taka, sagði Pétur Blöndal að
það væri alrangt, hann ætti
ekki að vera inni á lista yfir
lánardrottna SH-verktaka og
reyndar óskiljanlegt hvemig
svo getur verið. Sá listi gæti
varla verið áreiðanlegt plagg,
hann ættu ekki krónu í þrota-
búinu. Hinsvegar sagði hann
hugsanlegt að Veð hf. ætti
kröfu í búið.
Þegar Veð hf. var stofnað á
síðasta sumri, vom hlutabréf í
fyrirtækinu seld og látið í veðri
vaka að reikna mætti með allt
að 47% ávöxtun bréfanna. Pét-
ur Blöndal sagði í gær að
ávöxtunin yrði greinilega
lægri, og menn jafnvel heppnir
að sleppa út á sléttu. Pétur
sagði að bent hefði verið á
áhættuna sem verðfall eða
sölutregða gæti haft í för með
sér.
Kaupverð Veðs hf. var 125-
135 milljónir króna, og vom
SH-verktakar eigendur megin-
hluta hlutafjárins í upphafi og
eru f þrotabúinu 25 milljónir í
hlutabréfum, sem ekki em
óveðsett.
Alþýðublaðið spurði Pétur
Blöndal um skuld þá sem
Hafnarfjarðarkaupstaður á í
búi SH-verktaka og mun
hyggjast innheimta hjá Veði
hf„ alls um 23 milljónir króna.
„Við keyptum þetta land og
gengum úr skugga um að þar
var allt á hreinu og öll gjöld
greidd enda höfum við kvittun
fyrir því að það var greitt. Bæj-
arsjóður Hafnarfjarðar hefur
því ekkert til okkar í Veði hf.
að sækja", sagði Pétur.
Annarrar skoðunar var Guð-
mundur Ami Stefánsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði: „Við
munum sækja þessa skuld,
enda fullkomlega réttmæt
krafa.
Pétur Blöndal var í stjóm
SH-verktaka og vissi vel
hvemig þessi mál vom í pott
búin“, sagði bæjarstjórinn.
„Við höfum nú lagt fram
formlegar tillögur og munum
leggja mesta áherslu á at-
vinnumálin,“ sagði Bcnedikt
Davíðsson, forseti ASÍ, eftir
fundi með atvinnurekendum
og ríkisstjórn í gær. Benedikt
sagði verkalýðshreyfinguna
leggja mikla áherslu á samn-
inga á grundvelli þjóðarsátt-
arinnar 1990.
Hann sagði að mikilvægt
væri að ríkisstjómin beitti sér
gefning
syndnnnn
rennur út
Skáldsaga Ólafs Jó-
hanns Olafssonar, Fyrir-
gefning syndanna, tók
mikinn kipp í bókabúöum
hérlendis í kjölfar frétta
um útgáfu bókarinnar í
Bandaríkjunum. Starfs-
inenn bókahúða sem Al-
þýðublaðið talaði við í gær
sögðu að bókin rynni út
einsog heitar lummur.
Fyrirgcfning syndanna
varð margföld metsölubók
þegar hún kom út hérlendis
fyrir jólin 1991. Mjög fátítt
cr að íslcnskar skáldsögur
lifi jólin af en Fyrirgefning
syndanna ætlar að verða ein
sárafárra. Vonandi verða
Bandaríkjamenn jafn hrifn-
ir.
- Leiðarahöfundur Fjarðarpóstsins vill koma upp
öflugu heimavarnaiiiði gegn þessu þjófnaðarfári
Formanitsfraiit'
bjóðendur
í kvöld verður haldinn að-
alfundur Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur. Þar verður
meðal annars kosið á milli
Valgerðar Gunnarsdóttur og
Þorláks Helgasonar, sem
bæði gefa kost á sér til for-
manns. Kosningabaráttan fer
hinsvegar frani í friði og spekt
einsog þessi mynd ber með
sér. Hún var tekin af for-
mannsframbjóðendunum í
gær. - Sjá bls. 2
(A-mynd: E.ÓI.)
Umsátursástand ríkir nú í
Hafnarfirði, samkvæmt
frétt og forystugrein í Fjarð-
arpóstinum. Þar kemur
fram að 32 ára gamall hafn-
firskur síbrotamaður „geng-
ur laus í bænum“ og kemur
fyrir ekki þótt hann sé á skil-
orði og hafi ítrekað verið
staðinn að verki þarsem
hann lætur greipar sópa um
eigur Hafnfirðinga.
Blaðið ræddi við Svein
Bjömsson - Sherlock Holmes
Hafnarfjarðar - sem bað bæj-
arbúa að huga vel að læsing-
um og gluggum húsa sinna og
bíla, enda hefði verið brotist
inn jafnvel meðan fólk skryppi
augnablik að heiman um há-
bjartan dag.
Síbrotamaðurinn er gamall
kunningi lögreglunnar; Sveinn
segist fyrst hafa haft afskipti af
kauða þegar hann var níu ára.
Leiðarahöfundur Fjarðar-
póstsins tekur málið upp undir
fyrirsögninni „Heimavamarlið
gegn þjófum". Þar er rætt um
„algjöra forherðingu innbrots-
þjófa“ sem einskis svffast í
seinni tíð. Blaðið telur að hér
séu á ferðinni „meira og minna
skemmdir einstaklingar, enda
þýfið oftast notað sem gjald-
miðill fyrir næsta skammt.“
Leiðarahöfundurinn klykkir
síðan út með því að segja að-
þörf sé fyrir öflugt heimavam-
arlið gegn þjófnaðarfárinu