Alþýðublaðið - 10.02.1993, Qupperneq 3
Miðvikudaqur 10. febrúar 1993
3
ffeiff sé
þér, Eiður
Pjetur Hafstein Lárusson skrifar
Þriðjudaginn 9. febrúar síðastliðinn,
lét Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, sig
hafa það, að veitast harkalega að Eiði
Guðnasyni umhverfisráðherra, fyrir að
veita Magnúsi flokksbróður sínum
Jónssyni embætti veðurstofustjóra. Og
hann var ekkert að spara púðrið, rit-
stjórinn, heldur eyddi hann heilum
leiðara til að svala geðvonskunni.
Gerir maðurinn sér enga grein fyrir
því, hversu eðlilegt það er, að ráðherrar
setji sína menn yfir þær stofnanir sem
hvað mesta pólitíska þýðingu hafa?
Stefna núverandi eigenda Alþýðu-
flokksins hf. er ekki hvað síst fólgin í
því, að andskotast út í bændur og sjá til
þess, að sú stétt manna víki að sem
mestu leyti fyrir heildsölunt, enda sjálf-
sögð krafa, að þeir flytji inn matvæli
með sama hætti og sjónvarpstæki og
bíla. Heldur hefur gengið treglega að
koma þessari stefnu í framkvæmd,
enda eru margir svo ruglaðir, að gera
sér ekki grein fyrir þeim sannindum,
sem vor ástkæri og mikilhæfi leiðtogi,
„ Gerir maðurinn
sér enga grein
fyrirþví, hversu
eðlilegt það er,
að ráðherrar setji
sína menn yfir þœr
stofnanir sem
hvað mesta
pólitíska þýðingu
hafa?“
Jón Baldvin Hannibalsson, opinberaði
nýlega vestur á ísafirði, og eru í því
fólgin, að ísland er alls ekki þjóðríki,
heldur verstöð.
Nú þegar Alþýðuflokkurinn hf. ræð-
ur veðri og vindum, þarf ekki lengur að
pína Halldór Blöndal til að hrekja
bændur og búalið í verbúðirnar. Nei,
nú eru breyttir og betri tímar. Bændur
eiga allt sitt undir veðri og vindum og
nú verða náttúruöflin sjálf notuð til að
hrekja þá frá búum sínum. Gleymum
því ekki, að flokkamir ráða á landi hér
og ég trúi því ekki að óreyndu, að nú,
þegar veðurstofan er loks komin í
hendur góðs og gilds krata, muni flokk-
urinn ekki ráða veðrinu, líkt og hann
þegar stjómar Evrópupólitíkinni, bam-
eignafjölda og ýmsu öðm, sem áður
laut duttlungum örlaganna.
Heill sé þér, Eiður Guðnason, fyrir
stórmannlega ákvörðun!
Pjetur Hafstcin Lárusson
er skáld.
UMBÆTUR TIL ALMANNAHEILLA
- Verkefnin framundan -
Reykjavík
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra og Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra verða á opnum fundi í
Átthagasal Hótel Sögu, þriðiudaginn 16.
febrúar kl.20.30.
Fundarstjóri verður Össur Skarphéðins-
son formaður þingflokks Alþýðuflokksins.
Allir velkomnir
(Vinsamlegast athugið aö fundurinn er 16. en ekki 11. eins og áöur var auglýst)
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands
UMBÆTUR TIL ALMANNAHEILLA
- Verkefnin framundan -
Keflavík
fcfli tPIB Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- m jP^
herra og Karl Steinar Guðnason formað- Wm 1
ur fjárlaganefndar Alþingis veröa á Ei Z*:' ' M
opnum fundi í Glóðinni - Keflavík, í kvöld, WS& w* WA
miðvikudag 10. februar kl.20.30. feík ‘ “, ■
Allir velkomnir
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG GARÐABÆJAR
OG BESSASTAÐAHREPPS
OPINN FUNDUR MEÐ
SIGHVATI
Alþýðuflokksfélag Garðabæjar
og Bessastaðahreþps heldur
opinn félagsfund í kvöld,
miðvikudag 10. febrúar.
Fundurinn verður haldinn í
tónlistarstofu Garðaskóla og
hefst klukkan 20.30.
Gestur fundarins verður
Sighvatur Björgvinsson,
heibrigðis- og trygginga-
ráðherra.
JAFNAÐARMENN - FJÖLMENNUM!
ALLIR VELKOMNIR.
Stjórnin
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR
AÐALFUNDUR
Aöalfundur Alþýöuflokksfélags Reykjavíkur
veröur haldinn í kvöld, miðvikudag 10. febrú-
ar.
Fundurinn veröur í Rósinni - félagsmiöstöö
jafnaðarmanna í Reykjavík og hefst klukkan
20.30.
Á dagskrá verða venjuleg aöalfundrstörf.
JAFNAÐARMENN í REYKJAVÍK - FJÖLMENNUM!
Stjórnin.
PATREKSFIRÐINGAR
ATHUGID!
Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra og
Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður
verða með viðtalstíma á skrifstofu Patrekshrepps,
Aðalstræti 63, föstudaginn 12. febrúar frá kl. 17 til 19.
Pantið tíma í síma 1221.
Þau verða síðan á aimennum stjórnmálafundi um
kvöldið kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Alþýöuflokkurinn - Jafnaöarmannaflokkur íslands
UMBÆTUR
TIL ALMANNAHEILLA
- Verkefnin fromundnn -
Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra
og Rannveig Guðmundsdóttir
formaður félagsmálanefndar Alþingis,
verða á opnum fundi á Patreksfirði, föstudagskvöldið
12. febrúar kl. 20.30.
Allir velkomnir
Alþýöuflokkurinn
Jafnaóarmannaflokkur íslands