Alþýðublaðið - 10.02.1993, Page 4
Sfcreytingar við 'ótí tækifæri.
OpiÍíaíladayatiíkl.22
STEFANSBLOM
SKIPHOLTl 50 B — SlMAR 610771 & 10771
r Fréttir í hnots1{urn -i
Jón Baldvin og Pétur Sigurðsson á Isafirði
yilja samninga án átaka
ístendingar vinna við
viðgerðimar
„Niðurstaða ráðuneytisins varð því sú að veita leyfi fyrir þrjá útlendinga,
sem ásamt níu íslendingum, geri við skemmdir vegna foktjónanna sem urðu
20. desember og 11. janúar síðastliðinn. Leyfið gildir að hámarki í 28 daga
en skemur ef verklok verða fyrr“, sagði Óskar Hallgrímsson í félagsmála-
ráðuneytinu vegna ásakana iðnnema á Suðumesjum vegna atvinnuleyfa til
útlendinga. Óskar segir að framleiðandi flugskýlisins beri fjárhagslega
ábyrgð á skemmdunum. Hafi fyrirtækið óskað eftir að koma með 6 sérfræð-
inga. Veruleg hætta hafi verið talin á því að ef synjað yrði þessari beiðni
gæti framleiðandinn firrt sig ábyrgð á tjóninu. Var því veitt leyfi fyrir 3 út-
lendinga eins og fyrr greinir. Óskar segir að viðgerð þessi sé algjör forsenda
j þess að Flugleiðir hf. geti tekið skýlið í notkun. Við það skapist fjöldi nýrra
j starfa á Keflavíkurflugvelli. Óskar segir ennfremur að leyfið nái eingöngu
til viðgerða vegna foktjónanna, en gildi ekki við setningu nýs þaks sem fyr-
j irhugað er að setja á flugskýlið síðar á kostnað kanadíska framleiðandans,
! Matthews Contracting Inc.
Hvað náttúran gefur
Farandsýningin Hvað náttúran gefur sest að á Kjarvalsstöðum á laugar-
daginn kemur og verður þar til 7. mars. Er það síðasti viðkomustaður sýn-
ingarinnar sem hefur verið sett upp á öllum Norðurlöndunum frá því í ágúst
1991. Á sýningunni gefur að líta verk eftir 10 norræna listamenn, tvo frá j
hverju Norðurlandanna. Af íslands hálfu eru það þeir Jóhann Eyfells og
Gunnar Örn sem eiga verk á sýningunni. Sýningin er unnin í samvinnu 5
listasafna og Norrænu Bændasamtakanna. Eins og nafn sýningarinnar ber
nieð sér er hér um að ræða myndverk sem sýna náttúruna „og afurðir henn-
ar á svo umhugsunarverðan og aðlaðandi hátt að við gerum okkur Ijóst
i ómetanlegt gildi þeirra - fyrir okkur og framtíðina", eins og segir í sýningar-
j skrá. Sýningin er opin daglega ffá 10 til 18.
Fordœma árás á Íra1{
„Persaflóastríðið og viðskiptaþvinganir í kjölfar þess hafa þegar leitt til
j dauða yfir 300 þúsunda óbreyttra borgara í lrak“, segir Miðnefnd Samtaka
I herstöðvaandstæðinga, sem fordæmir árás Bandaríkjahers og bandamanna
hans á írak. Segir miðnefndin slíkt í algerri andstöðu við grundvallarsátt-
í: mála Sameinuðu þjóðanna og siðferðisvitund almennings í heiminum. Er
: þess krafist að ríkisstjóm íslands beiti áhrifum sínum til að loftárásum og |
j: viðskiptaþvingunum sem beinast fyrst og fremst gegn saklausum borgurum ;
í írak verði tafarlaust hætt. Þá er þess krafist að Island verði „aldrei framar
; notað sem skotpallur til árása á fólk", eins og segir í ályktun herstöðvaand-
;j stæðinga.
Hvað er 1{ristið siðferði?
; Bústaðakirkja efnir til fyrirlestraraðar um grundvallaratriði kristins siðferð-
is, fimm fyrirlestrar Dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar, aðstoðarprests. Fyr-
irlestramir Ijalla um efni boðorðanna tíu og leitast verður við að nálgast
spuminguna um „rétta“ siðferðilega hegðun í ljósi þeirra. Boðið er upp á
umræður yfir kaffibolla að loknum fyrirlestrunum. Fyrsti fyrirlesturinn er í
kvöld. Hann heitir „Em boðorðin tíu - reglur mannlegs lífs?
Á fjölmennum fundi sem Alþýðu-
flokkurinn stóð fvrir á Hótel Isafirði
um helgina sagði Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra að
ríkisstjórnin hefði rætt mikið við að-
ila vinnumarkaðarins á undanförn-
um mánuðum og hún væri alltaf til-
búin til viðræðna. Hann vísaði á bug
ýmsum fullyrðingum, frá nýkjörinni
forystu ASÍ, um að ríkisstjórnin
hefði rofið þjóðarsátt með aðgerðum
sínum á undanförnum misserum.
Jón Baldvin sagði að meginmarkmið
aðgerðanna hafi verið að koma í veg
fyrir fjöldaatvinnuleysi í landinu. Ef
ekki hefði verið gripið til þeirra væri
atvinnuleysi miklu meira en nú er.
Hann sagði jafnframt að ríkisstjórn-
in og ASI hefðu verið sammála um
margar af þeim aðgerðum sem grip-
ið var til. Hins vegar hefði ekki verið
hleypa af fyrsta skotinu í komandi
kjarabaráttu, eins og gefið hefur verið í
skyn“, sagði Pétur Sigurðsson í ræðu
sinni. Það er því ljóst að það virðist
vera vilji hjá ráðherrum Alþýðuflokks-
ins og ýmsum forystumönnum innan
verkalýðshreyfingarinnar . að leysa
kjaramálin með friðsamlegum hætti og
að átök á vinnumarkaði sé ekki það
sem íslenska þjóðin þarfnast.
Auk Jóns Baldvins flutti Rannveig
Guðmundsdóttir alþingismaður fram-
söguræðu á fundinum á Isafirði, sem er
liður í fundaherferð Alþýðuflokksins
um þessarmundir. Rannveig varaði við
átökum á vinnumarkaði og taldi nauð-
synlegt að menn færu að ræða saman
sem fyrst.
Hún gerði atvinnumálin að sínu
megin umfjöllunarefni og sagði að
ótrúlega miklum fjánnunum hefði ver-
ið sóað í óarðbærar fjárfestingar á und-
anfömum árum og það þyrfti því að
taka með markvissari hætti á allri ný-
sköpun í atvinnulífinu.
Jón Baldvin á fundinum á ísafirði
Pétur Sigurðsson:
„Ef ríkisstjórnin tekur frumkvæðið
þá mun verkalýðshreyfingin
ekki hleypa af fyrsta skotinu
í komandi kjarabaráttu,
eins og gefið hefur verið í skyn“.
Sveinbjörn Björnsson, háskólarektor
Námsmenn með lélegan
grunn fjölmennari en fyrr
- verulegur kostnaður afjyrsta árs nemum, sem ekki eiga
raunverulegt erindi, segir rektor, og segir Háskólann með-
mœltan áfangaskýrslu nefndar um mótun menntastefnu
Námsmönnum með lélegri undir-
búning hefur fjölgað. Sundurleitni
ncmendahópsins á fyrsta námsári
veldur ýmsum erfiðleikum í kennslu
og mönnum er Ijóst að töluverður
kostnaður hlýst af nemendum á fyrs-
ta ári, sem eiga þangað ekki raun-
verulegt erindi. Þetta sagði Svein-
björn Björnsson, háskólarektor, í
ræðu sinni á Háskólahátíð á laugar-
dag.
Rektor benti í ræðu sinni á að stúd-
entspróf væru ýmissar gerðar, fjöl-
breytileg og samræmi milli skóla lítið.
Góðir námsmenn væru nú fjölmennari
en fyrr og betur undir námið búnir en
áður, - en hinn hópurinn, námsmenn
með lélegan undirbúning hefði einnig
stækkað.
„Frá sjónarhóli Háskólans væri
æskilegast að stúdentspróf yrði sam-
ræmt í mikilvægustu greinum þess til
að auðvelda framhaldsskólum að meta
árangur stúdenta að verðleikum," sagði
háskólarektor en benti jafiiframt á að
framhaldsskólar hafa fleiri markmið en
að búa nemendur undir stúdentspróf og
háskólanám.
Kom rektor inn á nýútkomna
áfangaskýrslu nefndar um mótun
menntastefnu, sem menntamálaráð-
herra skipaði til að endurskoða lög um
grunnskóla og framhaldsskóla. „Til-
lögur nefndarinnar eru mjög athyglis-
verðar", sagði Sveinbjöm, „og gefa til-
efni til frjórrar umræðu um bætt skóla-
starf‘. Sagði rektor að nefndin gagn-
rýndi réttilega að á síðustu árum hefði
verið lögð mjög einhliða áhersla á al-
mennt bóknám á kostnað verklegs
náms og starfsnáms á framhaldsskóla-
stigi.
Virðist svo sem keppikefli íslenskra
unglinga sé stúdentspróf af bóknáms-
brautum. Þetta sé ólíkt því sem er í öðr-
um löndum þar sem um 70% nemenda
lýkur starfsmenntun.
Sveinbjöm Bjömsson sagði í ræðu
sinni að Háskólinn hefði enga trú á
áætlunum sem vaijiað hefur verið fram
og ganga út á að takmarkaður fjöldi
nemenda verði tekinn til háskólanáms,
miðaður við áætlaðar þarfir þjóðarinn-
ar fyrir hverja grein háskólamenntunar.
„Háskólinn hefur enga trú á slfkum
áætlunum og vill ekki beita sér fyrir
takmörkunum á grunni þeirra. Þvert á
móti hefur það sýnt sig að háskóla-
menntaðir menn eiga auðveldara með
að laga sig að breyttum aðstæðum og
finna störf við hæfi, en þeir sem
skemmri menntun hafa“, sagði Svein-
bjöm Bjömsson háskólarektor.
samkomuiag innan verkalýðshreyf-
ingarinnar né hjá stjórnarflokkun-
um um allar þær aðgerðir sem væru
nauðsynlegar.
Pétur Sigurðsson forseti ASV tók
þátt í umræðum að loknum framsögu-
ræðum, og sagði hann það rétt hjá Jóni
Baldvin að margt af því sem ríkis-
stjómin hefði verið að gera væri einnig
að finna í tiilögum ASI, en þó vantaði
ýmislegt uppá. Hann sagði að verka-
lýðshreyfingin væri tilbúin í aðra þjóð-
arsátt, eins og þá sem gerð var árið
1990, ef ríkisstjómin væri tilbúin til að
taka frumkvæðið, þó ekki væri nema til
þess að hefja viðræður.
„Ef ríkisstjómin tekur fmmkvæðið
þá mun verkalýðshreyfingin ekki
UMBÆTUR TIL ALMANNAHEILLA
Kópavogur
Jón Sigurösson iönaöar- viöskipta-
ráöherra og Rannveig Guömundsdóttir
formaöur félagsmálanefndar Alþingis,
veröa á opnum fundi í Félagsmiöstöö
jafnaðarmanna - Hamraborg 14a, í kvöld,
miðvikudag 10. febrúar kl.20.30.
Allir velkomnir
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands