Alþýðublaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 4
+ flNIIIIIÍIÍIIIII fi útrýmingcarhættu ✓ -segir Arni Finnsson hjá Greenpeace um eitt áfallið enn sem samtökin urðu fyrir með sjónvarpsþœttinum Svar Direkt POIAR RAFGEYMAR 618401 POIAR RAFGEYMAR 618401 „Við þurftum að taka á þess- um málum á þennan hátt, það var okkar mat þá. Við þurftum að taka á málinu af hörku. Hins- vegar er erfitt að meta þessar aðgerðir eftir á og ég held að Greenpeace muni aldrei biðja Isiendinga afsökunar á einu eða neinu“, sagði Ami Finnsson, fulltrúi á skrifstofum Green- peace-samtakanna í viðtali við Alþýðublaðið í gær. Utanríkis- ráðherra líkti Greenpeace við „efnahagslega hryðjuverka- menn“, menn með tvöfalt sið- gæði, í þættinum í sænska sjón- varpinu, en sýning þess þáttar í ríkissjónvarpinu í fyrrakvöld vakti þjóðarathygli og verður vart til þess að brúa það bil sem myndast hefur milli Islendinga og grænfriðunga, þrátt fyrir mörg góð mál sem samtökin vinna að. Engin útrýmingarhætta - engin afsókun Blaðið spurði Áma hvort samtökin ættu ekki að biðjast afsökunar á ýmsum aðgerðum gegn íslenskum hagsmunum, sem nú virðast hafa verið unnar án sýnilegs tilgangs. Eins og blaðið hefur greint frá gátu grænfriðungar ekki fullyrt að hvalategundir við Island og Noreg væru í útrýmingarhættu. Raunar var það staðfest af vís- indamanni hliðhollum Green- peace í sænska sjónvarpinu að svo væri ekki. „Eg tel ekki að Greenpeace eigi að biðjast afsökunar, ég reikna ekki heldur með að utan- ríkisráðherra íslands geri það heldur að biðjast afsökunar á ummælum sínum í okkar garð“. Á árunum 1987 og 1988 sóttu Greenpeacemenn í Þýskalandi, Bretlandi og í Bandaríkjunum mjög hart gegn íslenskum við- skiptahagsmunum, eins og kunnugt er. Efnt var lil ýmissa aðgerða sem naumast verða flokkaðar sem „friðsamlegar “, en ein af þremur gmndvallar- reglum samtakanna er þessi: Greenpeace beita einungis frið- samlegum aðgerðum og hafna árásum á eignir eða einstak- linga. Vera kann að ekki séu allir sammála um að aðgerðim- ar á síðasta áratug falli algjör- lega innan þessa ramma. Aróður sem hefur heppnast Á þessum ámm var stöðug- um árásum haldið uppi á Island og íslenska hagsmuni. Meðal „hrekkjabragða" grænfriðunga má nefna að í Þýskalandi létu þeir prenta símanúmer sendi- ráðs Islands í Bonn í öll blöð og tímarit og reyndu þannig að lama starfsemi sendiráðsins og undirbúning að opinbem heim- sókn forseta Islands. í Þýska- landi, Bandaríkjunum og í Bret- landi reyndu grænfriðungar að fá fólk til að hafna íslenskum vömm í verslunum, og ótal- margt annað var reynt til að sverta hvalveiðiþjóðina fsland í hugum almennings. Hafa marg- ir Islendingar upplifað það á er- lendri gmnd að áróður samtak- anna hefur heppnast, enda þekkja sumir útlendingar ís- lendinga helst fyrir það að „drepa hvali“. En það þýðir ekki að berja höfðinu við steininn. Green- peace hafði á þessum árum bet- ur í áróðursstrfðinu, enda þótt málstaðurinn hafi nú sannan- lega verið afar veikur. Einmitt 1988 voru samtökin sæmd GLOBAL 500-verðlaunum sjálfrar Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna og voru að áliti þeirrar stofnunar „þau alþjóðlegu umhverfissamtök, óháð ríkisstjómum, sem hvað fremst standa". Á þessum ámm átti Greenpeace greiða leið að hjarta fólks í iðnríkjunum, sem vissi fátt eða ekkert um lífsbar- áttuna á norðurhjara hcimsins. Þess vegna má sjá áróður frá Greenpeace í kennslustofum í bandarískum skólum enn í dag. Islendingar og verndun riskistoTna Ámi Finnsson sagði að það mætti alltaf ræða það eftir á hvað vel var gert og hvað ekki. Þannig væri það með þessar að- gerðir, sem hafi þótt sjálfsagðar og nauðsynlegar á sínum tíma. Hann viðurkenndi að talsvert virtist vera af hrefnu og jafnvel langreyði fyrir Kristján Lofts- son í Hval hf. á höfunum við Is- land. Hinsvegar væri varla hægt að hæla Islendingum sérstak- lega fyrir vemdun fiskistofna og nægði þar að benda á hrun þorskstofnsins. „Að ýmsu leyti hafa íslend- ingar vissulega staðið sig allvel í að vemda fiskinn í sjónum. Betur en mörgum þjóðum öðr- um. en það er eins og að þorsk- urinn hafi verið friðaður á sín- um tíma fyrst og fremst fyrir út- lendingununt. Ég veit heldur ekki beturen að íslendingarhafi átt sinn stóra þált í að síldar- stofnar hmndu héma á ámn- um“, sagði Ámi. Alíslenskur orðrómur Ámi Finnsson hafnaði algjör- lega í viðtalinu í gær að Green- peace nyti styrkja frá bandarísk- um og frönskum kjötframleið- endum, sem óttast samkeppnina við sjávarfangið. „Þetta er orðrómur sem hvergi gæti þrif- ist nema á íslandi. Þetta er endemis rugl. Það væri nær að skrifa unt norska rikið, sem leggurfram lOmilljónirnorskra króna fyrir kynningarfyrirtæki í Bandaríkjunum í því skyni að réttlæta hvalveiðar sínar“, sagði Ámi. „Samtökin okkar hafa í rauninni ekki mikið fé handa á milli miðað við ríkar þjóðir og moldrík fyrirtæki". Röng kaka á sjónvarps- skjánúm Ámi segir að skífurit eða kökumynd sú sem sýnd var í lok sjónvarpsþáttarins í sænska sjónvarpinu hafi verið röng. Þessi mynd var að vísu úr blaði samtakanna frá í fyrra, en text- inn við geira skífuritsins hafi þar misfarist. Sievert Öholm, stjómandi þáttarins hafi reiknað rangt út frá þessum upplýsing- um, ekki hvað síst stjómunar- kostnaðinn. I stjómunarkostn- aði er innifaldar 3,3 milljónir s.kr. sem fara f framleiðslu á vömm og bókum, vömr sem gefa 4,1 milljón í tekjur. Mikill hluti þess sem í þættinum var talið til stjómunarkostnaðar er í raun kostnaður af upplýsinga- efni og jtjónustu við stuðnings- menn Greenpeace. Þá bendir Ámi á að það fé sem Svíar senda alþjóðasamtökunum, rúmar 7 milljónir sænskra króna, fari í að reka skip sam- takanna og skrifstofur í S-Am- eríku og A-Evrópu. Góðu málin hjá Greenpeace En Greenpeace er síður en svo alvond samtök. Þau hafa gert mistök eins og nú hefur komið í Ijós. En þau hafa líka unnið að öðrum málum, mikil- vægari, sem að vísu höfða ekki eins sterkt inn á tilfinningasvið manna, og gefa færri krónur í kassann þar af leiðandi. Hér er átt við baráttuna við að vernda umhverfi okkar gegn mengun af völdum eiturefna og kjamorku. Þau efni koma einmitt frá iðn- ríkjunum sem ekki skilja lífs- baráttu norðurhjarans. „Ég held að Islendingar ættu að gera sér grein fyrir því að ef okkur tekst ekki að koma í veg fyrir stórkostlega mengun haf- anna, þá er ekki víst að fisk- stofnamir við landið þrífist Iengi“, sagði Ámi. Og rétt er það, Greenpeace hefur barist hetjulega í þessari viðleitni sinni, nú síðast við strendur Rússlands, eins og menn þekkja af fréttum. I gær barst blaðinu líka ný frétt frá Greenpeace í Þýska- landi, þar sem menn hafa unnið hörðum höndum að því að framleiða ósonvinsamlega kæliskápa, en sú framleiðsla er verk samtakanna og hófst fyrir ári síðan. Segja má að Green- peace hafi hér náð lofsamlegu fmmkvæði þvf á umhverfisráð- stefnunni í Kaupmannahöfn í fyrra var lagt bann við notkun hættulegra HCFC-efna frá árinu 2030. Þessa dagana eru allir helstu framleiðendur ísskápa með nýja framleiðslu á alþjóð- legri vörusýningu í Köln, þar sem notaðar eru própan og bút- an gastegundir eins og Green- peace reyndi í fyrra í samvinnu - við austur-þýskan ísskápafram- leiðanda með góðum árangri. I ljós hefur kornið að eiturefna er ekki þörf til kælingar og fryst- ingar í heimahúsum. Ekki í útrýmingarhættu Ahnennl mun talið, bæði hér á landi og í Svíþjóð að Green- peace sé í vondum málum eftir þennan sjónvarpsþátt. Við spurðum Áma að lokum hvort Greenpeace kynni að vera í nokkurri útrýmingarhættu. „Tæpast“, var svar Áma Finnssonar, stutt og laggott, við þeirri spumingu. étk€€K?eACG' -Rauö áskriftarröö- Háskólabíói fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20.00 Hljómsveitorstjóri: Edward Serov Einleikari: Rivka Golani EFNISSKRÁ: Nikolaj Rimskij-Korsakov: Saltan konungui I Alfred Schnittke: Konsert fyrir lágfiðlu Felix Mendelssohn: Sinfónía nr. 3 op 56 í a moll „Skoska" SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS Háskólabiói viö Hagatorg. Sími 622255. Greiöslukortaþjónusta. AÐGERÐIR GEGN ATVINNULEYSI! OPINN FUNDUR HAFNARFJÖRÐUR Samband ungra jafnaðarmanna boðar til opins fundar næstkomandi laugardag (20. febrúar) klukkan 14:00. Fundurinn verður haldinn í Alþýðuhúsinu við Strandgötu í Hafnarfírði. ALLIR VELKOMNIR! FRAMSÖGUMENN: (fuSmundur Árni StcTánsson - bæjarstjóri í Hafnarfirði Bjarnfreður Ármannsson - formaður samtaka um skynsamlega nýtingu fiskvciðiliigsögu Islendinga FUNDARSTJÓRI: Magnús Árni Magnússon - varaformaður Sambands ungra jafnaðarmanna

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.