Alþýðublaðið - 02.03.1993, Síða 1
I!
»
»
»
»
»
»
»
STJÓRNIN
Verðkönnun á fiski
Soðninqin
er misclýr
..
Á UPPLEIÐ
Stjórnarflokkarnir bœta heldur við sig fylgi og stuðningur við
/
ríkisstjórnina fer vaxandi samkvœmt könnun Gallup á Islandi
Fylgi við ríkisstjórnina
hefur verið að aukast frá því í
desember úr 28,7% í 33,1% ef
marka má niðurstöður kön-
nunar sem Þjóðarpúlsinn
Gallup á íslandi birti í gær.
Samkvæmt könnun sem var
gerð í lok febrúar styðja 9,5%
Alþýðuflokkinn, 31,2%
Sjálfstæðisflokkinn, 24,4%
Framsóknarflokkinn, 19,4%
Alþýðubandalagið og 14,8%
Kvennalistann.
Gallup hefur gert mánaðar-
legar kannanir um fylgi flokk-
anna að undanfömu og sam-
kvæmt þeim var Alþýðuflokk-
urinn lengst af seinni hluta
síðasta árs með 11-12% fylgi en
fór niður í 9,1% í janúar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
mælst með 29-32% fylgi frá því
í ágúst á síðasta ári.
Framsóknarflokkurinn hefur
hins vegar heldur verið að dala
síðustu mánuði frá því að fylgi
hans mældist 27,7% í nóvember
en nú 24,2%. Alþýðubandala-
gið hefur hins vegar heldur
verið að bæta við sig fylgi sam-
kvæmt Gallup frá því í lok
síðasta árs. Kvennalistinn
mældist með mest fylgi í janúar,
16,1%, en lækkaði niður í
14,8% í febrúar. Fylgi annara er
hverfandi lítið.
Fylgi við ríkisstjómina var í
desember á síðasta ári 28,7%,
30,6% f janúar og var komið
upp í 33,1% í febrúar. Sam-
kvæmt því hefur stuðningur við
-verð á nýjum fiski hefur hækkað um 3%
frá því í september 1991
ríkistjómina aukist um 4,4% frá
því fyrir áramót.
Urtak Gallup-könnunarinnar
var 1.200 manns og fór könn-
unin fram í lok febrúar.
Steinbíturinn er misdýrasti
fiskurinn hér á landi sam-
kvæmt verðkönnun Verðlags-
stofnunar. A höfuðborgar-
svæðinu kostaði steinbíturinn
út úr búð frá kr. 180 upp í kr.
390 á kíló en á landsbyggðinni
frá 81 kr. tii 385 króna hvert
kíló. Verðmunurinn er 117%
á höfuðborgarsvæðinu en
375% utan þess.
Almennt var verðmunurinn á
fiski meiri út á landi. Meðalverð
þar var í flestum tilvikum lægra
en á höfuðborgarsvæðinu.
Þannig var meðalverð á ýsu og
ýsuflökum 13-18% hærra á höf-
uðborgarsvæðinu en utan þess
og stórlúðan 35% dýrari.
Saltaðar kinnar og reykt
ýsuflök vom að meðaltali dýrari
úti á landi en meðalverð á rauð-
sprettu, heilli með haus, var það
sama.
Verðlagsstofnun gerði sam-
bærilega könnun í september
árið 1991 og hefur meðalverð á
nýjum fiski hækkað frá þeim
tíma um 3% og er það sama
hækkun og á ftskverði í fram-
færsluvísitölunni.
Vorboði í fiskbúð
Rauðmaginn er kominn f fisk-
búðimar, enda farið að líða á
góuna. Mörgum finnst það Ijúfur
vorboði. Hann Bjami Þór Olafs-
son hjá Fiskbúð Hafliða við
1 Uemmtorg sýndi okkur góðgæt-
ið í gær. Rauðmaginn kostar núna
150 krónur heill, en 550 kr. kílóið
hreinsaður.
.1 LA i • 111 1111 ai*y-p-1
mmm