Alþýðublaðið - 04.03.1993, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 04.03.1993, Qupperneq 4
4 Fimmtuagur 4. mars 1993 FRR FRTflEKRRFRRMFRERSLU Tll RIMRNNRTRVGGINGR Gluggað í bók Gils Guðmundssonar um hálfrar aldar sögu Tryggingastofnunar ríkisins og þróun alþýðutrygginga á Islandi Ingólfur Margeirsson tók saman „Við lestur þessa rits verður Ijóst, að alþýðutryggingar hafa í senn verið öfl- ugt tæki til jöfnunar lífskjara með þjóð- inni auk þess að vera trygging gegn al- gjörum skorti og bjargarleysi þeirra sem þjóðfélag okkar mynda.“ Þannig kemst Eggert G. Þorsteinsson forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins að orði í formála að veglegri bók sem geymir hálfrar aldar sögu stofnunarinn- ar. Bókin sem ber heitið Almannatrygg- ingar á íslandi cr tekin saman af Gils Guðmundssyni. í ritnefnd verksins hafa átt sæti dr. Gylfi Þ. Gíslason f.v. ráð- herra, Haraldur Olafsson dósent og OI- afur G. Einarsson menntamálaráð- herra. Útgefandi er Tryggingastofnun ríkisins. Almannatryggingar á íslandi er vel skrifuð og merk heimild um þróun trygg- ingamála hér á landi allt frá framfærslu fá- tækra manna og vanheilla á þjóðveldisöld til almannatrygginga nútímans. Eggert G. Þorsteinsson bendir réttilega á í formála, að endanleg og tæmandi lýsing á öllum breytingum laganna, fyrst alþýðutrygging- um og síðar almannatryggingum, verði e.t.v. aldrei samin. „Sjálf löggjöfin er þess eðlis að samtíðin og efnahagsmál þjóðfé- lagsins kalla sífellt á breytingar með mis- jafnlega löngu eða stuttu millibili. Eigi ósjaldan hafa kjarasamningar á vinnu- markaði haft úrslitaáhrif á breytingar á lög- unum,“ segir Eggert. Hrepparnir og fátækraframfærið Gils Guðmundsson segir í upphafí bókar sinnar, að það sé athyglisvert að hér á landi var fátækraframfærið ekki á vegum kirkju og presta, eins og tíðkaðist víðast hvar í kristnum löndum, heldur var framkvæmd- in falin hreppunum. Hreppamir voru með öðrum orðum orðnir sérstök framfærslu- héruð. „Hver hreppur var sjálfstætt fram- færsluumdæmi. Samkvæmt fomum lögum hvíldi þó framfærsluskyldan fyrst og fremst á ættinni, og framfærsluskylda hreppsins kom því aðeins til greina, að ætt- ina þryti að inna hana af höndum. Ekki var þó framfærsluskylda hreppsins skilyrðis- laus þegar ættina þraut, heldur var landinu jafnframt skipt í önnur stærri framfærslu- umdæmi eftir þingsóknum og fjórðungum, en landið allt var framfærsluskylt, þegar sérslaklega stóð á,“ ritar Gils. Höfundur ræðir ýmsa agnúa frænda- framfærslunnar. Hún var einkar óvinsæl er kom til kasta fjarskyldari ættmenna og reyndu menn í lengstu lög að skjóta sér undan henni. Enda em um ekkert efni jafn- margir dómar til heima í héruðum eins og frændaframfærslur. Ef frændaframfærslan brást að hálfu ættarinnar, féll hún á al- menning; hreppinn eða hin stærri fram- færsluumdæmi. Slíkir ómagar fengu ýmis- leg kunnugleg heiti eins og hreppsómagar, þingsómagar, fjórðungsómagar eða lands- ómagar. Gils segir í bók sinni að ákvæði Jóns- bókar um fátækraframfærslu hafi haldist óbreytt í meginatriðum til 1782 og sum lengur. Það er afar fróðlegt að lesa um ómagaframfærsluna og lífsskilyrði ómag- anna. Þetta var hrakningasöm ævi og mis- jöfn, „allt eftir skapsmunum og innræti húsbændanna," eins og bókarhöfundur kemst að orði. Hreppaflutningar og förumennska Eftír að Magnús Stephensen konferens- ráð komst til áhrifa og valda í lok 18. aldar, tók hann að beita sér fyrir endurbótum á fá- tækralöggjöfinni. Að tilstuðlan Magnúsar gáfu dönsk yfirvöld út Islands hreppstjóra- instrux, þar sem öll förumennska og lausa- mennska er algjörlega bönnuð. Reglugerð- in fyrirskipaði einnig mun meira eftirlit ~"?ð ómögunum og meðferð á þeim. Arið 1815 samdi Magnús Stephensen frumvarp um fátækramál á Islandi. Það mál velktist lengi milli íslenskra og danskra embættismanna. Það var ekki fyrr en árið 1834 sem konungur gaf loks út Reglugerð fyrir fátækramála lögun og stjóm fyrst um sinn á Islandi. Aðalhöfund- ur hennar var Bjami Thorsteinsson amt- maður. Fátækralöggjöfin frá 1834 var fyrsta heildarlöggjöf um fátækramálefni frá því Jónsbókarlög voru sett. Aðalatriðin í þessari reglugerð voru að framfærslu- skylda ættarinnar náði aðeins til foreldra með böm á framfæri og uppkomin böm með foreldra á framfæri. Þurfamenn skyldu teljast þeir fátækir sem ekki gátu séð sér og sínum farborða á löglegan hátt. Nýjar skilgreiningar voru gerðar á sveit- föstum mönnum og hveju sveitarfélagi var gert að vera sérstakt framfærsluumdæmi. Hreppstjóri annaðist stjóm framfærslu- mála í hreppnum í samráði við sóknarprest. Haraldur Guðmundsson, fyrsti ráðherra Alþýðuflokksins, var atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Hermanns Jónassonar sem mynduð var 1934. Sem atvinnumálaráðherra lét hann semja frumvarp um alþýðutryggingar sem telja verður eitt mesta framfaraspor sem stigið hefur verið í félags- málum á íslandi. Haraldur varð síðar forstjóri Tryggingastofnunar og gegndi þeirri stöðu í nítján ár, frá 1938 - 1957. baki styrkþarfar þurfamanna. „Öllum sem þiggja sveitastyrk er slengt saman. Afleið- ingamar eru hinar söntu fyrir þá er verða þurfandi fyrir slys eða veikindi og óráðs- mennina, letingjana og drykkjuhrútana, sem standa jafnvel á lægra stigi í siðferðis- legu tilliti en margur afbrotamaður," skrif- aði Páll í Andvara. Hin nýju sjónarmið ásamt ömm breyt- ingum á þjóðfélagsþáttum knúðu á um breytingar á fátækralöggjöfinni. Milli- þinganefnd í fátækramálum undir forystu Páls Briem tók til starfa 1902. Milliþinga- nefndin framkvæmdi umfangsmestu rann- sókn sem fram til þess tíma hafði verið gerð á stöðu og högum fátæks fólks og þurfamanna á Islandi. Af starfi hennar spratt löggjöf sem réði bót á nokkrum göll- um framfærslumála. Gfsli Agúst Gíslason sagnfræðingur segir um störf milliþinga- nefndarinnar; „Þótt fátækralögin sent Al- þingi afgreiddi 1905, fælu ekki í sér neina stökkbreytingu frá fyrri lögum um þetta efni, átti starf milliþinganefndarinnar ugg- laust mikinn þátt í að móta mannúðleg við- horf í garð þurfamanna, auka skilning á stöðu þeirra og högum og mikilvægi fé- lagsmálalöggjafar fyrir þjóðarheildina. Starf nefndarinnar vísaði einnig frant á veginn og hafði árið 1907 leitt fátækramál- in á þá braut sem fylgt hefur verið sfðan.“ Alþýðuflokkurinn boðar nýtt viðhorf Bók Gils Guðmundssonar um hálfrar aldar sögu Tryggingastofnunar ríkisins nær í raun yfir alla sögu framfærslu fá- tækra manna og þurfamanna á íslandi. Hin samfellda saga bregður skýru ljósi á þá fé- lagslegu þróun sem átt hefur sér stað á Is- landi gegnum aldimar. Það er fyrst og fremst á þessari öld sem veigamiklar breyt- ingareiga sér stað til almannaheilla. Jörundur Brynjólfsson sem var nýkjör- inn á þing að hálfu Alþýðuflokksins flutti árið 1917 tillögu til þingsályktunar sem gerði ráð fyrir töluverðum umbótum á framfærslulögunum frá 1907. Alþýðuflokkurinn beitti sér flokka harð- ast fyrir endurbótum á fátækralöggjöfinni. Eggert G. Þorsteinsson hefur verið forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins frá árinu 1979. Reglugerðin frá 1834 hafði að geyma ákvæði um hina alræmdu hreppaflutninga. Hreppaflutningur þýddi að ef maður varð bjargþrota í öðru sveitarfélagi en þar sem hann átti sveitfesti, skyldu hreppstjórar sjá um að sá hinn sami væri sendur heim á framfærslusveit. Hreppaflutningar voru ósjaldan framkvæmdir af mikilli hörku og eru sumar sagnir um þá ófagrar. Hin nýja reglugerð mildaði um margt grimmd fram- kvæmda hreppaflutninganna. Drykkjuhrútar og letingjar Fátækralöggjöfin var sífellt til umræðu á hverju þingi. Þingsályktunartillögur voru fluttar um skipun milliþinganefndar í fá- tækramálum sem skyldi taka reglugerðina frá 1834 til endurskoðunar og semja nýja heildarlöggjöf um þau mál. Árið 1889 birtist í Andvara ritgerð eftir Pál Briem sem boðaði ný viðhorf á sviði fátækralöggjafar. Páll benti á að taka yrði fullt tillit til þeirra aðstæðna sem lægju að Frá grciðslu bóta almannatrygginga í Sjúkrasamlagi Reykjavíkur 1953.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.