Alþýðublaðið - 07.05.1993, Blaðsíða 12
L#TT#
I. ..alltaf á miðvikudögum
MMBUBLMÐ
L#TT#
alltaf á miðvikudögiun
Föstudagur 7. maí 1993
68. TOLUBLAÐ - 74 ARGANGUR
Landspítalinn
Samið við hjúkrunarfræðinga
Hafafrest til 11. maí til að skrifa undir nýjan ráðningarsamning
Bœjarráð Hafnaifjarðar
Hvalveiðar
hef jist nú
þegar
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða í gær
stuðningsyfirlýsingu við stefnu stjórnvalda í hvalveiðimál-
uin þess efnis að nýta beri sjávarspendýr eins og aðrar
náttúruauðlindir og að hvalveiðar hefjist nú þegar. Alykt-
un fundarins hljóðar svo:
„Bæjarráð Hafnarfjarðar styður þá stefnu íslenskra stjóm-
valda að nýta beri sjávarspendýr eins og aðrar náttúruauðlind-
ir, enda sé tekið fullt tillit til umhverfís- og friðunarsjónarmiða
sem byggð eru á vísindalegum rökum.
Bæjarráð samþykkir að beina þeirri áskorun til sjávarútvegs-
ráðherra að beita sér fyrir því að hvalveiðar hefjist nú þegar.“
✓
Hvalavinafélag Islands
Hvalveiðar
ósiðlegar
„Langmestur hluti vestrænna ríkja líta á hvalveiðar sem
ósiðlegar athafnir sem leggja beri strax niður af útrýming-
ar, mannúðar- og siðferðisástæðum“, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Hvalavinafélagi Islands í tilefni af ársfundi Al-
þjóðahvalveiðiráðsins sem haldinn verður í Japan í næstu
viku.
Reyndar segja hvalavinir að tilefnið sé jafnframt vanhugsað-
ar yfírlýsingar sjávarútvegsráðherra í hvalveiðimálum. Þeir
segja að „saga hvalveiða mannkynsins sé samfelld og blóðug
saga útrýmingar hvalastofna hér við land sem annars staðar.
Þess vegna finnst flestu hugsandi og kærleiksríku fólki í ver-
öldinni nóg komið af þessari helför risa hafsins og vilja því
stöðva allar hvalveiðar heimsins strax, án tillits til undirhvaða
yfirskyni veiðimenn telja nauðsynlegt að slátra hvölum heims-
ins“.
Þá segir m.a. í yfirlýsingu hvalavina: „Það mun aldrei verða
nokkur friður við heimsbyggðina ef við hefjum hinar þjáning-
armiklu hvalveiðar aftur eins og talsmenn hagsmunasamtaka
heimta í sífellu af landsfeðrunum." Það er semsagt ljótt að
veiða hval að áliti hvalavina.
Fyrsti verkfræð-
ingur lcmdsins
Það eru ekki nema 100 ár síðan að fyrsti verkfræðingurinn
var ráðinn til starfa hér á landi. Verkfræðingur íslands varð síð-
ar landsverkfræðingur og var það embætti við -lýði allt til árs-
ins 1917. Sigurður Thoroddsen varfyrsti landsverkfræðingur-
inn en hann var jafnframt fyrstur íslendinga til að Ijúka prófí í
verkfræði. Sigurður gegndi embætti til 1904 en tók þá við starfi
kennara við lærða skólann svokallaða í Reykjavík. Sfðar tóku
við Jón Þorláksson sfðar forsætisráðherra og Thorvald Krabbe.
Verkfræðingafélag íslands opnar sýningu á laugardag í Há-
skólabíói í tilefni áfangans. Opið á virkum dögum frá 9 til
16.30 en á laugardögum og sunnudögum frá 12 til 14.30, - bíó-
gestir geta hinsvegar skoðað sýninguna á öðrum tímum.
Samkomulag hefur nú náðst milli
hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra
og stjórnenda Landspítalans um
leiðréttingu á launakjörum. Upp-
sagnir hjúkrunarfræðinga og Ijós-
mæðra tóku í raun gildi 1. febrúar
síðastliðinn, en starfsfólkið féllst á að
halda áfram störfum og var sér-
stakri nefnd falið að finna lausn á
kjaradeilunni.
Nefndin hefur fundað stíft undan-
famar vikur, en árangurinn stóð á sér
þannig að starfsfólkið hótaði að láta
uppsagnimar taka gildi þann 1. maí sl.
A miðvikudagskvöld sættust síðan
hjúkmnarfræðingar og ljósmæður á til-
boð samninganefndar Landspítalans,
en ekki hefur verið gefið upp í hverju
sú lausn nákvæmlega felst.
Ekki er ljóst hvort allt starfsfólkið
sem sendi inn uppsagnarbréf í haust
kemur aftur til vinnu, en það hefur nú
fengið frest til 11. maí til að draga upp-
sagnir sínar til baka og skrifa undir nýj-
an ráðningarsamning. Samkvæmt upp-
lýsingum Alþýðublaðsins hafa hjúkr-
unarfræðingar og ljósmæður á Land-
spítalanum nú fengið þá leiðréttingu
sem krafist var. Krafan var m.a. fólgin
í því að þetta starfsfólk fengi sömu kjör
og aðrar sambærilegar starfsstéttir á
Landspítalanum og til jafns við sömu
starfsstéttir á Borgarspítalanum.
Færandi
hendi
áfund
út í heim
„ÞEGAR ÉG fer til fundar við vini mína
og viðskiptavini erlendis þarf engan að undra
þótt ég færi þeim lax í einhverri mynd
þar sem viðskipti mín tengjast laxi og útflutningi.
Það gengur þó ekki endalaust.
Ekki má gleymast að ísland
hefur upp á margt annað að bjóða
eins og til dæmis vatnið, skyrið og ostana
að ógleymdum fallegu íslensku ullarvoðunum,
tískufatnaðinum og myndabókunum,
eftir alla bestu ljósmyndara okkar.
Yfirleitt finnst mér þægilegast, tímans vegna,
að kaupa þessar gjafir í íslenskum markaði.“
/9rvi]
Orri Vigfús^n/forstjóri.
GOÐ HUGMYND!
\v
ISLENSKUR ETll MARKAÐUR
Leifsstöð ■ Keflavíkurflugvelli ■ Sími (92) 50 4 50 ■ Fax (92) 50 4 60