Alþýðublaðið - 10.11.1993, Page 1

Alþýðublaðið - 10.11.1993, Page 1
Áhrif2% raunvaxtalœkkunar BÆTIR HAG HEIMILANNA UM 1.700 MILUÓNIR - miðað við skammtímaáhrif - en bœtir hag heimilanna um 5,1 milljarð til lengri tíma litið - Seðlabankinn bœtir bönkum og sparisjóðum upp raunvaxtalœkkunina með breytingum á bindiskyldu og með því að rýmka lausafjárkvöð Með ákvörðun Seðlabankans að lækka hlutfall bindiskyldu viðskiptabanka og sparisjóða í Seðlabanka og hækka vexti á því fé sem þar er bundið, er bönkum og sparisjóðum auðveldað að lækka vexti. Afkoma þeirra mun batna um 400 milljónir við þessar breytingar. Skammtíma- áhrif vegna tilvonandi lækkunar raunvaxta um 2% þýðir að hag- ur heimilanna batnar um 1,7 milljarða króna og Iangtíma- áhrifin nema 5,1 milljarði. Raunvaxtalækkunin hefur einn- ig umtalsverð áhrif til hagsbóta fyrir fyrirtækin í landinu. Lýsa óhyggjum vegna dauðadóms yfir Rushdie Utanríkisráðherrar Norð- urlanda lýsa áhyggjum yfir því að dauðadómurinn yfir ríthöfundinum Salman Rushdie og fyrirheit um fé til höfuðs honum skuli enn vera í fullu gildi. Einnig lýsa þeir áhyggjum vegna hótana og alvarlegs ofbeldis sem þýð- cndur og útgefendur rithöf- undarins hafa orðið fyrir. í ylirlýsingu utanríkisráð- herranna segir að ekki verði un- að við hvatningu til morðs á borgara annars ríkis þar sem slíkt stangist á við undirstöðu- atriði milliríkjasamskipta. Dauðadómurinn yfir .Salrnan Rushdie sé alvarleg árás á tján- ingar- og prentfrelsi sem grund- vallarmannréttindi. Ráðhen- amir skora á ríkisstjórn Irans að falla frá dauðadómnum og hastta að leggja fé til höfuðs rit- höfundinum. Seðlabankinn tilkynnti í fyrradag að bindiskylduhlutfall verði almennt Iækkað um 1% en bindiskylda á bundnum innistæðum og verðbréfum lækkar um 2,5%. Seðlabankinn mun auk þess greiða sérstaka vaxtauppbót, 1,5% á bundnar innistæður á þessu ári og lækka lausafjárhlutfall um 2%. Með þessu móti losar Seðlabankinn samtals 8,4 milljarða króna sem bank- ar og sparisjóðir geta ávaxtað með hagstæðara móti en fékkst í Seðla- bankanum sem greiddi bönkum og sparisjóðum 3,5% vexti. Þessar ráð- stafanir vega upp á móti þeim tekju- missi sem bankamir verða fyrir nú þegar þeir lækka raunvexti og vaxta- mun um leið. „Við erum tiltölulega ánægðir með það sem hefur verið að gerast á fluglciðinni til Fort Lauderdale“, sagði Jón Karl Ólafsson, leiðast jóri í millilandaflugi Flugleiða, í samtali við Alþýðublaðið í gær. Flugleiðir eru að gera það gott á dauða tíman- um í ferðamennsku, trúlega vegna þess að samkeppnisaðili á leiðinni er farinn á hausinn. Liðnar em sex vikur frá þvf að fé- lagið hóf reglubundið flug til Fort Lauderdale á Flórídaskaga, en sú borg er steinsnar frá Miami. Er það íjórði viðkomustaðurinn í Bandaríkjunum, sem Flugleiðir fljúga reglulega til. Hinir em New York, Baltimore og Or- Viðskiptaráðuneytið hefur reiknað út áhrif 2% raunvaxtalækkunar á hag heimila, fyriitækja og annarra. Hagur heimilanna vænkast um 1,7 milljarða þegar litið er á skammtímaáhrifa, en um 5,1 milljarð þegar langtímaáhrif em metin. Vaxtalækkunin þýðir að hagur fyrirtækja batnar unt 2,6 millj- arða og þar af batnar afkoma sjávarút- vegs um hálfan milljarð. Ríkissjóður, stofnanir og sveitarfélög hagnast enn- fremur á raunvaxtalækkun. Samband viðskiptabanka og spari- sjóða telur að þrátt fyrir að breytingar á bindiskyldu bæti hag þeirra þurfi bankar og sparisjóðir hver um sig að grípa til frekari hagræðingar í rekstri til að bæta sér upp lækkun á vaxtamun. lando, sem er um 400 kílómetrum fyr- ir norðan Fort Lauderdale. 80% sætanýting Svo sérkennilega hefur bmgðið við að sætanýting á nýju áætlunarleiðinni hefur verið um eða yfir 80% þær vikur sem liðnar em frá upphafi flugsins. Þó er skollin á ffemur róleg tíð hjá flugfé- lögum eins og venjan er á haustin og í byrjun vetrar. Jón Karl sagði að sætanýtingin væri góð, en verðlagið í það lægsta. Menn stefndu að meiri sætanýtingu og meiri arðsemi af hverju ilugi. Flogið er til Fort Lauderdale tvisvar í viku. Sæti í framboði í hverju ílugi em 189 talsins. Viðskiptabankar og sparisjóðir leggja áherslu á í þessu sambandi að ekki verði gripið til boðaðar skattlagn- ingar Ijármagsntekna í náinni framtíð. Slík skattlagning myndi leiða til hækk- unar vaxta. „Hversu varanleg lækkun vaxta verður veltur, auk alþjóðlegrar vaxta- þróunar, á innlendri lánsfjáreftirspum ríkisins og annarra opinberra aðila á næstu mánuðum og missemm. I því efni er mikilvægt að draga úr halla- rekstri ríkissjóðs og lánsijáreftirspum húsnæðiskerfisins,“ segir í yfirlýsingu frá Seðlabankanum. Þar er einnig vak- in athygli á því að verðbólga er nú afar lítil og framfærsluvísitalan hækkar ekki í nóvember. Flugleiðir/Sterling Einkum em farþegamir frá Norður- löndunum, eða um 70%, en einnig frá Þýskalandi, Englandi, Hollandi og fleiri löndum. Fort Lauderdale er upp- hafs- og endapunktur skemmtiferða- siglinga, sem Evrópubúar sækja mikið í um þetta leyti árs, þannig að beint flug þangað þjónar þeim hið besta. An efa má rekja aukinn farþega- fjölda Flugleiða á þessari leið til þess að danska flugfélagið Sterling Air- ways, flugfélag prestsins, hefur lagt upp laupana, en það félag var rnikið í föram á þessari leið. Er nú svo komið að Flugleiðir er eina Norðurlandaflug- félagið með reglulegt flug þangað. Flugleiðir gera það gott á nýrri leið - 80% sœtanýting á Fort Lauderdale rútunni Dauði Sterling færir Flugleiðum farþega Verðkönnun í landshlutunum Munur ó hæsta og lægsta meðalverði upp í 38,6% - hjá verslunum innan hvers landshluta í verðkönnun Sainkeppnisslofnunar í 109 mat- vöruverslunum utan höfuðborgarsvæðisins kemur fram að vöruverð á Suðurlandi er hegsL í Eyjakaup í Vestmannaeyjum. Raunar raða verslanir í Eyjum sér í þrjú efstu sætin yfir ódýrustu verslanirnar á Suður- Iandi. Dýrast er hins vegar ■ versluninni Ós í Þorláks- höfn þar sem vöruverð er 19% hæna en í Eyjakaup. Munur á hæsta og lægsta meðalverði er mestur á Norðurlandi eystra cða 38,6%. Kannuð var verð á 160 mismunandi vömm, en algengt var að 60 til 100 væm fáanlegar í hverri verslun. Hér var um að ræða kjöt-, nýlendu-, drykkjar-, hreinlætis- og snyrtivömr. I þessari könnun var ekki einungis athugað verð á svonefndri merkjavöm, heldur var einnig kannað verð á ýmsunt vömtegundum sem verslanimar flytja inn sjálfar. í frétt frá Samkeppnisstofnun em niðurstöður könnun- arinnar birtar með þeim hætti að samanburður er gerður á meðalverði verslana innan hvers landshluta. Hins vegar er verðlag ntilli landshluta ekki borið saman. VíOa mikill verðmunur Á Austurlandi er Markaður Lykils ódýrasla vcrslunin en meðalverð í Brattahlíð Seyðisfirði hæst eða 8,8% ofan við verð Lykils. Þegar litið er á Suðumes kemur í Ijós að Hagkaup í Njarðvík er með lægsta meðalverð en hæst er verðið í Fíakaup Njarðvík þar sem það er 26,8% hærra en íHagkaup. Á Norðurlandi vestra er Hlíðarkaup á Sauðár- króki með lægst meðalverð en Frímannskjör á Siglufirði hæst en þar munar þó ekki nema 5,9% á lægsta og hæsta meðalverði. KEA, Nettó á Akureyri er með lægsta meðalverðið á Norðurlandi cystra, en Síða á Akureyri með hæsta verðið sem er 38,6% fyrir ofan KEA Nettó. Á Vestfjörðum er HN búðin á ísafirði með lægst meðalverð en Edinborg á Bfldudal með hæsta sem er 13,3% hærra en í HN. Á Vest- urlandi er Verslun Einars Ólafssonar með lægsta meðal- verð en Hyman í Borgamesi hæst með 19,2% hærra verð en Verslun Einars. Samkeppnisstofnun segir að tölur af þessu tagi verði að túlka af varúð þar sem verðmunur á dýrum og/eða mikið keyptum vömm skiptir meira máli fyrir neytandann en mikill verðmunur á vömm sem keyptarem í litlum mæli. ALLT GÚÐAR VÖRUR MEÐ STÓRAFSLÆTTI! Dæmi: Peysur frá kr. 875 - Bolir frá kr. 440 - Pils frá kr. 550 Buxur frá kr. 699 - Jakkar frá kr. 1.100 - Kjólar frá kr. 1.399 Skyrtur frá kr. 525 - Skór frá kr. 629 - Kápur frá kr. 1.599 og margt, margt fleira á frábæru verði! r POSTVAL , Skútuvogi 1, sími 68 44 22

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.