Alþýðublaðið - 10.11.1993, Side 4

Alþýðublaðið - 10.11.1993, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ KVENNALISTINN Miðvikudagur 10. nóvember 1993 StjórnmálaúlyJctun Ixmdsfundar Kvennalistans „ÞAÐ ER KOMINN TIMITIL AÐ KONUR STJÓRNILANDINU" „Kvennalistinn minnir á að tímabundnir erfiðleikar í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar þurfa ekki að vera til ills eins. Þeir kalla á endurmat, endurskipulagningu, hagrœðingu, nýtingu og nýsköpun. Við þurfum að virkja þann kraft sem ífólkinu býr. Þá getum við vœnst þess að út úr ríkjandi kreppuástandi komi heilbrigðara samfélag - reynslunni ríkari. “ „Fylgi Kvennalistans sýnir að fjöldi fólks vill hafa aðra for- gangsröð verkefna en tíðkast hef- ur í íslenskum stjórnmálum, for- gangsröð þar sem bættur hagur kvenna, barna og fjölskyldna er f fyrirrúmi. Það er kominn tími til að konur stjórni landinu. Konur standa enn frammi fyrir þeirri óþolandi staðreynd að laun þeirra eru ekki nema 60% af launum karla. Konur verða að standa þétt saman um leiðrétt- ingu kjara sinna,“ segir meðal annars í ályktun Landsfundar Kvennalistans frá síðustu helgi. í ályktuninni mótmælir Kvenna- listinn stefnu ríkisstjóriiarinnar sem þær segja koma sérstaklega hart niður á konum og sé þar af leiðandi slæm fyrir þjóðina í heild. Kvenna- listinn mótmælir niðurskurði í vel- ferðarkerfinu og segja hann bitna verst á heimilunum. í ályktuninni segir enn fremur að sparnaðartil- raunir í heilbrigðiskerfinu beri vott um stefnuleysi og hringlandahátt. Kvennalistakonur vilja auka fyrir- byggjandi aðgerðir í heilbrigðis- málum sem leiða muni til spamaðar þegar til lengri tíma er litið. Velferð byggist á góðri menntun í ályktuninni segir: „Velferð okkar í framtíðinni mun byggjast á góðri menntun þjóðarinnar. Kvennalistinn varar við niðurskurði í grunnskólum og mótmælir skóla- gjöldum og hertum úthlutunarregl- um Lánasjóðs íslenskra náms- manna. Kvennalistinn hveturtil enn frekari uppbyggingar í menntun og rannsóknum. Eigi íslensk þjóð að komast af í umbrotum nýrra tíma er menntun lykilatriði. Atvinnuleysi er staðreynd í ís- lensku þjóðfélagi sem stjómvöld verða takast á við. Kvennalistinn bendir á að einu marktæku við- brögðin gegn atvinnuleysi hafa komið frá konum. Þær hafa brugð- ist við af krafti, ekki síst á lands- byggðinni, og komið fram með nýj- ar hugmyndir í atvinnusköpun. Kvennalistinn vill að fmmkvæði kvenna verði virt og þær hafi greið- ari aðgang að ráðgjöf og íjármagni. Lánastofnun þar sem konur hafi forgang myndi breyta stöðunni. Kvennalistinn minnir á að kaupi fólk íslenskar vömr eflist atvinnan í landinu." Vilja raunhæfa fjölskyldustefnu Kvennalistinn bendir á að við stefnumörkun í undirstöðu- at- vinnugreinunum, sjávarútvegi og landbúnaði, hafi ekki verið tekið mið af umhverfisvernd, þjóðar- hagsmunum né hag heimila. Mið- stýring, ofstýring og vingulsháttur stjómvalda um árabil hafi valdið miklum óskunda. Landsfundur Kvennalistans mótmælir því hvern- ig grafið hafi verið undan sjálfs- virðingu vinnandi fólks, ekki síst í landbúnaði, og bendir á að þeir sem taki ákvarðanirnar séu ekki í tengsl- um við fólkið. „Kvennalistinn krefst þess að rekin verði raunhæf fjölskyldu- stefna. Kvennalistinn vill að vinnu- vikan verði stytt án kjaraskerðingar og dagvinnulaun dugi til fram- færslu. í tilefni af Ári ijölskyldunn- ar árið 1994 beinir Kvennalistinn þeim tilmælum til sveitarstjórna að gera góðan aðbúnað bama að for- gangsverkefni." Erfiðleikar þurfa ekki að vera til ills eins Landsfundur Kvennalistans telur að kvenlegra sjónarmiða gæti alltof lítið f íslensku stjómkerfi. Á miklu breytingaskeiði íslensks þjóðfélags verði að gæta þess tryggilega að ávinningar í réttindabaráttu kvenna glatist ekki og velferðarkerfið bfði ekki skaða. I þessum efnum sé kon- um best treystandi. Niðurlag stjórnmálaályktunar Landsfundarins er á þessa leið: „Kvennalistinn minnir á að tíma- bundnir erfiðleikar í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar þurfa ekki að vera til ills eins. Þeir kalla á end- urmat, endurskipulagningu, hag- ræðingu, nýtingu og nýsköpun. Við þurfum að virkja þann kraft sem í fólkinu býr. Þá getum við vænst þess að úl úr ríkjandi kreppuástandi komi heilbrigðara samfélag - reynslunni ríkari." Álylctun I^cindsfundcir Kvenncilistcins um atvinnumál GETU- OG VIUALEYSI VERKALÝÐSHREYFINGARINNAR • • VIRDIST ALGJORT „Eftir áratugabaráttu eru íslenskar konur ennþá með rúmlega 50% lœgri tekjur en karlar. Konur hafa ítrekað leitað eftir stuðningi verkalýðshreyfingarinnar en án sýnilegs árangurs. Getu- og viljaleysi hennar til að takast á við launamisrétti kynjanna virðist algjört. ..ogþvíbrýnt að hún taki starfshœtti sína og stefnumörkun til alvarlegar endurskoðunar. “ „Atvinnuleysi á íslandi er nú meira en nokkru sinni og kemur ekki síst niður á ófaglærðu starfs- fólki og konum. I lok ágúst voru 2.700 konur atvinnulausar og 1980 karlar. Þá jókst langtímaat- vinnuleysi meðal kvenna um 19% í sumar en minnkaði um 11% meðal karla. í þessum töl- um endurspeglast sú staðreynd að ráðstafanir ríkisst jórnarinnar í atvinnumálum hafa fyrst og fremst komið körlum til góða. Af einum milljarði sem ætlaður var til atvinnusköpunar í tengslum við gerð kjarasamninga varði ríkisstjórnin rúmlega 900 millj- ónum til þess að skapa störf fyrir karla, en 80 milljónum til at- vinnuuppbyggingar fyrir kon- ur,“ segir ályktun Landsfundar Kvennalistans um atvinnumál. Landsfundurinn bendir á að með þessari misskiptingu sýnir ríkis- stjómin störfum kvenna, og því frumkvæði sem þær hafi sýnt í at- vinnumálum, algjört virðingarleysi. Fundurinn telur að eigi fjármagn til atvinnuuppbyggingar að nýtast konum jafnt sem körlum verði kon- ur að eiga hlut að málum þegar því er úthlutað. Um allt land hafi konur reynt að takast á við samdrátt og at- vinnuleysi með eigin atvinnusköp- un án þess að njóta fyrirgreiðslu frá stjórnvöldum og lánastofnunum. „Kvennalistinn leggur áherslu á að konur verði ráðnar til alvinnu- ráðgjafar í öllum landshlutum og að því fé sem ríkið ver til atvinnumála verði úthlutað í samræmi við þá sem starfa að þessum málum um land allt. Þá skorar Kvennalistinn á stjómendur banka og sjóða að kanna möguleikana á því að koma á fót sérstökum lánafiokkum fyrir konur í atvinnurekstri." Konur verða að gæta réttar síns „Kvennalistinn mótmælir jteiixi tilhneigingu að konur eigi öðrum fremur að liðka til á vinnumarkaði og draga úr vinnu utan heimilis þegar atvinna minnkar. Þá eigi þær að mæta sparnaðinum í ópinberri þjónustu með aukinni ólaunaðri vinnu á heimilunum. Kynskiptur vinnumarkaður gctur ekki gengið án vinnu kvenna og konur eru komnar á vinnumarkaðinn til að vera. Þær eru varanlegt vinnuall en ekki varavinnuafl. Við þær efna- hagsaðstæður sem nú eru í þjóðfé- laginu mega konur ekki láta sjálf- skipaða vörslumenn sektarkenndar kvenna segja sér hvað er þeim og bömum þeirra fyrir bestu. Konur verða að gæta rétlar síns. Eftir áratugabaráttu em íslenskar konur ennþá með rúmlega 50% lægri tekjur en karlar. Konur hafa ítrekað leitað eftir stuðningi verka- lýðshrcyfingarinnar en án sýnilegs árangurs. Getu- og viljaleysi hennar til að takast á við launamisrétti kynjanna virðist algjört. Kvennalis- takonur vilja standa vörð um verka- lýðshreyfinguna og félagslega ávinninga hennar en hljóta uni leið að vara alvarlega við því skeyting- arleysi sem þar ríkir um hagsmuna- mál kvenna. Verkalýðshreyfingin er að falla á tíma og því brýnt að hún taki starfshætti sína og stefnu- mörkun til alvarlegar endurskoðun- ar.“ Samspil umhverfls og Fjárfestinga Landsfundur Kvennalistans bendir á að frá árinu 1988 hafi kaupmáttur rýrnað um 20% og slór- ir hópar fólks hafi laun sem ekki hrökkva fyrir brýnustu nauðsynj- um. Kvennalistinn mótmælir slíku siðleysi sem viðgengst með blessun ríkisvalds og samtaka atvinnurek- enda. Það jaðrar við þrælahald að nýta alla orku fólks og greiða því laun sem ekki er hægt að lifa af. „Islendingar standa andspænis því að móta atvinnustefnu til frarn- tíðar. Kvennalistinn ítrekar að sú stefna verður að taka mið af um- hverfinu og nýtingu |teirrar fjárfest- ingar, reynslu og þekkingar sem fyrir er í landinu. Enn og aftur benduin við á þá óþijótandi mögu- leika sem felst í smáfyriilækjum af ýmsum toga. Við eigum að nýta okkur hagkvæmni smæðarinnar og stuðla að samvinnu íslenskra fyrir- tækja í samkeppni þeima við er- lenda framleiðendur. Konur hafa í því efni mikilli þekkingu og reynslu að miðla. Hvortveggja er þó for- smáð af þeim stjórnvöldum sem skipa nelnd til að móta nýsköpun í atvinnulífi án þess að ein einasta kona korni þar að verki. Þessu verð- ur ekki unað lengur. Konur hvar sem þær starfa eða standa í flokki verða að sameinast gegn slíku ger- ræði. Við konur verðum að tryggja að ekki verði framhjá okkur gengið við mótun nýrrar aldar.“

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.