Alþýðublaðið - 10.11.1993, Page 5
Miðvikudagur 10. nóvember 1993
HITT & ÞETTA & SKILABOÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
Jóhanii Jónsson, íslenskur lœknir, hinn eini sem er sérfrœðingur
í tíffœraflutningum, stjórnar deild á bandarískum spítala
Annast um nýrna-
og brisígræðslur
íslenskur læknir, Jóhann Jóns-
son, mun vera eini íslenski lækn-
irinn sem er sérfræðingur í líf-
færaflutningi. Hann starfar við
Fairfax-sjúkrahúsið í Falls
Church, sem er á höfuðborgar-
svæði Bandaríkjanna, Washing-
ton DC. Jóhann stjórnar deild
sem fer með flutninga á nýruin
og brisi milli fólks.
Líffæraflutningar eru eins og
flestir vita tiltölulega ný grein á
meiði læknisfræðinnar. Slíkar að-
gerðir eru einhver mesta byltingin
læknavísindanna á þessari öld og
gefa tugþúsundum sjúklinga sem
berjast við illvíga sjúkdóma nýja
von um betra líf.
Við Fairfax-sjúkrahúsið var
fyrsta hjartaígræðslan gerð fyrir 7
árum síðan. Þrem ánim síðar fór þar
fram fyrsta beinmergsígræðslan.
Haldið var áfram á sviði líffæra-
flutninga og í dag fara fram á
sjúkrahúsinu flutningar á lungum,
nýrum, brisi og beinmerg. I fyrra
var þar gerð fyrsta hjarta-nýma
tgræðslan íWashington DC-hérað-
inu.
JÓHANN JÓNSSON, yfirlæknir
þeirrar deildar Fairfax- sjúkrahúss-
ins, sem annast um nýrna- og bris-
kirtilsfiutninga og ígræðslu þeirra líf-
færa.
Jóhann Jónsson er sérfræðingur í
flutningi nýrna og briskirtla milli
sjúklinga. Hann stjómar þeirri deild
spítalans sem annast um slíkar að-
gerðir og hefur hann á þriðja tug
sérþjálfaðra starfsmanna til liðs við
sig.
Deildin annast um líffæraflutn-
inga úr látnu fólki, einnig milli lif-
andi skyldra aðila og óskyldra.
Framkvæmdar em sameiginlega
nýma og briskirtilsaðgerðir, sem og
nýmaflutningar sérstaklega og bris-
ígræðsla ein og sér.
Vinnubrögð em öguð í meira lagi
við líffæraflutninga. Allir starfs-
menn em sérþjálfaðir og teymin,
það er starfshóparnir, þjálfuð til að
vinna saman allt frá upphafi til loka
hjúkmnarinnar.
Nýmaígræðsla er ákjósanleg að-
gerð fyrir sjúklinga sem em með
nýmasjúkdóma af ýmsu tagi á loka-
stigi. Sjúklingar með minna en 10%
virkni nýrnastarfseminnar geta
fengið grædd í sig ným. Langir
biðlistar eru eftir nýmm og lengjast
fremur en hitt.
Eins og kunnugt er hafa líffæra-
flutningar verið afar viðkvæmt mál
víða um lönd, ekki síst þegar um er
að ræða líffæri úr látnu fólki. Um-
ræðan um hjarta og heiladauða er
enn í fullum gangi og sýnist sitt
hverjum. I Bandarikjunum virðist
mikill skilningur á mikilvægi þess
meðal fólks að líffæri þess megi
nýta til að hjálpa þeim sem bíða eft-
ir ígræðslu heilla líffæra. Þannig
ganga margir með kort í veski sínu
þar sem heimilað er að líffæri við-
komandi verði nýtt að honum eða
henni látinni.
Teymið sem annast um nýrna- og briskirtilsfiutninga á Fairfax-sjúkrahúsinu.
Jóhann Jónsson, læknir, er hér ásamt sínu fólki sitjandi á miðri myndinni.
Breyttur rekstur að Víðinesi
Starfseminni skipt í tvœr deildir en engum vistmanni úthýst
Heilbrigðisráðuneytið og
stjórn sjálfseignarstofnunar
Bláa bandsins hafa gert með
sér samstarfssamning um
rekstur Vistheimilisins að Víði-
nesi. Starfseminni verður skipt
upp í tvær deildir, langlegu-
deild með 30 rými og 40 rými
fyrir skammtímadvöl vegna
meðferðar í sex vikur, þrjá eða
sex mánuði. I meðferðinni
verður lögð megináhersla á að
bæta andlegan og líkamlegan
styrk vistmanna. Af hálfu
ráðuneytisins er skýrt tekið
fram að ekki stendur til að út-
hýsa neinum einasta vist-
manni.
Samningurinn er til þriggja ára
og tekur gildi 1. janúar næst
komandi. Tilgangur starfseminn-
ar að Víðinesi verður sá að vista
áfengis- og vímuefnasjúka, sem
sjálfir leita meðferðar og metnir
eru í þörf fyrir skemmri eða
lengri dvöl á meðferðarstofnun.
Starfsemin verður byggð á með-
ferðarprógrammi sem ráðuneytið
og sjálseignarstofnunin hafa
samþykkt og undirritað.
Stjóm Víðiness á samnings-
tfmanum er skipuð tveimur full-
trúum frá ráðuneytinu og einum
frá sjálfseignarstofnuninni. For-
stöðumaður verður Birgir Kjart-
ansson.
Að undirbúningi samningsins
unnu fulltrúar ráðuneytisins með
fulllrúum stjórnar sjálfseignar-
stofnunarinnar, þeim Sigurði Eg-
ilssyni, Vilhjálmi Heiðdal og
Ingibjörgu Jónasdóttur. Var
vinnuhópurinn einróma um að
æskilegt væri að endurskipu-
leggja starfsemina í Víðinesi í
ljósi vaxandi þekkingar og nýrra
sjónarmiða til endurhæfingar
áfengissjúkra.
Aldraðir vistmenn verða metn-
ir samkvæmt svokölluðu vistun-
armati. er greinir þörf þeima fyrir
þjónustu, og þeir vistaðir sam-
kvæmt niðurstöðu þess mats að
Víðinesi eða annars staðar. Aðrir
vistmenn dvelja væntanlega
áfram að Víðinesi og munu fá
virkari og áhugaverðari við-
fangsefni að eiga við hvem dag
sjálfum sér til styrkingar.
Friðrikskapella
Sönglög dr. Gylfa í kvöld!
í kvöld klukkan 20,30 verður tónlistarkyöld í
hinni nýju Friðrikskapcllu að Hlíðarenda. Á cfn-
isskránni verða sönglög eftir dr. Gylfa Þ. Gísla-
son í útsetningu Jóns Þórarinssonar. Tónleikarn-
ir eru örlítill lieiðurs- og þakklætisvottur sem að-
standendur Friðrikskapellu vilja sýna dr. Gylfa
fyrir forystu hans um byggingu hússins.
Flytjendur sönglaganna verða Ólöf Kolbrún
Harðardóttir og Garðar Cortes, sem syngja einsöng
við undirleik Olafs Vignis Albertssonar, og félagar
úr Fóstbiæðrum, sem syngja við undirleik stjóm-
anda síns Arna Harðarsonar. Kynnir á tónleikunum
verður Agúst Bjamason.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason var sem kunnugt er fonnað-
ur í Samtökum um byggingu Friðrikskapellu, sent
færðu Fóstbræðrum, KFUM, KFUK, Knattspyrnu-
félaginu Val og Skátasambandi Reykjavfkur kapell-
una að gjöf á afmælisdegi Friðriks Friðrikssonar 25.
maí síðastliðinn. Allir em boðnir velkomnir á tón-
listarkvöldið meðan húsrúm leyfir og er aðgangur
ókeypis.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
, ER REYKJAVÍK
GOÐUR VINNUSTAÐUR?
Ingjaldur Hannibalsson
iðnaðarverkfrœðingur
fjallar um Reykjavík sem vinnustað
á ópnumfundi íRósinni
fimmtudaginn 11. nóvember,
klukkan 20.30.
Fundarstjóri: Þorlákur Helgason,
formaður Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur.
'k Athugið:
Þetta er fyrstifundur ífundaröð
um atvinnu- og fjármál.
Nœsti fundur verður
25. nóvember um NÝSKÖPUN í
REYKJAVÍK.
- Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.
- Starfsliópur um efnahags- og atvinnumál.
‘S&Uý/VZ&tjéþlcttfSl- I é&uttttcpwi í ww 1
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
*
verður á opnum fundi ÍROSINNI
fimmtudaginn 18. nóvember,
klukkan 20.30.
- Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.
í owi
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
RÁÐSTEFNA UM FJÖLSKYLDUNA
4. DESEMBER NÆSTKOMANDI
Nánar auglýst síðar.
- Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.