Alþýðublaðið - 28.12.1993, Síða 1
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
Samkeppni í bifreiðaskoðun boðuð - en þykir óaðgengileg
EKKIGLÓRA AÐ UPP-
FYLLA ÞESSISKILYRÐI
- segja bílgreinamenn sem tilbúnir eru til að setja áfót skoðunarstöðvar
„Við trúum þessu
ekki fyrr en við tökum
á því. Þessar reglur eru
þannig úr garði gerðar
að þær standast ekki.
Það er ekkert útilokað
að við þurfum að leita
til Samkeppnisstofn-
unar til að fá úr því
skorið hvort hér sé allt
með felldu“, sagði
Tryggvi Aðalsteinsson,
annar eigenda ET -
Einars & Tryggva, í
Klettagörðum, en þeir
huga að stofnun bíla-
skoðunarstöðvar á
næstunni. Tryggvi seg-
ir að engu sé Iíkara en
að reglugerðin sé til
þess eins að slá ryki í
augu fólks. Engin glóra
sé í ýmsum skilyrðum
sem sett eru, allt virðist
miða að því að Bif-
reiðaskoðun íslands
njóti einokunarað-
stöðu áfram.
Það hefur gustað um
starfsemi Bifreiðaskoð-
unar Islands frá upphafi
þess rekstrar. Ekki síst
fór fyrir hjartað á bfleig-
endum hár kostnaður
sem fylgdi nýju fyrirtæki
á sínum tíma, og með-
fylgjandi stórgróðatölur
sem opinberaðar voru. I
ár lítur út fyrir taprekstur
hjá fyrirtækinu upp á
14-15 milljónir króna.
Fyrirtækið er að hálfu í
eigu ríkisins. Stjómar-
formaður þess er ráðu-
neytisstjóri, Þorsteinn
Geirsson.
Samkvæmt áætlun
Bifreiðaskoðunar Is-
lands um reksturinn í ár,
er gert ráð fyrir liðlega
40 milljón króna hagn-
aði af rekstrinum í
Reykjavík, en tapi á 11
stöðum úti á land, útibúi
og færanlegri skoðunar-
stöð, alls upp á 54 millj-
ónir króna.
Núna um áramótin
stendur til að gefa skoð-
un og endurskoðun bif-
reiða fijálsa. Bflgreina-
samband íslands hefur
ályktað um það mál og
leggur áherslu á að engar
breytingar verði á endur-
skoðun ökutækja og að
viðurkenndum verk-
stæðum um land allt
verði áfram heimilt að
endurskoða bfla á sama
hátt og verið hefur und-
anfarinn áratug.
Leggst Bflgreinasam-
bandið gegn því að farið
verði að koma á nýju og
flóknu kerfi varðandi
þennan verkþátt með
milljónakostnaði fyrir
verkstæði og neytendur.
Telur sambandið að eng-
ir alþjóðasamningar
skyldi Islendinga til að
gera nokkrar breytingar í
þessu efni.
Forráðamenn bfla-
verkstæða sem Alþýðu-
blaðið hefur rætt við
segja að það sé vissulega
í takt við tímann að veita
öðmm aðilum en Bif-
reiðaskoðun Islands
leyfi til að skoða bfla,
ekki síst fyrirtækjum í
einkageíranum. Hins-
vegar sé það alveg ljóst
að ekki verði mikið úr
slíkri framkvæmd. Sett
hafi verið mörg skilyrði
og þau flest með öllu
óaðgengileg. Segja þeir
að með þessu sé verið að
koma í veg fyrir að Bif-
reiðaskoðun fái sam-
keppni af nokkm tagi.
Meðal skilyrðanna má
nefna að skoðunarstöðv-
um í einkaeign á höfuð-
borgarsvæðinu er gert
skylt að taka að sér skoð-
un úti á landsbyggðinni
samkvæmt verkefnalista
sem Bilfeiðaskoðun ís-
lands mun leggja fram.
Alþýðublaðið hefur
ífegnað af aðilum sem
vom tilbúnir að setja á
stofn skoðunarstöðvar,
þar á meðal er ET, mjög
traust fyrirtæki í flutn-
ingastarfsemi, og Kraft-
ur hf. - MAN-umboðið.
ANSIER ÞETTA NU ALITLEG LÆÐA ÞARNAINNI...
Alþýðublaðsmynd / Einar Óla.
Vöruskiptin við útlönd
Afgangur nemur
- fyrstu ellefu mánuði ársins en var
2,9 milljarðar á sama tíma í fyrra
Fyrstu ellefu mánuði
þessa árs voru fluttar út
vörur fyrir tæplega 85,5
milljarða króna en inn fyr-
ir rösklega 74,1 milljarð
fob. Afgangur var þvf á
vöruskiptunum við útlönd
sem nam 113 milljörðum
króna en á sama tíma í
fyrra var vöruskiptajöfn-
uðurinn hagstæður um 2,9
milljarða króna á föstu
gengi. I nóvember voru
fluttar út vörur fyrir 7,6
milljarða og inn fyrir nær
sömu upphæð.
Verðmæti vömútflutn-
ingsins fyrstu ellefu mánuði
ársins var um 2% minna á
föstu gengi en á sama tíma í
fyrra. Sjávarafurðir vom
80% alls útflutnings og var
verðmæti þeirra um 1%
minna en á síðasta ári. Verð-
mæti útfluttra sjávarafurða
fyrstu ellefu mánuðiná nam
68.449.5 milljónum en
63.887.6 milljónum á sama
tíma í fyrra. Utflumingur á
áli nam 7,2 milljörðum setn
er nær sama upphæð í krónu-
tölu og í fyrra en verðmæti
útflutnings á kísiljárni jókst
úr 1,5 milljörðum upp í tæp-
lega 2,3 milljarða.
Þessar upplýsingar koma
fram í frétt frá Hagstofunni.
Þar segir ennfremur að út-
flutningur á áli hafi verið 8%
minni á föstu gengi en árið
áður en útflutningur kísil-
jáms 34% meiri. Útflutn-
ingsverðmæti annarrar vöru
að lfátöldum skipum og
flugvélum var 6% minna í
janúar-nóvetnber 1993 en ár-
ið áður.
Verðmæti vöruinnflutn-
ingsins fyrstu ellefu mánuði
ársins var 12% minna á föstu
gengi en árið áður. Innflutn-
ingur sérstakrar fjárfesting-
arvöru, skip, flugvélar,
Landsvirkjun, innflutningur
til stóriðju og olíuinnflutn-
ingur er jafnan mjög breyti-
legur frá einu tímabili til
annars. Að þessum liðum
frátöldum reyndist annar
innflutningur hafa orðið 9%
minni en á sama tíma í fyrra.
Dráttarvextir
lækkaum2%
Dráttarvextir af pen-
ingakröfum í íslenskum
krónum verða 16% frá og
með 1. janúar 1994. Þetta
er 2% lækkun frá gildandi
dráttarvöxtum í desember.
Vextir innlánsstofnana við
Seðlabanka íslands lækkuðu
21. desember síðastliðinn. Á
útlánahlið er ávöxtun í kaup-
um Seðlabankans á ríkisvíxl-
um nú 5,5% á ári en á öðrum
ríkistryggðum verðbréfum
6,5% á ári. Þetta felur í sér
0,5% lækkun á ávöxtun. Á
innlánahlið verður sala inn-
stæðubréf t Seðlabanka með
4,75% vöxtum á ári en það
felur í sér 0,25% lækkun
vaxta.
Engin
verðbólga
Seðlabankinn samdi þann
22. desember síðastliðinn
við banka og sparisjóði um
vaxtaskipti fyrir tímabilið
janúar til apríl í samræmi við
rammasamkomulag aðila
um vaxtaskipti frá í septem-
ber. Samningurinn byggist á
þeirri forsendu að engin
verðbólga verði næstu fjóra
mánuði á mælikvarða láns-
kjaravísitölu og er það í sam-
ræmi við spár Seðlabankans.
í samkomuíag Seðlabank-
ans við viðskiptabankana er
gert ráð fyrir að bankar og
sparisjóðir greiði Seðlabank-
anum 5% nafnvexti af samn-
ingsfjárhæð en Seðlabankinn
greiði sömu aðilum á rnóti
5% vexti ofan á verðtryggð-
an höfuðstól. Vaxtaskipta-
samningurinn er gerður til að
draga úr þeirri áhættu inn-
lánsstofnana sem felst í verð-
tryggingarhallanum, það er
því að verðtryggðar skuldir
banka og sparisjóða eru
meiri en verðtryggðar eignir
þeirra.