Alþýðublaðið - 28.12.1993, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
BÆKUR, SUND & SKILABOÐ
Þriðjudagur 28. desember 1993
Bók eftir Gunnar G. Schram
Framtíðjarðar-
T •>(• n / T| * *
Leiðm fra Rio
Út er komin bókin
„Framtíð jarðar -
Leiðin frá Ríó" eftir
Gunnar G. Schram,
prófessor. Fjallar hún
um stöðu og hotfur í
helstu umhverfismál-
um veraldar, við hvem
vanda er þar að glíma
og hverjar eru helstu
leiðir til lausnar hans.
í t'yrri hluta bókar-
innar er fjallað um
mikilvæga þætti um-
hverfísmála, svo sem
loftmengun, eyðingu
ósónlagsins, mengun
hafsins og mannfjölg-
unarvandann. Er þar
meðal annars rætt um
hættuna af losun
geislavirkra efna í haf-
ið og birt kort af leið
geislavirkra efna frá
kjarnorkustöðinni í
Sellafield til hafsvæð-
anna við ísland. Þá er
rætt um áhrif iðnaðar
og orku á umhverfið,
hættuleg úrgangsefni
og eyðingu náttúru-
gæða. Byggt er á upp-
lýsíngum frá Um-
hverfismálastofnun
Sameinuðu þjóðanna í
þessum efnum.
í síðari hluta bókttr-
innar er íjallað um
Ríó-ráðstefnuna 1992.
Þar er birt Ríó-yfirlýs-
ingin um umhverfi og
þróun og ítarlegur út-
dráttur úr Dagskrá 21,
framkvæmdaáætlun í
umhverflsmálum fyrir
næstu áratugi, sem .
samþykkt var á
Ríó-ráðstefnunni
sumttrið 1992. Fjöldi
skýringamynda er í
bókinni.
Össur Skarphéð-
insson umhverfisráð-
herra skrifar formála
bókarinnar. Birt er
ávarp forseta Islands
Vigdísar Finnboga-
dóttur á Ríó-ráðstefn-
unni og stuttar greinar
rita Arnþór Garðars-
son formaður Náttúru-
verndarráðs, Auður
Sveinsdóttir formaður
Landvemdar og
Hulda Valtýsdóttir
formaður Skógræktar-
félags Islands.
Framtíð jarðar er
240 bls. Útgefandi er
Alþjóðamálastofnun
Háskóla íslands.
Oddi annaðist prent-
verk.
Krossgátubókin
er komin út
Ó.P. útgáfan hefur geftð út Kross-
gátubókina í ellefta sinn en bókin kemur
jafnan út í desember. Krossgátubókin er
68 blaðsíður og hefur að geyma ýmsar
gerðir af krossgátum.
Krossgátubók
ársirn
VIÐSKIPTAMANNA
NKA 0G SPARISJÓÐA
■ ‘
í .. \
vf
Lokun 3. janúar og eindagar víxla.
Afgreiðslur banka og sparisjóða
verða lokaðar mánudaginn
3. janúar 1994.
Leiðbeiningar um eindaga
víxla um jól og áramót
liggja frammi í afgreiðslum.
Reykjavík, desember 1993
Samvinnunefnd banka og sparisjóða
SJÓMANNAHANDBÓKIN - bók sem sannarlega
á erindi við sjómenn er komin út
Góð jólagjöf bókaforlags
til sjómannastéttarinnar
Fyrir þessi jól kom
út hjá Erni og Orlygi,
Sjómannahandbókin
eftir þá Gunnar Ul-
seth og Tor Johan-
sen. Bókin er þýdd og
staðfærð úr norsku.
Bókinni er fyrst og
fremst stefnt til báta-
sjómanna, enda þótt
efni hennar höfði
meira og minna til
sjómannastéttarinnar
allrar. Fullyrða má að
þetta framtak bóka-
forlagsins Öm og Ör-
lygur er hin besta
jólagjöf til sjómanna-
stéttarinnar, enda
bætir hún úr brýnni
þörf fyrir aukna
fræðslu þeim til
handa.
Sjómannahandbók-
in var gefin út í sam-
vinnu við Siglinga-
málastofnun, Slysa-
varnafélag Islands
og Landssamband
smábátaeigenda.
Fjöldi sérfróðra
manna hafa lagt sitt af
mörkum til bókarinn-
ar sem fyrst og fremst
er ætlað það hlutverk
að stuðla að auknu ör-
yggi sæfarenda. Mun
ekki vanþörf á, enda
eru slys hvergi tíðari
en einmitt á sjónum.
Þeir sem tileinka sér
efni bókarinnar munu
ugglaust verða betur í
stakk búnir að mæta
óvæntum atvikum í
daglegum störfum
sínum.
„Mér er sérstakt
ánægjuefni að sigl-
ingamálastofnun hef-
ur lagt útgáfu þessarar
bókar lið og ég leyfi
mér að bera fram þá
einlægu ósk að hún
stuðli að því að sjó-
menn komi heilir
hafnar til“, segir
Benedikt Guð-
mundsson, siglinga-
málastjóri, í tilefni
þessarar miklu og
vönduðu bókar.
. UutmarUliHliog im Oolioníin
i A'k. T k
Alþýðublaðsmynd / Einar Óla.