Alþýðublaðið - 28.12.1993, Síða 7
Þriðjudagur 28. desember 1993
KVIKMYNDIR & NEKT
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
Háskólabíó: Saga-bió.
Addams-fjölskyldugildin
(Addams Family Values).
Leikstjóri: Barry Sonnenfeld.
Aöaiieikarar: Anjelica Hou-
ston, RaulJulia, Christopher
Uoyd, Joan Cusack, Peter
McNicoi, Christina Ricciog
Carol Kane. Stjömur * * 1/2
Ef kvikmyndagerðarmenn
auðgast á einhveiju verki sínu
em sumir þeirra ekki lengi að
bretta upp ermamar og hefjast
handa við gerð framhalds-
myndar. Þeir gera sér oftast
grein fyrir því að framhalds-
myndir geta ekki jafnast á við
fyrri snilld og leggja því ekki
á sig óþarfa vinnu við gerð
hinnar síðari. Einstaka sinn-
um láta þeir jx> metnaðargim-
ina ráða ferðinni og sem betur
fer em ekki allar kvikmynda-
persónur sem hverfa eftir
einnar kvikmyndar tilvem.
Hin víðfræga Addamsfjöl-
skylda samanstendur af frá-
bæmm persónum, reyndar
misfrábæmm. Þessar persón-
ur og kvikindisleg uppátæki
þeirra eiga vel við hið ískalda
skopskyn Frónbúans. Ad-
dams-fjölskyldugildin er
kvikmynd númer tvö í lfldegri
kvikmyndaröð um jressa
hrikalegu fjölskyldu; varla
láta aðstandendur myndarinn-
ar deigan síga á meðan þeir
geta grætt. Nýr Addams fæð-
ist inn á heimili þeirra Mort-
iciu og Gomez. Systkini jtessa
nýja fjölskyldumcðlims em
ekki ánægð með bamið og
reyna allt hvað þau geta að
koma því fýrir kattamef. Ekk-
ert gengur hjá þeim systkin-
um og morðtilraunir mistak-
ast. Foreldmm þeirra líkar
ekki sú stöðuga hætta sem
fitla krílið þeirra er í og fá sér
bamfóstm. Sú leit gengur
ekki þrautarlaust en loks finna
þau bamfóstm að þeirra
skapi. Hún er þó undirföml
og dregur „kyntröllið" Fester
á tálar með það í hyggju að
myrða hann og verða sér út
um gífurlegt fé. Eldri bömin
tvö verða í vegi hennar og því
lætur hún senda þau sumar-
búðir en ungmennafélagsand-
inn fellur ekki Addamsböm-
um í geð.
Tif mikillar furðu var smá
ádeila í myndinni. Reyndar
var að nokkuð hvöss ádeila á
þröngsýna og ríka fyrirmynd-
amppa Bandaríkjanna og þá
útbreiddu söguskoðun að
samskipti landnema og Ind-
jána í Ameríku hafi verið á
bestan máta.
Kvikindishúmorinn fær að
sjálfsögðu að njóta sín en þó
er nokkuð um óbeinar endur-
tekningar sem verða allþreyt-
andi til lengdar. Umgjörð er
öll faglega unnin og húsa-
kynni Addamsanna gamal-
dags og þunglyndisleg. Leik-
arar fá tækifæri til að njóta
sín. Ofleikur sumra er ekki til
lýta í mynd sem þessari en
Christina Ricci sem leikur
Wednesday passar einstak-
lega vel inn í myndina eins og
hina fyrri og ásamt flestum
hinum leikurunum skapa þau
ágætan hóp leikara.
Niðurstoða: Ágæt
skemmtun fyrir böm á öllum
aldri sem em farin að gera sér
grein fyrir því að ekki eigi að
herma eftir því sem gert er í
bíó.
MYND SEM EFLAUST
Á EFTIR AÐ BREYTA
HEGÐUNARMYNSTRI
KVIKMYNDAHÚSAGESTA
Háskólabíó. Rusl í ruslið: Kalli húsvörður. Handrit: Sigurbjörn
Aðalsteinsson. Lengd: Mjög stutt. Stjörnur ★ ★ ★ 1/2
Menn gera sér ekki alltaf grein fyrir því þegar þeir eru í bíó að rusl
eigi að fara í fötur framleiddar til slíks brúks en ekki á gólfið í saln-
um. Menn hafa verið aldir upp við það að skilja rusl eftir á kvik-
myndahúsagólfum án þess að það sé neitt tiltökumál. Þessi vett-
vangur er líklegast eini staðurinn sem sóðar geta fengið að njóta sín
fyrir utan eigið heimiii. Hin mestu snyrtimenni utan kvikmyndahúsa
eiga það þó til að láta sig litlu skipta þó að allar sælgætisumbúðimar
þeirra liggi eftir á jörðinni þegar sýningu lýkur.
Háskólabíósmenn hafa hafið sýningar á stuttmynd sem sýnd er
áður en auglýst mynd fær að hrífa áhorfendur. Þar fær Kalli hús-
vörður gesti, á gamansaman hátt, til þess að hugsa sinn gang. Það er
sjaldan sem myndir hafa svo skýran boðskap sem þessi. Leikarar
fara á kostum og uppbygging er stórgóð. Eflaust mun þessi mynd
hafa slík áhrif að menn munu sjá lífið í snyrtilegra samhengi og
hjálpa Kalla.
Niðurstaða: Gagnrýnandi og hans fylgifiskur settu sælgætisum-
búðir sínar samviskusamlega í mslatunnu ekki langt frá sætaröð