Alþýðublaðið - 27.01.1994, Side 8
S I 1 1 @ I
UM AÐSKILNAD RÍKIS OG KIRKJU
upplýsingar og skráning stofnenda
JSjórgvin S* 95*22710 Ikl. 17-19) J
ÍS A 1 I § l)
UM ADSKILNAP RÍKIS OG KIRKJU
upplýsingar og skráning stofnenda
^Björgvin s: 95-22710 tkl. 17-19) J
Fimmtudagur 27. janúar 1994
15. TOLUBLAÐ - 75. ARGANGUR
Ar fjölskyldunnar
Fjölbreytt fjölskylduhátíð í
Háskólabíói á sunnudaginn
- og viðamikið málþing verður haldið á mánudag undir
einkunnarorðunum: Fjölskyldan - uppspretta lífsgilda
Opnunarhátíð Árs fjölskyldunnar hefst með
ávarpi Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmála-
ráðherra.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Ár fjöLskyldunnar 1994
sem Sameinuðu þjóðirnar
efna tii er hafið. Lands-
nefnd sem Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráð-
herra skipaði hefur unnið
að undirbúningi ársins hér
á landi. Á sunnudaginn
verður opnunarhátíð Árs
fjölskyldunnar haldin í Há-
skólabíói. í sal bíósins verð-
ur boðið upp á vandaða há-
tíðardagskrá sem hefst með
ávarpi félagsmálaráðherra
en í anddyri verður kynning
og margskonar skemmtiat-
riði. Allir eru velkomnir og
aðgangur ókeypis. Á mánu-
daginn verður viðamikið
málþing um fjölskyldumál
haldið á Hótel Sögu.
Landsnefndin hefur lagt
•“áherslu á að virkja sem flesta
til þátttöku í aðgerðum af
þessu tilefni. Samtök, stofn-
anir og sveitarfélög hafa verið
hvött til að gefa málefnum
fjölskyldunnar sérstakan
gaum á árinu með það að
markmiði að varanlegar
breytingar til hagsbóta fyrir
íjölskyldur fylgi í kjölfarið.
Starfshópar hafa verið stofn-
aðir í mörgum sveitarfélögum
til að vinna að þessu verkefni,
meðal annars hjá Reykjavík-
urborg, Akureyrarbæ og á
Selfossi. Þá hafa nokkrir
grunn- og íramhaldsskólar
^ákveðið að þemavikur á vor-
önn 1994 verði helgaðar Ijöl-
skyldunni og ýmis félög
hyggja á sérstakar aðgerðir í
tilefni af Ári fjölskyldunnar.
Glæsileg
opnunarhátíð
Á sunnudaginn verður opn-
unarhátíð Árs fjölskyldunnar
haldin í Háskólabíói. Hátíðin
er tvískipt. I anddyri hússins
verða á fjórða tug samtaka
með kynningu á starfsemi
sinni sem snýr að fjölskyld-
unni ásamt margskonar
skemmtiatriðum, en í sal
bíósins verður boðið upp á
vandaða hátíðardagskrá.
Dagskráin hefst með ávarpi
félagsmálaráðherra, Jóhönnu
Sigurðardóttur, söngvaramir
Sigrún Hjálmtýsdóttir og
Bubbi Morthens munu syngja
og leikararnir Sigurður Sigur-
jónsson, Olafía Hrönn Jóns-
dóttir og Öm Ámason flytja
leikþátt og lög úr Skilaboða-
skjóðunni verða sungin og
leikin. Fjórir kórar, samtals á
þriðja hundrað manns, koma
fram. Kóramir em: Tákn-
málskórinn, Kvennakór
Reykjavíkur, Drengjakór
Laugameskirkju, Bamakór
Grensássóknar og Fóstbræður
og munu þeir einnig syngja
allir saman með þátttöku há-
tíðargesta. Kóramir munu
meðal annars fmmflytja lag
Sameinuðu þjóðanna sem til-
einkað hefur verið ári ijöl-
skyldunnar 1994, í þýðingu
Ólafs Hauks Símonarsonar.
Stórtrommari frá Finnlandi
Finnski stórtrommar-
inn Jukkis Uotila er
staddur hér á landi á veg-
um NOW)-Jass og Jass-
deildar FÍH. Hann verður
við tónlistarskóla FÍH
27.-30. janúar og eru allir
áhugamenn velkomnir til
að fylgjast með starfi hans
meðan á dvölinni stendur.
Jukkis Uoúla er í hópi
ffemstu jasstónlistarmanna
Norðurlanda.
Hann leikur með finnsku
UMO stórsveiúnni og
stjómar henni einnig á
stundum.
Hann er ennfremur yfir-
maður hinnar virtu Sibeli-
usar akademfu í Helsinki.
Uoúla hefur leikið með
fjölda norrænna listamanna
og bandanskum stórstjóm-
um á borð við Randy Bec-
ker, Mike Stem, David
Licbman og Bob Mintzer.
í anddyri hússins verður líf
og fjör. Blásarakvintett
Reykjavíkur leikur frá klukk-
an 13.30 til 14.00, sýndur
verður dans með þátttöku allr-
ar fjölskyldunnar, eldgleypir
leikurlistirsínarog ungntenni
verða með ýmsar uppákomur.
Samhliða kynna samtök og
stofnanir þjónustu sína við
fjölskyldur í máli og mynd-
um. Áðgangur að fjölskyldu-
hátíðinni er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Málþing
á mánudag
Á mánudeginum 31. janúar
verður viðamikið málþing um
fjölskyldumál haldið á Hótel
Sögu. Einkunnarorð mál-
þingsins em: Fjölskyldan -
uppspretta lífsgilda.
Fluttir verða rúmlega 20
fyrirlestrar um fjölskylduna
út frá mismunandi sjónar-
homum.
Meðal annars verður fjall-
að um afkomu fjölskyldunn-
ar, félagslega þjónustu, lífs-
skeið og fjölskyldubönd og
listina að lifa og listina að
elska, svo dæmi séu tekin.
Fyrirhugað er að halda
hluta af málþinginu á nokkr-
um stöðum á landsbyggðinni
á Ári fjölskyldunnar 1994.
Góðan daginn, Evrópa!
Vantar þig upplýsingar
umnýútboð
áEES-svæðinu?
Daglega eru auglýst um 150 ný útboð í útboðsbanka
EB og EFTA (TED, Tender Electronic Daily).
Dæmi um útboð: Mannvirkjagerð, vegagerð, verkfræði-
þjónusta, hugbúnaðargerð, kaup á matvælum svo sem
fiski, osti og fleiru.
Meðal annars er hægt að leita eftir löndum, landsvæð-
um og efnisflokkum.
í bankanum er einnig að finna upplýsingar um GATT-
útboð.
Öll íslensk fyrirtæki og einstaklingar geta tengst útboðs-
bankanum í gegnum Skýrr.
Allt sem þarf til að tengjast er einmenningstölva, sím-
tæki, mótald og samskiptaforrit.
Nánari upplýsingarveitir ráðgjafar- og markaðsdeild
Skýrr í síma 695100 eða bréfasfma 695251.
ÞJÓOBRAUT UPPLÝSINGA