Alþýðublaðið - 18.02.1994, Síða 1
Verð í lausasöiu kr. 140 m/vsk
Deilan um breytingar landbúnaðarfrumvarps:
ÞETTA MÁL LEYSIST
- segir Gísli S. Einarsson, fulltrúi Alþýðuflokksins
í landbúnaðarnefnd Alþingis
„Það er alveg fráleitt tal að
líf ríkisstjórnarinnar hangi á
bláþræði vegna þessara
breytinga á búvörufrum-
varpinu. Það liefur alls engin
áhrif á líf hennar og ég tel
ekki annað sýnt en að það
leysist. Ég tel að hér eftir sé
þetta mál til úrlausnar milli
ráðherra og ráðuneyta",
sagði Gísli S. Einarsson, þing-
maður Alþýðuflokksins og
fulltrúi flokksins i landbún-
aðarnefnd.
Gísli sagðist vera á móti
þeini víðtæku heimildum til
handa landbúnaðarráðuneytinu,
sem álit þriggja lögmanna gerir
ráð fyrir. Sagði Gísli að sér
hefði virst að Indriði Þorláks-
son, skrifstofustjóri fjármála-
ráðuneytisins, væri sama sinnis
í þessu efni um nánast tak-
markalausar heimildir um land-
Gísli S. Einarsson.
búnaðartengdar vörur sem fella
ætti undir stjómsýslu landbún-
aðarráðuneytis. Fulltrúar fjár-
málaráðuneytis kynntu skýrslu
sína um málið á fundi með
landbúnaðamefnd í gær. Þar
kom meðal annars fram að fjár-
málaráðuneytið telur það
hreinan skrípaleik að færa
nánast öll tollamál frá fjár-
málaráðherra til
landbúnaðarráðherra.
I hádeginu í gær kom land-
búnaðamefnd saman til fundar.
Gísli sagði að sá fundur hefði
farið fram tneð mestu spekt
eins og við mátti búast. Um
helgina mundu formenn stjóm-
arflokkanna ræða málin. A
þriðjudag væri stefnt að því að
landbúnaðamefnd kláraði mál-
ið á fundi sínum og sendi það til
þingsins.
Gísli sagði að ljóst væri að
hvert Iand fyrir sig hefði rúmar
heimildir til að setja á takmark-
anir á innflutning. í málefnum
sem sném að GATT væm
framundan mörg óleyst mál.
„Ríkisstjómin á að mínú
mati að nota sér þá stöðu mála
sem hún óumdeilanlega hefur
skapað til að gera góða hluti.
Það bíða mörg úrlausnarefni,
og stærri en þetta mál, sem nú
er fjallað um“, sagði Gfsli S.
Einarsson.
Félag frjálslyndra jafnaðarmanna heldur fund um:
„Atvinnuleysi og skipulag á
VINNUMARKAÐI”
- og spyr: „Er samband þar á
F é 1 a g
f r j á I s -
I y n d r a
jafnaðar-
m a n n a
heldur fund
með yfir-
skriftinni
„Atvinnu-
leysi og
skipulag á vinnumarkaði
- Er skipulag þar á milli“
á Kornhiöðuíoftinu við
Bankastræti þriðjudags-
kvöldið 22. febrúar 1994,
klukkan 20.30.
Talsmenn FFJ segja um-
ræðu um skipulag og hag-
kvæmni vinnumarkaðarins
á Islandi löngu tímabæra og
nauðsynlega. Til að hrinda
Ml ■ \ i{íHduÍJ JS
i '*H .ítfi.-..
m H
Éu m
Jóhannes. Óskar.
henni af stað, efnir Félag
ftjálslyndra jafnaðarmanna
til opins fundar um þetta
mikilvæga málefni. Frum-
mælendur á fundinum verða
sem hér segir:
Þorvaldur Gylfason
hagfræðiprófessor, Jóhann-
es Nordal, fyrrverandi
Seðlabankastjóri, Oskar
Magnússon, forstjóri Hag-
kaups, Christian Roth, for-
Ingibjörg Margrét.
Sólrún.
stjóri ÍSAL, og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir þing-
kona.
Fundarstjóri verður
Margrét S. Björnsdóttir,
formaður Féiags frjáls-
lyndra jafnaðarmanna.
Að lokinni framsögu
verða almennar umræður.
Fundurinn er öllum opinn
og kaffigjald er krónur 500.
Þorraldur.
aötumarfeað
„-„ciaNIR Heinglunnar
'l ÚTSÖLURN AR
KVniuni i>ri i’ Ö£EíLll! vörum
GÖTUMARKAÐUR í KRINGLUNNI
9 <*9 l
• •
Ifura, ,___ , „
ÍIÖRURHAR ÚT Á GÖTU ■ TltRÐlÐ HIÐUR UR OILUIIRLDI
kringwn
- gatan min -
| O P I Ð FÖSTUPAG FRÁ KL. 10-19, LAUGARPAG FRÁ K L . 10-16