Alþýðublaðið - 08.03.1994, Page 1
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
Landsvirkiun:
Slær lán tíl að borga eldra lán
LANDSVIRKJUN hefur
slegið lán í útlöndum að
upphæð 1.750 milljónir
króna. Lánsfénu verður
varið til að greiða upp fyrir-
fram eldra lán Landsvirkj-
unar.
í gær var undirritaður I
London lánssamningur milli
Landsvirkjunar og The Nip-
pon Credit Bank Ltd. unt lán
til Landsvirkjunar að fjárhæð
2,5 milljarðar japanskra jena
eða um 1.750 milljónir króna
á núverandi gengi. Lánstím-
inn er fimm ár og ársvextir
4%.
Af hálfu Landsvirkjunar
var lánssamningurinn undir-
ritaður af Halidóri Jónatans-
syni forstjóra.
Jafnframt hefur Lands-
virkjun gert sérstakan vaxta-
skiptasamning við Nomura
International Plc. í tengslum
við lántökuna. Samningurinn
felur í sér að í stað 4% fastra
vaxta samkvæmt lánssamn-
ingum við Nippon Credit
Bank Ltd. verða vextimir
breytilegir og miðast við sex
mánaða Libor vexti á jap-
önskum jenum að frádregn-
um 0,03% ársvöxtum, eða um
það bil 2,28% ársvöxtum
miðað við markaðsaðstæður í
dag.
Lánsfénu verður varið til
að greiða upp fyrirfram eldra
lán Landsvirkjunar að sömu
íjárhæð frá The Nippon Cred-
it Bank, sem tekið var 1989
og ber 5,35% vexti á ári.
Greenpeace-samtökin í Svíþjóð:
Misstu 40 þúsund stuðningsmenn
í UMRÆÐUÞÆTTI í
sænska sjónvarpinu á dög-
unum kom fram hjá frétta-
mánni, að Greenpeace-sam-
tökin í Svíþjóð töpuðu 40
þúsundum af 180 þúsund
félögum sínum á síðasta ári.
Sjónvarpið var með viða-
mikla dagskrá um Green-
peace, þar sem rætt var við
ýmsa forystumenn samtak-
anna.
í ljós kom að samtökin hafa
nánast hrunið í alntennings-
áliti í Svíþjóð eftir sýningu á
nú heimsfrægri mynd Magn-
úsar Guðmundssonar í sjón-
varpinu í fyiTa, sem og um-
ræðuþættinum, sem Jón
Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra, tók þátt í. Töl-
um fréttamannsins um hmn
Greenpeace-samtakanna var
látið ómótmælt.
Stjórn Verslunarráðs um aðild fslands að Evrópusambandinu:
Utilokum enga kosti fyrirfram
STJÓRN Verslunarráðs
íslands fagnaði í gær þeirri
ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar að gerð verði fræðileg út-
tekt á kostum og göllum að-
ildar íslands að Evrópu-
sambandinu.
Minnir Verslunarráðið á að
innan þess fór fram ítarleg
könnun á þessu viðfangsefni
fyrir ári. I skoðanakönnun á
viðskiptaþinginu hafi tveir af
hverjum þrem lýst sig fylgj-
andi því að sækja um aðild og
sjá hvaða niðurstaða fengist
úr aðildarviðræðum.
„Að lokirini úttekt á kost-
um og göllum aðildar þarf að
fara fram málefnaleg og for-
dómalaus umræða og ákvörð-
unartaka að vel ígmnduðu
máli. Af þeirn sökunt hvetur
Verslunarráð íslands ráða-
menn þjóðarinnar til þess að
útiloka enga kosti að óathug-
uðu máli og gefa sér engar
niðurstöður fyrirfram", segir
stjóm Verslunarráðsins.
Selskinn eru nú notuð í vaxandi
mæii við framleiðslu minjagrípa
SAMTÖK selabænda og
fleiri hafa unnið að því að
koma íslenskum kópaskinn-
um í verð á ný og hefur orð-
ið nokkuð ágengt í þeim efn-
um. Skinnin hafa bæði verið
seld úr landi og unnið úr
þeim hér hcima. Þá er einn-
ig unnt að selja lítið eitt af
selkjöti, söltuðu selspiki og
súrsuðum hreifum.
í Búnaðarritinu 1993 gerir
Árni Snæbjörnsson ráðu-
nautur grein fyrir því helsta
sem viðkemur hag hlunninda-
bænda árið áður. Þar kemur
frarn varðandi selveiði að í
samvinnu við Samtök sela-
bænda vann Ámi talsvert að
því að koma kópaskinnum í
verð. Safnað var um 600
skinnum vorið 1992 og var
dálítið selt til Danmerkur og
Grænlands. Hitt fór til nýting-
ar hér innanlands. Lágt verð
fæst fyrir skinnin erlendis en
er þó breyting frá þeim tfma
þegar ekkert seldist.
Með tilstyrk frá Fram-
leiðnisjóði hafa Samtök sela-
bænda styrkt það verkefni
Eggerts Jóhannssonar feld-
skera að sauma flíkur úr sel-
skinni. Eggert hefur saumað
af krafti og selt nokkuð innan-
lands og lagt drög að sölu er-
Iendis.
Þá hefur færst í vöxt að
ýmsir aðilar vítt og breytt um
landið nýti sér selskinn við
gerð ýmissa gripa til sölu fyrir
ferðamenn en selskinn eru
mjög gott hráefni til slíkra
hluta.
Ámi Snæbjömsson ráðu-
nautur segir örlítið votta fyrir
þvf að hægt sé að selja selkjöt,
saltað selspik og súrsaða
hreifa. Þótt í rnjög litlum mæli
sé eykur þetta á fjölbreytni og
vekur forvitni.
Tívolí í Hveragerði rifíð og flutt austur á land?
Tvö tilboð frá Austfirðingum
- en Hveragerðisbær vill halda mannvirkinu og á forkaupsrétt
BÚNAÐARBANKI ís-
lands hyggst selja fasteignir
Tívolís í Hveragerði síðar í
þessari viku. Tveir aðilar á
Austfjörðum hafa gert til-
boð í eignirnar. Fyrirtækið
Miðvangur hf. á Egilsstöð-
um vill kaupa húsakynni
Tívolís í Hveragerði, og
flytja þau austur og nota
fyrir safn. Þá mun Reyðar-
fjarðarbær fús til að kaupa
Tívolí þeirra Hvergerðinga
og mun ætla að nýta húsið
sem vöruskemmu á hafnar-
bakkanum. Hveragerðis-
bær vill líka halda í eignina
og þar í bæ hafa menn sínar
hugmyndir um hvernig
nota skal húsið.
Sveinn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Miðvangs,
sagði Alþýðublaðinu í gær að
unnið væri að kaupunum.
Hveragerðisbær mun þó eiga
forkaupsrett að mannvirkjun-
um, en Sveinn sagði að þeir í
Miðvangi. hf. væm inni í
myndinni.
Sveinn sagði að ætlunin
væri að nýta mannvirkin á
Egilsstöðum fyrir Samgöngu-
tækjasafn Islands, í það
minnsta að hluta til, en þau
em rúmlega 6 þúsund fer-
metrar að stærð. Hugmyndin
er að koma húsunum fyrir í
tvennu lagi við syðri enda
flugbrautarinnar eða sunnan
við flugskýlin.
Samgöngutækjasafnið á
Egilsstöðum var sett á stofn í
fymt af nokkrum áhuga-
ntönnum og stóð safnið fyrir
sýningu á görnlum sam-
göngutækjum í íþróttahúsinu.
Sóttu á þriðja þúsund manns
sýninguna. Safnið í varanlegri
mynd er hugsað sem safn
nánast alls sem hreyfist, bfla,
mótorhjóla, landbúnaðarvéla,
vélsleða, - og flugvéla. Yrði
það án efa til að laða að ferða-
fólk til staðarins enda hefði
það aðdráttarafl sem virkaði á
marga.
Hallgrímur Guðmunds-
son, bæjarstjóri í Hveragerði
sagði í samtali við Alþýðu-
blaðið að engin ákvörðun
hefði verið tekin í bæjarstjóm
um Tívolí-mannvirkin, en rétt
væri að bærinn ætti forkaups-
rétt. Margar hugmyndir væru
um notkun hússins. Til dæmis
að þar mætti gera Vetrargarð,
þar sem mikið yrði um gróður
að vetrarlagi og húsið nýtt til
almennra íþróttaiðkana, auk
þess sem þar yrðu markaðir
og sölusýningar af ýmsu tagi.
Ljóst er að kaup, flutningur
og endumýjun á húsakynnum
Tívolís í Hveragerði er dærni
upp á nokkra tugi milljóna.
Siúkrahús Suðurnesja:
Heilbrigðisráðherra heimilar
byggingu D-álmu í Keflavík
GUÐMUNDUR Árni
Stefánsson heilbrigðisráð-
herra hefur veitt Sjúkra-
húsi Suðurnesja heimild til
að ráðast í framkvæmdir
við byggingu svonefndrar
D-álmu við spítalann. Áætl-
að er að hefja framkvæmd-
irnar í sumar og er reiknað
með að byggingakostnaður
nemi hátt í 350 milljónum
króna.
í þessari nýju byggingu
verður langlegudeild sem
rúmar 30 sjúklinga auk end-
urhæfingardeildar, sjúkra-
þjálfunardeildar og hluta af
starfsemi heilsugæslunnai'.
Mikil ánægja ríkir á Suður-
nesjum með heimild ráðherra
fyrir framkvæmdunum.
Á Suðurnesjum' er slæmt
atvinnuástand og það þykir
ljóst að framkvæmdimar
rnunu skapa mörgum atvinnu.
Þá er reiknað með að um eða
yfir 30 störf komi þegar nýja
langlegudeildin verður tilbú-
in, væntanlega eftir tvö ár.
Samkvæmt skipulagi heil-
brigðisþjónustu er Sjúkrahús
Suðumesja eitt af svæðis-
sjúkrahúsum landsins þar
sem aukin áhersla verður lögð
á endurhæfmgu og eftimieð-
ferð.