Alþýðublaðið - 25.05.1994, Blaðsíða 2
2 (a) ALÞYÐUBLAÐIÐ
POLITIK
Miðvikudagur 25. maí 1994
MPÍBUBLiiMB
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Augiýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Er lýðræðið
falt fyrir fé?
Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum eykst fylgi Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík hægt og bítandi. Mánudagsútgáfa
Eintaks birti í gær skoðanakönnun SKÁÍS þar sem fram kem-
ur að sjálfstæðismenn haldi meirihlutanum í höfuðborginni.
Þetta er fyrsta skoðanakönnunin frá því að Reykjavíkurlistinn
kom til sögunnar sem hann verður undir í skoðanakönnunum.
Samkvæmt skoðanakönnun SKÁÍS fær Sjálfstæðisflokkur-
inn 52.6% fylgi þeirra sem tóku afstöðu í könnuninni en
47.4% styðja Reykjavíkurlistann. Þessi skoðanakönnun segir
að sjálfstæðismenn haldi meirihlutanum í Reykjavík, fái 8
menn kjöma en Reykjavíkurlistinn 7 menn.
Stígandi sjálfstæðismanna í kosningabaráttunni í höfuðborg-
inni er eftirtektarverð. Hún segir sögu sem allir geta dregið
lærdóm af. Sögu, sem varðar lýðræðið, skoðanamyndun með
auðmagni og hið eiginlega frelsi samfélagsins. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur ræst kosningavél sem gengur fyrir pening-
um, skítkasti og síbyljuáróðri. Sú vél virðist ætla að skila
sjálfstæðismönnum mun meira fylgi en upphaflega virtist.
Það er umhugsunarvert að persónulegt skítkast skili pólitísk-
um árangri; Að miskunnarlausar aðferðir við að hengja upp
einstaka frambjóðendur í efstu ijölmiðlagálga, skuli hafa
mælanlegar breytingar á skoðanir almennings í stjómmálum.
Það er ennfremur umhugsunarvert fyrir alla þá sem vilja búa
og lifa í lýðræðisþjóðfélagi, að peningar skuli móta skoðanir.
Að þeir sem mestu fjármunina eiga og eru reiðubúnir að nota
þá í pólitískri baráttu, skuli hafa árangur sem erfiði. Það er
nöturleg staðreynd á íslandi í dag, að peningar skipta mestu í
pólitík. Fjárausturinn í kosningavél sjálfstæðismanna í höfuð-
borginni hefur vakið athygli almennings. Hvaðan koma allir
þessir peningar? spyr almenningur. Svarið er auðvitað: Frá
stuðningshópum sjálfstæðismanna. Það em fyrirtækin sem
verja og viðhalda hagsmunum sínum; Það em peninga- og
sérhagsmunahópar sem telja það sjálfsagða fjárfestingu að
greiða fé í kosningavélar sem viðhalda aðstöðu þeirra við
kjötkatla borgarinnar; Það em stóm fjáreigendahópamir sem
vita að fall sjálfstæðismanna í Reykjavík gæti haft mildar af-
leiðingar á landvísu.
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn snúast kosningarnar í Reykjavík
um miklu meira en borgina eina. Þess vegna streyma pening-
amir í kosningabaráttu D-listans í Reykjavík. Fyrir þá pen-
inga em búnar til auglýsingar og þær birtar í fjölmiðlum,
kvikmyndahúsum og á öðrum opinberum stöðum. Fyrir þá
peninga er öll hugsanleg þjónusta keypt sem nýta má í áróð-
ursskyni, bæklingar prentaðir, símhringingar, heimsóknir og
þar fram eftir götunum. Síbylja Sjálfstæðisflokksins dynur í
eymm og ber fyrir sjónir almennings dag eftir dag. Þungi
áróðursins er fyrst og fremst ætlaður hinum óákveðna hópi.
Þannig em skoðanir hinna skoðanalausu og óákveðnu mótað-
ir með peningum, ekki málefnum. Og að sama skapi er nei-
kvæðum áróðri gegn einstökum frambjóðendum Reykja-
víkurlistans haldið uppi.
Gegn allri þessari miklu peningavél stendur almenningur,
launafólkið. Almenningur ræður ekki yfir þessum fjármun-
um. Framboð fólksins getur ekki höfðað til fámennrar pen-
ingastéttar, auðugra sérhagsmunahópa, fyrirtækja í valdaað-
stöðu. Framboð fólksins hefur málefnin ein og takmarkaðan
kosningasjóð. Þess vegna er kosningabaráttan í Reykjavík
1994 lærdómsrfk. Má það vera að svo sé komið á íslandi í dag
að peningarnir skipti öllu. Er lýðræðið falt fyrir fé? Um þetta
snúast borgarstjómarkosningarnar í Reykjavík til frambúðar.
RÖKSTÓLAR
Fréttaannáll Hvítasunnu
„Hallur, þú hefur talað í kvöld og leyfðu mér nú að komast að,66
sagði Steingrímur Hermannsson í viðtali á Stöð 2
„Upptaktur helgarinnar var að sjálfsögðu
tímamótaviðtal Halls Hallssonar...við sjálfan
Seðlabankastjórann...Það var nokkur há-
punktur þegar Steingrímur komst loksins að
Jyrir spyrjandanum en missti orðið þegar í stað
og sagði þá uppgefinn: „Hallur, þá hefur talað
í kvöld og leyfðu mér ná að komast að.u”
Hvítasunnuhelgin er búin að
vera nokkuð löng og talsvert
strembin fyrir ýmsa. Tíðinda-
maður Rökstóla hefur ákveðið
að texti dagsins skuli vera
fréttasamantekt af því mark-
verðasta sem gerst hefur fyrir
og eftir helgi og meðan á henni
stóð.
Tímamótaviðtal
á Stöð 2
Upptaktur helgarinnar var að
sjálfsögðu tímamótaviðtal
Halls Hallssonar („besta blaða-
manns íslands" eins og Ingvi
Hrafn, fyrrum fréttastjóri
Stöðvar 2 og núverandi Bingó-
stjóri stöðvarinnar, sagði forð-
um) við sjálfan Seðlabanka-
stjórann. Steingrímur var mætt-
ur fyrir hönd sjömenninga-
klíkunnar á Tímanum.
Helstu hápunktar viðtalsins
(þegar orðaskil voru skiljanleg)
vom þegar blaðamaðurinn sak-
aði Seðlabankastjórann um
rassvasa-bissness og Seðla-
bankastjórinn sagðist ekki
skilja muninn á því að fá
greiðslu fyrir tækin með annarri
hendinni og afhent með hinni
eða að láta „þetta“ bara renna á
milli.
Það var einnig nokkur há-
punktur þegar Steingrímur
komst loksins að fyrir spyrjand-
anum en missti orðið þegar í
stað og sagði þá uppgefinn:
„Hallur, þú hefur talað í kvöld
og leyfðu mér nú að komast
að.“
Lokahápunkturinn var nátt-
úmlega þegar Seðlabankastjór-
inn sagði í hinni beinu útsend-
ingu, að ef „þetta“ væri eitt-
hvað óeðlilegt, þá myndi hann
og sjömenningaklíkan að sjálf-
sögðu bæta fyrir það.
Þegar útsendingunni lauk og
Elín Hirst birtist aftur á skján-
um, var greinilegt að fréttastjór-
inn var mjög slegin. Hún var
lengi orðlaus, náföl og átti
greinilega erfitt með að komast
aftur í eðlilegt horf. Nú veltum
við fyrir okkur hvort fréttastjór-
inn hafi verið miður sín út af
ummælum Seðlabankastjórans
eða fréttamannsins. Alla vega
höfum við ekki séð Hall aftur á
skerminum eftir viðtal vikunn-
ar.
Og reyndar ekki séð neitt til
Steingríms heldur.
„Nýtt
fjármálahneyksli“
Upptakturinn að viðtali vik-
unnar var daginn áður, bæði á
Stöð 2 og ekki síst í Pressunni
sem gerði sjömenningaklíkunni
mjög sérstök skil á forsíðu. Þar
var sjömenningaklikunni fækk-
að niður í einn frambjóðanda á
Reykjavíkurlista, nefnilega Sig-
rúnu Magnúsdóttur. „Nýtt íjár-
málahneyksli“ stóð á forsíðu
Pressunnar.
- Jahá.. .hugsaði tíðindamað-
ur Rökstóla þegar hann las for-
síðuna, hvað var aftur gamla
fjármálahneykslið hennar Sig-
rúnar?
Og því meira sem undirritað-
ur velti þessu fyrir sér, því
minna mundi hann eftir gömlu
hneyksli með Sigrúnu. Loks
rann það upp fyrir undirrituð-
um, að „Nýtt fjármálahneyksli"
hefði yfirleitt ekkert við meint-
ar, gamlar syndir Sigrúnar að
gera, heldur hlyti hér vera um
að ræða nýtt hneyksli í þjóðlíf-
inu, svona almennt séð. Síðan
fór tíðindamaður að velta fyrir
sér af hveiju það væri bara stór
ljósmynd af Sigrúnu af sjö-
menningaklíkunni á forsíðunni.
Ekki átti hún nteiri þátt í
meintu hneyksli en hinir sex-
menningamir. Þá rann það upp
fyrir tíðindamanni að fréttin
hefði yfirleitt ekkert með fjár-
málahneyksli eða Sigrúnu að
gera. Einhvers staðar bak við
hneykslisfréttina væru forráða-
menn blaðsins sem hefðu blán-
að upp fyrir borgarstjórnar-
kosningar.
Geggjað.
Langsoltin
fegurðardrottning
Stórfrétt föstudagsins var svo
fegurðarsamkeppnin. Tíðinda-
maður Rökstóla hafði að sjálf-
sögðu valið þrjár efstu í hugan-
um en varð mjög hrelldur þegar
hann uppgötvaði að engin feg-
urðardísa hans komst svo mikið
sem í úrslit. Þetta þótti tíðinda-
manni undarlegt þar sem hann
drakk bara mjólk og kaffi þetta
kvöld en fór nú að velta því
fyrir sér hvað dómnefndin
hafði verið að drekka um
kvöldið. Því miður var vélin
ekki nógu lengi á formanni
dómnefndar er hann gekk uppá
sviðið og aíhenti umslagið, til
að undirritaður gæti dæmt um
göngulagið. En það virtist í
einu og öllu óaðfinnanlegt.
Kannski hafa hugmyndir krata
orðið svo útbreiddar að jafnað-
annennskan sé einnig komin í
dómnefnd Fegurðarsamkeppni
Islands.
Hver veit?
Það skemmtilega við fegurð-
arsamkeppnina voru óneitan-
lega strákarnir á sviðinu sem
gengu upp og niður tröppumar,
réttu út hvíthanskaklædar hend-
ur í kjól og hvítt og gáfu
dömunum leiðsögn upp og nið-
ur stigana. Spumingin senr
vaknaði var auðvitað sú, hvort
að dömumar gætu ekki gengið
án herranna eða hvort dömurn-
ar notuðu sér herrana sem und-
irdánuga þræla til að styðja sig
við. Túlkunin fer allt eftir því
hvort þú kýst íhaldið eða
Reykjavíkurlistann.
Ummæli kvöldsins voru feg-
urðardrottningar íslands þegar
hún stundi brosandi og nýkrýnd
í gegnunt tárin: „Eg ætla heim
að sofa, vakna svo á morgun og
fara að borða!“
Furðulegur endir
á knattspyrnu-
handbók
Nýtt Eintak - Eintak mánu-
dagsins - hefur séð dagsins
ljós. Voðalega margir spyija
hvort þetta sé upphafið að því
að Eintak verði dagblað. Eða
kannski upphafið að því að
Pressan verði mánaðarrit eða
kannski árbók.
Tíðindamaður Rökstóla fletti
nýju Mánudagseintaki af áhuga
en sá mest af skoðanakönnun
Skáís þar sem D-listinn hafði
náð yfirhöndinni hjá 600
manns en reytingur þeirra vildi
svara hvað hann hyggist kjósa
um helgina. Svo var að finna
aftar í blaðinu heljarmikla
knattspymuhandbók með tug-
um ljósmynda í frímerkjastærð
af öllum leikmönnum Islands í
meistaraflokki. Glæsilegt. Ég
var kominn langleiðina með að
klára síðasta og furðulegasta
knattspymuliðið þegar það rann
upp fyrir mér að ég var að lesa
auglýsingu um stuðningsmenn
D-listans í Reykjavík og að
Pétur Marteinsson var ekki að
tala sem knattspymumaður
heldur sem stuðningsmaður
Sjálfstæðisflokksins þegar hann
sagðist styðja traustan flokk til
framfara.
Furðulegur endir á knatt-
spymuhandbók.
Reyndar furðulegt að aðeins
89% aðspurðra sögðust þekkja
og muna eftir Áma Sigfússyni
borgarstjóra samkvæmt skoð-
anakönnun Skáís fyrir Eintak.
88% muna hins vegar eftir
Ingibjörgu Sólrúnu sem aldrei
hefur verið borgarstjóri. Aðeins
34% þekkja Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson sem hefur verið í
framlínu sjálfstæðismanna í
borginni frá því að elstu menn
rnuna. Var hann ekki sendi-
sveinn hjá Geir Zoega? Eru
sjálfstæðismenn svona lítið eft-
irminnilegir?
Maður bara spyr.
Islandsmet í
sjúkraflugi
Aftur em íslendingar búnir
að slá Islandsmet. Nema í þetta
skipti slógu Bandaríkjamenn
íslandsmetið. Vamarliðið á
Keflavíkurflugvelli ílaug nefni-
lega um helgina lengsta sjúkra-
flug sem flogið hefur verið.
Sjúklingurinn sem sló íslands-
metið var ekki ýkja hrifinn af
árangrinum og sagði við kom-
una í sjúkrahúsið samkvæmt
Mánudags-Eintaki: „Óþægilegt
að liggja svona lengi í þyrl-
unni.“ Ekki nema von þegar
maður er pikkaður upp 560
mílur suðvestur af Reykjanesi
með skæða botnlangabólgu. En
við höfum eignast nýjan Is-
landsmeistara.
Til hamingju!