Alþýðublaðið - 25.05.1994, Side 3
alþydumadurinn
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 AM - 3
Pétur Bjarnason, 14. maður á A-LISTA:
Skýr stefna í atvinnumálum
Kosningabaráttan snýst um
atvinnumálin. A því leikur eng-
inn vafi. Kjósendur ættu því að
gera sér grein fyrir því hvað
skilur flokkana að á því sviði.
Bæjarstjórnarflokkamir sæta
gagnrýni fyrir aðgerðarleysi í at-
vinnumálunum á kjörtímabilinu.
Sú gagnrýni er að hluta til réttmæt,
þótt atvinnuleysi eigi sér miklu
dýpri rætur en í getuleysi Alþýðu-
bandalags og Sjálfstæðisflokks.
Ekki verður hjá því komist að taka
undir með ýmsum gagnrýnisrödd-
um um athafnir og aðgerðir meiri-
hlutans. Þær hafa verið fálmkennd-
ar og oddvitar flokkanna og æðstu
embættismenn virðast hafa komið
á einhverskonar framkvæmdaráði,
sem eyðir meiri tíma í umræður og
athuganir, heldur en aðgerðir. Þetta
framkvæmdaráð er vanmegnugt að
taka skjótar ákvarðanir þegar þeirra
er þörf. Þannig var t.d. háttað um
hugsanleg kaup á SR-mjöli, sem
öllum leist vel á og meirihlutanum
fannst sjálfsagt að hugsa um þang-
að til það var of seint. Þannig var
það líka um raunhæfar aðgerðir til
þes að flytja störf á vegum ríkisins
út á land. Þeim voru allir sammála
og vildu hugsa um og eru sjálfsagt
enn að hugsa. Þannig var það líka
um góða tillögu, sem Gísli Bragi
Hjartarson stóð að um að laða til
bæjarins starfsemi á sviði nýsköp-
unar með því að virkja nýútskrifaða
námsmenn með góðar hugmyndir
og aðstoða þá við að breyta hug-
myndunum í framleiðsluvöru.
Meirihlutanum leist ljómandi vel á
þá hugmynd og er enn að hugleiða
hana.
Svona hefur því miður farið
með mörg góð mál, enda virðist að
meirihlutinn hafi breytt hlutverki
bæjarstjórans. Bæjarstjórinn er ekki
lengur framkvæmdastjóri bæjarfé-
lagsins, heldur æðsti skrifstofu-
maður bæjarins, sem þarf í stóru og
smáu að samræma sjónarmið odd-
vita flokkanna áður en nokkur
ákvörðun er tekin.
Þessu þarf að breyta. Ef marka
má stefnuskrár meirihlutaflokk-
anna í atvinnumálum þá þarf að
gefa þeim hvfld. Þeirra markmið er
að „leitast við“ - „kanna“ - „stefna
að“ o.s.frv. Lítið ber á skýmm til-
lögum. Hvað ætla þeir t.d. að gera
fyrir atvinnulausa? Þeir segjast ætla
að stefna að því að útrýma at-
vinnuleysinu, en hvemig? Reynsl-
an segir okkur að þeir muni hugsa
... oddvitar flokkanna og
œðstu embœttismenn
virðast hafa komið á
einhverskonar fram-
kvœmdaráði, sem eyðir
meiri tíma í umrœður og
athuganir, heldur en
aðgerðir. Þetta fram-
kvœmdaráð er vanmegn-
ugt að taka skjótar á-
kvarðanir þegar þeirra
erþörf.
það inál vel og lengi en hvað svo?
Jú, þeir ætla að stefna að hinu og
þessu og væntanlega hugsa málin
vel og gaumgæfilega þangað til
framtíðin verður orðin að fortíð.
Við þurfum því breytingar.
Alþýðuflokkurinn hefur í þess-
ari kosningabaráttu lagt fram skýra
stefnu í atvinnumálum. Kjósendur
eru hvattir til þess að kynna sér
stefnu flokksins gaumgæfriega.
Alþýðuflokkurinn mun þegar í stað
hrinda stefnumálum sínum í fram-
kvæmd fái hann til þess fylgi.
Framkvæmdum við fráveitukerfið
verður flýtt, þannig að fleiri vinnu-
fúsar hendur fái verkefni við að
hrinda þessu nauðsynjamáli í ífam-
kvæmd en ella. Veiti kjósendur
Alþýðuflokknum nægilegt brautar-
gengi mun bæjarstjórinn aftur fá
hlutverk framkvæmdastjóra og
bæjarbúar geta treyst því að
athafnir komi í stað orða og um-
ræðna.
Akureyri þarf á auknum á-
hrifum Alþýðuflokksins að halda
og flokkurinn þarf þitt atkvæði til
þess að svo verði.
Settu því XviðAá kjördegi.
Oktavía Jóhannesdóttir, 3. maður á A-LISTA:
Látið nýtt fólk spreyta sig
Á þcssu kjörtímabili hefur
margt snúist til verri vegar hér í
bæ. Núverandi bæjarstjórnar-
meirihluti Alþýðubandalags og
Sjálfstæðisflokks hefur reynst ó-
fær um að bregðast við sívaxandi
atvinnuleysi meðal bæjarbúa,
atvinnuleysi, sem helst bitnar á
konum og ungu fólki án starfs-
menntunar. Stefna þessara
flokka í atvinnumálum er ákaf-
lega fyrirferðarlítil og virðist
helst felast í því að reikna út
atvinnuleysisstigið frá degi til
dags.
Bæjarstjórnarmeirihlutann
skortir kjark, áræðni og þor til að
kveða niður atvinnuleysisdrauginn
og það er svo sannarlega kominn
tími til að gefa nýju fólki kost á að
spreyta sig á atvinnumálunum. Þar
höfum við allt að vinna.
Fíýtum framkvæmdum
A-LISTINN telur að það sé
frumskylda bæjaryfirvalda að neyta
allra tiltækra ráða til að vinna gegn
atvinnuleysinu. Þetta geta þau gert
á beinan og áhrifaríkan hátt með
því að flýta verklegum fram-
kvæmdum á vegum bæjarins. Hér
er m.a. átt við bráðnauðsynlegar
ffamkvæmdir við holræsakerfi bæj-
arins, sem bæði eru atvinnuskap-
andi og eru auk þess nauðsynlegar
til að skapa viðunandi starfskilyrði
fyrir þá matvælaframleiðslu, sem
fram fer í bænum.
A-LISTINN vill láta vinna þetta
stóra verkefni á 5 árum í stað 15
eins og fyrirhugað er. Bein vinnu-
laun við þessa framkvæmd eru á-
ætluð um 320 milljónir og ekki er
vafamál að framkvæmd af þessari
stærðargráðu virkar líkt og vítamín-
sprauta á atvinnulífið og hefur þar
gífurleg margfeldisáhrif.
Við skulum ekki láta dugleysi
núverandi meirihluta draga úr okk-
ur kjarkinn, en hefjast strax handa
við þau verkefni, sem hefði átt að
byrja á í gær. Hér á Akureyri höfum
við um margt ákjósanlegar aðstæð-
ur til að skapa blómlegt, framsækið
atvinnulíf en til þess að svo geti
orðið þarf virkan stuðning og já-
kvætt viðhorf bæjaryfirvalda og
bæjarbúa allra.
Hugsum til framtíðar
Við verðum þó alltaf að hafa í
huga að í atvinnumálunum þarf að
hugsa til framtíðar ekki síður en að
leysa vandamál líðandi stundar. A-
LISTINN vill m.a. styrkja nýút-
skrifaða námsmenn og búa þeim
aðstöðu til þess að koma í fram-
kvæmd hugmyndum, sem leitt
gætu til atvinnuskapandi fram-
leiðslu í framtíðinni. Við viljum
laða hingað ný fyrirtæki og greiða
fyrir flutningi opinberra stofnana til
Akureyrar.
Eklri er síður mikilvægt að
styðja við bakið á þeim fyrir-
Bœjarstjórnarmeiri-
hlutann skortir
kjark, árœðni og þor
til að kveða niður
atvinnuleysisdraug-
inn og það er svo
sannarlega kominn
tími til að gefa nýju
fólki kost á að
spreyta sig á
atvinnumál-unum.
tækjum, sem fyrir eru í bænum og
veita þeim alla fyrirgreiðslu sem
unnt er til að þau geti vaxið og dafn-
að áfram. Þá má ekki gleyma fram-
lagi framhaldsskólanna og Háskól-
ans á Akureyri til atvinnulífsins.
Þessir skólar eru í senn gífurlega
stórir vinnustaðir og geta, ef rétt er
á málum haldið, verið vettvangur
rannsókna og nýsköpunar í at-
vinnulífmu.
Markaössetjum Akureyri
í ferðamálum setur A-LISTINN
markið hátt og vill gera Akureyri
að mest sótta áfangastað innlendra
og erlendra ferðamanna. Við vilj-
um að bæjaryfirvöld hafi frum-
kvæði að öflugri og fagmannlegri
markaðssetningu bæjarins. Við
skulum aldrei láta það henda okkur
aftur að gestir okkar um páska-
helgina komi alstaðar að lokuðum
dyrum og fái ekki þjónustu og af-
þreyingu, sem þeir sækjast eftir. .
Góði kjósandi! Nú hefur þú
tækifæri til að hafa áhrif á gang
mála. Sættu þig ekki við dugleysi,
áhugaleysi og úrræðaleysi núver-
andi bæjarstjórnarmeirihluta.
Gefðu duglegu og kjarkmiklu
fólki tækifæri til að takast á við
vanda-málin.
Viljir þú breytingu
til batnaðar þá settu X
við A á kjöraag.
I síbustu bæjarstjórnarkosningum var kjörsókn á Akureyri
aöeins rúm 70%
Rekum af okkur slybruoröib —
Mœtum á kjörstab!
AKUREYRARBÆR
Menntasmiðja
kvenna
Menntasmiðja kvenna á Akureyri óskar að ráða í
tvær 50% stöður frá 15. júlí n.k. til loka árs 1994,
með möguleika áframhaldsráðningu.
Annars vegar er um að ræða 50% stöðu ráð-
gjafa/leiðbeinanda og er þar krafist menntunar á
sviði félagsvísinda s.s. í félagsráðgjöf eða sálar-
fræði. Hins vegar er 50% staða skrifstofustjóra/leið-
beinanda og er þar krafist góðrar tölvuþekkingar og
reynslu að rekstri. Mikilvægt er að umsækjendur
hafi reynslu af og þekkingu/þjálfun í mannlegum
samskiptum.
Kjör eru samkvæmt kjarasamningum STAK og Ak-
ureyrarbæjar.
Menntasmiðjan er þróunarverkefni á vegum Jafnréttis-
nefndar Akureyrarbæjar, fjármagnað með styrkjum m.a.
frá félagsmálaráðuneyti og menntamálaráðuneyti auk
stuðnings Akureyrarbæjar. Verkefnið er tilraun til næstu
áramóta, en markmiðið er að tryggja framhald starfsem-
innar. Menntasmiðjan er 16 vikna dagsskóli fyrir atvinnu-
lausar konur, með fyrirmynd í norrænum dagháskól-
um/lýðháskólum. Hún er framlag íslands til norræna verk-
efnisins Voks Nær - þróunarverkefnis um fullorðins-
fræðslu. Kennsla í Menntasmiðjunni ásamt daglegri
stjórn, skipulagningu og rekstri verður samvinnuverkefni
þessara starfsmanna ásamt verkefnisfreyju Menntasmiðj-
unnar.
Nánari upplýsingar veita starfsmannastjóri Akureyr-
arbæjar, verkefnisfreyja Menntasmiðjunnar og jafn-
réttis- og fræðslufulltrúi Akureyrarbæjar ( síma 96-
21000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 27. maí.
Starfsmannastjóri.
AKUREYRARBÆR
Skóladagheimili
Brekkukot - Hamarkot
Þeir sem óska eftir skóladagheimilisplássi fyrir böm
sín á Brekkukoti eða Hamarkoti veturinn 1994-1995
er bent á að umsóknarfrestur er til 1. júní nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu leik-
skóladeildar að Eiðsvallagötu 18. Eins geta foreldrar
sótt um símleiðis í síma 24600.
Leikskóladeild.
Frá Menntaskólanum
á Akureyri
■ ■"íáv/i Ir
____ITTTIíTn7:TIi:;B;i;i;;;il;lTn[ili;i;ii::i:ilííínTTTI=Tíl^_
MENNTASKÓLINN Á AKUREYRI
Auglýst er eftir kennurum í eftirtalin störf
skólaárið 1994/1995: dönsku (1/2), eðlis-
fræði (1/1), íslenska (1/2), stærðfræði (2/1)
og þýsku (1/1).
Upplýsingar gefur undirritaður í síma 96-
11433 milli 11 og 12 virkadaga.
Umsóknarfrestur er til 27. maí 1994.
Akureyri 18. maí 1994. Tryggvi Gfslason,
Skólameistari MA.