Alþýðublaðið - 16.06.1994, Síða 3
Fimmtudagur 16. júní 1994
UMRÆÐA
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
PALLBORÐ: Bjarni Sigtryggsson
Jafnaðarstefnan
er fjöldahre\fmg
Spjall margra fulltrúa á
flokksþingi Alþýðuflokksins
um nýliðna helgi á göngum og í
kaffistofum snerist óhjákvæmi-
lega um forystumál flokksins.
Þótt ýmsir virtust vera málshefj-
endur um þörfma á því að skipta
um forystu - af því þar þyrftu að
vera sannir jafiiaðarmenn, þá
fékk ég ekki betur heyrt en flest-
ir ræddu þessi mál yfirvegað og
málefnalega og hefðu að leiðar-
ljósi stefnumál flokksins og hag
þjóðarinnar. Það er nefnilega
erfitt að beita röksemdum fé-
laga Napóleóns úr sögu George
Orwell og segja að sumir jafn-
aðarmenn skuli vera sannari en
aðrir.
Sannir jafnaðarmenn
í haust verða 25 ár liðin frá
því ég kynntist starfi ungra jafn-
aðarmanna í Reykjavík og síðan
hef ég átt samleið með þessum
flokki. A þessum tíma hafa fjór-
ir gengt formennsku í Alþýðu-
flokknum: Doktor Gylfi Þ.
Gíslason, Benedikt Gröndal,
Kjartan Jóhannsson og Jón
Baldvin Hannibalsson. Starfs-
aðstæður þessara manna hafa
verið mjög ólíkar. Segja má að
hver þeirra um sig hafi tekið við
ólíku hlutverki, en allir eiga það
sameiginlegt að hafa gegnt hlut-
verki sínu vel. Þessir menn hafa
endurspeglað rnargt hið besta í
stefnu og lífsviðhorfum þess
fólks sem skipar sér í raðir
flokksins. Um alla fjóra má
segja, þeim til hins mesta lofs,
að þeir eru allir sannir jafnaðar-
menn. Annars konar jafnaðar-
mönnum hef ég til allrar ham-
ingju ekki kynnst.
Hinir síðustu verða
fyrstir
En hvað er það þá sem auð-
kennir sannan jafnaðarmann? I
mínum augum er það blanda
mannkosta og lífsviðhorfa
fremur en flokkstengsl. Sannur
jafnaðarmaður berst gegn órétti
og fyrir jöfnun tækifærum fyrir
alla. Hann eða hún berst ekki
fyrir því að allir skuli fá allt sem
þeir krefjast - með góðu eða
illu. En tækifærin eiga að vera
allra - og þeir sem ekki hafa
hlotið jafnan aðgang að tæki-
færum lífs síns eða með órétti
verið sviptir þeim, - þeir hinir
síðustu skulu verða fyrstir.
Sannir jafnaðarmenn gera
ekki síðri kröfu til sín en annarra
en þeir sýna líka ábyrgð og vita
að til þess að miðla þarf að afla.
Þeir sem vilja gefa af rausn
hjartans gera það ekki á kostnað
annarra; við bætum ekki hag
hinna verst settu samferðar-
manna með því að ganga á þjóð-
ararfinn eða senda reikning á
böm og barnabörn.
Tryggur þjóðarhagur
tryggir jöfnuð
Sannur jafnaðarmaður - hvar
í fiokki sem hann kann að
standa - veit að hagsmunum al-
mennings er best borgið þegar
þjóðarhagur er tryggur. Reynsl-
an hefur sýnt að skertur þjóðar-
hagur bitnar ójafnt á fólki -
kemur verst við þá sem tæpast
stóðu. Þess vegna ber forystu-
mönnum jafnaðarmanna að
leysa þjóðina úr herkví eyðslu-
skulda gæluverkefna sem ráðist
var í fyrir þrýsting hagsmuna-
afla en tryggja henni efnahags-
lega og menningarlega samleið
með skyldþjóðum.
Jafnaðarmenn allra
flokka
„Það er meginstefna stjómar-
innar að tryggja það að allir
landsmenn geti haft atvinnu við
sem arðbærastan atvinnurekst-
ur.“ Þessi orð mæti Olafur
Thors, forsætisráðherra nýsköp-
unarstjómarinnar, eftir stríð.
Þau em enn hollt íhugunarefni
fylgjendum þeirra stjómmála-
flokka, sem stóðu að þeirri
stjóm. I báðum þeim flokkum er
eflaust að finna fjölda sannra
jafnaðarmanna, fólks sem hefur
talið flokka sína besta verkfærið
til að skapa þjóðinni arð og jöfn
tækifæri til að njóta hans. Þar
hafa þó aðrir hagsmunir orðið
sterkari.
Flokkur brautryðjenda
Saga Alþýðuflokksins er lík-
ust sögu brautryðjandans sem
sér jafnan nýja leið og fer ót-
roðna slóð - sem aðrir síðan
feta. Hann kom á félagslegu
réttlæti hér á landi. Síðan varð
það hlutskipti Alþýðuflokksins
undir forystu doktor Gylfa Þ.
Gíslasonar að berjast fyrir
frjálsri verslun landsmanna og
afnema höft, skömmtun og
bönn í viðskiptum og athafna-
lífi.
Næsta stóra verkefnið hefur
verið efling lýðræðisins í land-
inu, nú síðast með kröfunni um
jöfnun kosningaréttar með af-
námi kjördæma eftir hreppum.
Og á nýafstöðnu flokksþingi
hefur Alþýðuflokkurinn - Jafn-
aðarmannaflokkur íslands, lýst
„A nýafstöðnu
flokksþingi hefur
Alþýðuflokkurinn
- Jafinaðannanna-
*
flokkur Mands,
lýst því ótvírætt
yfirað
✓
Mendingar eigi
að steftia að
áhrifiimíþví
samfélagi
evrópskra
skyldþjóða, sem
þeirmunu
óneitanlega eiga
samleið með í
framtíðinni.“
því ótvírætt yfir að íslendingar
eigi að stefna að áhrifum í því
samfélagi evrópskra skyld-
þjóða, sem þeir munu óneitan-
lega eiga samleið með í framtíð-
inni.
Skiptar skoðanir -
sameiginleg niðurstaða
Eitt af einkennum sannra
jafnaðarmanna er að þeir ræða
stefnumál opinskátt og komast
að sameiginlegri niðurstöðu.
Þegar hún er fengin standa þeir
saman. Val forystu er ekki
spurning um að velja beitu til að
veiða kjósendur, heldur að velja
til forystu fólk, sem stendur
vörð um stefnuna og kynnir
þjóðinni hana á skýran og skil-
merkilegan hátt.
Alþýðuflokksfólks hefur nú á
liðnum dögum skipst á skoðun-
um. Það hefur samþykkt stefnu
og það mun standa saman að
framkvæmd hennar. Styrkur
flokksins mælist ekki í stundar-
könnunum heldur í því hvort
stuðningsmenn hans reynist
sannir jafnaðarmenn og standi
saman. Verði svo munu jafnað-
armenn allra flokka og kynslóða
koma til liðs og styðja þá stefnu
í næstu kosningum. Jafnaðar-
stefnan sjálf er nefnilega fjölda-
hreyfing.
Hölundur er dagskrárgerðarmaður.
PALLBORÐ: Steinar Ágústsson
Að loknu flokksþingi!
Þá er 47. flokksþingi okkar
jafnaðarmanna lokið. Uppá-
komur eins og sprengjuhótun
virtist ekki hafa mikil áhrif á
þingfulltrúa, en alvarlegri var
húsbmninn í Suðurnesjabæ og
erfiðleikar hundruð manna
vegna brunans. Sem betur fer er
samkenndin til staðar hjá okkur
ef erfiðleikar koma upp hjá
samborgurunum.
Eg er mjög ánægður með úr-
slit í kosningum til formanns.
Afdráttarlaus stuðningur við
formann okkar jafnaðarmanna
er staðreynd. Jón Baldvin er í
dag einn litríkasti stjómmála-
maður landsins og megum við
jafnaðarmenn vera hreyknir af
slíkum foringja.
Nú reynir á okkur sjálf, dóm-
greind okkar og skynsemi, að
standa saman, jafnt forysta
flokksins og hinn almenni
flokksfélagi. Við skulum nefni-
lega muna eitt, jafnaðarmenn,
að úr öllum áttum verður vegið
að okkar flokki. Þess vegna
verðum við, öll sem einn, að
standa saman.
Alþýðuflokkurinn þarf ekki
að hræðast dóm kjósenda í
næstu alþingiskosningum. Við
einir flokka höfum nútíma jafn-
aðarstefnu fram að færa. Eigum
ekki í neinum fortíðarvanda og
horfum til framtíðar. Þess vegna
„Égermjög
ánægður með
úrslit í kosningum
til formanns.
Afdráttarlaus
stuðningurvið
formann okkar
jafiiaðarmanna
er staðreynd.“
á Alþýðuflokkurinn hljómgrunn
hjá öllu hugsandi fólki á íslandi
í dag.
Höfundur er verkamaður
í Vestmannaeyjum.
JTTFRETTIR
Landsins DÁÐUSTU synir
og dætur
VARNARLIÐIÐ gefur styttu af
landnámsmanni
Stytta af Hrafna-Flóka eftir bandaríska listamanninn Mark J. Eb-
bert var afhjúpuð við háúðlega athijfn á Keflavíkurflugvelli á laug-
ardaginn. Styttan er gjöf Varnarliðsins og listamannsins til íslensku
þjóðarinnar í tilefni af 50 ára aftnæli lýðveldisins. Davíð Oddsson.
forsætisráðherra, var viðstaddur athötnina.
Lýðveldispeningur
ÞROSKAHJÁLPAR
Þroskahjúlp hefur gefið út Lýdveldispeninginn í tilefni af hálfrar
aldai- afmæli lýðveldisins og fékk til þess sérstakt leyfi Þjóðháúðar-
nefndar og höfundar lýðveldismerksins en hann er .jón Ágúst
Pálmason. Það var Sjöfn Haraldsdóttir, myndlistamiaður, sem
hannaði peninginn, sem er 182 grömm á þyngd og 7 sentimetrar í
þvermál. sleginn í brons í Finnlandi í tveim útgáfum. Pcningamir
kosta 3.500 og 5.000 krónurog eru í vandaðri öskju.
LEONCIE í tónleikaferð til Asíu
Fimmtiu ára af- ---------------------
mæli lýðveldisins
og listahátíð draga
til landsins okkar
dáöustu: syni og
dæturfráútlandinu.
I kvöld mun þétt-
skipuð Laugardals-
höll hlýða á stór-
söngvarann Krist-
ján Jóhannsson og ----------------------
Sinfv níuhlj ó m -
sveit íslands flytja vinsæla óperutónlist og óperuaríur eftir Verdi,
Puecini, Bizet og Leoncavaiio. Meðal gcsta verða tjölmargir er-
lendir þjóðhöfðingjar. Rieo Saecani, víðfræg stjama, sem reis hvað
hæst þegar hann sigraði sjálfan Herbert von Karajan í keppni
hljömsvcitarstjóra 1984, verður stjómandi í kvöld. Og svo er það hin
dáða söngkona, Björk Guömundsdóttir. Hún heldur tónleika á veg-
unt Listaháúðar í Laugardalshöll á sunnudagskvöld, 19. júní, hátíðis-
degi kvenna, klukkan 20 og mun áreiðanlega fylla höllina uppí tjá-
fur.
Nýr vinnslustjóri í GRANDA HF.
Torfi Þorsteinsson hefur verið
ráðinn sem vinnslustjóri fiystitogara
hjá Granda hf. Torfi er Reykvíking-
ur en ólst upp í S-Þingeyjarsýslu.
Hann varð fisktæknir frá Fisk-
vinnsluskólanum 1981 og iauk námi
í rekstrar- og viðskiptafræði frá Há-
skóla íslands á þessu ári. Toríi er
kvænturSólveigu Pálmadóttur leik-
konu og ncma í bókmenntum og fjöl-
miölafræði og ciga þau þrjú böm.
Góðkunnur íslenskur ríkisborgari af indverskum ættum, söng- og
danskonan Leoncie. er á förum til Asíu, Indlands og Arabfu í mikla
tónleikaferð. Söngkonan segir að 15 tónleikar séu skipulagðir í lnd-
landi og lætur hún ágóðann renna til munaðarlausra bama í Indlandi.
„Ég er geislandi af ánægju og býð bara eftir meira sólskini", segir Le-
oncie, indverska prinsessan.
LÝÐVELDISGARÐUR við
Hverfisgötu
Lítill cn snotur garður, Lýðveldisgarðurinn, var opnaður formlega
í gær á homi Hveifisgötu og SmiðjusÚgs. Garðurinn er gerður ítilefni
af 50 ára afmæli lýðveldisins. Hann er 700 fennetrar að stærð. Á þess-
um slóðum lá frá örófi alda aðalleiðin niður í meginbyggð Reykjavfk-
ur fnunhjá Traðarkoti og niður Amarhólstraðimar að vaði á lækja-
rósnum. Vestan við garðinn er hús prentara. tvflyft steinhús frá 1912
sem Jón Magnús-
son, fvrsti forsætis-
ráðherra landsins lét
reisa, en fyrir austan
garðinn er stcinhús
frá 1913 þar sem er
danska sendiráðið og
bústaður danska
sendiherrans. í garð-
inuin er á táknnenan
hátt komið fyrir bergi
frá þingstöðum hinna
fomu tjórðunga
landsins. auk grágrýt-
is úr Reykjavík, nú-
verandi þingstaðar
þjóðarinnar. Hönnuð-
ur var Yngvi Þór
Loftsson, landslags-
arkitekt, en skýringar
á málmskildi gerði
Jónas Kristjánsson
forstöðumaður Stofn-
unar Áma Magnús-
sonar.