Alþýðublaðið - 15.07.1994, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MINNING
Föstudagur 15. júlí 1994
Mumingarorð:
Garðar Jensson
Fæddur 21. september 1931 - Dáinn 27. júní 1994
ur bolsi á yngri árum (hjartað á
réttum stað); en með aldri og
þroska hvarf hann frá villu síns
vegar og gerðist sannfærður
jafnaðarmaður. Hann var nefni-
lega ærlegur og undirbragðalaus
í hugsun og þurfti ekki að halda
dauðahaldi í einhveija lífs-
blekkingu sem eins konar flot-
holti í lífsins ólgusjó. Hann
var karlmenni til
orðs og æðis.
Eftir þessi fyrstu
kynni lágu leiðir okk-
ar ósjaldan saman í
flokksstarfi Alþýðu-
flokksins í Reykja-
vík. Garðar var þar
virkur vel. Hann
lagði jafnan gott til
mála og lét ekki sinn
hlut eftir liggja þegar
láta þurfti hendur
standa fram úr erm-
um, til dæmis við
undirbúning kosn-
inga eða aðrar tiltekt-
ir. Hann sat í mörg ár
í stjóm Alþýðu-
flokksfélags Reykja-
víkur og lét sig yfir-
leitt ekki vanta á
flokksþingum og
öðmm málþingum
jafnaðarmanna þar
sem við réðum ráð-
um okkar. Þeirra samveru-
stunda er gott að minnast. Garð-
ar var drengur góður og góður
félagi.
Fráfall hans bar svo brátt að
og fyrirvaralaust, að því er okk-
ur fannst félögum hans, að það
gafst hreinlega ekki tími til að
kveðja hann svo sem vert væri.
Garðar var 58 ára gamall þegar
kallið kom. Þegar ég sá hann
seinast á einhveijum ftindinum í
aðdraganda flokksþings okkar
hvarflaði það ekki að mér þótt
ég vissi betur, að hann væri
haldinn banvænum sjúkdómi og
lífsvonin lifði á veiku skari.
Garðar háði seinustu glímuna
við vágestinn af fullkomnu
æðmleysi og lét ekki sinn hlut
frekar en endranær fyrr en í fulla
hnefana. Þannig var Garðar,
sjálfum sér líkur til hinstu
stundar.
Nú þegar hann er allur vil ég
fyrir hönd okkar jafnaðarmanna
í Reykjavík flytja ekkju hans,
Önnu Klöm Guðlaugsdóttur,
bömum þeirra hjóna og fjöl-
skyldu allri, okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Sameiginlegar
minningar okkar um traustan og
vinafastan ferðafélaga í lífsins
lestarferð munu lifa.
- Jón Baldvin Hannibalsson
Umhverfisráðuneytíð:
Riiúgjíif'amefnd um vifltdýr
y 1"mhverfisráðuneytið hefur skipað ráðgjafar-
I I nefnd um villt dýr til næstu fjögurra ára.
V—/ Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðherra
til ráðgjafar við umsjón mála er varða villta fiigla
og vfllt spendýr nema hvað varðar hvali og hrein-
dýr. Þessi nefndarskipan er í samræmi við ný lög
um vemd, friðun og veiðar á vílltum fijglum og
villtum spendýmm sem tóku gildi i. júií. Nefhdin á
meðal annars að gera tillögur og veita umsagnir við
gerð reglugerða, leyfisveitingar, veitingar undan-
þága og við önnur stjómvaidsfyrirmæli á þessu
sviði. I ráðgjafamefndinni sitja ÆVAR PETER-
SEN fuglafræðingur, sem er formaður nefndarinn-
ar, ARNÞÓR GARÐARSSON prófessor, EY-
STEINN GÍSLASON bóndi Skáleyjum, HAUK-
UR BRYNJÓLFSSON dýralæknir, JÓRUNN
SÖRENSEN kennari, KRISTJÁN G. MAGN-
ÚSSON skrifstoftunaður, PÁLL HERSTEINS-
SON veiðistjóri og KRISTJÁN H. SKARPHÉÐ-
INSSON fuglafræðingur sem er varaformaður
nefhdarinnar. Með gildistöku iaganna em meðal
annars numin úr gildi lög frá 1966 um fuglaveiðar
og fuglafriðun og tekur ráðgjafamefnd um villt dýr
meðal annars við hlutverki fuglafriðunamefndar,
sem skipuð var samkvæmt þeim lögum.
Nýtt hreindýraráð
Umhverfisráðuneytið hefur í samræmi við sömu
lög skipað nýtt hreindýraráð frá 1. júlí til næstu
fjögurra ára. Hlutverk hreindýraráðs er að vera ráð-
herra til ráðgjafar við umsjón þeirra mála sem
snerta hreindýr og hreindýraveiðar. í hreindýraráði
sitja HÁKON HANSEN héraðsdýralæknir, sem er
formaður, LÁRUS H. SIGURÐSSON sveitar-
stjóri, REYNIR SIGURSTEINSSON bóndi,
HJÖRTUR M. KJERÚLF oddviti. MAGNÚS
ÞORSTEINSSON oddviti og SIGURÐUR Á.
ÞRÁINSSON lfffræðingur sem er varafomtaður.
Ætli kynni okkar Garð-
ars Jenssonar hafi
ekki orðið fyrst fyrir
milligöngu sameiginlegs vinar,
Jóhannesar Kr. Guðmundsson-
ar, þáverandi framkvæmda-
stjóra Alþýðublaðsins. Við Jó-
hannes vomm nánir samstarfs-
menn á ritstjóratímabili mínu
við Alþýðublaðið 1979 til 1982.
Mér finnst einhvem veginn að
Garðar hafi verið þar nálægur
frá upphafi og ósjaldan deilt
með okkur morgunkaffinu á rit-
stjóm.
Mér fannst Garðar þá þegar
og alla tíð síðan vera skemmti-
legur félagi, hispurslaus, hrein-
skiptinn og gamansamur í besta
lagi. Hann hafði verið blóðrauð-
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34
108 REYKJAVÍK SÍMI 60 46 00
Borgaðu rafmagnsreikninginn
áður en þú ferð í fríið!
Þáverður heimkoman ánægjulegri
Það er ómetanlegt að komast í
gott sumarfrí en það er líka notalegt að
koma heim aftur — ef allt er í lagi. Áður
en við förum göngum við tryggilega frá
öllu. Við greiðum rafimagnsreikninginn
svo að heimilistækin geti sinnt skyldum
sínum í fjarveru okkar og þjónað okkur
strax við heimkomuna.
Dreifikerfi Rafmagnsveitu Reykja-
víkur er eitthvert hið öruggasta í heimi.
Viðskiptavinirnir geta treyst á góða og
ódýra orku, ef þeir aðeins greiða fyrir
hana á eðlilegum tíma. Verði misbrestur
þar á bætast við dráttarvextir — og þá er
líka stutt í hvimleiða lokun.
Rafmagnsreikningar eru sendir út á
tveggja mánaða fresti. Gjalddagi þeirra er 5. dagur
næsta mánaðar eftir útgáfudag. Ef reikningur hefur ekki
verið greiddur á gjalddaga reiknast á hann dagvextir.
Láttu rafmagnsreikninginn hafa
forgang!