Alþýðublaðið - 03.08.1994, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
Staða þjóðréttarfræðings í utanríkisráðuneytinu er laus
til umsóknar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna. Umsókn, ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf, sendist ráðuneytisstjóra utan-
ríkisráðuneytisins fyrir 8. ágúst nk.
Utanríkisráðuneytið,
18. júlí 1994.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing um
verkleg próf í endurskoðun
Með vísan til reglugerðar nr. 403/1989 verða verkleg próf
til löggildingar til endurskoðunarstarfa haldin í nóvember
1994 sem hér segir:
Verkefni í endurskoðun
Verkefni í
reikningsskilafræðum
Verkefni í gerð
reikningsskila
Verkefni í skattskilum
þriðjudaginn 22. nóvember
föstudaginn 25. nóvember
mánudaginn 28. nóvember
miðvikudaginn 30. nóvember
Prófin verða haldin að Borgartúni 6, Reykjavík, og hefj-
ast kl. 09:00 hvern prófdag.
Væntanlegir prófmenn skulu fyrir 1. september nk. til-
kynna prófnefnd hvaða prófraunir þeir hyggjast þreyta.
Tilkynningar sendist formanni prófnefndar, Sveini Jóns-
syni, Lindarbraut 47, 170 Seltjarnarnesi.
Tilkynningu skulu fylgja skilríki um að fullnægt sé skilyrð-
um í 2. gr. laga nr. 67/1976 um löggilta endurskoðendur,
með síðari breytingum.
Prófnefndin mun boða til fundar með prófmönnum í októ-
ber nk.
Reykjavík, 2. ágúst 1994,
Prófnefnd löggiltra endurskoðenda.
|=^|| INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboð-
um í verkið „Álftanesæð, 1. áfangi".
Verkið felst í að endurnýja hluta af aðveituæð fyrir
Bessastaðahrepp milli Engidals og Garðaholts.
Æðin er 0300 mm stálpípa í 0450 mm plastkápu. Heild-
arlengd er um 1200 m.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. nóvember 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 28. júlí 1994,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 16. ág-
úst 1994, kl. 11:00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
verkið „Nesjavallavegur, Vegmálun".
Verkið felst í að mála miðlínur og marklínur á Nesjavalla-
veg og heimreið að Nesjavöllum. Lengd vega er samtals
25 km.
Verkið skal vinna á tímabilinu 15.-25. ágúst 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 10. ág-
úst 1994, kl. 11:00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
SKILABOÐ
Miðvikudagur 3. ágúst 1994
Veiðiparadís fyrir ungu veiðimennina, skenuntilegt
fyrirkomulag, ÓKEYPIS afnot af búnaði,
500 kall fyrir fiskinn:
Smugan í Hveragerði,-
sýnd veiði og seld
Efnt hefur verið til
skemmtilegs reksturs í
Hveragerði, þar sem
einu sinni voru blöðrubátar á
steinsteyptri tjöm við Tívolíið.
Þar er komin SMUGAN, veiði-
staður fyrir fjölskylduna, ekki
síst hina yngri veiðimenn.
Reyndar geta hinir eldri orðið
dálítið æstir í veiðinni, taki þeir
sér stöng í hönd, en það er önn-
ur saga.
Einstaklingar í Hveragerði
hafa fitjað upp á þessari ferða-
VEIÐIKLÓ, - þessi unga
dama, ÞÓREY ÞÓRISDÓTT-
IR, var fiskin, - landaði tveim-
urgóðum bleikjum, meðan
aðrir urðu ekki varir. Hún
vildi hins vegar alls ekki snerta
við fiskunum.
FJÖLMENNT við Tívolítjörnina, - SMUGUNA
eins og hún heitir nú, og úhuginn leyndi sér
ekki hjú viðstöddum.
BITIÐ A, - og trúlega er það stœrsta bleikjan í
tjörninni. En þvi miður, löndunin gekk ekki að
óskum ogfiskurinn sleit sigfró.
mannanýjung. Þeir kaupa fiska
í tjömina frá fiskeldisfyrirtæki í
grenndinni og sleppa í tjömina.
Þetta em laglegar bleikjur, hinn
besti matfiskur, og greinilegt er
að nóg er af fiskinum.
Og þetta er sýnd veiði, því
fiskamir leynast ekki í tjöm-
inni. En þetta er ekki gefin
veiði. Fyrirkomulagið er það að
hver sá sem veiðir fisk, borgar
fyrir hann 500 krónur. Annars
er ÓKEYPIS að fá Iánaða
stöng og það sem til þarf, og
svo er bara að vona að fískur-
inn gleypi.
Þetta er skemmtileg nýjung
hjá Hvergerðingum og til þess
fallin að laða enn fleiri ferða-
menn að bænum. Þegar Al-
þýðublaðið skoðaði reksturinn
var fjöldi manns að reyna fyrir
sér, enda þótt það húðrigndi á
köflum.
Regnið hafði bókstaflega
engin áhrif og greinilegt að
þegar menn em komnir með
stöngina í hendur, þá er staðið
við, - alveg þangað til fiski er
landað.
Stórfróðlegt TÍMARH tun garðyrkju og útiveru:
Gróandinn er kominn út
HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Laust lyfsöluleyfi, sem
forseti íslands veitir
Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi í Háaleitishverfi í
Reykjavík, (Borgar apótek).
Fráfarandi lyfsali gerir kröfu til þess, í samræmi við 11.
gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982 og bráðabirgðalög
nr. 112/1994 um breytingu á lyfjalögum nr. 93/1994, að
viðtakandi lyfsöluleyfishafi kaupi vörubirgðir, búnað og
innréttingar lyfjabúðarinnar. Ennfremur kaupi viðtakandi
leyfishafi húseign þá er lyfjabúðin ásamt íbúð fráfarandi
lyfsala er í.
Væntanlegur lyfsali skal hefja rekstur frá og með 1. janú-
ar 1995.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um lyfjafræði-
menntun og lyfjafræðistörf, skal senda ráðuneytinu fyrir
1. september 1994.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
29. júlí 1994.
Falleg forsíða
GRÓANDANS.
2. tölublað
Gróandans-
tímarits um
garðyrkju og
útiveru er komið
út. Þetta er ní-
undi árgangur-
inn. Blaðið er
pakkað af efni
sem ætlað er
bæði til gagns
og gamans fyrir
áhugamenn um
garðyrkju og úti-
vist. Utgefandi
og ritstjóri Gróandans er Hjör-
leifur Hallgríms, það er unnið
hjá Prentvinnslunni itf. og
prentað íPrentstofu G. Ben.
Meðal efnis er harðorður
leiðari Brynjólfs Jónssonar,
framkvæmdastjóra Skógræktar-
félags íslands, um Iúpínudrápin
í Skaftafelli; stórfróðlegar
greinar um lyngrósir og berg-
sóleyjar eftir Olafs Njálsson
garðyrkjusérfræðing; úttekt á
skaðlegum skordýrum fyrir tré
og runna eftir Björgvin Stein-
dórsson garðyrkjufræðing; um-
Umfjöllun um
MATJURTARÆKT.
fjöllun um grágresi eftir Ag-
ústu Björnsdóttur; „Vanda-
mál í matjurtarækt“ eftir Hall-
dór Sverrisson plöntusjúk-
dómafræðing; greinar um áhrif
seltu og vinds á trjágróður og
söfnun og sáningu Alaskalú-
pínufræs eftir Jón Geir Péturs-
son líffræðing; „Um hin að-
skiljanlegustu not ýmissa jurta“
eftir Magnús Agústsson yl-
ræktarráðunaut; hvatning frá
Kristínu Þóru garðyrkjufræð-
ing um að við borðum meira
grænmeti. Fínt blað.