Alþýðublaðið - 19.08.1994, Page 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
TIÐINDI
Föstudagur 19. ágúst 1994
STUTTFRETTIR...
Fyrsta íþróttahús FRAMARA
Það verður hátíð í bæ hjá þeim í Knattspyrnufélaginu Fram
um helgina. Þá taka Frainarar í notkun fyrsta íþróttahúsið
sem félagið eignast, en félagið er orðið 86 ára. Hátíðarathöfn
við Safamýrina klukkan 15:00, en húsið opnað fyrir gesti
ktukkan 14:30. Húsið verður síðan til sýnis til klukkan 17:00.
Framarar, svo og ailir vinir og velunnarar eru hvattir til að
mæta. Byggðaverk hf. hefur byggt húsið. Borgarstjóri, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir mun flytja ávarp, EUert Schram,
forseti ÍSÍ flytur kveðju og Sveinn Kagnarsson fiytur ávatp
fyrir hönd eldri Framara. Formaður Fram er Alfreð Þor-
steinsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans...
NORDAL yfir Þjóðarbókhlööu
Menntamálaráðliena hefur skipað
stjóm Landsbókasafns Is-
lands-Háskólabókasqfns, það er
hinnar nýju Þjóðarbókltlöðu, sem
loks á að taka til stari'a í nýja hús-
næðinu á Melunum 1. desember
næstkomandi. Stjómin er þannig
skipuð: Jóhannes Nordal, skipaður
án tilnefningar; Vésteinn Ólason,
prófessor og Þorsteinn I. Sigfús-
son, prófessor, skipaðir af háskóiaráði; EgiU Skúli Ingi-
bergsson. verkfræðingur, lilnefndur af Rannsóknaráði ís-
lands; og Kristín Indriðadóttir, yfirbókavörður, tilnefnd af
Bókavarðafélagi ísiands. Jóhannes Nordal er formaður
stjómarinnar og Þorsteinn varaformaður. Skipunartími er
fjögur ár...
Rúmba og samba í ÁRBÆ
Danssýning verður fyrir framan DiUonshús i Árbæjarsafni á
sunnudaginn kemurklukkan 15:00. Tískudansar ársins 1944
vom rúmba og samba og verða þar sýndir af nemendum
Dansskóla Jóns Péturs og Köru eins og þeir em dansaðir í
dag. Ýmislegt lleira verður í safninu til skemmtunar og fróð-
leiks, skógerð, útskurður og lummubakstur í Árbæ, gullsmið-
ur verður í Suðurgötu 7 og hægt að sjá prentara að starfi í
Miðhúsi. Karl Jónatansson þenur nikkuna eftir hádegi og
ljúffengar veitingar em í Dillonshúsi hjá Hildi Björk og hin-
um kvenskörungunum...
Ferð að FJALLABAKI
Oddafélagið efnir ti) dagsferðar að Fjallabaki laugardaginn
27. ágúst næstkomandi. Farið verður í afréttarlönd Fijótshlíð-
ar. Hvolhreppinga og Rangvellinga. Hugað verður að sögu
lands og þjóðar eftir því sem umhverfi og aðstæður gefa tii-
efni til. Leiðsögumenn verða séra Sváfnir Sveinbjörnsson á
Breiðabólstað og Þorsteinn Oddsson frá Heiði. þaulkunn-
ugir afréttunum og nýtingu þeirra að fomu og nýju. Jarð-
fræðingamir Elsa G, Vilmundardóttir og Freysteinn Sig-
urðsson sem unnið hafa að jarðfræðirannsóknum að Fjaila-
baki, segja frá náttúru svæðisins og ýmsum atburðum sem
þar hafa átt sér stað og sjá má ummerki um á ferðalaginu.
Lagt af stað frá BSÍ klukkan 09:00 og frá Hvoisvelli klukkan
11:00. Þeir sem ætla að vera með úlkynni þátttöku til Sælu-
búsins á Hvolsvelli, sími 98-78781...
Heimsækið VIÐEY
Heimsókn í Viðey er skemmtileg afþreying. Þangað komast
menn með bátnum úr Sundahöfn á heila u'manum frá klukk-
an 13:00 en á hálfa tímanum til lands. Ljósmyndasýning er
núna í Viðeyjarskóla og hefur verið vel sótt í sumar. Tvær
helgar eftir. Gönguferð um Viðey á laugardag hefst klukkan
14:15 og verður gengið á vestureyna, hálfs annars u'ma
ganga og þörf fyrir góða gönguskó. Á sunnudag er staðar-
skoðun klukkan 15:15...
Skólastjóradeilu LOKIÐ
Ólafur Garðar Einarsson mennta-
málaráðherra hefur sett til eins árs í
stöðu skólastjóra Hvolsskóla Unnar
Þór Böðvarsson, skólastjóra Reyk-
holtsskóla í Biskupstungum. Upp-
liaflega setti ráðhena Jónínu
Tryggvadóttur í þelta starf. Skóla-
ncfnd og fræðsiustjóri mæltu hins-
vegar með Unnari Þór. ÁlykUtnir og
mótmæli skólanefndar og Skóla-
stjórafélags Suðurlands urðu til þess að Jónína trcysti sér
ekki til að taka við stöðunni. Ráðherra hefur nú beygt sig
undir vilja þessara aðila og hefur ákveðið að kanna ekki hug
þeirra níu umsækjenda sem eftir eru með meiri menntun en
Unnar Þór. Ráðherra áréttar fyrri yfirlýsingár sínar að hann
inuni beita sér fyrir því að lög kveði á um fagleg vinnubrögð
ið ráðningar skólastjóra með markvissuri hætti en nú er...
LEIFTUR FRA LYÐYELDISARI - Fróðleg og skemmtileg sýning
Skjalasafhs og Ljósmyndasafns Reykjavíkurborgar
opnaði í gær í Ráðhúsinu:
- spurði BJARNIBENEDIKTSSON, bæjarstjóri Reykjavíkur,
í bréfi til skólastjóra Reykjavíkur
Lýsið hefur verið gefið
þannig, að það er borið
inn í stofuna í könnu.
Kennarinn heldur á könnunni í
hægri hendi en þurrku í vinstri
hendi. Bömin standa í einfaldri
röð og færa sig til kennarans
eitt og eitt og halda gapandi
höfðinu afturábak. Kennarinn
heldur könnunni yfir munni
bamsins og lætur lýsið dijúpa í
munn þess, en þerrar baminu
síðan um munninn, ef þörf er“.
Þannig lýsir Jón Sigurðsson,
skólastjóri í Laugamesskóla
lýsisgjöf til skólabama Reykja-
víkurbæjar árið 1944, lýðveld-
isárið.
Þessa lýsingu er að finna í
bréfi skólastjórans til bæjar-
stjóra Reykjavíkur, sem þá var
Bjarni Benediktsson. Hafði
bæjarstjóm fundið að því að
lýsisgjafir væm hættar í bama-
skólunum, enda þótt nokkuð fé
væri greitt úr bæjarsjóði til lýs-
isgjafa. Óskaði Bjami því eftir
skýrslu skólastjóra bæjarins um
lýsisgjafimar, sem margir
Reykvíkingar komnir yfir miðj-
an aldur kannast við, - og hryll-
ir eflaust enn við.
Skólastjórinn í Laugames-
skóla ber við húsnæðisleysi en
lofar bótum, lýsisgjafir hefjist
senn, segir hann í svari sínu til
bæjarstjóra.
Framkvæmdir,
rekstur og starfsemi
Bréfaviðskipti þessi em með-
al þess sem sjá má á áhuga-
verðri sýningu sem Borgar-
skjalasafn Reykjavíkur og
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
gangast fyrir og var hún opnuð
í gær, 18. ágúst, á afmælisdegi
Reykjavíkur. Sýningin ber yfir-
skriftina Leifturfrá lýðveldisári
- Bœjarmál 1944 og verður í
Tjamarsalnum í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Hún stendur fram
til 1. október. Aðgangur er
ókeypis.
Með sýningunni er ætlunin
að fræða gesti um framkvæmd-
ir, rekstur og starfsemi Reykja-
víkurbæjar á lýðveldisárinu
1944 með ljósmyndum, eftir-
gerð skjala og skýringartextum.
Málefni sveitarfélaga vom þá
eins og nú, margslungin og
ljölmörg. Bréfið um lýsisgjafir
til skólabama sýna það.
Hringlandinn
með SVR (háeff)
Á sýningunni er veitt innsýn í
starf ýmissa stofnana og fyrir-
tækja bæjarfélagsins á árinu
1944, til dæmis Vatnsveitu,
ÞJÓDHÁTÍÐ 1944 í REYKJAVÍK, -daginn eftir hátíðahöldin á
Þingvöllum var stofnun lýðveldisins tilhlýðilega minnst í Reykjavík íþokkalegu
veðri. Hér kemur skrúðganga eftir Skothúsvegi yfir Tjarnarbrú yfir á Fríkirkjuveg.
Mynd: Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Hitaveitu, Rafmagnsveitu og
Strœtisvagna Reykjavíkur.
Og talandi um Strætisvagna
Reykjavíkur hf. Þama er hægt
að skoða kaupsamning bæjar-
sjóðs Reykjavíkur á því fyrir-
tæki 18. ágúst 1944, á afmælis-
degi borgarinnar. Þá skrifar
Bjami Benediktsson undir sem
kaupandi, en Egill Vilhjálms-
son, Ólafur Þorgrímsson og
Ásgeir Ásgeirsson sem selj-
endur fyrirtækisins Strætis-
vagnar Reykjavíkur hf. -
Kaupverðið var 1.012.711,61
króna nákvæmlega og í samn-
ingnum er allt tíundað sem
keypt er, þar á meðal em 20
strætisvagnar.
Greinilega hefur fyrirtækið
SVR ekki bruðlað í neinum
hlut. Flottheitin komu síðar
með ungum baráttumönnum
fyrir því að gera SVR að háeffi
að nýju. Þannig má sjá í bréfi
undirrituðu af Jóhanni Ólafs-
syni þetta ár, að gamla bréfs-
efnið er enn notað, - en exað
yfir hf-ið og gamla heimilis-
fangið fyrirtækisins.
Vöruskiptajölhuðurinn
var hagstæður um
12,6 milliarða
- á fyrri helmingi ársins. Viðskiptajöfnuður
við útlönd var hagstæður um 4,5 milljarða,
en þjónustujöfnuðurinn hinsvegar
óhagstæður um 8,1 milljarð
Seðlabankinn hefur nú
tekið saman bráða-
birgðatölur um
greiðslujöfnuð við útlönd á
fyrri árshelmingi 1994. Sam-
kvæmt þeim var viðskipta-
jöfnuður við útlönd hagstæð-
ur um 4,5 milljarða króna.
Samkvæmt upplýsingum
Hagstofu Islands var vöru-
skiptajöfnuður hagstæður um
12,6 milljarða en á móti var
8,1 milljarðs halli á þjónustu-
jöfnuði við útlönd.
Viðskiptajöfnuður er um 8
milljörðum hagstæðari nú en
á sama tíma í fyrra, því þá var
halli á viðskiptum við útlönd
3,5 milljarðar króna, reiknað
á föstu gengi. Meðalgengi er-
lendra gjaldmiðla er 9,2%
hærra í ár en á fyrri árshelm-
ingi 1993 samkvæmt gengis-
vísitölu.