Alþýðublaðið - 24.08.1994, Síða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
JÓN BIRGIR PÉTURSSON,
blaðamaður Alþýðublaðsins,
var um borð í FLUGLEIÐA-
ÞOTUNNI sem var nær lent í
árekstri yfir Bretlandi.
„Þetta var alveg heiftarlegt og
fólk hentist úr sætum sínum.
Sjálfur var ég á saleminu
þegar þetta gerðist, kíttaðist
upp að veggnum og var það
mjög óþægiieg tilfinning svo
ekki sé meira sagt“:
Bráð
Irfs-
hætta
að er engin spurning
að við vorum í braðri
lífshættu þegar vélin
tók nánast níutíu gráðu
beygju til þess að forðast
árekstur við breskar herþot-
ur“, sagði Jón Birgir Pét-
ursson, blaðamaður Al-
þýðublaðsins, sem var á leið
í sumarfrí með Flugleiðavél-
inni á föstudaginn.
Eins og fram hefur komið
í fréttum er þetta í þriðja sinn
setn slíkt atvik kemur upp á
einum mánuði á bresku flug-
stjórnarsvæði.
Flugstjóri Flugleiðaþotun-
ar hefur ekki viljað tjá sig
við íjölmiðla um atvikið, en
Jón Birgir segir að flugstjór-
inn hafi greint frá því í hátal-
arakerfi þotunnar að hann
hafi fengið neyðarkall frá
breskum flugumferðarstjór-
um urn að beygja strax.
Skýringin hafi verið að of
lítið bil hafi verið milli vél-
anna. Þessar stónt farþega-
þotur eru ekki gerðar fyrir
krappar Ireygjur af þessu tagi
og þvf virðist nokkur hætta
hafa verið á ferð.
„Þetta var alveg heiftarlegt
og fólk hentist úr sætum sín-
um út í hlið vélarinnar vegna
þess að fæstir voru í beltum.
Sjálfur var ég á salerninu
þegar þetta gerðist, kíttaðist
upp að veggnum og var það
mjög óþægileg tilfinning svo
ekki sé meira sagt“, sagði
Jón Birgir. Aðspurður um
það hvort hann ætlaði að
taka „Fossinn“ heim, sagði
Jón Birgir það ólíklegt enda
helði hann ofl komist í hann
krappan um ævina.
Alþýðutíaðsmynd / Einar Ólason
MPIMBrMllll
Miðvikudagur 24. ágúst 1994
ALAIN ROBBE-GRILLET flytur fyririestur við HÁSKÓLANN:
Franskur rithöfundur
og kvikmyndageröarmaður
Franski rithöfundurinn og
kvikmyndagerðarmaður-
inn Alain Robbe-Grill-
et flytur opinberan fyrirlestur í
boði heimspekideildar Háskóla
íslands laugardaginn 27. ágúst
1994 klukkan 16:00 í stofu 101
í Odda.
Fyrirlesturinn nefnist La
Psyché en ruines og fjallar um
nýjustu verk Robbe-Grillet, en
hann hefur nýverið gefið út
lokabindið í þriggja binda sjálf-
sævisögu sinni.
Alain Robbe-Grillet er vafa-
laust einn merkasti og frægasti
núlifandi rithöfundur á franska
tungu. Hann var málsvari hóps
rithöfunda sem komu fram á
sjónarsviðið á sjötta áratugnum
og kenndi sig við le nouveau sem hlaut bókmenntaverðlaun
roinan, eða nýsöguna. Meðal Nóbels árið 1985, Marguerite
þeirra má telja Claude Simon, Duras, Nathalie Sarraute og
Michel Butor.
Þessir rithöfundar áttu það
sameiginlegt að telja skáldsög-
una listform sem unnt væri að
bylta á sama hátt og myndlist-
inni, ljóðlistinni og tónlistinni
hafði verið bylt á áramgunum
áður.
Þau skrifuðu - og skrifa enn
- tilraunakenndar skáldsögur,
það er sögur sem reyna að upp-
götva og draga fram í sviðsljós-
ið raunveruleika og lifnaðar-
háttum sem enn hefur ekki ver-
ið komið orðum að.
Alain Robbe-Grillet flytur
fyrirlestur sinn að sjálfsögðu á
frönsku. Viðburðurinn er opinn
öllum.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
SKOTVEIÐIFÉLAG ÍSLANDS heldur ráðstefnu á Holiday Inn á
laugardaginn um eitt helsta þrætuepli íslenskra skotveiðimanna:
Rætt um rjúpnaveiðar
Skotveiðifélag Islands
efnir til ráðstefnu um
rjúpuna á laugardaginn
en nokkrar sviptingar hafa ver-
ið varðandi rjúpnaveiðar. Öss-
ur Skarphéðinsson umhverfis-
ráðherra stytti rjúpnaveiðitím-
ann síðasta haust en ákvörðun
um veiðitíma á hausti komanda
hefur ekki verið birt.
Skotveiðimenn telja brýnt að
þeir aðilar sem telja sér málið
skylt hittist og ræði málefni
rjúpnastofnsins á breiðum
grundvelli. I frétt frá Skotveiði-
félaginu segir að tilgangur ráð-
stefnunnar sé að leggja drög að
„skynsamlegri“ nýtingu rjúpna-
stofnsins í ljósi nýrra laga um
friðun, vemd og veiðar á fugl-
um. Fjallað verður um málefn-
ið af fuglafræðingum, fulltrú-
um stjómvalda og hagsmuna-
aðilum. Einnig verða almennar
umræður.
Hótel Holiday Inn í Reykjavík verður vettvangur ráðstefnu
SKOTVEIDIFÉLAGS ÍSLANDS nœstkomandi laugardag.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Þess er vænst að á ráðstefn-
unni verði svarað ýmsum mik-
ilvægum spumingum varðandi
nýtingu ijúpnastofnsins og
stjóm veiðanna, til að mynda
eftirfarandi: Hvert er eðlilegt
markmið með „vemd, friðun
og veiðum" ijúpu? Er vísinda-
leg þekking nægileg til að
byggja á markvissa stjóm
ijúpnaveiða? Hvaða rjúpna-
rannsóknir em nauðsynlegar á
næstu ámm og hvemig á að
standa að þeim? Hver er fram-
tíðarsýn stjómvalda og hags-
munaaðila í þessum efnum, svo
sem varðandi nýtingu rjúpna-
stofnsins, stjóm veiða eða nýt-
ingu ríkisjarða sem veiðilend-
ur? Ráðstefnan verður haldin
að hótel Holiday Inn og hefst á
erindum tveggja fuglafræðinga,
það er Hans Pedersen frá Nor-
egi og Ólafs K. Nielsen. Ráð-
stefnan er öllum opin.
Atlantshafsbandalagið:
Býður fram
fræðimanna-
styrki
Atlantshafsbandalagið
mun að venju veita
nokkra fræðimanna-
styrki til rannsókna í aðildar-
ríkjum bandalagsins. Markmið
styrkveitinganna er að stuðla að
rannsóknum og aukinni þekk-
ingu á málefnum sem snerta
Atlantshafsbandalagið og er
stefnt að útgáfu á niðurstöðum
rannsóknanna.
Styrkimir nema nú um það
bil 510 þúsund íslenskum krón-
um (240 þúsund belgískum
frönkum) og er ætlast til að
unnið verði að rannsóknum frá
maí 1995 til 30. júní 1997.
Styrkþegum ber að skila
áfangaskýrslu eigi síðar en 30.
júní 1996.
Lokaskýrslu ber að skila á
ensku eða frönsku til alþjóða-
skrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins fyrir 30. júní 1997.
Umsóknir um fræðimanna-
styrki Atlantshafsbandalagsins
skulu berast alþjóðaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins eigi síðar
en 15. desember 1994. Skrif-
stofan veitir nánari upplýsingar
um styrkina og lætur í té um-
sóknareyðublöð.