Alþýðublaðið - 07.09.1994, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 07.09.1994, Qupperneq 3
Miðvikudagur 7. september 1994 FRÉTTIR Niðurstöður seiðarannsóknar Hafrannsóknarstofnunar ekki upplífgandi: Lélegir árgangar þorsksogýsu Seiðavísitala loðnu sú hæsta sem mælst hefursíðan 1975 Seiðavísitala þorsks er langt undir meðallagi og á svipuðum nótum og seiðavísitala lélegu árganganna 1986-1992. Fyrstu vísbending- ar um stærð þorskárgangsins 1994 eru þær að hann verði undir meðallagi eða lélegur. Svipaðar horfur eru varðandi ýsuárganginn og seiðavísitala karfa er fyrir neðan meðaltal síðustu 10 ára. Seiðavísitala loðnu er sú hæsta síðan 1975. Þessar upplýsingar koma fram í frétt frá Hafrannsóknar- ^ stofnun. Þann 31. ágúst lauk " hinum árlegu rannsóknurp Qölda og útbreiðslu fiskseiða á hafsvæðinu umhverfts Island, í Grænlandshafi og við Austur- Grænland. Á heildina litið var ástand sjáVar á Islandsmiðum gott íagúst og sjávarhiti yfir meðallagi. Þrátt fyrir þetta eru þorskseiðin mjög smá. Ekki varð vart við seiðarek yfir til Grænlands. Ýsa í lágmarki, loðna í hámarki Seiðavísitalaýsu er mjög lág og raunar með því lægsta sem sésthefur síðan seiðarann- sóknir' hófust. Fyrstu vísbend- ingar um stærð ýsuárgangsins 1994 benda því til þess að hann verði undir meðallagi eða lítill. Seiðavísitala loðnu 1994 er sú hæsta sem mælst hefur síð- an 1975 og á árunum þar á undan. Loðnuklakið 1994 hef- ur því tekist ákaflega vel. Loðnuseiðin em þó í smærra lagi. Karfaseiði fundust að venju á mest öllu rannsóknarsvæðinu í Grænlandshafi og við Austur Grænland. Þótt fjöldi karfa- seiða hafi verið meiri en 1993, sem var með afbrigðum lélegt seiðaár fyrir karfa, var seiða- vísitalan fyrir neðan meðaltal seinustu lOára. Léleg nýliðun viðvarandi Grálúðuseiði fundust á all- mörgum stöðum fleiri en oft áður í Grænlandshafi. Hins vegar fundust mjög fá blálönguseiði og vom þau smá. Mun minna var um hrognkelsi en í fyrra, en mikið um sand- síli. Olafur Karvel Pálsson, fiskifræðingur hjá Hafrann- sóknarstofnun, sagði í samtali við blaðið, að við hefðum verið að sjá slaka árganga síðastliðin 10 ár. Hrygningarstofn þorsks er nálægt sögulegu lágmarki, en hann hefur verið á milli 200 og 300 tonn síðan 1982. Ólafur segir að Haffannsóknarstofnun hafi löngum mælt með minni veiði en raunin hafi síðan orð- ið. Fæð seiða sé vísbending og ef hún kemur fram þarf enn frekari niðurskurð á kvóta en orðinn er. Ólafur segir að það sé ljóst að á meðan nýliðun sé léleg þá verði stofninn í lægð og á með- an bilið á milli þess sem veitt er og þess sem vísindamenn mæla með að sé veitt verði lé- leg nýliðun viðvarandi. Loksins eftir 37 ár er höggmyndin af Nonna væntanleg til Akureyrar Nomi steyptur í Þýskalandi Amorgun mun höggmynd Nínu Sæmundsson af jesúítaprestinum og rit- höfundinum Nonna leggja af stað yfir hafið með einu af skipum Samskipa. Styttan verður steypt í brons í Þýska- landi og verður síðan væntan- lega komin til Akureyrar með Að kvöldi sunnudagsins 4. september voru haldnir í Hagaskóla tónleikar til að heiðra minn- ingu Péturs Inga Þorgils- sonar. Pétur Ingi lést af slys- förum aðfaranótt 26. septem- ber 1993, þá einungis tvítug- ur að aldri. Vinir og ættingjar stóðu fyrir tónleikunum sem voru einnig til kynningar útgáfu á geisladiski með tónlist Pét- urs; Á disknum er að fmna 21 lag og stef eftir Pétur og fé- laga og flytur hljómsveitin Neol Einsteiger flest lögin. Pétur Ingi skildi einnig eftir sig safn teikninga og stutt- myndir og voru myndrænni listsköpun hans gerð góð skil með aðstoð myndvarpa. Tónleikamir þóttu takast frá- bærlega og var fullt út úr dyr- vori, eða 37 áram eftir að Nína lauk verkinu. Nú era senn liðin tvö ár frá því að styttan af Nonna kom í leitimar á heylofti á Korpúlfs- stöðum en það var 2. október 1992. Menningarsjóður færði Zontaklúbbi Akureyrar styttuna að gjöf og afhenti Bessí Jó- um, gestir á sjötta hundrað. Okkur sem kynntumst Pétri var hann ekki einungis hæfi- leikaríkur listamaður heldur einnig ógleymanleg persóna og skilur hann eftir hjá okkur margar góðar minningar. Einlægni hans og hlýja vora kostir sem sjaldséðir era á hannsdóttir þáverandi stjómar- formaður sjóðsins gjafabréfið sem dagsett er 15. nóvember 1993. Síðan hafa Zontasystur leitað eftir fjárstuðningi hér heima og í Þýskalandi til að gera af- steypu af styttunni úr varanlegu efni. öld hraðans. Ég vil hér einnig koma á framfæri þökkum til strákanna í Neol Einsteiger og öllum þeim sem aðstoð- uðu við útgáfu þessa frábæra disks og lætu draum Péturs rætast. Baldur Stefánsson Leitað var tilboða í málm- steypu hjá fyrirtækjum og loks ákveðið að ganga til samninga við Kunstgiesserei Plein í Spe- icher, sem er skammt frá Köln, en þar í borg er einmitt legstað- ur Nonna. Þýski ræðismaðurinn á Akur- eyri, Svanur Eiríksson, hefúr aðstoðað Zontasystur vel og dyggilega við öll samskiptin við Þýskaland. Tekist hefur að safna fé fyrir fyrstu greiðslum en verkið er dýrt og mikið vantar enn til þess að endar nái saman. Samskip hefur tekið að sér að flytja styttuna frá Reykjavík til Þýskalands og tvær styttur heim, það er bæði frammynd- ina og bronsstyttuna, sem á að standa úti og væntanlega ekki langt ffá Nonnahúsinu á Akur- eyri. Þetta gerir skipafélagið Zontaklúbbnum að kostnaðar- lausu og er það mikilsmetið framlag. Starfsfólk Kjarvals- staða hefur gengið ffá styttunni til flutnings, en hún er í stóram trékassa. Þess má til gamans geta að þegar kassinn með styttunni fannst á heyloftinu var hann al- gjörlega ómerktur, aðeins tvo orð krotuð á hann: HAUS UPP. Gert er ráð fyrir að afsteypan verði tilbúin eftir 3-4 mánuði. Nonni verður því væntanlega kominn á bemskuslóðir með vori eða næsta sumar. Þá verða liðin 37 ár frá því að listakonan Nína Sæmundsson lauk verk- inu, sem Menningarsjóður pantaði á sínum tíma Minningartónleikar umPéturlnga ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Lukkuleg lending llla leit út með flug Grumman Goose-flugbáts í fyrrakvöld. Flugvélin var á ferðinni yfir hafið frá Narsarssuak á Græn- landi til Keflavíkur og var 200 sjómílur vestur af flugveilin- um þegar flugmaður tilkynnti flugstjóm að samkvæmt mæl- ingum sínum hefði hann ekki nægjanlegt eldsneyti til Kefla- vfkur, um það bil 10 mínútur vantaði upp á. Flugvél Flug- máiastjórnar var þegar kölluð til og var fljótlega komin í loftið. Þyrla Landhelgisgæsiunnar var sett í viðbragðsstöðu og fór í loftið kl. 23.18, eða tæplega hálfum öðram tíma eftir að flugmaðurinn hafði samband. Mætti þyrlan Grammanvél- inni hálftíma síðar. Varðskipið Ægir var statt á þessum slóð- um og sigldi inn á feril flugvélarinnar urn það bil 10 sjómílur frá landi. Þá vora björgunarsveitir í Keflavík og Sandgerði og settar í viðbragðsstöðu. Hallgnmur N. Sigurðsson hjá Flugmálastjórn sagði að vélinni hefði verið lent heilu og höldnu 8 mínútum yfir miðnætti. Stoppið Brotin! Landsleikur- inn vtð Svía, liður í Evr- ópukeppni landsliða, fer fram á Laug- ardalsvelli í kvöld. Það er hugur í mönn- um og ekki laust við að . sumir tali nokkuð digur- barkalegaog vænti jafnvel sigurs á brons- liðinu frá nýliðinni heimsmeistarakeppni í knattspymu. Auð- vitað veit enginn hvemig fer, knattspyman er óútreiknanleg. Takist okkur að stöðva hinn eitursnjalla Brolin er miklum áfanga náð. Án efa munu margir leggja leið sína á völlinn og hvetja íslenska landsliðið, - sem er vel að tnerkja vel mannað og gæti á góðum degi hrellt Svíana. THOMAS BROUN, - hinn snjaUi knatt- spyrnumaður Svía áritar hér fátbolta fyrir unga áhugamenn. Hann verður að stöðva úti á veUinum í kvöld. Börnin og umferðin Starfsemi grunnskólanna um land allt er að hefjast þessa dag- ana. Tugir þúsunda bama fara nú fimm daga vikunnar til skóla sinna við misgóðar aðstæður og á sama tíma og uinferð á götunum fer vaxandi. Foreldrar ættu að undirbúa böm sín sem best fyrir ferðir milli heimila og skóla. Öraggasta leiðin er ekki endilega sú stysta. Þá er vert að minna ökumenn á skyldur þeirra og ábyrgð, ekki síst á göturn í nágrenni skól- anna. Umferðarráð hefur sent út námsefni í samstarfi við Menntamálaráðuneytið og Námsgagnastofnun til allra bama sem era að heíja skólagöngu í fyrsta sinn. Efnið heitir A leið í skólann. 630 ársverk í átaksverkefnum Fyrstu átta rnánuði þessa árs hafa alls 3.108 störf í 10.349 mannmánuði verið fjármögnuð gegnum Atvinnuleysis- tryggingasjóð. Að sögn Gunnars Sigurðssonar hjá félags- málaráðuneytinu vora störfin á síðasta ári 2.524 í 7.560 mannmánuði eða 630 ársverk. Opnar sýningu á laugardag Pétur Gautur Svavarsson opnar sýningu á verkum sín- um í Gallerí Borg við Austur völl á laugardaginn kl. 16. Pét ur Gautur stundaði nám við Myndlistaskóla Reykjavíkur og málaradeild Myndlista- og handíðaskóla íslands. Undan- faiin ár hefur htmn búið í Kaupmannahöfn og stundað nám við Statens Teaterskole. Þetta er þriðja einkasýning Péturs Gauts, 25 nú olíumál- verk sem öll era til sölu. Opið frá kl. 12 til 18, en um helgar frá 14 til 18. PÉTUR GAUTUR, - opnar sína þriðju einkasýningu. Pennavinur í Gana Ung kona í Gana, Georgina Jackson, 26 ára, óskar eftir að eignast pennavin á íslandi. Helsta áhugamál hennar era ferðalög. Heimilisfangið er: Georgina Jackson, P.O.Box 1191, Cape Coast, Ghana, W/A. Námskeið í almennri skyndihjálp Reykjavíkurdeild RKÍ gengst fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp og hefst það t kvöld. Allar nánari upplýsingar era gefnar í síma 688188.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.