Alþýðublaðið - 27.09.1994, Page 1
GUÐMUNDUR ÁRNISTEFÁNSSON félagsmálaráðherra hélt blaðamannafund með háværu „aftökuliði" fjölmiðlanna í gærdag. Á fundinum rakti hann ávirðingar á hendur
sér lið fyrir lið. Guðmundur Ámi segir tvær mannaráðningar hafa verið mistök:
—til þess eru engin efni og um það hefurenginn beðið, sagði félagsmálaráðherrann
GUÐMUNDUR ÁRNISTEFÁNSSONfélagsmálaráðherra stóð í ströngu á fréttamannafundi ígœrdag þar
sem hann kynnti greinargerð vegna starfa sinna. Fundurinn var þétt setinn og eintl sá jjörlegasti í manna
minnum. Guðmundur Árni þykir hafa komist ágœtlega frá fundinum. Alþýðublaðsmyndir / Emar Ólason
tjómmálamenn eru mann-
legir og gera sín mistök. Það
sama gildir um mig“, sagði
Guðmundur Arni Stefánsson fé-
lagsmálaráðherraá biaðamanna-
fundi í gærdag. „í opinberum
stjómsýslustörfum mínum í gegn-
um árin hafa ýmsar þær ákvarðanir
sem ég hefi tekið eða átt þátt í að
taka sannarlega sannað gildi sitt og
em óumdeildar í dag, þótt tekist
hafi verið á um mörg þau mál á
sínum tíma, sem þessar ákvarðanir
vom teknar“. Aðspurður sagði
Guðmundur Ami: „Ég segi ekki af
mér störfum, - til þess em engin
efni, og um það hefur enginn beð-
ið“. Guðmundur Arni Stefánsson
mætti til fundar með ítarlega grein-
argerð þar 'sem ýmsai' ávirðingar á
hendur honum em raktar og hrakt-
ar. Hann ræddi fyrst unt Hafnar-
fjarðarpakkann, þar sem fullyrð-
ingar standa gegn fullyrðingum um
fjárhagsstöðu bæjarins og ýmsar
fyrirgreiðslur. Því næst fjallaði
Guðmundur Ámi um störf sín í
heilbrigðisráðuneytinu. Var skýrsla
hans öll hin fróðlegasta, vel unnin
og studd mikilvægum rökum. Er
óhætt að fuiiyrða að Guðmundur
Ámi hélt uppi ágætri vöm sitjandi
andspænis „aftökuliði" sínu í fjöl-
miðlastétt. Að máli hans loknu var
talsvert fjaðrafok í þessu liði fólks,
einkum kvenpeningnum og heyrð-
ist hæst í Agnesi Bragadóttur,
sem lét ófriðlega.
Guðmundur viðurkenndi að
tvær mannaráðningar hans í tíma-
bundin störf orkuðu vemlega tví-
mælis og þau væri vissulega hægt
að gagnrýna. Að slíkum ráðning-
um mundi hann aldrei aftur standa.
Hér átti hann við Steen Johansen
sem starfaði í 10 mánuði sem upp-
lýsingafulltmi, og ráðningu Björns
Onundarsonar til að vinna að
samningu skýrslu um launakjör
lækna og fleira.
Gula pressan hefur spyrt þá
Guðmund Áma og Steen saman
sem „einkavini". Fram kom að þeir
tveir ræktuðu ekkert vinasamband
og þekktust aðeins lítillega frá fyr-
irtækjasýningunni Vor ’93 í Hafn-
arfirði, sem Steen stjórnaði af
prýði.
Varðandi Bjöm Önundarson,
gmnaðan um stórfelld skattsvik,
sagði ráðherrann:
„Að vandlega athuguðu máli
viðurkenni ég hins vegar að ekki
var rétt að óska eftir starfskröftum
viðkomandi einstaklings við þær
kringumstæður sem áður var lýst.
Þar hefði ég átt að standa öðmvísi
að málum. Það vom mistök. Jafn-
ljóst er þó, að allar leiðir til lausnar
þessa máls vom umdeilanlegar".
Benti Guðmundur Árni á að
ráðuneytið hefði allt eins átt fyrir
höfði sér skaðabótamál af hálfu
læknisins, ef honum hefði verið
vikið úr starfi, vegna lögfræðilegra
álitamála. Málið var leyst með
samkomulagi. Læknirinn léti af
starfi þá þegar, en auk samnings-
bundinna réttinda við starfslok,
ynni hann fyrir ráðuneytið tvær
skýrslur. Fram kom að Guðmund-
ur Ámi ráðstafaði ekki íbúð í Asp-
arfelli í Reykjavík til tiltekinna
hjóna, um leigumálin hefðu emb-
ættismenn bæjarins séð. Sagði ráð-
herrann að sú tilviljun að kona
mannsins sem íbúðina leigði sé
dóttir af bróður síns, hefði engin
áhrif haft á afgreiðslu málsins.
Annað íbúðamál hefur verið í
fjölmiðlum, vegna félagslegrar
fbúðar við Hvammabraut í Hafnar-
firði. Umsýsla leigu þeirrar íbúðar
var í höndum starfsmanna félags-
málastofnunar bæjarins en ekki
Guðmundar Áma.
Ráðning húsvarðar f Hvaleyrar-
skóla var eðlilega verk skólafull-
trúa bæjarins og síðan skólanefnd-
ar. Frá ráðningunni var gengið
löngu eftir að Guðmundur Ámi var
horfínn úr bæjarmálum í Hafnar-
fírði.
Varðandi Listahátíð í Hafnar-
firði sagði Guðmundur Árni að
hún hefði farið fram eftir að hann
hætti sem bæjarstjóri. Hanni hafi
ekki komið með beinum hætti að
uppgjöri mála eftir að hátíðinni
lauk. Fréttaflutningur um aðgöngu-
miðakaupog kaup á listaverkum
séu hreinlega staðlausir stafír.
Guðmundur Árni fjallaði líka
um skipan Jónu Oskar Guðjóns-
dóttur sem formanns Hollustu-
vemdar og sagði að flest það sem
fullyrt hefði verið um það mál sé á
misskilningi byggt. Skipan Jónu
Óskar í embættið hefði einfaldlega
byggst á trausti sínu til hennar.
Störf hennar innan bæjarstjómar
Hafnarfjarðar í átta ár væm óum-
deild bæði af meiri- og minnihluta
bæjarstjórnar. I störfum sínum
hefði Jóna Ósk fengist við mörg
þau viðfangsefni sem heyra undir
starfsemi Hollustuvemdar, til
dæmis starfsemi heilbrigðisfull-
trúa, mengunarvamir og fleira.
Ráðning Jónu Óskar tengdist ekki
á nokkum hátt störfum hennar við
Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar.
Þá ræddi Guðmundur Ámi um
störf Hrafnkels Ásgeirssonar lög-
manns fyrir heilbrigðisráðuneytið.
Þau voru gagnrýnd á þeim nótum
að Hrafnkell væri frændi Guð-
mundar Árna; afi Guðmundar
Áma og faðir Hrafnkels væm
bræður. Segir Guðmundur Árni
um það mál að skyldsemin hafi
ekki skipt sköpum, heldur hitt að
hann hafi vitað að Hrafnkell kunni
skil á lögfræðilegum álitamálum.
Hafi Hrafnkell tekið saman athug-
un á áhrifum nýlegs hæstaréttar-
dóms á bótarétti í almannatrygg-
ingakerfinu vegna sambúðarslita,
sérstaklega hvað varðar fordæmis-
gildi og sönnunarbyrði. Þetta hafi
Hrafnkell gert og fyrir álitsgerðina
hafi hann fengið 345.200 krónur.
Guðmundur Ami sagði að oft væri
það álitamál hveijir ynnu verkin og
hvað skyldi fyrir þau greitt.
Annar maður tengdur Guð-
mundi Áma, Jón H. Karlsson, var
ráðinn aðstoðarmaður ráðherrans
og olli það nokkm Ijaðrafoki. Að-
allega var það gagnrýnt þegar
Guðmundur Ámi skipaði Jón H.
Karlsson í stöðu foimanns stjómar
Ríkisspítalanna skömmu fyrir ára-
mót þegar ný stjómsýslulög tóku
gildi. Guðmundur Ámi sagði að
sér hafi þá sýnst að ráðherra heil-
brigðismála hverju sinni hefði eig-
in trúnaðarmann í þessari mikil-
vægu stjóm þar sem sex til sjö
milljörðum er velt árlega.
Guðmundur fjallaði ítarlega um
þá gagnrýni sem hann fékk sem
nýskipaður heilbrigðisráðherra.
Fyrst fyrir að spamaðaitillögur
hans gengju of langt, - síðan fyrir
að taka ekki nógu hressilega á
spamaði í kerfinu.
Guðmundur Ámi hrakti fullyrð-
ingar ýmissa fjölmiðla þess efnis
að hann sem heilbrigðisráðherra
hefði farið 1.700 milljónir fram úr
fjárlögum.
Nánar verður fjallað um þessar
ávirðingar á hendur Guðmundar
Áma Stefánssonar í Alþýðublað-
inu á morgun.
BANKAEFTIRLJrr SEÐLABANKANS segir fjárhagsstöðu lífeyrissjóðanna fara batnandi:
Hrein eign sjóðanna nær 209 milljarðar
- í árslok 1993 samanborið við 181,3 milljarða krónal 992. Kostnaður við að reka lífeyrissjóðina nam 665 milljónum króna á síðasta ári sem er 0,34% sem hlutfall af eignum
“járhagsstaða lífeyrissjóða án
ábyrgðar launagreiðenda hefur
batnað mikið samkvæmt niður-
stöðum tryggingafræðilegra út-
Vinningstölur
laugardaginn:
VINNINGAR
m
B
5 af 5
+4af5
4 af 5
3 af 5
FJÖLDI
VINNINGA
3.360
UPPH/EÐ
ÁHVERN VINNING
4.617.423
156 745
9.217
563
Aðaltölur:
24. sept. 1994 (35)
BÓNUSTALA:
36
Heildarupphæð þessa viku:
kr. 7.790.434
UPPLÝSINGAR, SlMSVARI 91- 681511
LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
tekta. Hrein eign til greiðslu lífeyr-
is í árslok 1993 nam 208,8 millj-
örðum króna samanborið við
181,3 milljarða króna í árslok
1992. Þrátt fyrir að flestir
sjóðanna hafi hæni áfallnar
skuldbindingar en eignir þá
hefur hallinn minnkað til
muna. Fjárhagsstaða lífeyris-
sjóða með ábyrgð launagreið-
enda er lakari en hinna. Þetta
kemur ffam í skýrslu Banka-
eftirlits Seðlabanka Islands
um ársreikninga og fjárhags-
stöðu h'feyrissjóða kemur nú
út í þriðja sinn. Skýrslan er
unnin upp úr ársreikningum
lífeyrissjóða og tj-ygginga-
fræðilegum athugunum á líf-
eyrissjóðum.
í árslok 1993 teljast starf-
andi lífeyrissjóðir vera 78
talsins og er þá gert ráð íyrir
að þeir sex sjóðir sem standa
að Lífeyrissjóði Norðurlands teljist
einn lífeyrissjóður enda þótt end-
anleg sameining hafi enn ekki tek-
ið gildi. Af þessum 78 lífeyrissjóð-
um taka 10 þeirra ekki lengur við
iðgjöldum. Af 78 lífeyrissjóðum
teljast 66 vera sameignarsjóðir og
12 séreignarsjóðir. Af sameignar-
sjóðum eru fimm með ábyrgð rík-
issjóðs, níu með ábyrgð sveitarfé-
laga, tveir með ábyrgð ríkisbanka,
þrír með ábyrgð hlutafélaga og 47
án ábyrgðar annarra. -
I skýrslunni eru nú í fyrsta sinn
birtar kennitölur um íjölda sjóðfé-
laga, fjölda lífeyrisþega og hreina
raunávöxtun.
Fjöldi sjóðfélaga sem greiddi ið-
gjald í nóvember 1993 var 130.123
en þess ber að geta að einhver
möguleiki er á tvítalningu meðal
annais sjóðfélaga sem greiða bæði
til sameignarsjóðs og séreignar-
sjóðs.
Fjöldi lífeyrisþega sem fékk
greiddan lífeyri í nóvember 1993
var 31.470 og er hér einnig fyrir-
vari um möguleika á tvítalningu
þar sem sumir lífeyrisþegar fá
greitt úr fleiri en einum lífeyris-
sjóði.
Hrein raunávöxtun er kennitala
sem sýnir ávöxtun eigna að frá-
dregnum kostnaði. Kennitalan er
fengin þannig að hreinn rekstrar-
kostnaður (rekstrargjöld-rekstrar-
tekjur) er dreginn frá fjánnunatckj-
um við útreikning á ávöxtun sjóðs-
ins. Með þessu jafnast út misræmi
milli uppgjörsaðferða milli lífeyris-
sjóða sem felst til dæmis í þvf að
lántökuþóknanir eru ýmist færðar
með ijármagnstekjum eða rekstrar-
tekjurn og er kennitala því betur
fallin til samanburðar milli sjóða
en kostnaðarhlutföll eða raun-
ávöxtun ein og sér.
Hrein raunávöxtun allra sjóð-
anna var 6,71% árið 1993 en 7%
árið 1992.
Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna
samkvæmt sjóðsstreymi á árinu
1993 nam samtals 39,4 milljarði
króna samanborið við 33,1 milljarð
árið á undan.
Á árinu 1993 námu iðgjöld sam-
tals 15.687 milljónum króna en
voru 15.278 milljónir árið á undan.
Á árinu 1993 nam gjaldfærður líf-
eyrir samtals 6.647 milljónum
króna samanborið við 5.678 millj-
ónir árið áður.
Kostnaður á árinu 1993, það er
rekstrargjöld að frádregnum rekstr-
artekjum, nam samtals 665 rnillj-
ónum króna en sambærileg tala ár-
ið 1992 var 638 ntilljónir. Sem
hlutfall af eignum nam, það er
meðaltali hreinnar eignar til
greiðslu lífeyris, nam kostnaður
0,34% árið 1993 en 0,38% árið
1992 fyrir lífeyrissjóðina í heild.