Alþýðublaðið - 25.10.1994, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Annað HM-hneyksli í uppsiglingu?
„Það er auðsjáanlegt að Árni Sigfússon & kó hafa enga tilfinn-
ingu fyrir því hvernig best er að fara með fjármuni borgarbúa;
ávallt reiðubúin að ana út í vanhugsaðar framkvæmdir með til-
heyrandi kostnaði...Þeir framkvæma fyrst og hugsa um afleið-
ingarnar seinna.“
Almenningur er fyrir löngu búinn
að fá sig fullsaddan af hinu svokall-
aða HM-máli (HM-hneyksli...) sem
tröllriðið hefur fréttum fjölmiðla
undanfarið. Það er því kannski að
bera í bakkafullan lækinn að riíja
það alltsaman upp. En af því má nált-
úrlega draga nokkum lærdóm. Og
það dýrmætan, ef koma má í veg fyr-
ir slíkan kjánagang í framtíðinni.
Við höftim við séð hvemig forvíg-
isrnenn íþróttahreyfmgarinnar hafa
farið offari í baráttunni fyrir því að
yfirvöld Reykjavíkurborgar byggi
hús sem hentar fyrir keppnina sem
fram á að fara hér á landi á næsta ári.
Að þessu máli var þannig staðið af
hálfu íþróttafrömuðanna, að fyrst var
barist fyrir því að fá keppnina hingað
og svo var spurt: Höfum við aðstöðu
til að halda hana? Svarið var nei.
Síðan var spurt: Eigum við peninga
til að byggja nýtt stórvirki? Aftur var
svarið nei. Hvað var þá til bragðs að
taka? Jú, látum rikið eða sveitarfé-
lögin borga brúsann! Og þá fóru að
sjálfsögðu öll hjól að snúast í þá átt-
ina. Gengið var að stjómmálamönn-
um í von um að þeir gætu reddað
málunum svo keppnin mætti fara
fram. Ríkið keypti sig frá byggingu
hallarinnar og þá fóru menn að herja
á borgaryfirvöld. Allir þekkja það
sem á eftir gekk, og loksins nú hefur
nýr meirihluti í Reykjavík tekið mál-
ið í sínar hendur og náð lendingu
sem allir geta sætt sig við.
Kjánalegur málflutningur
Allir? Já, allir nema fulltrúar
íhaldsins í borgarstjóm sem sáu
ástæðu til þess að gagnrýna Reykja-
víkurlistamenn fyrir seinagang í
þessu máli. Það var eins og íhalds-
menn hefðu gleymt að það vom þeir
sem stjómuðu þessari borg þegar allt
þetta mál var í hnút og ekki vom það
þeir sem leystu úr vandanum (og það
þrátt fyrir að mjög stór hluti íþrótta-
manna hér á landi sé í stuðningsliði
þeirra - einhverra hluta vegna). Lít-
um aðeins á málflutning íhalds-
manna: Þeir vom tilbúnir að sam-
þykkja, nú eftir að Reykjavíkurlist-
inn tók við, að byggja fjölnota
íþróttahús á tíu mánuðum fyrir
keppnina. Sú uppástunga sýnir ótrú-
legt ábyrgðarleysi stjómmálamanna
sem vom búnir að ausa svo úr sjóð-
um borgarbúa í gæluverkefni og
Pallborðið
minnisvarða, að skuldastaðan núna
er hreint út sagt hörmuleg. Ef húsið
hefði verið byggt á svo stuttum tíma
sem íhaldið vildi, hefði verið all-
sendis ófyrirsjáanlegt hver kostnað-
urinn hefði orðið; undirbúningur
hefði orðið lítill og erfitt að passa
uppá að fjárhagsáætlun hefði haldið.
Alveg tilbúið hefði húsið kostað,
samkvæmt áliti þeirra sem gjörla
þekkja til. um 600 til 700 milljónir.
Ef menn horfa til vanhugsaðra áætl-
ana við framkvæmdir á til dæmis
Ráðhúsi og Árbæjarlaug sjá menn að
svona bygging myndi fara margfalt
fram úr áætlun. Það er auðsjáanlegt
að Ámi Sigfússon & kó hafa enga
tilfinningu fyrir því hvemig best er
að fara með fjármuni borgarbúa;
ávallt reiðubúin að ana út í vanhugs-
aðar framkvæmdir með tilheyrandi
kostnaði þrátt fyrir hin stóm mistök
sem áður var minnst á. Þau fram-
kvæma fyrst og hugsa um afleiðing-
amar seinna.
Einkafíipp íþróttahreyfinga
Burtséð frá þessari pólitík allri, þá
hefur nú verið ákveðið að setja við-
byggingu utan á Laugardalshöllina
austan megin sem getur tekið allt að
900 áhorfendur til viðbótar við þá
4200 sem komast áttu inn fýrir breyt-
ingar. Handknattleikssamband Is-
lands sættir sig við þessa niðurstöðu
meirihluta borgarstjómar því nú mun
hægt að halda keppnina með sóma.
Það er þó augljóst að betur hefði mátt
vanda til undirbúnings í þessu máli.
Það er ekki nokkur leið að einstaka
sérsamband innan íþróttahreyfmgar-
innar (fjárvana einsog venjulega)
sæki um að halda stórkeppni hér
heima algerlega uppá eigin spýtur, fái
jákvætt svar við umsókninni og ætlist
svo til að hið opinbera komi með sína
gmnnu vasa og bjargi þeim um húsa-
kost sem ekki er fyrir hendi, til þess
að verða ekki íslandi til skammar á al-
þjóðavettvangi.
Ekki fleiri HM-hneyksli
Árið 1997 verða Smáþjóðaleik-
amir haldnir hér á landi. Einsog með
flesta aðra stórviðburði í íþróttum
sem fram fara hér á landi má telja
líklegt að það komi í hlut Reykjavík-
urborgar að sjá um stóran hluta
mótsins. Enn hefur þó ekkert verið
haft samband við nýjan meirihluta
varðandi samstarf í þessum málum.
Samt er vitað að heilmikið af tækjum
og tólum sem nauðsynleg em í svona
keppnir vantar og verða því yftrvöld
í borginni að getað haftð undirbún-
ing nú þegar í samvinnu við iþrótta-
hreyfmguna. Til dæmis er ekki vitað
í hvaða íþróttagreinum verður keppt
nákvæmlega. Eins er það vitað að
sundmenn kreljast 50 metra inni-
sundlaugar fyrir þessa keppni og þá
komum við aftur að borginni sem
borga á brúsann - einsog venjulega.
Getur verið að fleira þurfi að byggja?
Við skulum vona að íþróttahreyfing-
in vakni nú fyrr af dvalanum en
gerðist í HM-málinu og hefji við-
ræður við borgina. Einnig ættu þeir
að reyna að finna út hvar ríkið gæti
komið inn í þessi mál því ekki er
hægt að ætlast til þess að Reykjavík-
urborg taki allan kostnaðinn á sig.
Höfundur er varaborgarfulltrúi Reykj-
avikurlistans og varaformaður íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkur.
Fax dagsins
Faxi dagsins fyigdi svohljóð-
andi orðsending: „Myndin er
teiknuð á ASÍ-þingi fyrir mörg-
um árum, þegar Ásmundur
Stef. sagði að ASÍ væri risi, sem
stæði á brauðfótum. (Jeppinn
kom seinna inn í myndina -
hann var nokkuð fjarri á þess-
um tíma). Kveðja.“ Því cinu er
við að bæta að umræddur jeppi
kostar ekki nema 4,5 milljónir.
A Tilljónasamningar
lVJLhafa verið gerðir á
hinum ólíklegustu stöðum.
Þannig er sagt að Howard
Hughes hafi oft skrifað
undir á salemum veitinga-
húsa. Fullyrt hefur venð í
okkar löngu eyru að Ás-
geir Guðbjartsson, skip-
stjóri og útgerðarmaður á
ísafirði hafi skrifað undir
samninginn um smíði nýju
Guggunnar á tjaldstæðinu í
Laugardal þar sem hann
gistir gjaman, enda hefur
hann haft að orði að hótel í
borginni séu allt of dýr.
Guggan kostaði 1,6 millj-
arða króna, en gamla
Guggan kom á móti og var
seld á 380 milljónir
króna...
Forráðamönnum úr
Hafnarfirði var tekið
með kostum og kynjum í
Kína á dögunum, þeim
Magnúsi Jóni bæjarstjóra,
Tryggva Harðarsyni,
bæjarfulltrúa krata og Jó-
hanni Bergþórssyni, bæj-
arfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins. I Nanking var
þeim ekið um götumar á
svartri limósínu og dekrað
viðþááalla lund...
Nú styttist í uppgjör
Árna Johnsens og
Eggerts Haukdals um
annað sætið á lista sjálf-
stæðismanna á Suðurlandi.
Fullvíst má telja að Ámi
hafi betur, og Eggert er
greinilega við öllu búinn
þarsem hann hefur síðan í
sumar unnið að mögulegu
sérframboði. Langminnug-
ir áhugamenn unt pólitík
muna að Eggert náði kjöri
1979 þegar hann bauð
fram eigin lista. í kjölfar
þess varð hann örlítill ör-
lagavaldur í stjómmála-
sögunni með því að verja
ríkisstjóm Gunnars Thor-
oddsens falli. Síðustu
mánuði hefur Eggert falað
stuðning víða um kjör-
dæmið, og meðal annars
boðið Magnúsi Karel
Hannessyni. vinsælum
oddvita Eyrbekkinga, ann-
að sæti á lista sínum...
T)rófkjör sjálfstæðis-
T manna á Reykjanesi fer
fram 5. nóvember. Almenn
óánægja er meðal þeirra
með dræma þátttöku, en
aðeins fjórir ffambjóðend-
ur gefa kost á sér auk þing-
mannanna fimm sem fyrir
em. Sjálfstæðismenn í
kjördæminu em heldur
ekkert yfir sig hrifnir af
ffamrni-
stöðu sinpa
manna. OI-
afur G.
Einarsson
nýtur lítilla
vinsælda og
flestum
finnst víst
að Salome Þorkelsdóttir
hefði átt að láta af þing-
mennsku. Ymsir hafa skor-
að á Árna Mathiesen,
sem náði 3. sætinu með
glæsibrag síðast, að skella
sér í slag um efsta sætið.
Ámi er yngsti þingntaður-
inn á Alþingi, en nái hann
fyrsta sæti getur flokkurinn
ekki gengið framhjá hon-
um þegar ráðherrar verða
valdir næst...
Hinumegin
5-31
Við verðum Ijónheppin ef okkur tekst nokkurntíma að selja
staðinn... Jæja, það er einsog allir klifa á: staðsetning, stað-
setning, staðsetning.
Fimm á förnum vegi Er verkfallsvetur framundan? (Spurt á 37. þíngi bsrb.)
Guðmundur Jóhannsson, eftir-
launamaður: Það er erfitt að segja,
fer eftir samningagerðinni. Það
verða uppi harðar kröfur, en það er jú
æskilegt að vera laus við verkföllin.
Elísabet Ingibergsdóttir, starfs-
maður í sundlaug: Já, ég er
hrædd um það. Þar er helst stífni við-
semjanda okkar unt að kenna.
Einar Emilsson, sundlaugar-
vörður: Ég á svolítið erfitt með að
spá í það. Myndi segja að það væm
jafnar líkur.
Pétur Reynir Elíasson, BSRB-
maður; Nei, ég held ekki. Það er
ekki rétta aðferðin. Verkföllin heyra
fortíðinni til.
Guðný Aradóttir, fulltrúi Póst-
mannafélagsins: Nei, það tel ég
ekki. Ástandið í þjóðfélaginu leyfir
það ekki og menn ntunu reyna ná
sáttum á annan hátt.
Viti menn
Sú ánægjulega breyting hefur
orðið að nú viðurkenna flestir
þörfina á víð-
tækri siðbót í ís-
lenskum stjórn-
málum. Jafnvel
ráðherrarnir
sein í kvöld
verjast van-
trausti á Alþingi þora ekki
annað en að taka undir kröf-
una um nýja starfshætti.
Ólafur Ragnar Grímsson,
Morgunpósturinn í gær.
Ef Beethoven væri uppi
í dag væri hann á kafl í
inegabætum.
Kjartan Ólafsson tónskáld,
Morgunpósturinn í gær.
Dagskrárstjóri Rás 2 komst
þannig að orði, að hann
„nennti“ ekki að hlusta á
kvartanir vegna Illuga og
hefði þess vegna valið þann
kost að láta hann hætta. Held-
ur hefði mátt ætla, að maður í
hans stöðu, vildi verja rétt
manna til að láta í ljós skoðan-
ir sínar, þótt þær ykju eitt-
hvað á starfsskyldur hans.
Björn Bjarnason alþingismaður,
Mogginn á laugardag.
Efri hæðin er prestssetur.
Neðri hæð sífellt á nauðungar-
uppboðum og þar hafa búið
æðimargir og sá hópur allfjöl-
skrúðugur. Helgar oft gleði-
ríkar og klerkur oft gengið
svefnlaus til sunnudagahelgi-
halds... Nú eru þar bruggarar
og af þeim nokkurt ónæði
vegna ágangs viðskiptavina og
umsáturs Iögreglu.
Úr bréfi séra Tómasar Guðmundssonar
sóknarprests í Hveragerði til Prest-
setrasjóðs, þarsem hann biður sjóðinn
að kaupa umrædda neðri hæð.
Davíð Oddsson
á 1. sætið og
það er út í loftið
að halda öðru
fram en hann
fái rússneska
kosningu. Þeir
kannski ekki til-
búnir að ljá honum atkvæði
sitt, eru leifarnar af huldu-
hernum og einstaka stuðnings-
menn Katrínar Fjeldsted.
Styrmir Guðlaugsson, fréttaskýring i
Morgunpóstinum í gær.
einu sem eru
Eggert Haukdal... er hug-
sjónamaður, trúir á moldina
og gróður jarðar - og upp-
runa allra íslendinga.
Steingrímur St. Th. Sigurðsson,
Mogginn á laugardag.
Við getum allt eins búist við
því að verða orðin 400 þúsund
eftir 40 ár og 500 þúsund eftir
60. Það er því alger nauðsyn
að við förum að búa okkur
undir framtíðina.
Guðmundur Kristinn Oddsson, fram-
bjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík, Mogginn á laugardag.
Hrafn Gunn-
laugsson borg-
aði ekki lilut
Menningarsjóðs
útvarpsstöðva í
rekstri Sinfón-
íunnar þegar
hann var formaður sjóðsins.
Embættismenn reyna að
bjarga menntamálaráðherra.
Hrafn úthlutaði ríflega til vina
sinna. Ekkert úthlutað eftir að
Hrafn hætti með sjóðinn.
Undirfyrirsögn á forsiðu
Vikublaðsins á föstudaginn.