Alþýðublaðið - 25.10.1994, Síða 8
MÞYDMílímU
Þriðjudagur 25. október 1994
161.tölublað - 75. árgangur
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
Það kraumar í pottinum: Ögmundur Jónasson, formaður BSHB var á ferðinni í eldhúsi ráðstefnusalanna í Borg-
artúni 6 í hádeginu í gær. Það kraumaði í súpupottinum, - og það kraumar líka í þinghaldi opinberra starfs-
manna. A-mynd: E.ÓI.
37. þing BSRB hófst í gær:
Hugmyndir Friðriks
ekki meltar hráar
- segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB
„Það má alveg orða það svo að
það kraumar í pottinum hér á
þessu 37. þingi BSRB“, sagði Ög-
mundur Jónasson, formaður
BSRB, í samtali við Alþýðublaðið í
gærdag. Búast má við hörðum við-
brögðum þingsins í stóru málun-
um, - launamálum og atvinnumál-
um. Innan BSRB eru fjölmargir
láglaunamenn, og atvinnuleysið
nær langt inn í þær raðir sem aðr-
sjálfsögðu. Það má í raun segja að
allt sem sncrtir BSRB og félaga
þess sé í umræðunni“, sagði Ög-
mundur. Meðal þess sem rætt var á
37. þingi BSRB í gær var tillaga
fjármálaráðherra um rækilega
uppstokkun á launakerfi opin-
berra starfsmanna, sem kynnt hef-
ur verið.
„Þessar hugmyndir tel ég að
vcrði ekki meltar hráar. Þær þarf
að skoða rækilega. Reynslan frá
Nýja Sjálandi og Svíþjóð í þessum
cfnum lofar ekki góðu. Þar ýtti slíkt
kerti undir aukinn launamun
þannig að enn meir hallaði á konur.
Þessar hugmyndir ganga út á vissa
miðstýringu. Eg vil að ræddir verði
kostir miðstýringar og valddreif-
ingar, - kannaðir verði kostir
beggja“, sagði Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB.
ar.
Framsókn undirbýr skipan framboðslistans á Aust-
urlandi þar sem sótt er að sæti Jóns Kristjánssonar:
Karen Erla verður
undir í slagnum
- og Jónas Hallgrímsson keppir við Jón um 2. sætið.
Halldór Ásgrímsson öruggur í efsta sæti.
Framsóknarmenn á Austurlandi
eru að undirbúa kjördæmisþing sitt
sem verður haldið 5. nóvember. Þar
fer fram prófkjör eða val á lista
flokksins fyrir komandi þingkosn-
ingar. Tíu manna úrtaki úr almennu
forvali framsóknarfélaganna á
Austurlandi verður raðað í sæti með
almennri atkvæðagreiðslu. Enginn
frambjóðandi ætlar að reyna að
hrófla við Halldóri Ásgrímssyni í
fyrsta sæti listans. Hann felldi á sín-
um tíma Tómas Ámason úr sætinu í
opnu prófkjöri og síðan hefur opið
prófkjör ekki farið fram. Karen Erla
Erlingsdóttir á Egilsstöðum hyggst
ná 2. sæti af Jóni Kristjánssyni al-
þingismanni.
Af samtölum við fólk á Austur-
landi að ráða er ekki líklegt, að Kar-
en Erla hafi erindi sem erfiði. Jón er
talinn nokkuð traustur í sessi en ef
einhver gæti ógnað honum í barátt-
unni um 2. sætið þá væri það helst
Jónas Hallgrímsson á Seyðisfirði.
Fyrir síðustu kosningar munaði ekki
nema nokkmm atkvæðum á kjör-
dæmisþinginu milli Jóns og Jónasar
um annað sætið. Á framboðslista
flokksins skipaði Jónas 3. sætið,
Karen Erla það 4. og Kristjana
Bergsdóttir Seyðisfirði 5. sæti.
Kristjana er nú flutt suður og bú-
sett á Seltjamamesi. Hún er cngu að
síður í 10 manna hópnum sem kosið
verður um á kjördæmisþinginu.
Sagt er að Karen Erla hafi talið sig
eiga möguleika á atkvæðum fulltrúa
ffá Seyðisfirði því hún starfaði þar
sem ferðamálafulltrúi. Jónas Hall-
grímsson lét krók koma á móti
bragði með því að fá Kristjönu til að
vera áfram í framboði sem fulltrúi
kvenna á Seyðisfirði. Karen Erla
þykir mjög fylgin sér og lýsir því yf-
ir við hvem sem er að hún ætli sér
að ná þingsætinu af Jóni, enda eigi
hún brýnt erindi á þing. Jónas Hall-
grímsson hefur engar slíkar yfirlýs-
ingar gefið. Hann er sagður lýsa því
yfir að hann stefni sem efst á listann
en taki það sæti sem kjördæmisþing
úthlutar honum. Hins vegar em
margir framsóknarmenn á Austur-
landi sagðir afar óánægðir með að
ekki skuli viðhaft opið prófkjör til
að tryggja eðlilega endurnýjun á
listanum.
Það er á Austfirðingum að heyra
að Jón Kristjánsson þyki ekki at-
kvæðamikill þingmaður en engu að
síður farsæll í störfum sínum. „Það
geislar ekki fjörið af þeim Halldóri
og Jóni en þetta em traustir menn,“
sagði einn viðmælandi blaðsins. Jón
er stjómarformaður Kaupfélags
Héraðsbúa og er sagður eiga traust
fylgi meðal bænda á Héraði. Sem
fyrr segir er Jónas Hallgrímsson
sagður vera Jóni skeinuhættur um
slaginn í annað sætið. Þó töldu ýms-
ir að röð efstu manna yrði óbreytt
frá síðustu kosningum, það er að
segja Halldór Ásgrímsson í 1. sæti.
Jón Kristjánsson í 2. og Jónas Hall-
grímsson í 3. Karen Erla yrði þá
Jón Kristjánsson alþingismaður:
Líklegt þykir að hann sitji áfram í
öðru sæti Framsóknarflokksins á
Austurlandi. Jónas Hallgrímsson
gæti þó reynst honum skeinu-
hættur. A-mynd: E.ÓI.
væntanlega enn að sætta sig við 4.
sætið.
Til viðbótar þeim sem hér hafa
verið nefndir eru í 10 manna fram-
boðshópnunt þau Sigrún Júlía
Geirsdóttir Neskaupstað, Sveinn
Þórarinsson Egilsstöðum, Ólafur
Sigurðsson á Svínafelli, Guðbjartur
A. Össurarson á Höfn og Vigdís
Sveinbjömsdóttir Egilsstöðum. •
„Það er tekið á mörgum mála-
flokkum hér á þinginu og ætlunin
að móta stefnuna í nánast ölium
okkar málum. Það er rætt um líf-
eyrissjóði, vinnuvernd og starfs-
mcnntun auk stóru málanna að
Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur:
Guðmundur
Ami í Rósinni
á morgun
Guðmundur Árni Stefánsson,
félagsmálaráðherra og varafor-
maður Alþýðuflokksins, verður
gestur Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur í Kratakaffl í Ró-
sinni annað kvöld, klukkan
20:30. Hlín Daníelsdóttir, for-
maður félagsins, vill hvetja alla
jafnaðarmenn nær og fjær til að
fjölmenna og taka með sér gesti.
Örtröðin á Reykjalundi er orðin óbærileg eftir að Grensásdeild lokaði helmingi starfsemi sinnar í
marga mánuði. Samningar Borgarspítala úr takt við þjóðarsátt og óbein orsök vandamálanna:
650 á biðlista - hætta á uppsögnum
„Óbærilegur þrýstingur hefur
myndast hjá okkur á Reykjalundi
undanfama mánuði þegar Grensás-
deild Borgarspítalans hefur verið
lokað að stórum hluta í marga mán-
uði. Við reynum að taka við sjúk-
lingum eins og hægt er, en ég verð að
segja að við sitjum uppi með sárt
ennið í þessum skiptum", sagði
Bjöm Ástmundsson, framkvæmda-
stjóri Reykjalundar í samtali við Al-
þýðublaðið í gær. Hjá Reykjalundi
eru nú milli 650 og 660 sjúklingar á
biðlista og Ijölgar þeim óðum. Bjöm
segir reyndar að eitthvað megi stytta
biðlistann, en eftir standi í það
minnsta 450 sem nauðsynlega þurfi
að komast að. Gmndvöllur eðlilegrar
Vinningstölur
laugardaginn:
22. okt. 1994
| VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
5 af 5 1 8.727.822
a +4af5 4 179.355
Et 4 af 5 199 6.218
3 af 5 6.184 466
BÓNUSTALA:
(§
Heildarupphæð þessa viku:
kr. 13.564.368
UPPLÝSINQAB, SÍMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVAHP 4S1
starfsemi Reykjalundar hefur raskast
og sjúkrahúsið hefur verið rekið með
um 30 milljón króna halla það sem af
er árinu.
Urgur meðal starfsfólksins
Bjöm sagði, að á meðan biðlistar
em á Reykjalundi, þá bíði fjölmargir
sjúklingar í dýmm plássum á sjúkra-
húsum sem kosti hið opinbera ærið
fé. Ætlunin hafi verið að fjölga inn-
lögnum hjartasjúklinga í endurhæf-
ingu á Reykjalundi, en nú sé ljóst að
hætta verður við þá fyrirætlan.
Lokun Grensásdeildar Borgarspít-
alans þýðir að álagið á Reykjalund
vex, en Borgarspítalinn er með sér-
staka endurhæfingardeild, sem
Landspítalinn hefur ekki. Starfs-
fólk Reykjalundar hefur þvf haft
meiri verkefni en eðlilegt getur tal-
ist og sagði Bjöm talsverðan urg
meðal starfsfólksins vegna
ástandsins.
Starfsmannafækkun
vegna hallarekstrar
Hann sagði að ekki yrði lokað
deildum á Reykjalundi, en stað-
reyndin væri sú að ekki væri hægt
að veita sömu þjónustu og áður.
Meðferð hvers sjúklings í endur-
hæfingu yrði mun ómarkvissari og
styttri á degi hverjum en fyrr og
meðferðin kæmi til með að taka
lengri tíma en áður fyrir sjúkling-
inn og hann skilar sér seinna út í at-
vinnulífið að nýju.
Reykjalundur fær 6.872 krónur í
Reykjalundur, - hjartasjúklingar í endurhæfingu áður en þeir hverfa á ný
út í athafnalífið. Myndin var tekin snemma á þessu ári. A-mynd: E.ÓI.
daggjöld af hverju sjúkrarúmi, með-
an stóm sjúkrahúsin fá um allt að
25-30.000 krónur í kostnað per
legudag á fjárlögum. Sagði Björn
Ástmundsson að framundan væm
erfiðir tímar á Reykjalundi, og við
blasir starfsmannafækkun í febrúar,
þrátt fyrir allt álagið sem á stofnun-
inni hvfiir í dag.
Launin eru alltaf að hækka
Sagði hann að það væri alveg Ijóst
að kostnaður við starfsmannahald
væri orðinn slíkur að stofnunin risi
ekki undan. Samningar við hjúkmn-
arfræðinga í sumar um 8-10%
launahækkanir, afturvirkir til I. apr-
fl, hafa kostað Reykjalund mikið fé,
sem ríkisvaldið hefur ekki bætt. Auk
þess sagði Bjöm að enda þótt talað
væri um að laun hækkuðu ekki í
þjóðfélaginu hefði hann aðra sögu að
segja.
„Hér em innbyggðar launahækk-
anir sífellt í gangi, starfsaldurshækk-
anir, þrepahækkanir og hækkanir
vegna viðurkenninga á sérfræðing-
um. Kostnaðurinn eykst stöðugt.
Launahækkanir á einum stað kalla á
hækkanir hjá öllum öðmm, við höf-
um auðvitað þurft að elta okkar stóm
bræður", sagði Bjöm.
Engar breytingar hafa orðið á dag-
gjöldum til Reykjalundar í ár, þrátt
fyrir hækkanir á launum 25 hjúkmn-
arfræðinga þar. Sagði Bjöm að gróf-
lega mætti reikna með þörf fyrir
700-800 króna hækkun á daggjöld-
um til Reykjalundar, þannig að
menn kæmust nokkum veginn fyrir
vind.
Kemur Borgarspítalamönn-
um á óvart
Jóhannes Pálmason, forstjóri
Borgarspítalans, sagði í gær að sér
kæmi mjög á óvart að Bjöm Ást-
mundsson teldi vandamál Reykja-
lundar stafa af sjúklingum frá Borg-
arspítala. Hann hefði haldið að þeir
kæmu fremur frá Landspítala.
Sagði Jóhannes að vissulega hefði
starfsemi Grensásdeildar minnkað
að sumarlagi undanfarið, en það
hefði ekki átt að koma svo mjög að
sök hjá Reykjalundi. Sjúklingar frá
Borgarspítala fæm til endurhæfingar
hjá Grensásdeild eins og fyrr.
Eins og Alþýðublaðið hefur áður
greint frá var það Borgarspítalinn,
eða öllu heldur stjóm sjúkrastofnana
borgarinnar, sem gerði samninga við
viðsemjendur sína í hjúkmnarstétt-
unum, sem sagðir hafa verið úr öll-
um takti við þjóðarsátt. Þessi gerjan
mála hefur flust yfir á aðrar sjúkra-
stofnanir og aðrar stéttir miða kröfur
sínar við það sem gerst hefur í launa-
málum innan heilbrigðiskerfisins. •