Alþýðublaðið - 11.11.1994, Blaðsíða 1
Jón Þór Sturluson, nýkjörinn formaður Sambands ungra jafnaðarmanna, skrifar:
Kraftur og siálfstæði
„Ég hefði bara aldrei trúað því..
hefði Svavar Gestsson, þingmaður
Alþýðubandalagsins, rétt eins getað
sagt þegar hann leit yfir þann fjölda
af ungu og hressu fólki sem sótti 41.
sambandsþing SUJ í Hveragerði urn
síðustu helgi, en hann var sérstakur
gestur á hátíðarkvöldverði og betri
helmingur hans, Guðrún Agústsdótt-
ir forseti borgarstjómar Reykjavíkur,
var veislustjóri þingsins. Að vísu
notaði Svavar önnur orð til að lýsa
blendinni hrifningu sinni yfir kraft-
inum í ungliðahreyftngu Alþýðu-
flokksins en innihaldið er það sama.
Undntn Svavars er þó alls ekki
óeðlileg því atburðir undanfarinna
mánaða hafa ekki beinlínis virkað
hvetjandi á fólk til að fylkja sér fyrir
Alþýðuflokkinn og er SUJ þá með-
talið. SUJ-arar eru þó óhræddir og
ætla að sitja af sér óveðrið eins og
bersýnilega kom fram á þinginu, en
þingfulltrúar hafa aldrei verið fleiri
en einmitt nú.
SUJ er sjálfstæd hreyfing
Sjálfstæði SUJ, bæði hvað varðar
Jón Þór Sturluson: Atburðir und-
anfarinna mánaða hafa ekki bein-
línis virkað hvetjandi á fólk til að
fylkja sér fyrir Alþýðuflokkinn og er
SUJ þá meðtalið. SUJ-arar eru þó
óhræddir; ætla sitja af sér óveðrið.
málefni og starfsaðferðir, er vafa-
laust ástæðan fyrir þessu mikla lífi í
hreyftngunni. Ungt fólk vill vera
frjáíst til þess að mynda sér eigin
skoðanir og þolir ekki að vera bund-
ið niður í klafa flokkshollustu og
hagsmunapólitíkur. Á undanförnum
árum hefur Sambandið haft forystu
um mörg mikilvæg mál og ber þar
hæst sú stefna SUJ að ísland skuli
sækja urn aðild að Evrópusamband-
inu. Sú stefna hefur nú svo gott sem
verið tekið upp af Alþýðuflokknum.
Ungir jafnaðarmenn eru óhræddir
við að gagnrýna það sem þeim er á
móti skapi og láta flokksaga ekki
takmarka skoðanir sínar. I því sam-
bandi má benda á gagnrýni SUJ á för
utanríkisráðherra til Kína nú t' ár.
SUJ er öflug hreyfing
Samband ungra jafnaðar-
ntanna er orðin ein öflugasta
stjómmálahreyfing landsins og
ætlum við því að láta verulega til
okkar taka í komandi kosning-
um. SUJ verður með sínar eigin
málefnaáherslur og starfsaðferð-
ir og leggur mikla áherslu á, að
sem allra flestir ungir jafnaðar-
menn komist í baráttusæti á list-
um Alþýðuflokksins. Forystu-
menn Alþýðuflokksins hafa tek-
„Ungt fólk vill vera frjálst til þess að mynda sér eigin skoðanir
og þolir ekki að vera bundið niður í klafa flokkshollustu og
hagsmunapólitíkur...Ungir jafnaðarmenn eru óhræddir við að
gagnrýna það sem þeim er að móti skapi og láta flokksaga ekki
takmarka skoðanir sínar...Samband ungra jafnaðarmanna er
orðin ein öflugasta stjórnmálahreyfing landsins“
ið þessum hugmyndunt fagnandi og
er undirbúningur kosningabaráttu
SUJ þegar hafinn.
Taktu þátt!
SUJ er ekki lokaður klúbbur held-
ur fjöldahreyftng þar sem allt ungt
fólk er velkomið lil starfa. Eina skil-
yrðið er áhugi, eldmóður og trú á
grunnhugsjónina; jafnaðarstefnuna.
Eg vil hvetja allá unga jafnaðar-
menn, bæði þá sem ratað hafa inn í
SUJ og hina sem enn eru tvístígandi,
til að leggja hönd á plóginn í
skemmtilegu starfi hugsandi fólks í
baráttunni fyrir jafnrétti, jöfnuði og
umbótum í samfélaginu okkar. Við
getum svo sannarlega haft áhrif.
.mrAFARGmm
Brottför á tímabilinu 15. - 31.desember
Lágmarksdvöl 7 dagar Hámarksdvöl 1 mánuður
GAUTAfíORG KR. 31.380.- *
STOKKHÓLMUR KR. 31.380,-
LUXEMBORG KR. 31.450.-
AMSTERDAM KR. 31.490.-
HAMBORG KR. 31.500.-
LONDON KR. 31.840.-
OSLÓ KR. 31.840.-
KAUPMANNAHÖFN KR. 31.980.-
* Brottför 21.des, heimkoma 7.jan
Innifalið:
Flugfar báðar leiðir og flugvallarskattar.
Ferðaskrifstofa Stúdcnta
Sími 615656 Fax 19113
Stjómmálaályktun
41. þings SUJ
Evrópa
Ungir jafnaðarmenn telja að Islend-
ingar eigi, að sækja nú þegar um aðild
að Evrópusambandinu og láta reyna á
það í formlegum viðræðum, hversu
langt við gætum gengið í þá átt að
halda yfirráðum yfir helstu auðlindum
okkar. Þegar niðurstöður af slíkum
viðræðum lægju fyrir, væri það vita-
skuld þjóðarinnar allrar að taka um
það ákvörðun í þjóðaratkvæða-
greiðslu, hvort við féllumst á niður-
stöður sltkra samningaumleitana eður
Atvinnuleysi
Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir mikl-
um áhyggjum vegna aukins atvinnu-
leysis. Atvinnuleysi er þjóðarböl sem
má aldrei festa rætur hér á landi. Skýr
atvinnustefna með áherslu á rann-
sóknar- og þróunarstarf er besta trygg-
ing okkar fyrir öflugu atvinnulífi og
bættum kjörum í framtíðinni.
Menntun
Fjölhæf menntun er góð fjárlesting.
Því vara ungir jafnaðarmenn við nið-
urskurði í menntamálum. Hann mun
aðeins leiða til fábrotnara atvinnulífs
og lakari lífskjara.
LÍN
Ungir jafnaðarmenn ítreka stefnu
sína í málefnum Lánasjóðs íslenskra
námsmanna og hvetur þingflokk Al-
þýðuflokksins til að ná fram breyting-
um á lögunum um sjóðinn í samræmi
við niðurstöðu flokksþings Alþýðu-
flokksins í Kópavogi 1992. Ungir
jafnaðarmenn lýsa vanþóknun á hug-
myndum um skólagjöld í framhalds-
skólum og treysta því að þingmenn
Alþýðuflokksins muni aldrei fallast á
slíkt.
Menning
Ungir jafnaðarmenn leggja til að
styrkir fyrirtækja til lista- og menn-
ingarstarfsemi hverskonar, verði frá-
dráttarbærir til skatts. Má sérstaklega
nefna í þessu efni styrki til kvik-
myndagerðar, sem er dýr listgrein, en
er, ef vel tekst til, einhver besta aug-
lýsing fyrir land og þjóð sem kostur er
á. Leiklist og tónlistariðkun eru einnig
mikilvægir þættir. Þetta gæti orðið til
að hleypa nýju blóði í listiðkun hér á
landi, sem býr við frekar þröngan kost
eins og staðan er í dag. Aukin listiðk-
un er einnig atvinnuskapandi. Það má
geta þess að það voru einmitt slíkar
ráðstafanir sem hrundu kvikntynda-
byltingunni miklu í Ástralíu af stað
fyrir um tuttugu árum.
Þjóðrækni
Á þeim tímum sem jafnaðarmenn
stefna að auknum tengslum Islands
við umheiminn, er afar brýnt að staðið
sé vörð um íslenska menningu og ís-
lenska tungu. Sérstaða okkar sem
þjóðar og mikilsverðasta framlag okk-
ar til evrópskrar menningar eru
hinn mikli bókmenntaarfur
sem við höfum varðveitt af
kostgæfni. Við verðum að
veita bókmenntum nútím-
ans skilyrði til vaxtar með
stuðningi opinberra aðila.
Fjölskyldan
Ungir jafnaðarmenn
hvetja til þess að stóraukin
áhersla verði lögð á for-
vamarstarf og á málefni
íjölskyldunnar. Ríkjandi
stefna í heilbrigðis- og
félagsmálum hefur verið
sú að bíða eftir að vanda-
mál komi upp og þá er reynt
að taka á þeini sem því miður
er oft of seint. í stað þess þyrfti að taka
upp öflugt forvamarstarf á öllum svið-
unt, svo sem gagnvart sjúkdómum,
slysum, bamavemd og uppeldismál-
um . Forvamarstarf getur verið í ýms-
um myndum, til að mynda í formi
fræðslu og aðgerðum sem hvetja til
heilbrigðra lífshátta. Taka þarf upp
markvissa fjölskyldustefnu með því
að setja á stofn skrifstofu um málefni
ijölskyldunnar. Hlutverk þessarar
skrifstofu er að vera málsvari fjöl-
skyldunnar gagnvart stjómvaldsað-
gerðum.
Bændur
Ungir jafnaðanrtenn lýsa yfir full-
um stuðningi við íslenskan landbúnað
og íslenska bændur og hvetur þá til að
brjótast undan oki rikjandi miðstýr-
ingar. Það ríkisrekna hagsmunabákn
sem hreiðrað hefur um sig í kerfinu
hefur orðið að steinrunnum risa og
hefur hneppt íslenska bændur í ánauð.
Þingið lýsir yfir ánægju með tilkomu
GATT samningsins, en hvetur jafn-
framt til þess að sett verði af stað áætl-
un sem hefur það að markmiði að að-
stoða íslenska bændur við að laga sig
að þeim nútímalegu viðskiptaháttum
sem óhjákvæmilega munu ríkja í
framtíðinni.
Kosningar
Ungir jafnaðarmenn árétta þá
stefnu sína að kosningakerfinu verði
breytt í þá átt að landið allt verði gert
að einu kjördæmi, með hlutfallskosn-
ingu, þar sem hver listi þuríi 5% kjör-
fylgi að lágmarki til þing-
setu. Misvægi atkvæðis-
réttarins er óþolandi og
í hrópandi andstöðu við
grundvallarmannrétt-
indi. Landið allt sem
eitt kjördæmi, þar sem
hver einstaklingur
hefur eitt at-
kvæði er meg-
inforsenda til að
tryggja lýðræði í
þessu landi.
Fiskveiðar
Ungir jafnað-
armenn fagna
gildistöku EES-
samningsins og
telja að aðild íslands að
Evrópsku efnahagssvæði sé í raun for-
senda þess að íslenskur sjávarútvegur
þróist frá því að vera hráefnisútflytj-
andi til þess að verða nútímaleg mal-
vælaiðja. Þingið telur að stærsti gall-
inn við núverandi fiskveiðistjómar-
kerfi, kvótakerfið, sé óheft framsal
veiðiheimilda. Það er með öllu óþol-
andi að auðlindir hafsins, sem eru
sameign allrar þjóðarinnar, skuli með
lögum vera sett í hendur örfárra ein-
staklinga. Gera þarf breytingar á nú-
verandi kerfi þar sem tryggt sé að 1.
grein laga um stjóm fiskveiða sé virt. í
Ijósi þeirrar fjármagnskreppu sem ís-
lenskur sjávarútvegur er í álfta ungir
jafnaðarmenn að leyfa beri fjárfest-
ingar erlendra aðila í fiskvinnslu á ís-
landi, jafnframt verði tryggt að íslensk
fiskvinnsla fái tækifæri til að bjóða í
allan afla sem veiðist á íslandsmiðum.
Ungir jafnaðarmenn fagna tilkomu
þróunarsjóðs sjávarútvegsins sem
fyrsta skrefi í átt til gjaldtöku fyrir af-
notaréttinn af sameiginlegri auðlind
þjóðarinnar, fiskimiðunum við landið.
Efni blaðsins unnu: Baldur Stefánsson (ritstjóri), Þóra Arnórsdóttir, Hreinn Hreinsson, Aðalheiður Sigursveinsdóttir, Jón Þór Sturluson, Magnús Árni Magnússon, Bolli Runóifur Valgarðsson og fleiri. Umsjón: shh.