Alþýðublaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjanesi um fjögur efstu sætin á framboðslista flokksins verður haldið 21.
og 22. janúar 1995. Stefán Hrafn Hagalín kynnti sér stöðu mála og ræddi við hugsanlega frambjóðendur:
Guðmundur og Rannveig berjast um 1. sæti
- Barátta þeirra verður tvísýn og Suðurnesjamenn munu ráða úrslitum. Petrína Baldursdóttir alþingismaður stefnir á annað til
þriðja sæti, en Guðfinnur Sigurvinsson, fyrrverandi bæjarstjóri Keflavíkur gæti orðið henni afar skeinuhættur.
Rannveig Guðmundsdóttir fé-
lagsmálaráðherra og Guðmundur
Arni Stefánsson alþingismaður
munu berjast um efsta sætið í opnu
prófkjöri Alþýðuflokksins á
Reykjanesi sem haldið verður 21.
og 22. janúar um tjögur efstu sætin á
franrboðslista tlokksins. Algjörlega
tvennum sögum fer af úrslitum bar-
áttu þeirra tveggja - spámenn um
niðurstöðu prófkjörs skiptast í tvo
jafna hópa. Þrátt fyrir að Guðmund-
ur Árni þyki hafa á bak við sig mun
harðskeyttari „prófkjörsmaskínu“
þá á Rannveig á til að mynda mjög
traustan fylgishóp. Hún þykireinnig
óumdeildari stjórnmálamaður en
Guðmundur Árni.
Petrína Baldursdóttir alþingis-
maður sækir fast í þriðja sætið, en
þar gæti Guðfinnur Sigurvinsson
orðið henni afar skeinuhættur. Hann
er fyrrverandi bæjarstjóri í Keflavík,
oft kallaður „grand old man“ þeirra
Suðurnesjamanna og maður sem
erfitt er að ganga framhjá þrátt fyrir
að margir hinna eldri og virðulegri
hafi farið flatt í stjómmálum að und-
anförnu - samanber Salome Þor-
kelsdóttur og Guðrúnu Helgadóttur.
Það er í öllu falli ljóst að keppnin
verður engu síður hörð um þriðja
sætið en það fyrsta. Samkvæmt
heimildum blaðsins reyna jafnaðar-
menn nú hvað þeir geta til að telja
Guðfinn ofanaf framboði þarsem
þeir telja listann sterkari með Petr-
ínu í einu af efstu sætunum. Guð-
finnur hafði ekki gefið sig með
framboðsáætlanir þegar síðast frétt-
ist og fari hann í framboð mun hann
reynast efstu mönnum hættulegur,
einsog fyrr sagði.
„Þetta verdur
skrautlegt at"
Lítum nánar á baráttu Rannveigar
og Guðmundar Áma. Þegar Al-
þýðublaðið ræddi við stuðnings-
menn beggja í gær og fyrradag var
engan bilbug að finna á hvorugum
hópnum; fólk Guðmundar Árna
taldi sinn mann nokkuð ömggan og
söntuleiðis Rannveigar- fólkið. Það
sætir svosent engum tíðindum, að
stuðningsmenn séu kokhraustir, en
fróðlegt verður að sjá hvort unnt
verður fyrir hópana að standa við
drengskaparyfirlýsingar sem gefnar
hafa verið út af Rannveigu og Guð-
mundi Árna. Kappið sem virtist
hlaupið í menn strax í gær - þegar
rúmur einn og hálfur mánuður er til
prófkjörs - er slíkt að „það hálfa er
nóg“, einsog einn hlutlaus áhorfandi
orðaði það.
Sami heimildarmaður sagði um
framboðsslag Guðmundar Ama og
Rannveigar: „Blessaður vertu. þau
em bæði búin að vera í kosningabar-
áttu vegna prófkjörsins í marga
mánuði. Það er ekkert skrítið þvf
Guðmundur Árni á hreinlega pólit-
ískt líf sitt undir þvf komið, að ná
fyrsta sætinu og Rannveig gerir allt
til að halda forystu sinni í Reykja-
nesi. Þetta verður skrautlegt at.“
Ef við skoðum hvernig stuðning-
ur við þau skiptist eftir sveitarfélög-
um, þá ætti Guðntundur Árni að
eiga stuðning vísan í Hafnarfirði
líktog Rannveig í Kópavogi. Mos-
fellsbærinn hallast frekar í átt til
Rannveigar og sömuleiðis Garðbæ-
ingar, sem aldrei hefur verið sér-
staklega hlýtt til Hafnfirðinga. Mos-
fellsbær og Garðabær verða hins-
vegar seint talin öflug vígi jafnaðar-
manna. Ef við horfum síðan til Suð-
urnesjamanna þá hafa þeir hafa aft-
ur á móti nokkra sögu stuðnings við
Guðmund Árna og studdu hann til
að mynda að meirihluta í varafor-
mannsslagnum við Össur Skarphéð-
insson á síðasta flokksþingi.
Hvern stydja
Sudurnesjamenn ?
Stuðningsmenn Rannveigar
draga mjög í efa, að Guðmundur
Árni njóti stuðnings meirihluta Suð-
urnesjamanna, en á móti má benda á
yfirlýsingar þeirra og málflutning
honum til stuðnings í kringum íra-
fárið mikla fyrir stuttu. Ljóst er þó
að Suðumesjamenn ntunu ráða úr-
slitum í prófkjörinu - að minnsta
kosti um efsta sætið. „Suðurnesja-
menn munu styðja þann frambjóð-
andann sem lofar þeint mestu,“
sagði heimildamaður blaðsins þar
búsettur í gær. Bæði eiga vísan
stuðning hjá lykilmönnum á Suður-
nesjum og endalaust má velta fyrir
sér hvaða þungavigtarmaður er
mestur þungavigtarmaðurinn...
Látum það liggja á milli hluta.
Einhverjir hafa gert að því skóna,
að slagurinn á milli Rannveigar og
Guðmundar Árna verði svo harður,
og atkvæði skiptist þannig, að at-
kvæðahár frambjóðandi - væntan-
lega annaðhvort Guðfinnur eða
Petrína - geti stungið sér upp á milli
þeirra. Viðmælendum blaðsins bar
saman um að ólíklegt sé, að þetta
geti gerst - en fáir treystu sér þó til
að útiloka slíkt.
Það hefur oft gerst áður í próf-
kjöri, að harkan er slík hjá stuðn-
ingsmönnum tiltekinna frambjóð-
enda, að þeir geta ekki hugsað sér að
kjósa keppinautinn, sem verður fyr-
ir vikið mun atkvæðalægri en marg-
ir aðrir frambjóðendur sem aldrei
gáfu kost á sér í sæti jafnhá á listan-
um. Sá sem mætir slíku andstreymi
hrapar niður listann.
Tökum tvö góð dæmi um þetta
fyrirbæri í prótkjöri: Ólafur G. Ein-
arsson var afar atkvæðalágur í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
neskjördæmi og mátti ekki miklu
muna að hann færðist niður listann
og Árni Mathiesen stæli fyrsta sæt-
inu. Þar skildu aðeins örfáir tugir at-
kvæða á milli „feigs og ófeigs". Sal-
ome Þorkelsdóttir mætti einnig and-
streymi af þessu tagi í sama próf-
kjöri og fékk hraksmánarlega út-
reið.
Vandi er um adra ad spá
Aðrir hugsanlegir frambjóðendur
eru óskrifað blað, erfitt er um stöðu
þeirra að spá og standa flestir nokk-
uð jafnir. Prótkjörið verður opið öll-
um stuðningsmönnum Alþýðu-
flokksins í kjördæminu og ekki þótti
ástæða til að krefjast undirritaðrar
stuðningsyfirlýsingar af óflokks-
bundnum. „Við væntum þess að
stuðningsmenn annarra flokka
skipti sér ekki af þessu," sagði einn
stjórnarmaður fulltrúaráðsins. Ung-
liðar í Alþýðuflokknum sem náð
hafa sextán ára aldri á kjördag geta
tekið þátt í prófkjörinu, en unt aðra
gildir átján ára aldurinn.
Framboðsfrestur er til 30. desem-
ber.
Rannveig: Nú reynir á hinn trausta fylgishop hennar. Guðmundur Árni: Ætlar sér að ná forystu í kjördæminu.
Petrína: Gæti átt harðan slag við Guðfinn fyrir höndum. Guðfinnur: Reynt að tala um fyrir honum vegna Petrínu.
Hverjir ætla í prófkjör Alþýðuflokksins á Reykjanesi?
Ellefu nöfn eru nú einkum í um-
ræðunni um framboð í prófkjöri Al-
þýðuflokksins á Reykjanesi 21. og
22. janúar 1995, eftir því sem næst
verður komist: Ámi Hjörleifsson
bæjarfulltrúi (Hafnarfirði), Elín
Harðardóttir matreiðslumaður
(Hafnarfirði), Eyjólfur Sæmundsson
formaður fulltrúaráðsins á Reykja-
nesi (Hafnarfirði), Gizur Gottskálks-
son bæjarfulltrúi (Garðabæ), Guð-
finnur Sigurvinsson deildarstjóri
(Keflavík), Guðmundur Oddsson
bæjarfulltrúi (Kópavogi), Guðmund-
ur Ámi Stefánsson alþingismaður
(Hafnarfirði), Hrafnkell Oskarsson
læknir (Keflavík), Petrína Baldurs-
dóttir alþingismaður (Grindavík),
Rannveig Guðmundsdóttir félags-
málaráðherra (Kópavogi), Tryggvi
Harðarson bæjarfulltrúi (Hafnar-
firði) og Þóra Amórsdóttir formaður
FUJ (Kópavogi). Alþýðublaðið
ræddi við nokkra hugsanlega
kandídata í gær og spurði hvort þeir
ætli í framboð.
Rannveig:
Sá besti mun sigra
„Eg gef kost á mér í fyrsta sæti í
þessu prótkjöri og líst ágætlega á
baráttuna sem framundan er. Ég
mæti galvösk til leiks og niun leggja
áherslu á að halda því forystuhlut-
verki sem ég hef gegnt í kjördæntinu
nú um nokkurt skeið. Einnig ber að
nefna, að sú reynsla sem ég hef feng-
ið í mínum stjómmálastörfum og af
veru minni á Alþingi í tæp sex ár,
gefur mér enn meira tilefni til að
sækjast fast eftir þessu fyrsta sæti.
Mér hafa að undanförnu borist mjög
góðar og skýrar stuðningsyfirlýsing-
ar við störf mín og sú staðreynd
herðir mig fyrir prófkjörsslaginn.
Við munum takast á og sá besti mun
sigra,“ sagði Rannveig Guðmunds-
dóttir.
Gudmundur Árni:
Leggst vel í mig
„Prófkjörið leggst vel í mig og ég
vona að það verði stórt og öflugt.
Við í Reykjanesi höfum verið að
mælast með 13-14% í skoðanakönn-
unum, og mér finnst það auðvitað
alltof lítið þar sem við vomm með
talsvert yfir 20% í síðustu kosning-
um. En við emm bjartsýn og hér em
starfandi feykiöflug flokksfélög f
öllum stærstu bæjunum. Ég er alls
ekki hræddur við þessa návígisbar-
áttu sem prófkjörin eru; við höfum
rætt þetta okkar á milli frambjóðend-
ur og ég á von á því að þetta fari allt
fram í fyllsta bróðerni og menn mæti
til leiks með opnu hugarfari," sagði
Guðmundur Ámi Stefánsson.
Eyjólfur:
Ég hugsa minn gang
„Það hefur lítið komið til tals að
ég gefi kost á ntér í prófkjörið. Jú,
þetta hefur verið talsvert ámálgað
við mig, en ég hef engu svarað og lít-
ið spáð í þetta. Maður hugsar sinn
gang. En það er nægur tími til stefnu
og ég skoða þetta kannski," sagði
Eyjólfur Sæmundsson.
Petrína:
Ég er mjög bjartsýn
,Já, að sjálfsögðu gef ég kost á
mér í prófkjörið og stfla þá inná 2. til
3. sæti. Ég er bjartsýn unt góðan ár-
angur og þetta leggst mjög vel í mig.
Ég hef fengið mjög góð viðbrögð við
störfum mínum og málflutningi á
Alþingi og tel mig eiga fullt erindi
þarna inn. Það verður að viðurkenn-
ast að ég hef nú í seinni tíð haft mín-
ar efasemdir urn prófkjör yfirleitt.
Mér finnst almennt komin alltof
mikil auglýsingamennska í þetta og
alltof háar fjárhæðir unt að tefla. Það
hafa til dæmis ekki allir áhuga á að
þurfa að ganga milli fyrirtækja og
safna styrkjum. Ég er nú að gera mér
vonir um að frambjóðendur í próf-
kjörinu ræði saman og ákveði sín á
milli um prólkjörsreglur og menn
gæti hófs. Ég sé ekki fyrir mér að ég
geti staðið í mikilli auglýsingaher-
ferð. En ég er að öðru leyti til í slag-
inn og ákveðin í að ná árangri," sagði
Petrína Baldursdóttir.
Þóra: Alei, fyrr
skal ég hundur heita
„Nei, ég ætla alls ekki að gefa kost
á mér í prófkjöri Alþýðuflokksins á
Reykjanesi. Þetta hefur verið þó-
nokkuð orðað við mig, en það kemur
hreinlega ekki til greina að ég taki
þátt. Staðreynd málsins er sú, að það
er ekki hægt að bjóða hugsandi fólki
uppá þátttöku í þessum Ijóta skrípa-
leik sem prófkjör eru orðin; þessum
hanaslag lýðskrumara og smala-
hunda íþróttafélaganna. Prótkjör eru
ein höfuðástæða þess að illmögulegt
er að fá hæft fólk til stjórnmálastarfa.
Ég hef horft uppá það trekk í trekk,
að eftir prófkjörsniðurröðun á fram-
boðslista sitja flokkarnir uppi með
handónýta forystumenn sem enga
hæfni hafa til að bera, að taka þátt í
ákvarðanatöku um stjóm landsins.
Flokkamir verða að endurskoða
þessa uppröðunaraðferð sína ef með-
almennskan og loddaraskapurinn á
ekki að verða þeim að aldurtila. Ég
segir nei og aftur nei. Ég fer ekki í
prófkjör; fyrr skal ég hundur heita,“
sagði Þóra Amórsdóttir.
Gissur:
Verdur líklega med
„Ég er nú ekki búinn að taka end-
anlega ákvörðun. En ég geri ráð fyr-
ir því. Ég hef fengið fjölda áskorana
frá mínum stuðningsmönnum. Þetta
er svolítið erfitt fyrir mig að koma
þessu saman, vegna þess starfs sem
ég gegni sem læknir. Ég er að skoða
þessi mál og verð að segja, að ég er
spenntur fyrir þessu og geri frekar
ráð fyrir að fara fram. Ef af verður
mun ég stefna á 3. til 4. sæti,“ sagði
Gizur Gottskálksson.
Gudfinnur: Er spenntur
fyrir toppslag
„Ég hef ekki tekið endanlega
ákvörðun. Ég hef fengið mikið af
áskomnum frá stuðningsfólki mínu
og verð að viðurkenna að ég er
spenntur fyrir því að bjóða mig fram
í eitt af efstu sætunum. En það verð-
ur líka að viðurkennast að ég hef
einnig heyn hina hliðina; að ég eigi
ekki að bjóða mig fram. Ég tek
ákvörðun um þetta einhvem allra
næstu daga,“ sagði Guðfinnur Sigur-
vinsson.
Tryggvi: Nei, þad
er útilokad mál
„Nei, ég ætla ekki að gefa kost á
mér í þessu prófkjöri. Það er útilokað
mál. Það er gnægð af góðu fólki
þarna inni og ég hyggst ekki blanda
mér í slag þeirra um efstu sætin.
Málið er, að ég fer aldrei í svona
kosningaslag án þess að eiga sigur
nokkuð vísan,“ sagði hlæjandi
Tryggvi Harðarson.
Gudmundur:
Var bólusettur á Alþingi
Það hefur aldrei komið til greina
af minni hálfu að ég færi í þetta próf-
kjör. Ég var nefnilega bólusettur fyr-
ir Alþingi árið 1988 þegar ég settist
inná þing í þrjár vikur sem varamað-
ur. Það verður að segjast einsog er,
að þetta er einhver sá óyndislegasti
vinnustaður sem ég hef komið á. Það
getur svosem vel verið að þama inn-
anum leynist góðir menn, en ég hef
engan áhuga á þingmennsku og ætla
halda mig við sveitarstjórnarmálin.
Sá málaflokkur á við mig; þar er
fjallað um alvörumál og beinteng-
ingin við fólkið miklu meiri. í sveit-
arstjómarmálunum er ekki að finna
þessa gervimennsku sem einkennir
gjarnan störfin á Alþingi," sagði
Guðmundur Oddsson.
Hrafnkell:
Ætlar í slaginn
„Ef Guðfinnur Sigurvinsson, eða
aðrir jafnaðarmenn héma sent ég get
hugsað mér að styðja, gefa kost á sér
í toppslaginn þá mun ég ekki gefa
kost á mér í þann slag heldur stefna á
sæti neðar á listanum. Gefi Guðfinn-
ur - eða aðrir sem ég get hugsað mér
að styðja - hinsvegar ekki kost á sér
þá mun ég fara f toppslaginn. Þetta
skýrist á næstu dögum og ákvörðun-
ar minnar er að vænta innan
skamms,“ sagði Hrafnkell Óskars-
son, læknir í Keflavík.
Árni: Kjarkadur,
en þó tvístígandi
Ekki náðist í Áma Hjörleifsson og
því óljóst með afstöðu hans. Hann
mun hafa áhuga á að hella sér í slag-
inn, en er þó tvístfgandi. Ámi er
þekktur að öðm en kjarkleysi og
sýndi til að mynda fádænta seiglu í
síðasta prófkjöri Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði og komst inn sem bæjar-
fulltrúi.
Elín: Hefur
áhuga á frambodi
Elín Harðardóttir er (einsog bróðir
hennar Tryggvi) af miklu ættarveldi
jafnaðarmanna í Hafnarfirði hvers
höfuð er Hörður Zóphoníasson, faðir
hennar. Elín er afar virk í starfi jafn-
aðarmanna í Hafnarfirði og fyrrver-
andi stjómannaður SUJ. Elfn mun
hafa áhuga á framboði og stefna þá
að 3. til 4. sæti, en ekki náðist í hana
lil að staðfesta þennan orðróm.