Alþýðublaðið - 16.12.1994, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
fLÞVDUIÍIIIIIII
20840. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Sigurður Tómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Jacques Delors
veldur vonbrigðum
Þrátt fyrir einhver skakkaföll eins og ósigur Evrópusambands-
sinna í Noregi er vart hægt að segja annað en að hreyfing jafn-
aðarmanna í Norður-Evrópu sé nokkuð vel á sig komin. Jafnað-
armannaflokkar sitja yfir nokkuð góðu búi í Danmörku, Sví-
þjóð og Noregi, enda hafa þeir síðustu ár verið að taka sjálfan
hugmyndagrundvöll sinn til endurskoðunar og áttað sig á sjálf-
virkur fjáraustur úr ríkissjóði er ekki vænleg leið til að bæta hag
þegnanna. I Bretlandi eru allar líkur á að Verkamannaflokkur-
inn komist til valda innan tíðar og þrátt fyrir að þeim hafi ekki
lánast að fella Helmut Kohl stendur þýski Sósíaldemókrata-
flokkurinn traustum fótum.
Öðruvísi er umhorfs þegar sunnar dregur í álfunni. Á Ítalíu
framdi Sósíalistaflokkurinn hópsjálfsmorð í einhverju spill-
ingaræði og eftir standa á hægri væng flokkar lýðskrumara en
vinstra megin eitthvert sérkennilegt afkvæmi gamla kommún-
istaflokksins. Á Spáni suður á stjóm Felipe Gonzales í eilífum
brösum vegna hneykslismála og situr varla mikið lengur. í
Frakklandi hnipra sósíalistar sig í angist og bíða mestu kosn-
ingahrakfara í manna minnum.
Þrátt fyrir að stjómmálahæfileikar FrangOÍS Mitterrand Frakklandsfor-
seta verði ekki dregnir í efa og hann hafi að mörgu leyti breytt
ásýnd lands síns til hins betra, skilur hann við flokk sinn í hinni
mestu óreiðu. Hann hefur deilt og drottnað eins og oft er háttur
sterkra leiðtoga. Afleiðingamar em þær að hinir hæfileikaríkari
flokksmenn hafa hrökklast burt eða rnátt bíða herfdega ósigra.
Eftir sitja fremur lítilsigldir menn. Ýmsir þeirra eru eru bendl-
aðir við hneykslismál sem hafa tætt fylgið utan af Sósíalista-
flokknum. Einhver þeirra verður sendur fram til málamynda í
vonlaust forsetaframboð.
Jacques Delors var bjargvætturinn sem sósíalistar vonuðu að
myndi líkt og breiða yfir öll vandræði undangenginna ára.
Hann átti að vera deus ex machina, eins og það hét í leikhúsi til
foma; guðinn sem stígur af himnum ofan og kippir öllu í liðinn.
Loks segir Delors nei, ég ætla ekki að reyna að verða forseti.
Hann hefur gefið upp persónulegar ástæður fyrir afsvari sínu,
en líklega hefur honum þó staðið mestur beygur af því að starfi
sínu síðustu tíu árin yrði teflt í tvísýnu og kosningamar snerust
upp í heiftúðugan slag um sammnaferlið í Evrópu sem hann
hefur öðmm fremur knúið áfram.
Jólabækur ársins
Egill Helgason og Hrafn Jökulsson fara á
hundavaði yfir bókaflóðið og mæla með
þessum bókum í jólapakkana.
Sjon: Augu þin sau nng. Mal og
menning. Sjón kemur sannarlega á
óvart með þriðju skáldsögu sinni, og
sýnir að hann er ekki einhamur.
Túlkunarfræðingar geta haldið
veislu, en aðrir lesendur geta hins-
vegar notið vel byggðrar og
skemmtilegrar sögu, sem ofan í
kaupið er stíluð með glæsibrag.
Thor Vilhjálmsson: Tvílýsi. Mál
og menning. Þaulhugsuð bók þar
sem hvergi sést misfella, kannski sú
skáldsaga Thors þar sem stíll og
form ríma hvað best saman. Enginn
skrifar fallegri og myndríkari ís-
lensku en Thor.
Guðbergur Bergsson: Ævinlega.
Forlagið. Það hefur legið vel á
Guðbergi þegar hann skrifaði þessa
bók, hún er fyndin, létt og dálítið
stríðin, en að mestu laus við mein-
hæðnina sem höfundurinn er þekkt-
ur fyrir. Guðbergur glaður í bragði.
Ljóð
Geirlaugur Magnússon: Þrisvar
sinnum þrettán. Mál og menning.
Geirlaugur er kominn í hóp örfárra
höfuðskálda. Hann sannar þá kenn-
ingu að menn séu ekki snillingar,
þeir verði snillingar. Stílgáfa hans
og formskyn er með þeim hætti, að
ekki verður betur gert. Geirlaugur er
allt í senn háðskur, spakur og ljúfur
en umfrant allt: geirlaugskur.
ísak Harðarsson: Stokkseyri.
Forlagið. Ekkert skáld af yngri kyn-
slóðinni hefur leitað Sannleika og
Tilgangs jafn víða og ísak. Hann
hefur siglt um úfin svartnættishöf og
verið í sjöunda himni með sjálfum
Guði og félögum. I nýrri bók stefnir
hann fleyi sínu í lygna höfn: í flest-
um ljóðanna er yfirvegaður tónn
sáttfýsi og æðruleysis. Besta ljóða-
bók góðs skálds.
Nína Björk Arnadóttir: EngiII í
snjónum. Iðunn. Nína Björk er
Skáldsögur
Vigdís Grímsdóttir: Grandavegur
7. Iðunn. Rammskyggn stelpuskjáta
í Vesturbænum spjallar við lifendur
og dauða í sögu sem lætur einsog
lögmál tíma og rúms hafi aldrei ver-
ið til. Listilega skrifuð bók.
Hallgrímur Helgason: Þetta er
allt að koma. Mál og menning.
Stórkostleg háðsádeila á allt og alla.
Hallgrímur hefur á valdi sínu marg-
ar stíltegundir og beitir þeim óspait í
skáldsögu sem réttilega hefur verið
kölluð fyndnasta bók ársins.
mikið tilfinningaskáld - í góðri
merkingu þess orðs. Ljóð hennar
verða ekki bráð tilfinningaseminnar
af því þau eru sprottin úr reynslu,
beiskri ellegar blíðri, sem er alveg
sönn. Ljóðin eru aðgengileg „venju-
legum" lesanda, en það er lfka eitt-
hvað rússneskt og heillandi við
skáldskap Nínu Bjarkar.
Jóhann Hjálmarsson: Rödd í
speglinum. Hörpuútgáfan.
Þessi sallafína bók er einskonar
ferðalag: Kannski útí lönd, kannski
til fortíðar, kannski um rangala
mannshugans - kannski allt þetta.
Walt Whitman: Söngurinn um
sjálfan mig. Sigurður A. Magnús-
son þýddi. Bjartur. Flæðandi,
stundum frussandi, mælska frá einu
höfuðskáldi Bandaitkjanna sem
óbanginn kannaði ný landamæri í
ljóðlistinni.
Kobayashi Issa: Skugginn í te-
bollanum. Oskar Arni Oskarsson
þýddi. Bjartur. Hækan er svar Jap-
ana við íslensku ferskeytlunni. Nei
annars, hún er miklu fornari, blæ-
brigðarikari en ekki stður öguð að
formi. Fegurst er hún þegar er hún
leysist nánast upp í tærleika á mörk-
um jarðar og himins, svona líkt og
pensli sé strokið létt yfir örk.
Ævisögur
Ásgeir Jakobsson: Óskars saga
Halldórssonar. Setberg. Hressileg
ævisaga Islandsbersa. Hann elskaði
konur og vín og krásir - en ódrep-
andi afhafnasemin var alltaf hans
dýpsta nautn.
Silja Aðalstcinsdóttir: Skáldið
sem sólin kyssti. Hörpuútgáfan.
Mikil og vönduð ævisaga Guð-
mundar Böðvarssonar, eins helsta
góðskálds þjóðarinnar á öldinni. Og
kemur í ljós að hann átti tvær skáld-
gyðjur; önnur hélt sig í rökkrinu en
hin steig með skáldinu fram í sólina.
Jung Chang: ViIItir svanir. Hjör-
Ieifur Sveinbjörnsson þýddi. Mál
og menning. Margbrotin lýsing á
brjálæðinu sem þreifst í skjóli Maós
formanns.
Bækur almenns efnis
Guðrún Finnbogadóttir: Til helj-
ar og heim - Þrjú ár í Rússlandi.
Mál og menning. Guðrún skrifar
um skáld og skrítið fólk í Rússlandi
sem horfir uppá veröld sfna hrynja
til grunna en fær ekkert að gert.
Hrífandi lesning og ein best skrifaða
bók ársins.
Villt íslcnsk spendýr. Rilstjórn:
Páll Hersteinsson og Guttormur
Sigurbjarnarson. Hið íslenska
náttúrufræðifélag. Okkur finnst
villidýrafaunan hér norðurfrá
kannski heldur fátækleg. En tuttugu
vísindamenn finna tófu, mink,
hreindýr, nagdýr, sel og hval og eru
hæstánægðir með það.
Friedrich Nietzsche: Handan góðs
og ills. Arthúr Björgvin BoIIason
og Þröstur Ásmundsson þýddu.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Loksins - Nietzche á íslensku og
það 150 ánifn eftir að hann kom í
heiminn. Ólgandi orðsnilld, óstýri-
látt hugmyndaflug og miklar hugs-
anir.
Þýdd skáldverk
Peter Höeg: Lesið í snjóinn. Eygló
Guðmundsdóttir þýddi. Mál og
menning. Kannski sniðugasta
spennusaga síðari ára og talsvert
meira en það. Söguhetjan Smilla er
ólíkindatól sem ratar í vandræði,
hvort heldur er í hinni ólgandi
Kaupmannahöfn eða lengst norður á
ísbreiðum Grænlands.
Elias Canetti: Heyrnarvotturinn.
Gunnar Harðarsson þýddi. Bjart-
ur. Canetti var höfundur sem eyddi
ævinni í bókaskáp og fann þar bæk-
ur sem engir aðrir vissu að væru til.
Svo dustaði hann af sér rykið og
skrifaði bækur sem virðast lygnar á
yfirborðinu en eru skringilega mein-
fyndnar.
Fjodor Dostojevskí: Tvífarinn.
Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi.
Mál og menning. Máski ekki
stærsta verk þessa höfuðsnillings en
hugsanlega það meitlaðasta. Sami
maður virðist vera á ferð í tveimur
útgáfum, þeir rekast á og hver er
hvor?
Þetta eru sár vonbrigði fyrir franska jafnaðarmenn og fjölmarga
miðjumenn sem voru famir að snúast á sveif með Delors. Meira
að segja héma upp á íslandi er erfítt að verða ekki fyrir nokkr-
um vonbrigðum. Þótt Delors hafí iöngum verið úthrópaður í
breskum fjölmiðlum og kliðurinn af því borist hingað, oft
nokkuð gagnrýnislaust, er þetta frjálslyndur maður og víðsýnn,
vel viti borinn og laus við flokkskreddur. Enda varla nein hend-
ing að hann hefur setið svo lengi í sínu háa embætti án þess að
neinn hafí í raun viljað hrófla við honum. Stjómmál í Frakk-
landi - og Evrópu - eru fátæklegri án krafta hans.
Sósfalistaflokkurinn franski á ekki annarra kosta völ en að
þreyja þorrann og góuna næstu sjö árin. Delors styttir honum
varla leið úr þessu. Mitterrand-tímanum lýkur ekki ýkja glæsi-
lega og flokkurinn þarf að leita að nýjum gmnni til að standa á
og nýjum leiðtogum sem gætu boðið foringjum hægrimanna
byrginn. Þá er varla að fínna í núverandi forystu Sósíalista-
flokksins. Máski leysist hann upp og úr öskustónni sprettur nýr
flokkur eða bandalag; stjómmálaflokkar í Frakklandi hafa
hvort eð er aldrei verið óumbreytanlegar stærðir heldur yfirleitt
tollað saman í kringum mikia foringja.
Dagatal 16. desember
Atburdir dagsins
1809 Napóleon keisari segið skilið
við sína heittelskuðu Jósefínu, þar-
sem hún gat ekki alið honum erf-
ingja. 1922 Gabriel Narutowicz for-
seti Póllands myrtur ef tvo daga í
embætti. 1944 Flugvél með banda-
ríska tónlistarmanninn Glenn Miller
innanborðs týnist í Ermarsund. 1965
Breski rithöfundurinn og leikskáldið
William Somerset Maugham deyr í
Nice, 91 árs að aldri.
Afmælisbörn dagsins
Jane Austen enskur rithöfundur,
1775. Sir Noel Coward enskt leik-
skáld, tónskáld og leikari, 1889. Liv
Ullman norsk leikkona sem gat sér
frægð fyrir leik í myndum Ingmars
Bergmans, 1939.
Annálsbrot dagsins
Maður f Víðidal kyrkti bam sitt til
bana. Hann var, að gengnum dómum
yfir honum, klipinn glóandi járnum
og aftekinn á Sveinsstöðum eftir
þeirri forordning, er svo býður um
morðingja.
Höskuldsstaðaannáll, 1758.
Nöldur
dagsins
Þótti mér þá
betri siður er
menn voru
heiðnir kallaðir
og vil eg mat
minn en öngvar refjar.
Glámur sauðamaður hinn sænski
við húsfreyju á Þórhallsstöðum.
Steinn dagsins
Gamansemi Steins var oft illkvittnis-
leg, en hún var smitandi, og manni
þótti hún á einhvern undarlegan hátt
skemmtileg, jafnvel þó hún kæmi
niður á manni sjálfum.
Jón Óskar; Hemámsáraskáld.
Málsháttur dagsins
Betri er beiskur sannleikur en bh'ð-
mál lygi.
Orð dagsins
Ekki er holt að liafo ból
hefðar upp á jökultindi,
af þvíþar er ekkert skjól
uppi fyrirfrosti snjó né vindi.
Bjami Thorarensen.
Skák dagsins
Hvíta staðan virðist, við fyrstu sýn,
einkar vænleg til vinnings: tvö frípeð
eru albúin að bruna upp vinstri kant-
inn. En Masbic sem hafði svart og
átti leik gegn Gejzerskij gerði peðs-
draumana að engu í einni svipan.
Staðan leynir sumsé á sér, einsog
vera ber, og því er spurt: Hvernig er
vinningsleið svarts?
1.... Dg3! Auðvitað. Drottningin er
friðhelg, ella mátar svarti hrókurinn
á h5. 2. De2 Hh5! 3. h3 Bf4 4. Kgl
Kóngurinn reynir að forða sér á
hlaupum, en hann er alltof mikill
silakeppur til að sleppa úr þessum
banvæna rnátvef. .4. ... Hxh3 og
Gejzerskij gatst upp.