Alþýðublaðið - 21.12.1994, Qupperneq 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994
RAÐAUGLÝSINGAR
Staða
hjúkrunarforstjóra
Við Heilsugæslustöð Miðbæjar, Vesturgötu 7, Reykjavík, er
laus til umsóknar frá 1. febrúar 1995. Nánari upplýsingar
um starfið gefur hjúkrunarforstjóri í síma 625070 eða
starfsmannastjóri í síma 22400.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist starfsmannastjóra á þar til gerðum eyðublöðum
sem fást hjá starfsmannahaldi heilsugæslunnár í Reykja-
vík, Barónsstíg 47, fyrir kl. 16 föstudaginn 13. janúar 1995.
15. desember 1994,
Heilsugæslan í Reykjavík.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkur til háskóla-
náms í Hollandi
Hollensk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til
háskólanáms í Hollandi námsárið 1995-96. Styrkurinn mun
einkum ætlaður stúdent sem kominn er nokkuð áleiðis í há-
skólanámi eða kandídat til framhaldsnáms. Nám við lista-
skóla eða tónlistarskóla er styrkhæft til jafnt við almennt
háskólanám. Styrkfjárhæðin er 1.250 gyllini á mánuði.í tíu
mánuði.
Umsóknir um styrkinn, ásamt staðfestum afritum prófskír-
teina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þarfást. Umsóknarfresturertil
25. janúar nk.
Menntamálaráðuneytið,
16. desember 1994.
Stuttfréttir
Sölusýning
í Fold
Opnuð hefur verið sölusýning í
baksal Gallen Foldar að Laugavegi
118d, gengið inn frá Rauðarárstíg.
Meðal þeirra listamanna seni eiga
verk á jólasýningunni eru Ásgeir
Smári Einarsson, Bragi Ásgeirsson,
Daði Guðbjörnsson, Elías B. Hall-
dórsson, Hringur Jóhannesson, Jón
Reykdal, Karolína Lárusdóttir, Sara
Vilbergsdóttir, Sigrún Eldjám,
Sossa, Tolli. Valgarður Gunnarsson
og Örlygur Sigurðsson. Gallerí Fold
er opið daglega til klukkan 22:00, á
Þorláksmessu til 23:00 og til 12:00 á
aðfangadag.
Lifandi jólatré
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unar sem Hagvangur hefur gert er
meirihluti landsntanna með lif-
andi jólatré á heimilum sínum á
jólum. Þeim sem hafa gervitré hef-
ur fækkað frá könnun sem gerð
var árið 1989. Mun fleiri heimili á
höfuðborgarsvæðinu eru með lif-
andi jólatré heldur en heimili á
landsbyggðinni. Nokkrir hafa
ekkert jólatré á sínum heimilum
eða 2,4% þátttakenda í könnun-
inni.
Atvinnu-
tryggingar
Stjórn Verkstjórafélags Akureyrar
og nágrennis tekur heilshugar undir
hugmyndir Jóns Erlendssonar um at-
vinnutryggingar í stað atvinnuleysis-
tryggingar. Þeim er fagnað sem
raunhæfum kosti til þess að rjúfa
þann vítahring sem fslenskt atvinnu-
líf er nú komið í.
Gjafmildi Islenskrar getspár íslensk getspá afhenti síðastliðinn
fimmtudag fulltrúum frá mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Akureyrar, Akraness, Siglu-
fjarðar og Neskaupstaðar samtals eina milljón króna í styrki til eflingar því mikilvæga og óeigingjarna starfi sem
nefndirnar vinn í þágu bágstaddra kvenna. „Þetta er í annað sinn sem Islensk getspá styrkir starf mæðrastyrks-
nefnda fyrir jólin en nú er sá árstími runninn upp þegar þörfin er hvað mest. Á síðasta ári var styrkurinn veittur
óskiptur til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur," sögðu fulltrúar íslenskrar getspár. A-mynd: E.ÓI.
Lág verdbólga
Hagstofan hefur reiknað vísitölu
byggingarkostnaðar eftir verðlagi
um miðjan desember. Vísitalan
reyndist vera 199,1 stig og er óbreytt
frá því í nóvember. Þessi vísitala
gildir fyrir janúar 1995. Undanfama
þijá mánuði hefur vísitala bygging-
arkostnaðar hækkað um 0,4% sem
jafngildir 1,6% verðbólgu á ári. Hag-
stofan hefur einnig reiknað út launa-
vísitölu fyrir desember og hækkar
hún um 0,1% frá fyrra mánuði.
Húsaleiga sem fylgir vfsitölu hús-
næðiskostnaðar hækkar um 0,5% frá
1. janúar næst komandi.
Útgerðum
boðin lán
Sjávarútvegsráðherra hefur
fárið þess á leit við Fiskveiðisjóð
íslands að sjóðurinn veiti sérstök
lán til útgerða báta til að komast
yflr það erfiðleikatfniabil sem nú
stendur yfir vegna minnkandi
þorskveiðiheimilda. Er þessari
ráðstöfun sérstaklega beint að
bátaútgerðum og sérstök áhersla
lögð á að lánin standi útgerðum
smábáta er veiða samkvæmt afla-
marki til boða. Fiskveiðisjóður
hefur nú sent um 470 útgerðum
bréf þar sem þeim er gefinn kostur
á lánum að fjárhæð samtals um
1.800 milljónir króna. Fleiri skip
eru til skoðunar hjá sjóðnum og
má búast við að talsverður fjöldi
skipa muni bætast við.
KA reyk-
laust
Fyrir unga
sem aldna
ÞINGEYRI - SÍMI 94-8181
VESTFIRSKA
FORLAGIÐ
„Bókin er hnitmiðuð frásögn af lífi og
starfi Jóns Sigurðssonar og efniö er
sett fram á einfaldan og auð-
skiljanlegan hátt.“
(Vestfirska fréttablaðið)
Verðlaunagetraun fylgir.
Fæst í bókaverslunum um allt land.
Verð 1.490 kr.
Betri og ódýrari jólagjöf
er vandfundin.
Aðalstjóm Knatt-
spymufélags Akureyrar
hefur samþykkt að fé-
lagsheimili KA verði
reyklaus staður frá og
með áramótum. Sigurður
Magnússon fram-
kvæmdastjóri ISI segir í
Degi að þessi samþykkt
sé sú fyrsta sinnar teg-
undar sem hann hafi
spurnir af. Stefnt er að
því að gera öll íþróttahús
og félagsheimili landsins
reyklaus.
Skylt að
verð-
merkja
Að undanfömu hafa
birst fréttir um að verð-
merkingar hjá seljendum
vöru og þjónustu er áfátt
í mörgum tilvikum. Jafn-
vel eru dæmi um að sum-
ir verslunareigendur
verðmerki alls ekki vömr
í sýningargluggum.
Neytendasamtökin
ntinna á að samkvæmt
reglum er skylt að verð-
merkja allar vörur greini-
lega. Jafnframt er nú
einnig skylt að merkja
með mælieiningarverði,
það er verði per lítra, kíló
eða fermeter þar sem það
á við. Ef tryggja á eðli-
lega samkeppni og verð-
skyn neytenda, verða
seljendur að fara að þess-
um reglum. Unt leið og
Neytendasamtökin beina
því lil seljenda vöru og
þjónustu að virða þessa
sjálfsögðu skyldu við
neytendur, lýsa samtökin
því jafnframt yfir að þau
munu leita allra leiða til
að knýja á um að seljend-
ur verðmerki samkvæmt
reglunum.