Alþýðublaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
AimUBLMIID
20855. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsíngar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Réttarbætur fyrir
samkynhneigða
Á samkynhneigð hefur til skamms tíma hvílt einskonar bann-
helgi; þetta hefur verið einn þeirra þátta mannlífsins sem fara
hljótt og fjöldinn vill lítið vita af. Félagslegir og menningarleg-
ir fordómar hafa mætt samkynhneigðum og stundum brotist út
með grimmilegum hætti. Þrátt fyrir vaxandi áherslu á mannrétt-
indi er það staðreynd, að samkynhneigðir njóta ekki sömu rétt-
inda fyrir lögunum og borgarar að öðru jöfnu.
Fordómar gegn samkynhneigðum eru þó á hægu undanhaldi
hér á landi. Fjölþjóðleg könnun sem gerð var fyrir nokkrum ár-
um Ieiddi í ljós, að Islendingar voru einna umburðarlyndastir
þeirra þjóða sem könnunin náði til. Fordóma gætti hér miklu
minna í garð samkynhneigðra en til dæmis í Bandaríkjunum.
Án efa má þetta rekja að nokkru leyti til Samtakanna ’78 sem
hafa verið ötul við að koma málstað samkynhneigðra á fram-
færi og eyða þannig fordómum, sem ella flytjast kynslóða á
milli.
Eitt stærsta skrefið til að bijóta á bak aftur misrétti gegn sam-
kynhneigðum var stigið árið 1992, þegar Alþingi mælti fyrir
um skipan nefndar, sem gera átti úttekt á högum og stöðu sam-
kynhneigðra. Sú nefnd hefur nú skilað vel unninni skýrslu, þar
sem samstaða náðist um fjölmargar tillögur til aukinnar fræðslu
og um tímabærar breytingar á lögum til að auka mannréttindi
samkynhneigðra íslendinga. Þetta er í takt við þau skref sem
stigin hafa verið af frændþjóðum okkar á Norðurlöndum.
Afnám misréttis gegn samkynhneigðum er í raun spuming
um mannréttindi. Hluti þeirra er að allir geti haft viðhorf og rétt
til að tjá þau með orðum og athöfnum, án þess að þurfa sæta
einhvers konar misrétti vegna þeirra. Lífið er leit að hamingju
og menn eiga að hafa frelsi til að leita hennar með þeim hætti,
sem þeir sjálfir kjósa. Það finnst enginn einn mælikvarði á
hamingjuna, og þess vegna þurfum við frelsið til að leita henn-
ar. Mannréttindin eru grundvöllur þessarar leitar. Þau veita
þegnunum réttindi sem enginn getur tekið af þeim. Með sama
hætti setja mannréttindin þessari leit skýr mörk; réttindi eins
mega ekki vera á kostnað annars.
Samfélag eins og okkar, sem byggir á ólíkum lífsháttum ein-
staklinganna krefst umburðarlyndis og skilnings. Hvers konar
mismunun vegna mismunandi lífsviðhorfa er aðför að mann-
réttindum. Ríkisvaldinu ber í raun skylda til að vinna gegn slíku
með fræðslu og virkum aðgerðum á borð við lagasetningu.
Lágmarkskrafa sem ber að gera til samfélags, sem byggir á lýð-
ræði, er jafnrétti fyrir lögunum.
Alþingi steig mikilvægt skref, þegar það fól umræddri nefnd
að gera „...tillögur um úrbætur og nauðsynlegar aðgerðir til
þess að misrétti gagnvart samkynhneigðu fólki hverfi hér á
landi.“ Nú liggja tillögumar fyrir. Þess er því að vænta, að á
næstu misserum komi þær fram á Alþingi með tilskildum hætti.
Ýmisleg gagnrýni hefur komið fram á álit meirihluta nefnd-
arinnar. í viðtali við Alþýðublaðið á föstudaginn sagði Percy
Stefánsson, varaformaður Samtakanna ’78, að þótt starf nefnd-
arinnar væri spor í rétt átt þá mætti ekki festa misrétti þegnanna
í sessi með lagasetningu. Þar vísaði formaðurinn til þess, að í
niðurstöðum nefndarinnar er ekki gert ráð fyrir því að samkyn-
hneigðir geti gifst við kirkjulegar athafnir né heldur geti þeir
ættleitt böm.
Engin rök em fyrir því að mismuna þegnum landsins með
þessum hætti. Það flokkast undir mannréttindamál að ein lög
gildi um alla þegna landsins.
Önnur sjónarmið
Súðavík
Morgunblaðið og Tíminn fjöll-
uðu í forystugreinum í gær um
harmleikinn í Súðavík. Forystu-
grein Morgunblaðsins er svohljóð-
andi:
Þau eru orðin mörg sjávarplássin á
Islandi, sem hafa orðið fyrir þungum
áföllum vegna náttúruhamfara. Flest
eigum við, með einum eða öðrum
hætti, rætur í þessum plássum. Þar er
fólkið í mestu návígi við náttúmöfl-
in. Þar hefur lífsbaráttan verið hörð
en sjórinn gjöfull.
I samtali við Morgunblaðið í dag
um þessa hörmulegu atburði segir
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Is-
lands, meðal annars: „Það er þjóðar-
harmur, þegar heilt byggðarlag á fs-
landi verður fyrir slíkum náttúm-
hamfömm. Land og þjóð em samof-
in á ættjörð okkar og atburðir af
þessu tagi snerta okkur öll. Eg grét í
hjarta mínu með þeim landsmönn-
um, sem eiga um sárt að binda. Á
slíkum stundum bið ég Guð að veita
öllum styrk, sem þurfa að horfast í
augu við það, sem orðið er og ekkert
fær breytt."
Undir þessi orð forseta Islands
tekur þjóðin öll. Hugur íslendinga
nær og fjær er hjá Súðvíkingum og
sá samhugur verður þeim vonandi til
styrktar á þeim erfiða tíma, sem
framundan er. Oft skiljum við ekki,
hvemig fólk, sem stendur andspænis
mikilli sorg, lifir af. Atburðimir í
Súðavík í gærmorgun em einhver
mesti mannlegi harmleikur, sem hér
hefur orðið um langt árabil. Harm-
leikur, sem snertir margar fjölskyld-
ur með þeim hætti, að við hin getum
tæpast skynjað það eða skilið. Þann-
ig háttar til hjá mörgum Súðvíking-
um og ættmennum þeirra nú. En á
slíkum stundum kemur í ljós, að fólk
býr yfir þreki, sem enginn skilur en
gerir því kleift að horfast í augu við
óblíð örlög. Sigríður Hrönn Elías-
dóttir, sveitarstjóri í Súðavík, segir í
Morgunblaðinu f dag: „Viö emm öll
mjög hljóð og döpur. Áfallið kemur
sjálfsagt síðar... Og það versta gerð-
ist, sem getur gerzt í svona, böm
misstu foreldra sfna og foreldrar
misstu böm.“
Herra Ólafur Skúlason biskup
segir í Morgunblaðinu í dag: ,,Hvað
sem sagt verður um okkur Islend-
inga, einstaklingshyggjumenn eins
og við oft erum, þegar eitthvað kem-
ur upp á, þá á þjóðin eina sál. Það er
enginn vafi á því, að það er að gerast
nú.“ Þjóðin mun sýna Súðvíkingum
samhug og samstöðu í verki. En sum
sár gróa aldrei.
Björgunarmenn, hjúkrunarfólk og
aðrir þeir, sem komið hafa að björg-
unarmálum í Súðavík frá því í gær-
morgun, hafa unnið þrekvirki við
ótrúlega erfiðar aðstæður. Þetta fólk
hefur lagt sig í lífshættu, bæði á sjó
og landi. Þegar óveður geisar og
blind náttúruöflin fara hamfömm
dugar tækni nútímans skammt eins
og komið hefur í ljós í Súðavík.
Fleiri Islendingar hafa látið lífið í
snjóflóðum en nokkrum öðmm nátt-
úmhamfömm, að sjóslysum undan-
skildum. vitað er um yfir 600 manns,
Á. " 500
m0n»«r
's
^ ,^«I600
*****f£l
sem farizt
hafa í snjóflóðum á fs-
landi, þar af um 130 á
þessari öld. I samtali við
Morgunblaðið í dag,
segir Davíð Oddsson __
forsætisráðherra að- »'2?»
spurður um snjóflóðin, *3 j«.
sem féllu utan kort- , J
lagðra hættumarka:
Þetta er mikið
áhyggjuefni og einn-
ig hvað snjóflóð hafa
aukizt mikið að und-
anfömu. Eg held, að
menn hafi reynt að
sýna árvekni, en ''^físsirpin V
þegar náttúran fer Hlissir oki- er
slíkurn hamfömm *',r dllra"
og þama gerðist *s.sj
vill margt bresta, lika sú
þekking, sem menn hafa búið yfir.
Það er hins vegar enginn vafi á því,
að þessir atburðir verða til þess að
menn munu endurmeta þessa hluti.“
Lýsing sveitarstjórans í Súðavík á
því, sem við augum blasti eftir að
snjóflóðið féll, er átakanleg. í Morg-
unblaðinu í dag segir: „Hún lýsir að-
komunni að snjóflóðasvæðinu eins
og eftir kjamorkusprengingu. Brak
úr húsunum hefði verið niður alla
götuna, einnig bflar. Og slasað fólk.
Sést hefði í hendur fólks upp úr
snjónum. Ein slösuð kona hafði
komið sér íýrir í bfl, sem hafði oltið
og gat notað bflflautuna til að láta
vita af sér. Þetta var hreinasta hörm-
ung, sagði hún. Flestir hefðu verið
sofandi í rúmum sínum, þegar flóðið
kom, og var fólk því illa klætt, á nátt-
fötum eða nærklæðum einum fata.“
Island er harðbýlt land og hættu-
legt, þótt það eigi einnig blíða og
vinalega ásjónu. Mannskaðar hafa
orðið í sjóslysum, eldgosum, land-
skjálfitum og vatnavöxtum, auk snjó-
flóða. Þjóðin þarf að horfast í augu
við óblíða náttúm. Varðstaða er því
nauðsynleg, hvort sem er á sjó eða
landi.
Um alla Vest-
firði var í gær unnið við að rýma
hús og koma fólki fyrir í ömggari
vistarverum. Reynslan sýnir, að
það getur verið lífshættulegt að búa
á Vestfjörðum að vetri til og ferðast
fil Vestfjarða að veni til. Samt hafa
Islendingar búið á Vestfjörðum í
meira en þúsund ár og á því verður
engin breyting. Atburðimir í Súða-
vík hljóta hins vegar að leiða til
þess, að snjóflóðavamir um alla
Vestfirði og víðar verði endurskoð-
aðar og leiða leitað til þess að gera
búsetu á landsbyggðinni ömggari en
hún er nú.
Morgunblaðið flytur þeint, sem nú
eiga um sárt að binda, innilegar sam-
úðarkveðjur.
Atburðirnir í Súðavík í eru
einhver mesti mannlegi
harmleikur, sem hér hefur
orðið um langt árabil. Harm-
leikur, sem snertir margar
fjölskyldur með þeim hætti,
að við hin getum tæpast
skynjað það eða skilið.
Þannig háttar til hjá mörg-
um Súðvíkingum og ætt-
mennum þeirra nú. En á slík-
um stundum kemur í Ijós,
að fólk býr yfir þreki, sem
enginn skilur en gerir því
kleift að horfast í augu við
óblíð örlög, segir í forystu-
grein Morgunblaðsins í gær.
Otíðindi
Forystugrein Tímans í gær var
svohljóðandi:
Enn hafa íslendingar verið minnt-
ir á hve smáir þeir eru og vanmáttug-
ir gagnvart náttúruöflunum. Stórslys
hefur orðið. Lítið byggðarlag á Vest-
fjörðum hefur verið lostið þungu
höggi. Þjóðin er sem steini lostin,
eins og ávallt þegar slíkir atburðir
verða. Orð megna ekki mikið til
hjálpar í þessum raunum, en hugur
allra leitar til fólksins í Súðavik og
annarra þar sem hættuástand varir, í
bæn urn styrk þeim til handa.
Veðrahamur þessa norðlæga lands
hefur enn orðið fólki að fjörtjóni,
snöggt og óvænt, eins og ávallt þeg-
ar slys verða. Það eitt er til ráða að
reyna að veita alla þá aðstoð sem
unnt er, og senda þeim, sem um sárt
eiga að binda, dýpstu samúð.
Dagatal 18. janúar
Atburðir dagsins
1930 Hótel Borg tekur til starfa í
Reykjavík. 1936 Breski rithöfundur-
inn Richard Kipling deyr, sjötugur
að aldri. 1943 Umsátur þýska hersins
um Leníngrad brotið á bak aftur eftir
890 daga. 1969 Leigubflstjóri myrtur
í Reykjavík. Eina óupplýsta morð-
mál 20. aldar.
Afmælisbörn dagsins
Oliver Hardy annar helmingur tví-
eykisins Laurel og Hardy, alias
Steini og Olli, 1892. Cary Grant
breskur hjartaknúsari, ein helsta
stjama Hollywood um sína daga.
Málsháttur dagsins
Talhlýðinn maður verður allra þeirra
narri sem að honum ljúga.
Annálsbrot dagsins
Þennan vetur drakknaði Gísli í
Máfahlíð, í Ábótapolli, ofarlega í
Tunguós, nýgiptur Katrínu Bjöms-
dóttur, sinni síðari kvinnu; hafði
riðið ógætilega.
Gnmsstaðaannáll, 1715.
Dætur dagsins
Nú gerðist hann (Fífl-Egill) íylgdar-
maður Þormóðar og lét oft að honum
dætur heimskunnar, þær dul og rang-
virðing, svo að hann vissi eigi gjörla
hver hann var.
Fóstbræðra saga.
Fokvonska dagsins
Stfllinn er víða óþolandi. Hið eili'fa
„ojæja“ og svipaður talsmáti getur
gert mann fokvondan.
Kristinn E. Andrésson, ritdómur um skáldsögu
Jóhannesar úr Kötlum, Og björgin klofnuðu.
Orð dagsins
Aldur minn, sem ekki er hár,
auð ei telja mundum,
þó hef ég færri aura en ár
átt í vasa stundum.
Stephan G. Stephansson.
Skák dagsins
Drottningarfóm og mátsókn - það er
ekki hægt að biðja um meira. Perez,
sem hefur hvítt og á leik gegn Gonz-
alez fer á kostum. Hvað gerir hvítur?
1. Rxe5I! Bxdl 2. Rxf7 Dh4 3. Bg5!
Dd4+ 4. Khl Bc2 5. Hael! Ra6 6.
Rh6+ Bf5 7. Be7 mát Snilld.