Alþýðublaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995
MMIIBIMD
20876. tölublað
Hverfisgötu 8 - 10 Reykjavík Simi 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Raunsæi og
réttlæti
Nýgerðir kjarasamningar eru staðfesting nýrrar stöðu á
vinnumarkaðinum. Stöðugleikinn - sem margir stjómarand-
stæðingar gagnrýna og reyna að grafa undan - hefur skilað slík-
um árangri í efnahagsmálum að verkalýðshreyfingin vill ekki
taka þá áhættu að verðbólguhringekjan fari af stað aftur. Samn-
ingamir festa stöðugleikann í sessi, en nýta jafnframt efnahags-
batann til kjarajöfnunar. Ennfremur tryggja þeir áframhaldandi
uppsveillu í efnahagsmálum og veita öfluga viðspymu gegn at-
vinnuleysi.
Samningamir em í mjög í sama anda og flokksþing Alþýðu-
flokksins hvatti til í byrjun mánaðarins. Laun em hækkuð um
ákveðna krónutölu og launþegar undir vissu lágmarki fá sér-
staka uppbót á laun sín. þannig er meðallaunahækkun 6,9% en
laun undir 60 þúsund krónum hækka um 11,3%. I yfirlýsingu
ríkisstjómarinnar sem fylgir kjarasamningunum er kveðið á um
ýmsar umbætur á næstu tveimur árum. Mikilverðast er í þessu
sambandi, að greiðslur í lífeyrissjóð verða skattfrjálsar og mikl-
ar breytingar verða gerðar á verðtryggingu og dregið úr henni í
áföngum. Einnig verður leitað leiða til að draga úr framfærslu-
kostnaði og lækka matarverð á landsbyggðinni.
Margir hafa um nokkurt skeið óttast óróa á vinnumarkaði í
aðdraganda alþingiskosninga. Þeirri hættu hefur nú verið af-
stýrt á hinum almenna vinnumarkaði, þó enn sé ósamið við rík-
isstarfsmenn. Kennarar em í verkfalli sem brýnt er að leysa. í
þeim samningum verður að taka á sérmálum kennara, án þess
að setja almenna kjarasamninga í uppnám.
í kjarasamningunum sigraði raunsæið, en jafnframt var stigið
skref í réttlætisátt í launamálum. Það svigrúm, sem nú skapast,
verður að nota til frekari umbóta í efnahagsmálum og skjóta
þannig styrkari stoðum undir lífskjörin í landinu. Islendingar
sætta sig ekki við að dragast aftur úr grönnum sínum. Ríkis-
stjómin hefur sýnt að hún nær árangri í efnahagsmálum. I kosn-
ingunum í vor verður kosið um, hvort byggja eigi á þeim ár-
angri eða halda á vit óvissunnar.
Endalok
Kvennalistans
Allar skoðanakannanir að undanfömu sýna ótvírætt að tíma
Kvennalistans í íslenskum stjómmálum er senn lokið. í könnun
Félagsvísindastofnunar, sem Morgunblaðið birti í gær, mældist
fylgi Kvennalistans einungis 3,9%. Fram kemur, að stuðningur
við flokkinn er nær einvörðungu bundinn við reykvískar
menntakonur á miðjum aldri. Annarsstaðar er fylgið vart mæl-
anlegt.
Fylgishmn Kvennalistans kemur ekki á óvart. Málefnaleg
sérstaða flokksins em löngu horfin útí veður og vind. Grasrót-
arlýðræðið svokallaða hefur umbreyst í forhert flokksræði. Ör-
lítil klíka ræður ríkjum, og vílar ekki fyrir sér að ógilda niður-
stöður forvals ef niðurstaðan er ekki í samræmi við hagsmuni
flokksklíkunnar.
Eftir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir yfírgaf Kvennalistann og
gerðist oddviti Reykjavíkurlistans hefur leið flokksins legið
þráðbeint niður á við. Fyrir aðeins ljórtán mánuðum mældist
fylgi Kvennalistans 20% í könnunum. Skýringin á því var fyrst
og fremst fólgin í persónulegum vinsældum Ingibjargar Sól-
rúnar. Þær þingkonur sem eftir sátu hafa alls ekki reynst færar
um að fylla skarð hennar.
Önnur sjónarmið
Þjóðvaki á
hefðbundinni
braut sprengi-
framboða
„Niðurstöður könnunar Félagsvísinda-
stofnunar á fylgi flokkanna leiða tvennt
skýrt í ljós: Ferill Þjóðvaka virðist ætla að
verða eins og annarra „sprengiframboða“
á undanförnum áratugum, sem hafa risið
hátt í byrjun en fylgið hefur svo hrunið af
þeim fram að kosningum. Nefna má
Bandalag jafnaðarmanna og Borgaraflokk-
inn í þessu sambandi. Jafnframt er ljóst
að Kvennalistinn á við að stríða alvarleg-
ustu fylgiskreppu frá stofnun flokksins.“
Ólafur Þ. Stephensen stjórn-
málafræðingur skrifar fréttaskýr-
ingu í Morgunblaðið í gær þar sem
hann veltir fyrir sér niðurstöðum
nýjustu skoðanakönnunar Félags-
vísindastofnunar og hvaða vísbend-
ingar sú könnun geft um örlög
„sprengiframboðanna" svoköl luðu;
sprengiframboða sem gera út á það
að höggva skörð í hið gamalgróna
íslenska flokkakerfi.
Þjóðvaki virðist ætla að fara
sömu leið og önnur sprengiframboð
á undanförnum áratugum, skrifar
Ólafur. Kvennalistinn á nú við al-
varlegustu fylgiskreppu í sögu sinni
að stríða.
„Niðurstöður könnunar Fé-
lagsvísindastofnunar á fylgi
fiokkanna leiða tvennt skýrt í
Ijós: Ferill Þjóðvaka virðist ætla
að verða eins og annarra
„sprengiframboða“ á undanförn-
uni áratugum, sem hafa risið hátt
í byrjun en fylgið hefur svo hrun-
ið af þeim fram að kosningum.
Nefna má Bandalag jafnaðar-
manna og Borgaraflokkinn í
þessu sambandi. Jafnframt er
ljóst að Kvennalistinn á við að
stríða alvarlcgustu fylgiskreppu
frá stofnun flokksins.
Deilurnar innan Þjóðvaka eftir
landsfund flokksins hafa ekki
aukið traust á framboðinu og
fyrstu framboðslistarnir, sem lit-
ið hafa dagsins ljós, virðast ekki
hcldur hafa nægt til að halda í
fylgið.“
Óánægdir
kratar á heimleid
Ólafur rekur í grein sinni hvert
fylgi Jóhönnu hefur farið og kemst
að þeirri niðurstöðu að það skili sér
aftur til Alþýðubandalags og ekki
síður Alþýðuflokks. Hann telur vís-
bendingu um þetta vera þá að and-
stæðingum ríkisstjómarinnar á
meðal stuðningsmanna Alþýðu-
fiokksins hefur fjölgað, en margt
benti til að þeir Alþýðuflokksmenn
sem ekki fylgdu ríkisstjórninni að
málum sæktu í Þjóðvaka í fyrstu.
Ennfremur segir Ólafur:
„Fylgistap Jóhönnu skilar sér
hins vegar alveg áreiðanlega ekki
til Kvennalistans, sem aldrei hef-
ur notið minni stuðnings í skoð-
anakönnunum Félagsvísinda-
stofnunar. Þjóðvaki nýtur nú
14,4% fylgis meðai kvenna, sem
Kvennalistinn aðeins 6,1. Sú
spurning hlýtur að vakna með
kvennalistakonum, hvort skeið
þeirra í íslenskri pólitík sé að
verða á enda runni, að minnsta
kosti með núverandi stefnuskrá
og vinnuhrögðum. Fylgi Kvenna-
listans virðist afmarkast að lang-
mestu leyti við afar þröngan hóp;
afgreiðslufólk, skrifstofu- og
þjónustufólk á aldrinum 25-44
ára í Reykjavík. 1 öðrum þjóðfé-
lagshópum er fylgi flokksins
hverfandi.“
Grundvöllur fyrir áfram-
haldandi samstarfi?
Síðan rekur Ólafur niðurstöður
skoðunakönnunarinnar með tilliti til
fylgis við núverandi ríkisstjórn.
Hann telur möguleikana á því að
hún haldi velli eftir kosningar hafa
aukist, hvað svo sem segja megi um
pólitískan vilja fyrir áframhaldandi
samstarfi innan flokkanna. Ólafur
veltir jafnframt fyrir sér því að fylgi
við ríkisstjórnina sem slíka virðist
minnka lítillega og tiltekur sem
hugsanlega skýringu þá óvissu sem
var í vikunni um niðurstöður kjara-
samningaviðræðna.
„Það á eftir að koma í ljós
hvort stjórnarandstöðunni tekst
að höggva í fylgi stjórnarflokk-
anna á iokasprettinum fyrir
kosningar. Enn er varla hægt að
segja að kosningabaráttan sé haf-
in og ýmislegt óvænt getur komið
upp á. Niðurstaða samningalot-
unnar á almenna vinnumarkaðn-
um virðist þó get styrkt stöðu
stjórnarinnar. Eftir er að sjá
hvernig fer í kennaradeilunni og
hversu erfið hún verður stjórn-
inni pólitískt.“
PyjÁ^tjórmrSlaflokkaTkosnmguml"1
oa í skoðanakönnunumf rá þeimtmia
frá'.
verður .
Stuðn’
hefur r/
cu hai
verið í 1
stjórnai
Igararaáí
var, gæ'"
að stl
rainnkr
hefur •'
þjóðar;
eftir?
Ve?/
Myndskreyting Morgunbladsins með grein Ólafs Þ. Stephensen.
Dagatal 22. febrúar
Atburdir dagsins
1787 Franska ríkið rambar á barmi
gjaldþrots, skuldir nema 800 milljón
pundum. 1886 Fyrstu einkamálaaug-
lýsingarnar korna fyrir sjónir lesenda
í Times. 1973 Elizabeth Bowen,
kunnur írskur rithöfundur, deyr.
1979 Menningarverðlaun DV afhent
í fyrsta sinn. 1991 Sigríður Snævarr
afhendir trúnaðarbréf sitt sem sendi-
herra í Svfþjóð, og verður fyrst
kvenna til að gegna þessu embætti.
Afmælisbörn dagsins
George Washington frelsishetja og
fyrsti forseti Bandaríkjanna, 1732.
Arthur Schopenhauer þýskur
heimspekingur, 1788. Robert Ba-
den-Powell stofnandi skátahreyfing-
arinnar, 1857. Luis Bunuel spænsk-
ur kvikmyndaleikstjóri af súrrealíska
skólanum, 1900. Edward Kennedy
bandarískur öldungadeildarþing-
maður, 1932. Niki Lauda austur-
rískur ökuþór.
Annálsbrot dagsins
Það sumar sást blóð á sjónum í Aust-
fjörðum, sem í flekkjum eða lengj-
um, af halinu og að landinu koma. -
Rak óvenjulega fiska á Vestfjörðum
með undarlegri mynd.
Fitjaannáll, 1638.
Iþrótt dagsins
A vetmm, þegar veður var þannig,
að Grímur gat ekki farið sínar venju-
legu gönguferðir, fékk hann sér
hreyfingu innanhúss með einkenni-
legu móti. Hljóp hann þá á háleistum
um gólfið í skrifstofunni einn hálf-
tíma eða svo og söng, venjulega
sömu stemmuna.
Sigrún Bjamason um Gn'm Thomsen skáld;
viðtal Valtýs Stefánssonar.
Málsháttur dagsins
Ekki reiðist steðji stórhöggunum.
Lokaord dagsins
Nú, er þetta allt og sumt?
Hinstu orð ljóðskáldsins
Emily Dickinson, 1830-86.
Ord dagsins
Nei, smáfríð er hún ekki
og engin skýjadís,
en enga eg samt þekki,
sem eg mér heldur kýs.
Hannes Hafstein.
Skák dagsins
Ekki er allt sem sýnist í skák dagsins.
Staðan virðist í bærilegu jafnvægi og
engra stórtíðinda að vænta. Skákina
tefidu tvær konur, Kunze og
Voiska, sem hefur svart og á leik.
Kunze hafði rétt lokið 17. leik sín-
um, RxÐ, en Voiska brást við af
fullri hörku og knúði fram snöggan
sigur. Hvað gerir svartur?
17. ... e5! Þessi litli leikur hefur
þann kost að líta út, í fljótu bragði,
sem hraksmánarlegur afieikur. En
það er öðru nær. 18. Bxe5 Bg4! Og
Kunze gafst upp. Liðstapi verður
ekki forðað.