Alþýðublaðið - 22.02.1995, Blaðsíða 1
Kjarasamningar í samræmi við ályktanir aukaflokksþings Alþýðuflokksins
Tíu milljarða kjarajöfnun
- segir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins.
„Kjarni þeirra kjarasamningar
sem náðust er nákvæmlega í anda
þeirrar stefnu sem aukaflokksþing
Alþýðuflokksins markaði. Efna-
hagsbati upp á tíu milljarða króna
er nýttur til kjarabóta sem einkenn-
ast af fastri krónutölu og sérstökum
kaupauka til hinna lægst launuðu á
þess að stefna stöðugleikanum til
framtíðar í hættu. Lífskjarajöfnun
af þessu tagi hefur ekki áður tekist í
kjarasamningum svo lengi sem
elstu menn muna,“ segir Jón Bald-
vin Hannibalsson, utanríkisráð-
herra og formaður Alþýðuflokks-
ins, í viðtali við Alþýðublaðið.
„Þessir kjarasamningar innsigla
að sá árangur í efnahagsmálum sem
þessi ríkisstjórn hefur náð með
Jón Baldvin: Þessir kjarasamning-
ar innsigla að sá árangur í efna-
hagsmálum sem þessi ríkisstjórn
hefur náð með þrautseigju og þol-
inmæði hefur skilað árangri.
A-mynd: E.ÓI.
þrautseigju og þolinmæði - með
því að standa fast við framtíðar-
stefnu og víkja ekki af þeim vegi
með undirtektum við gylliboð og
skrum - hefur skilað árangri. Ríkis-
stjórnin hefur afnumið tvísköttun á
lífeyri með öllu og tryggt hækkun
skattleysismarka. Stjórnin hefur
þegar með verulegum árangri beitt
sér gegn skattsvikum. Sennilega er
ekki hægt að nefna dæmi um það í
tíð fyrri ríkisstjórna að jafnmikill
árangur hafi náðst í þeim efnum.
Menn geta borið saman há-
stemmdar yfirborðstillögur stjórn-
arandstöðuflokkanna sem byggja á
skyndilausnum og töfrabrögðum
fyrir kosningar og þeim áþreifan-
lega árangri sem stjórnarflokkarnir
hafa hér náð undir lok kjörtímabils
og segir allt sem segja þarf um ár-
angurinn sem náðst hefur á erfiðum
tímum þrátt fyrir þrengingar og
harða gagnrýni á undanförnum ár-
um,“ sagði Jón Baldvin Hannibals-
son.
Sjá viðtal á blaðsíðu 7.
Óvæntar „deilur“: Hið óháða framboð Ögmundar
Jónassonar leggst illa í Óháða listann í Háskólanum
Fylgisaukning Alþýðuflokksins
„Fylgi okkar mun
halda áfram að aukast"
- segir Sigbjörn Gunnarsson um niðurstöður skoð-
anakönnunar Félagsvísindastofnunar. Alþýðuflokkur
með 10,5%. Fylgi hrynur af Þjóðvaka og Kvennalista.
„Niðurstöðumar em sannarlega
ánægjulegar. Þetta sýnir að við emm
á réttri braut, og
ég á ekki von á
öðru en að fylgi
okkar muni
halda áfram að
vaxa,“ sagði
S i g b j ö r n
Gunnarsson,
formaður þing-
flokks Alþýðu-
flokksins, í gær,
þegar Alþýðu-
blaðið innti hann
álits á niðurstöð-
um nýrrar skoð-
anakönnunar sem Félagsvísinda-
stofnun gerði fyrir Morgimblaðið.
Fylgi Alþýðuflokksins er nú 10,5%,
en fyrir nokkrum vikum var það
komið niður í 5%. Allar kannanir
síðustu vikur staðfesta að flokkurinn
er í sókn. Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur nú 39,8% fylgi, samkvæmt könn-
un Félagsvísindastofnunar. Alþýðu-
bandalagið hefur 15,6%, Framsókn
18,7%, Kvennalistinn 3,9% og Þjóð-
vaki 10,5%. Fylgi Kvennalistans og
Þjóðvaka hefur hmnið sfðustu vikur.
Aðspurður sagði Sigbjöm að skýr-
ingar á fylgisaukningu Alþýðu-
flokksins væm einkum tvær: „Deilur
hafa nú verið settar niður í flokknum
og heyra til liðinni tíð. Þá er mál-
efnastaða Alþýðuflokksins sterk og
stefnan skýr. Pólitísk umræða snýst í
æ ríkari mæli um stefnumál Alþýðu-
flokksins."
Sigbjöm sagði að staðan í sínu
kjördæmi, Norðurlandi eystra, væri
Alþýðuflokknum talsvert erfið um
þessar mundir. „Við ætlum hinsveg-
ar að láta þetta takast. Alþýðuflokk-
urinn mun fá mann kjörinn á Norð-
urlandi eystra,“ sagði Sigbjörn.
Sigbjörn: Fylgi
okkar mun halda
áfram að vaxa.
A-mynd: E.ÓI.
„Nýta sér vinsældir okkar"
- og við höfum orðið fyrir aðkasti á skemmtistöðum, segir Stefán Sigurðsson,
forsvarsmaður Óháða listans. „Lengi lifi húmorinn! Það truflar mig ekkert þó
einhverjir hafi kímnigáfuna í Iagi,“ segir Ögmundur.
„Við höfum orðið fyrir aðkasti á
skemmtistöðum útaf þessu og því
leggst þetta ekki vel í okkar fólk,“
sagði Stefán Sigurðsson, einn af
forsvarsmönnum Oháða listans í Há-
skóla Islands, vegna framboðs
Ögmundar Jónassonar með Al-
þýðubandalaginu, en Ögmundur tal-
ar einmitt um sjálfan sig og sitt
stuðningsfólk sem „óháða.“ Stefán
varð fyrir svörum vegna ályktunar
sem stjóm Óháða listans sendi frá sér
til að árétta það að engin tengsl væm
á milli listans og Ögmundar.
Óháði listinn í Háskólanum bauð
fram í síðustu stúdentaráðskosning-
um og fékk einn mann kjörinn.
Stjóm listans sendi frá sér ályktun í
gær þar sem „af gefnu tilefni" er
áréttað, að „Samtök óháðra, sem Ög-
mundur Jónasson leiðir og fara l'ram
með Alþýðubandalaginu í Reykja-
vík í næstu þingkosningum, tengjast
Óháða listanum, sem bauð frant til
Stúdentaráðs árið 1994, ekki á neinn
hátt. Engar viðræður milli samtak-
anna tveggja hafa átt sér stað. Því lít-
ur Óháði listinn það alvarlegum aug-
um að tilraun sé gerð til að notfæra
sér vinsældir og fylgi hans í Háskól-
anum. Mikilvægt er að kjósendur
geri sér grein fyrir þessu og þeim
mun sem er á stefnuskrá og hug-
myndafræði þessara tveggja sam-
taka.“ Undir þetta ritar stjóm Óháða
listans.
Stefán sagði að Óháðir hefðu boð-
ið fram í Háskólanum í fyrra og lagt
sérstaka áherslu á menntamál. Þeir
hefðu notið töluverðra vinsælda og
ekki hefði vantað mörg atkvæði upp
á að listinn fengi tvo rnenn kjöma í
stúdentaráð. „Nú er komið fram
framboð óháðra með Alþýðubanda-
laginu sem ekki nýtur jafn mikilla
vinsælda og því er líklegt að þeir séu
að einhverju leyti að reyna að spila
inn á vinsældir okkar,“ sagði Stefán
að lokunt.
Alþýðublaðið hafði samband við
Ögmund Jónasson í gær og spurði
hvemig honum litist á þennan mál-
flutning Óháða listans í Háskólan-
um: „Eg held ég svari þessu bara
með því að segja: Lengi lifi húmor-
inn! Annað hef ég ekki um það að
segja.“ En hvað finnst Ögmundi um
að forsvarsmenn Óháða listans verði
lyrir aðkasti á skemmtistöðum
vegna meintra tengsla við Ögmund
og „óháða"? „Það tmflar mig ekkert
þó einhverjir hafl kímnigáfuna í lagi.
Þetta er ágætt mál.“
Háskólakórinn undir stjórn Hákons Leifssonar
jr
„Unglíngurinn í skóginum
- eftir Halldór Laxness, flutt í dag.
n
Háskólakórinn undir stjórn Há-
kons Leifssonar kemur fram á há-
skólatónleikum í dag, miðvikudag,
íNorræna húsinu klukkan 12:30. A
efnisskrá tónleikanna er Unglíng-
urínn í skóginum, tónlist Hákons
Leifssonar við ljóð Halldórs Lax-
ness sem samið var í fyrra fyrir kór-
inn; tjögur þjóðlög í útsetningu
Hafliða Hallgríinssonar og þrjú
þjóðlög í útsetningu Johns He-
arne. Háskólakórinn var stofnaður
árið 1972 uppúr óformlegum söng-
liópi nokkuira stúdenta við Háskóla
Islands. Aðgangseyrir á háskóla-
tónleikana í Norræna húsinu á
morgun er 300 krónur, ókeypis inn
fyrir handhafa stúdentaskírteina.
Háskólastúdentar kjósa á þriðjudag
Erum með sigur-
stranglegan lista
- segir Þóra Arnórsdóttir, sem skipar 1. sæti á lista
Röskvu til Háskólaráðs. Lífsnauð að fá fram breyting-
ar á Lánasjóðnum.
„Okkar barátta snýst fyrst og
fremst um hagsmuni stúdenta. Við
byggjum á ákaflega sterkum gmnni,
Stúdentaráð hefur einfaldlega skilað
gríðarlega góðu starfi undir stjóm
Röskvu síðustu ár. Eitt það mikil-
vægasta sem liggur fyrir er að ná
saman breiðfylkingu námsmanna og
þrýsta á alla flokka fyrir kosningar
að koma fram með heilsteypta stefnu
í menntamálum. Það er lífsnauðsyn
að fá í gegn breytingar á Lánasjóðn-
um, sem og að Háskólinn fát fjár-
veitingartil að halda uppi að minnsta
kosti lágmarkskennslu og rannsókn-
um. Eg tel listann mjög sigurstrang-
legan og vona að kosningabaráttan
verði málefnaleg f alla staði," sagði
Þóra Arnórsdóttir, efsti maður á
lista Röskvu til Háskólaráðs, að-
spurð um hvernig henni litist á loka-
sprett kosningabaráttunnar f Háskól-
anum, en þar er kosið 28.febrúar
næstkomandi.
Óháðir bjóða ekki frarn lista að
þessu sinni. en þeir fengu einn mann
kjörinn í Stúdentaráð í síðustu kosn-
Þóra: Stúdentaráð hefur skilað
gríðarlega góðu starfi undir stjórn
Röskvu síðustu ár. A-mynd: E.ÓI.
ingum og vantaði einungis örfá at-
kvæði til að vinna annan mann.
Röskva, félag félagshyggjusinnaðra
stúdenta, hefur verið í meirihluta síð-
ustu fjögur ár með 16 menn en Vaka,
félag lýðræðissinnaðra stúdenta hef-
ur 13.
Blaðið í dag:
Raunsæi og
réttlæti - Fylgis-
hrun Kvennálistans
Leiðari: 2
Þjóðvaki er á
hefðbundinni braut
sprengiframboða
Önnur sjónarmið: 2
Tengslin á milli ESB
og landsbyggðar
Jón Þór Sturiuson: 3
Stórauknar vamir
gegn vímuefnum,
kynþáttahatri og
ofbeldi
Rannueig Guðmundsd:. 4
Hvort er hún
kjarkmikið kamel-
ljón eða töfrandi
ljósálfur?
Hrönn Hrafnsdóttir: 4 og 5
Hörkusýning:
Taktu lagið Lóa!
á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins
Leikdómur: 6
íslendingar eiga
^egar ístaðað
úefja hvalveiðar -
með gát
Viðtöl Alþýðublaðsins: 8