Alþýðublaðið - 24.05.1995, Blaðsíða 1
■ Þorsteinn Pálsson leggur til að kvóti verði settur á smábáta
Fljótlegasta aðferðin til
að sprengja ríkisstjómina
- segir Öm Pálsson framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins: Það verður allt vitlaust í báðum stjórnarflokkunum.
„Ef menn vilja sprengja ríkis-
stjórnina, þá er þetta ábyggilega
fljótlegasta aðferðin. Ég trúi því
reyndar ekki ennþá að menn séu
í alvöru að velta þessu fyrir sér,“
sagði Örn Pálsson fram-
kvæmdastjóri Landssambands
smábátaeigenda í samtali við AZ-
þýðublaðið í gærkvöldi, aðspurð-
ur um hugmyndir innan ríkis-
stjórnarflokkanna um að afnema
krókaleyfi og setja kvóta á smá-
báta.
Samkvæmt mjög áreiðanlegum
heimildum Alþýðublaðsins
■ Stofnfundur samtaka
um aðild íslands að Evr-
ópusambandið
Umræðan
upp úr
hjólförum
flokkanna
- segir Davíð Stefánsson,
fyrrverandi formaður SUS.
„Eitt af hlutverkum þessa.félags
verður að ræða hvaða samnings-
markmið við eigum að setja fyrir
umsókn um aðild að Evrópusam-
bandinu. Við höfum tekið eftir því
að það er stór hópur fólks sem hefur
þá skoðun að við eigum að sækja um
aðild og markmiðið er að virkja þetta
fólk til samstarfs og skoðanaskipta,"
sagði Davíð Stefánsson, fyrrverandi
formaður Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, í samtali við Alþýðublaðið.
Davíð hefur ásamt fleirum unnið
að stofnun Evrópusamtaka hér á
landi og verður stofnfundur haldinn
að Hótel Sögu klukkan 15 á morgun.
Meðal markmiða Evrópusamtakanna
er að vinna að því að ísland sæki um
aðild að Evrópusambandinu og
stuðla að upplýstum og fordómalaus-
um umræðum hér á landi um sam-
starf Evrópuríkja.
„Fyrsta skrefið er að safna þeim
saman sem eru þessarar skoðunar og
eru þessu hlynntir. Síðan reikna ég
með sú stjórn sem kjörin verður
muni móta það starf sem framundan
er ásamt félagsmönnum. Það verður
eflaust einhver útgáfa á upplýsinga-
efni og almenn fræðsla um hvað
ESB er. Menn töldu ekki skynsam-
legt að stofna svona félag fyrir kosn-
ingar vegna þess að öll umræðan
einkenndist af viðhorfum stjómmála-
flokkanna. Það er ágætt að taka mál-
ið upp úr hjólförum flokkanna og
samtökin eru opin fólki úr öllum
flokkum og þeim sem eru utan
flokka," sagði Davíð Stefánsson.
Á stofnfundinum mun Ólafur Þ.
Stephensen kynna störf og hug-
myndir undirbúningshópsins. Þá
munu Jónas Kristjánsson ritstjóri
og Jenný Jensdóttir framkvæmda-
stjóri flytja erindi. Að því loknu
verður tillaga að lögum samtakanna
borin upp til atkvæða. Síðan fer ffam
stjómarkjör og kjör 20 manna í full-
trúaráð samtakanna.
ganga hugmyndir Þorsteins
Pálssonar sjávarútvegsráðherra
útá að setja þorskaflahámark á
krókabáta. Þarmeð væri búið að
hneppa smábátana í fjötra kvóta-
kerfisins.
Þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins sem blaðið ræddi við í gær-
kvöldi staðfesti að þessar tillögur
hefðu komið fram á ríkisstjórnar-
fundi í gær, og þær yrðu lagðar
fram í þingflokkunum í dag.
„Um þetta verður engin sátt. Það
verður allt vitlaust í báðum
stjórnarflokkunum," sagði þing-
maðurinn.
„Þetta myndi rústa smábátaút-
gerðinni. Það er alveg klárt mál.
Arið 1991 voru þúsund bátar
settir á kvóta, og nú er innan við
þriðjungur þeirra eftir,“ sagði
Órn.
Hann sagði að hugmyndir um
að setja aflamark á smábáta væru
í algerri andstöðu við það sem
um var rætt fyrir kosningar. „Við
munum gera allt til að koma í
veg fyrir þetta. Það getur ein-
faldlega ekki verið að menn ætli
að ganga svona langt.“
Þorsteinn Pálsson leggur til að
smábátar verði settir á kvóta.
Örn Pálsson: Þetta mun rústa smá
bátaútgerðinni.
■ Sumarlokanir á geð-
deildum Landspítalans
Alltaf
gripið um
öll bráða-
titfélli
- segir Gunnar Ingi Gunnars-
son læknir sem situr í stjórnar-
nefnd ríkisspítalanna.
„Það kom fram á fimdi stjómar-
nefndar ríkisspítalanna að helstu
stjórnendur Landspítalans em stór-
hissa á þessum yfirlýsingum Lárus-
ar Helgasonar yfirlæknis. Ef það
væri rétt hjá honum að lokun geð-
deildar yrði til að auka tíðni sjálfs-
víga fengist enginn til að samþykkja
slík áform,“ sagði Gunnar Ingi
Gunnarsson læknir, sem sæti á í
stjóm ríkisspítalanna í samtali við
Alþýðublaðið.
I Morgunblaðinu á laugardaginn
er haft eftir Lárusi Helgasyni að
fyrirhugaðar lokanir á geðdeildum
Landspítalans í sumar gætu leitt til
aukinna sjálfsvíga. Segja yrði sjúk-
lingum sem kæmu þangað í örvænt-
ingu að ekkert pláss væri fyrir þá.
Þessi ummæli hafa að vonum vakið
athygli og umtal. Málið var rætt á
fundi stjórnarnefndar ríkisspítal-
anna í gær.
„Lárus er þarna að gagnrýna
hluti sem yfirmcnn hans em búnir
að fara í gegnum og leggja til. Það
kom fram á fundinum að þessar
yfirlýsingar yfirlæknisins vöktu
furðu yfirmanna hans og stjórn-
enda Landspítalans. Það var farið
nákvæmlega í gegnum þetta mál og
kom í ljós að öll sú undirbúnings-
vinna sem fram hefur farið fyrir
sumarlokanir hefur verið í höndum
lækna og hjúkrunarfræðinga. Það
sem var ákveðið og samþykkt á
fundi stjórnarnefndarinnar er
byggt á þessu faglega mati. Hins
vegar em allir sammála um að lok-
anir deilda eru afskaplega
óskemmtilegt sparnaðarform en
eitthvað verður að gera,“ sagði
Gunnar Ingi.
„Það verður nokkrum deildum
lokað sitt á hvað í sumar. En það
verður með þeim hætti að starfsem-
in mun alltaf geta gripið utan um öll
bráðatiifelli,“ sagði Gunnar Ingi
Gunnarsson.
Fegurðarsamkeppni: hin eina sanna þjóðaríþrótt María Lovísa Árnadóttir, Helena Maria
Jónsdóttir og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir eru meðal keppenda í Fegurðarsamkeppni íslands á Hótel íslandi í kvöld.
Stúlkurnar hafa lagt nótt við dag undanfarnar vikur og mánuði við undirbúninginn. Innra sem ytra atgervi er stælt til
hins ítrasta. Áhugasömum áhorfenda við æfingar í gær varð að orði, að þarna væri hin eina sanna íslenska keppnis-
íþrótt komin: fegurðarsamkeppni, það virtist hvort eð er vera ein af örfáum keppnisgreinum þarsem við eigum mögu-
leika á að vera á heimsmælikvarða - og sigra svona endrum og eins... A-mynd: e.ói.
■ Starfsmaður apótekara er fulltrúi Þjóðvaka í lyfjanefnd Alþingis og fær þar
aðgang að upplýsingum sem geta komið sér vel fyrir hagsmuni lyfsala
ir
Það verður að vera hægt
að treysta mönnum
- segir Einar Magnússon formaður
„Ég sé ekki að þama ættu að koma
upp hagsmunarárekstrar, en vissulega
koma þarna fram upplýsingar um
hvað menn em að gera og getur varð-
að hagsmuni einhverra. En það verður
að vera hægt að treysta mönnum íyrir
slíkum upplýsingum. Svo er þetta allt-
af spuming um hvers fulltrúa menn
h'ta á sig,“ sagði Einar Magnússon í
heilbrigðisráðuneytinu í samtali við
Alþýðublaðið.
Eins og fram kom í Alþýðublaðinu í
gær hefur Þjóðvaki tilnefnt Kjartan
Valgarðsson sem fulltrúa sinn í þing-
nefhd sem fjallar um EES-reglugerðir
er lúta að lyfjamálum. Kjartan er
framkvæmdastjóri Klasa hf, en það er
innkaupasamband í eigu apótekara. Af
þeim sökum hafa vaknað spumingar
um hvort ekki geti orðið um hags-
munaárekstra að ræða. Einar Magnús-
son er formaður nefhdarinnar.
, J>essi nefhd kemur ekki tii með að
nefndarinnar um skipan Kjartans Valgarðssonar í lyfjanefnd Alþingis.
taka ákvarðanir heldur að passa upp á
áhrif aðildar að EES og kynna þau frá
öllum pólitískum sjónarhornum.
Menn þurfa þá ekki að vera að þrátta
um slíkt á öðrum stöðum í þinginu,"
sagði Einar.
Einar var þá spurður hvort í nefiid-
inni kæmu ekki fram upplýsingar sem
kæmu sér vel fyrir hagsmunaaðila að
vita um. „Jú, það gæti gert það. En
það á við um allar nefndir sem em í
gangi. Sem betur fer er þjóðfélagið að
vakna upp gagnvart svonalöguðu og
er full ástæða til að vera á varðbergi
gegn því að menn séu báðum megin
borðsins. Stjómsýslulögin hafa aðeins
ýtt við mönnum í þeim eíhum. En það
hefur engin athugasemd verið gerð við
veru fulltrúa Þjóðvaka í nefndinni
enda engin ástæða til þess ennþá,“
sagði Einar Magnússon.
„Þær upplýsingar sem lágu fyrir
þegar við tilnefndum Kjartan Val-
garðsson í þessa nefnd vom þær að
nefndin hefði einungis þau verkefni að
fylgjast með hvaða áhrif EES- samn-
ingurinn hefði á lyfjanotkun og lyfja-
kostnað hins opinbera og almennings
hér á landi. Það væri verið að kort-
leggja ríkjandi ástand,“ sagði Svan-
fríður Jónasdóttir þingmaður Þjóð-
vaka. Hún sagði að þekking Kjartans
ætti að koma sér vel við það verkefni.
Þetta hlutverk nefndarinnar hefði ver-
ið staðfest af formanni hennar.
„Okkur hafa ekki borist upplýsingar
um að nefhdin eigi að fjalla um lyfja-
verslun í landinu. Ef sú er raunin
breytir það eðli þeirrar nefndar sem
við töldum okkur vera að skipa f og þá
verður það skoðað. En á þeim eina
fundi sem nefndin hefur haldið innti
Kjartan sjálfur eftir því hvort nefndin
ætti að gefa álit á lyfjalögunum og
fékk það svar að svo væri ekki,“ sagði
Svanfríður Jónasdóttir.