Alþýðublaðið - 23.06.1995, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 23. JÚN11995
a
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
„Ég þurfti líka að sitja í
mínum eigin skála fyrstu
þrjá dagana, þá daga
sem blaðamenn og aðrir
listakverúlanta hafa einir
aðgang. Þar sem ég fór
heim tveimur dögum síð-
ar, hafði ég í rauninni
ekki mikinn tíma til að
skoða sýninguna."
langan tíma fyrir þá sem sjá hana að
melta allt sem fyrir augu ber. Ég held
samt að ég megi vera þokkalega
ánægður með víbrasjónir."
Hvað fannst þér sjálfum áhugaverð-
ast afþvísem þú sást þama?
„Það eru hátt í þijátíu skálar inni á
svæðinu sjálfu auk annarra sýninga
sem tengjast bíennalnum beint eða
óbeint. Það var því erfitt að komast yf-
ir allt, hvað þá að nefha eitthvað eitt
sem stendur upp úr. Ég þurfiti líka að
sitja í mínum eigin skála fyrstu þijá
dagana, þá daga sem blaðamenn og
aðrir listakverúlanta hafa einir aðgang.
Þar sem ég fór heim tveimur dögum
síðar, hafði ég í rauninni ekki mikinn
tíma til að skoða sýninguna."
Við spjöllum um hinar sýningamar
og ég minnist á það að mér sé kunnugt
um að Frakkar hafi ætlað að vera með
sýningar utan við sjálfan bíennalinn
með ungum Ustamönnum til að koma
þeim á framfæri og til að vega upp á
móti því að vera aðeins með César í
stnum sýningarskála - þótt það sé
reyndar ekki óalgengt að lönd sendi
aðeins einn Ustamann eins og Banda-
rikjanienn eða við íslendingar.
„Ég sá eina sýningu með ungum
frönskum listamönnum, sem var mjög
friskleg. Hún var haldin náfægt Arsen-
alnum, þar sem venjulega er haldin
svokölluð Apento-sýning, með ungu
myndlistarfólki eingöngu og oft hefur
þótt spennandi. Henni var sleppt núna
en í staðinn var sýning þar sem þemað
var manneskjan. Sú sýning var að
hluta til í ítalska skálanum, þar sem
meðal annars var að finna verk eftir
franska listamanninn Christian Bolt-
anski. en síðan í stórri sýningarhöll,
Palacio Graci. Þetta er einskonar
sögusýning, hún spannar það tímabil
sem bíennalinn hefur verið haldinn,
frá 1895 til 1995. Þessi breyting frá
hefðinni var val franska safnstjórans
Jean Clair, skipuleggjanda bíennals-
ins í ár.“
Það voru ekki allir áncegðir með þá
ákvörðun.
„Nei, hann fékk heilmikla krítik á
sig. En hann hafði litla peninga, því
það eru þama verk sem kostar milljón-
ir að tryggja og þess vegna hefur hann
farið þessa leið.“
En var þessi sýning um manninn þá
með verkurn listamanna sem hafa tek-
ið þátt íbiennalnum frá upphafi?
„Nei, ekkert frekar. Þama vora til
dæmis fyrstu nafnspjöldin og fyrstu
nafnskírteinin. Einnig var þama ýmis-
legt frá frönsku lögreglunni eins og
leiðbeiningar um það hvemig á að fara
að því að bera kennsl á menn og lýsa
þeim, til dæmis á morðstað."
Þetta er þá ekki einungis myndlist-
arsýning?
„Nei, þarna er blandað saman
mannkynssögunni og myndUstinni. Ég
hafði mjög gaman af að skoða þessa
sýningu. Fannst hún áhugaverð."
Það er auðheyrt að Birgir hefði vel
getað hugsað sér að vera þama lengur.
En nú er hann kominn heim í sunn-
lenska sumamgningu, þótt lopafánamir
fái að hanga uppi í skála Aaltos í fen-
eyskum sumarhitum fram á haust.B
■ Hrafnkell Ásgeirsson skrifar opið bréf til Erlings Garðars Jónassonar eðalkrata,
sem verður sextugur á morgun, laugardaginn 24. júní
„Þú hefur verið eins
og klettur í hafinu"
Sæll, ég óska þér til hamingju á
þessum tímamótum; á morgun hefur
þú göngu þína inn í sjöunda áratug lífs
þíns. Eg heyrði í símsvara mínum í
morgun, að þú ætlaðir að fagna þessum
tímamótum með sveitungum, vinum
og flokksfélögum á hinu nýja heimili
þíriu í Stykkishólmi. Við Oddný mun-
um mæta, enda ekki á hveijum degi, að
héraðshöfðingjar bjóði til slíks mann-
fagnaðar.
Barnaskóm slitið í Hafnarfirði
Þú hefur komiö víða við á lífsgöngu
þinni, bæði í námi, starfi og félagsmál-
um. Maja systir þín var jafnaldra mín í
skóla, þú varst stóri bróðir, þótt þú vær-
ir yngstur af fjórum bræðram. í skóla
þekkir maður alltaf þá sem eldri era.
Þú varst ífábær á skíðum, renndir þér í
ótal hringi og beygju niður Setbergs-
hlíðina; menn stoppuðu og virtu hinn
snjalla skíðamann lýrir sér og sögðu
þetta er sonur hans Jónasar í Dverg”.
- Faðir þinn, Jónas Sveinsson, og
systir hans, Sigurrós verkakvennaleið-
togi, móðir Emu Fríðu Berg, dóttur
Björns Jóhannessonar, fyrram for-
seta bæjarstjómar, voru meðal oddvita
Hafnarfjarðarkrata á fyrra blómaskeiði
flokksins í Hafnarfirði. Það var því
eðlilegt, að eplið félli ekki langt frá ei-
kinni.
50 ára flokksstarf
Mér sýnist, að þú hafir þjónað
flokknum í fúll 50 ár; það sé liðin að
minnsta kosti hálf öld frá því, að þú
skaust Alþýðublaði Hafnatfjarðar inn
um bréfalúguna á Brekkugötunni, þeg-
ar þið, Sigga Erlendar, voruð að
dreifa boðskapnum til bæjarbúa.
í stjóm með Carlsson
Þegar ég sat í stjóm Sambands ungra
jafnaðarmanna, undir stjóm Sigurðar
E. Guðmundssonar, nú í Húsnæðis-
stofnun, varst þú
fulltrúi SUJ í sam-
félagi norrænna
ungkrata; stjómar-
maður ásamt til
dæmis Ingvari
Carlsson í Sví-
þjóð. Menn biðu
óþreyjufullir eftir
fundargerðum
þfnum frá þessum
stjórnarfundum
ungkrata á Norð-
urlöndum. Kratar
hafa alltaf verið alþjóðasinnar og litið
til framtíðarinnar; ekki aðeins fyrir síð-
ustu kosningar, þegar stefna flokksins
var sú að skoða hvað aðild að Evrópu-
sambandinu þýddi fyrir ísland. - Ég las
nú nýlega viðtal í blaðinu European
við írann Sutherland, fyrrverandi for-
stjóra GATT. Hann sagði þar meðal
annars, að ef ríki hefðu komist upp
með þröngsýna þjóðemisstefnu í Evr-
ópu, og hefði Evrópusambandið ekki
verið til staðar, hefði samningurinn um
GATT aldrei orðið að veruleika. - Hér
heima höldum við áffarn að spila sóló,
eins og við séum ein í heiminum. Þró-
unin gengur heldur hægt hjá okkur,
Garðar, en enginn getur breytt gangi
sögunnar, eins og þú veist.
Oddviti allra Austfirðinga
Því er nú þannig farið, Garðar, að
maður veit aldrei hvað maður hefur átt,
fyrr en misst hefur. Þú varst sendur
austur á land til þess að sjá til þess, að
rafmagnsperumar loguðu á hveiju ljósi
norðan frá Bakkafirði og suður til
Homafjarðar. Þetta var mikil ábyrgð.
Þú dast af kjörskrá í Hafnarfirði. Egils-
staðabúar tóku þér opnum örmum, þú
gerðist einn af „primus motorum" á
staðnum, stofnaðir óháðan flokk með
Sveini á Egilsstöðum, varst kosinn í
hreppsnefnd og gerðist oddviti staðar-
ins. neiri félagsmálum sinntir þú, til
dæmis gerist þú iðnskólastjóri í hjá-
verkum. Mikill var krafturinn í þá
daga, vinur sæll. - Þig langaði á þing,
skipaðir 1. sæti flokksins í nokkur
skipti, en fólkið vildi þig ekki. Ég spyr,
hvers vegna ekki? Hugsanlega vegna
þess, að flokkurinn og ekki síst Gylfi
Þ. Gíslason voru mjög hreinskilnir um
landbúnaðarmál. Kjósendur vora ekki
reiðubúnir til þess að hlusta á sannleik-
ann. Nú eru flestir þeirrar skoðunar, að
Gylfi og flokkurinn hafi haft rétt fyrir
sér, og ef hægt væri að flytja þessar
skoðanir aftur í tímann, hefðir þú ör-
ugglega vermt þingmannssæti, Garðar.
Gunnlaugi, frænda mínum, tókst þó að
botna vinnu þína á síðasta kjörtímabih,
þótt honum hafi ekki tekist að halda
sætinu vegna almennrar stöðu flokks-
ins í landinu, eins og þú veist.
Mjúkt sæti í flokksstjórn
Víkjum að flokksmálunum á lands-
vísu. Þú hefur lengi setið í flokksstjóm.
Það er langt síðan ég gerði mér grein
fyrir því, að þú hafðir mikinn áhuga að
halda þínu sæti þar. Þú vildir sjá út fyrir
girðingamar á Egilsstöðum, nú Stykk-
ishólmi. Þú vildir vita, hvað flokkurinn
var að gera, og vildir hafa áhrif á hvað
hann gerði. - Þér fannst Kjartan Jó-
hannsson ekki standa sig, þú vildir
breytingar. Ég studdi Kjartan, þú Jón
Baldvin. Því er ekki að neita, að frískir
vindar blésu um flokkinn, eftir valda-
töku Jóns Baldvins; hann boðaði sókn,
flokkurinn skyldi hafa innan vébanda
sinna 30% þjóðarinnar, fylgi í takt við
flokk Mitterands í Frakklandi; fiskaði
skipstjórinn ekki, ætti hann að fjúka -
eins og Kjartan. Þetta var boðskapurinn
í þá daga, Gaiðar.
Góð síðasta ríkisstjóm
Hvemig finnst okkur hafa til tekist?
Ég var til að mynda mjög hlynntur
stjóm okkar nú síðast með íhaldinu. Ég
tel hana hafa staðið sig vel, miðað við
aðstæður. Formaðurinn okkar klúðraði
aftur á móti flokksstarfinu, eins og þú
veist. Hann gleymdi því, að fúni undir-
stöðumar, brestur annað. - Til þess að
góður árangur á erlendum vettvangi
skili sér í góðu fylgi flokksins hér
heima, verða menn að gera sér grein
fyrir því, hvaðan valdið kemur; það
kemur frá kjósendum. Sé flokksstarfinu
ekki sinnt af kostgæfhi vandast málin.
- Snúum okkur að Jóhönnu og Þjóð-
vaka. Ég fullyrði, að flokksfólk hafi
orðið fyrir miklum vonbrigðum með
hana. Hún var alin upp í flokknum,
amma hennar og faðir voru álirifamenn
og þingmenn flokksins, hún lýsti því
yfir á flokksþingi og ég hlustaði á yfir-
lýsingar hennar, að hún myndi hlíta
samþykktum flokksþingsins. Þrátt fýrir
þetta yfirgaf hún flokkinn og stofnaði
sinn eigin flokk. Hún virðist hafa
gleymt því, að hún hefði skyldur við
flokkinn og flokksfólk. - Nú er ljóst, að
þessi flokkur hennar verður hvorki fugl
né fiskur. Ég held, að fólkið, sem
skrapp þama yfir, muni fyrr en síðar
snúa aftur til srns hehna. Menn muna
til dæmis að Ágúst Einarsson var ekki
lengi í vistinni hjá Bandalagi jafhaðar-
manna á sínum tíma.
Vestlendingar fá sinn oddvita
Menn hafa bent á, að Vesturlands-
kjördæmi hafi komið vel út úr síðustu
kosningum, Garðar. Einhver hafði orð
á því, að fleiri Stykkishólmsbúar en
venjulega hafi kosið flokkinn. Þið
þama á Stykkishólmi hafið öðlast rneiri
æfingu í kosningum en annað fólk hér
á landi. Alla vega komuð þið merkilega
vel út úrkosningunum.
Flokkur í vanda
Sumir telja, að einhver kreppa kvelji
flokkinn, ekki veit ég um það. Þó er
Kklegt, að formaðurinn hugsi til nýrra
verkefna, er líður á kjörtímabilið.
Flokkurinn þarf að finna sig. Sumir
héldu, að Sighvatur Björgvinsson
yrði framtíðarmaður, en það virðist
ólíklegt, eftir að hann skaut sig svo illi-
lega í löppina á síðasta ári. - En, Garð-
ar, það er ykkar, þeirra sem stjórna
flokknum, að sjá til þess að flokkurinn
rétti úr kútnum.
Eins og klettur í hafinu
Mér er hugsað til þín, Garðar, þegar
ég hugsa til flokksins okkar. Þú hefur
verið styrk undirstaða flokksins, þú
hefur verið eins og klettur í hafinu.
Þegar vel hefur árað flykkjast menn dl
starfa, allir era tilbúnir. Þegar syrtir í ál-
inn, breytast hlutimir, þá mæta fætri til
skips, menn eru veikir, uppteknir, eru
að gera aðra hluti. - Þú hefúr alltaf ver-
ið tilbúinn. Þegar skipið kemur að
öldudal, hlaupa ýmsir firá borði, en þú
hefur ekki slakað á; þú hefur verið
reiðubúinn til þess að taka dýfúna með
skipinu.
Landsvirkjun
Ég hefi oft ekki skilið, hvers vegna
formaður okkar gerði sér ekki grein
fýrir því, að kunnátta þín í rafmagns-
fræðum og reynsla í stjómunarstörfúm
hefði getað komið sér vel fýrir Lands-
virkjun. Ýmsir era þeirrar skoðunar, að
flokkurinn hefði átt að velja þig til setu
þar í stjóm. En þetta er bara svona, eins
og maðurinn segir.
Bæjarútgerðin seld
Víkjum að bænum okkar, Garðar.
Hvoragur okkar getur gleymt því, er
thaldið og Óháðir borgarar gáfu Jó-
hanni Bergþórssyni og Samherja á
Akureyri Bæjarútgerð Hafnarfjarðar.
Ég hefi áður skrifað um þá sorgarsögu.
Það var fullyrt, að skipin og kvótinn
yrðu áfram í Hafnarfirði, en skipin
sigldu hvort á fætur öðra, fýrst Maí og
síðan Apríl, norður til Akureyrar. Það
er eðlilegt að menn deili um eignar-
form að útgerðarfyrirtækjum, en hinu
ættu menn að vera sammála, að ekki sé
rétt að gefa opinberar eignir einkaaðil-
um. Við munum það, Garðar, að vegna
svika Óháðra borgara í Bæjarútgerðar-
máhnu, var þeim hafnað í næstu bæjar-
stjómarkosningum þar á eftir.
Flokkurinn í meirihluta-
aðstöðu á ný
Nú virðist meirihlutasamstarf
komma og íhalds vera sprangið, enda
ekki annars að vænta. í fyrra hitti ég
ágætan íhaldsmann í Hafnarfirði og
Erlingur Garðar Jónasson,
sextugt afmælisbarn og eðal-
krati. „Megir þú á næsta áratug
senda kúluna mörgum sinnum
í holu í einu höggi," skrifar
Hrafnkell Ásgeirsson í afmælis-
kveðju til vinar síns.
sagði við hann, að mér sýndist tími
okkar hafa farið til spillis, þegar við
mættum á fundum hjá Vestrænni sam-
vinnu til þess að reyna að spoma gegn
útþenslu kommanna, nú þegar þeir
sjálfir hleypa kommunum inn um bak-
dymar hjá sér, óheftum, hleypa þeim t
stöðu bæjarstjóra og flestar þær stöður
sem væru til reiðu, en íhaldið fengi að-
eins formenn í nefndum, svo sem bæj-
arstjóm, bæjarráði og öðium nefndum.
Mér sýndist lítið hafa lagst fýrir kapp-
ann.
Flokkur án metnaðar
Þegar við stóðum í kosningaslag í
Hafharfirði, var Sjálfstæðisflokkurinn
stór og sterkur flokkur, sem hafði
metnað. Nú virðist þetta vera hðin tíð;
flokkurinn virðist vera gjörsamlega
máttlaus; spumingin virðist ætíð vera
sú, hvað kommamir vilji. Hvar eru
Mathiesenar og aðrir fyrri foringjar
flokksins? Hefúr þú spurt Sigga Þórð-
ar þessarar spumingar?
Forystumenn í Noregi
Ég hefi heyrt á okkar fólki, Garðar,
að það skilji ekki, hvers vegna okkar
forystumenn eins og Ingvar Viktors-
son og Tryggvi Harðarson fari í
skemmtiferð til Noregs, þegar um er að
ræða stofnun nýs meirihluta í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar. Sumum finnst
þetta vera ábyrgðarleysi. - Það er aug-
ljóst, að nýir siðir koma með nýjum
mönnum.
Landsfrægur Gaflari
og golfari
Að lokum þetta, golfíþróttin hefur
heillað þig. Við spiluðum saman hér
fyrir fjórum ámm. Sigurður Emilsson
segir mér, að þú sért mjög efnilegur,
eigir stutt í holu í höggi.
Lokaorð
Ég sendi þér og fjölskyldu þinni
bestur kveðjur. Megir þú á næsta ára-
tug senda kúluna mörgum sinnum í
holu í einu höggi. ■
Ágúst Einarsson.
Stoppaði stutt í
Bandalagi jafnaðar-
manna.
Francois Mitter-
and. Flokkurinn átti
að vera í stíl við
flokk.
Gylfi Þ. Gíslason.
Harður í landbún-
aðarpólitíkinni.
Ingvar Viktorsson.
Með nýjum herrum
koma nýir siðir.
Ingvar Carlsson.
Sat í ungkrata-
stjórn með Erlingi
Garðari.
Jóhanna Sigurðar-
dóttir. Olli flokks-
fólkinu vonbrigð-
um.
Jóhann Gunnar
Bergþórsson. Fékk
Bæjarútgerðina
gefins.
Jón Baldvin Hanni-
balsson. Frískur
klúðraði flokks-
starfinu.
Kjartan Jóhanns-
son. Skipstjórinn
sem fiskaði ekki.
Matthías A. Mat-
hiesen. Hvar eru
Mathiesenarnir og
félagar?
Sighvatur Björg-
vinsson. Þykir ólik-
legur framtíðar-
maður.
Sigurður E. Guð-
mundsson. Stjórn-
aði Eriingi Garðari
og kó.
Tryggvi Harðarson.
Fór í skemmtiferð
með hinum kröt-
unum.