Alþýðublaðið - 28.06.1995, Page 3

Alþýðublaðið - 28.06.1995, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o d a n i r Ein Iftil hugleiðing frá Djúpavogi... „Kínverski varaforsætisráðherrann sem hér var á ferð lét svo um mælt að betra væri að sjá einu sinni en heyra hundrað sinnum. Eða: Sjón er sögu ríkari ... Það er næstum óhjá- kvæmilegt að byggð þjappist eitthvað í nán- ustu framtíð, en því verður ekki stýrt frá stjórnarráðinu í Reykjavík. Fólkið velur sjálft sína byggðakjarna ... Það er góður skóli fyrir borgarbarn eins og undirritaða að kynnast þessu og þess vegna tek ég undir orð kín- verska varaforsætisráðherrans." Kínverski varaforsætisráðherrann sem hér var á ferð lét svo um mælt að betra væri að sjá einu sinni en heyra hundrað sinnum. Eða: Sjón er sögu ríkari. Norðmenn gerðu viðskiptasamn- inga upp á tuttugu milljarða við þetta fjölmennasta ríki heims (1,2 milljón- ir sagði Dóri Ásgríms við setningu Drekans ’95 á Egilsstöðum - hvað eru 1.198,8 milljónir manna milli vina?) meðan fyrmefndur kínverskur ráðherra var í heimsókn. Okkur tókst ekki alveg jafn vel upp, en „þetta kemur“, segir Halldór. Gott. Ekki veitir af að finna aðra markaði til að geta varið afstöðuna til Evrópusambandsins. En nóg mun verða rætt og ritað um það svo það verður ekki mitt umfjöllunarefni að sinni, frekar en misþyrmingin á GATT. Utanríkisráðherra sagði nefnilega ýmislegt fleira þama á Egilsstöðum. Og það sem meira er, ég var sam- mála honum um margt. Byggðastefna er sérdeilis loðið orð og ákaflega mismunandi hvaða skilning fólk leggur í það. Persónu- lega hef ég aldrei botnað upp né nið- ur í hinni svokölluðu byggðastefnu ríkisins. Hún hefur einkennst af gríð- arlegum fjáraustri sem hefur að því er virðist skilað þeim árangri einum, að fólksflóttinn frá landsbyggðinni eykst stöðugt. Loðdýrabúskapurinn, fiskeldið - þetta skildi marga eftir gjaldþrota, beinlínis fyrir tilstilli „byggðastefnunnar." Ég er algjörlega á móti því að borga fólki, beint eða óbeint fyrir að búa úti á landi - ég er líka andsnúin því að ríkið dæli peningum í fyrir- tæki á vonarvöl, til að halda úti at- vinnu í einhveija mánuði í viðbót þar sem ástandið er slæmt. Það er sjálfsagt að ríkið hlúi að vaxtarbroddum í atvinnulífinu, en það á ekki að skipta máli hvar á landinu starfsemin er staðsett. í þessu sambandi er mikið talað um hagkvæmni. Að það eigi að „búa til“ nokkra byggðakjama umhverfls landið, þjappa byggðinni. Hljómar ágætlega, en hefur einhver spurt fólkið sem á að búa í þessum byggðakjömum, hvemig því lítist á? Hvers vegna haldið þið til dæmis að Súðvíkingar hafi vilja byggja upp þorpið sitt aftur? Hefði ekki verið miklu hagkvæmara að byggja svo sem eins og tvær blokkir á Isafirði og dæla öllum fyrmrn íbúum Súða- víkur þar inn? Færa svo skip og kvóta yfir? Þetta er einfaldlega gríðarlegt til- fmningamál, sem sást nú best á til- rauninni til sameiningar sveitarfélaga hér um árið. Á meðan sveitarfélög treysta sér til að halda uppi þeirri þjónustu sem þeim ber, íbúamir hafa atvinnu og vilja búa á viðkomandi stað, þá er enginn sem kemur og seg- ir: „Þið eigið að flytja - það er hag- kvæmt“. A mörgum stöðum hefur orðið mikil fækkun, aðrir standa í stað, sums staðar fjölgar. Það er næstum óhjákvæmilegt að byggð þjappist eitthvað í nánustu framtíð, en því verður ekki stýrt frá stjómarráðinu í Reykjavík. Fólkið velur sjálft sína byggðakjama. Það er góður skóli fyrir borgarbam eins og undirritaða að kynnast þessu og þess vegna tek ég undir orð kín- verska varaforsætisráðherrans sem ég minntist á fyrr og tek hér með þátt í átakinu um ferðalög innanlands með því að hvetja lesendur Alþýðu- blaðsins til að bregða sér nú út fyrir höfuðborgina í sumar. Hér á Hótel Framtfð, Djúpavogi, er „skroppið" á ball í 200 kllómetra fjarlægð. Það er styttra frá Reykja- víkur til Víkur í Mýrdal. Höfundur er líffræðinemi og formaður Félags ungra jafnaðarmanna i Kópavogi. Viðræður alþýðuflokks- manna og Jóhanns Gunnars Bergþórssonar og Ellerts Borgars Þor- valdssonar hófust með formlegum hætti í gær, ein- sog sagt er frá annarsstaðar í blaðinu. Heimildamenn úr Hafnarfirði segja, að á óvart hafi komið hve mikinn stuðning Jóhann eigi meðal sjálfstæðismanna á þeim bæ. Þá vakti athygli að í Morgunbladinu í gær líkti Víkverji Jóhanni við sjálfan Albert heitinn Guðmunds- son, og velti því fyrir sér hvort þingframboð væri á döfinni. Að vísu ber að taka fram, að ekki var alveg Ijóst hvort Víkverji var að gera gys að nýja upp- reisnarleiðtog- anum í Hafnar- firði... Það var margt um manninn á Ijóðakvöldi Samtakanna '78 á veitingastaðn- um 22 í fyrra- kvöld. Nú standa yfir Argir dagar, sem er listahátíð samkynhneigðra. Þau fengu til liðs við sig skáld úr öllum áttum sem lásu við góðar undirtektir. Þarna voru með- al annarra Megas, Elísabet Þorgeirsdóttir, Ingunn V. Snædal, Didda og fleira gottfólk... Það bartil tíðinda á bæj- arstjórnarfundi í Kefla- vfk, Njarðvík & Höfnum í síðustu viku að systkini sátu bæjarstjórnarfund, og mun vera einsdæmi þar syðra. Þetta voru þau Steindór Sigurðsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokks- ins og Ástríður Sigurðardóttir varabæjarfulltrúi Al- þýðuflokksins, sem sat sinn fyrsta fund í bæjarstjórninni. Ekki fer sögum af öðru en þeim systk- inum hafi komið vel saman, þótt þau væru fulltrúar hvort síns flokks... „Jú, auðvitað getum við farið heim til mín. Það svosem í góðu lagi mín vegna. En elsku Margrét Elísabet mín... þú verður að átta þig á þeirri staðreynd, að ég var ekki að grínast áðan þegar ég sagði að híbýli mín væru lítið meira en hola í vegg!" fimm á förnum ve Hvern vilt þú fá sem næsta bæjarstjóra í Hafnarfirði? Spurt í Hafnarfirði Bryndís Berghreinsdóttir, Gaflari: Ég vil fá krata, til dæmis Guðmund Árna Stef- ánsson eða Ingvar Viktorsson. Hans Guömundsson, veit- ingamaður: Ingvar Viktors- son er vænlegasti kosturinn í stöðunni. Katrín Þorláksdóttir, tal- símavörður: Ætli Ingvar Viktorsson væri ekki góður kostur. Ingvi Þór Markússon, verslunarmaður: Ég vil hafa Magga svarta áfram í stólnum. Hjördís Sigurðardóttir, bæjarstarfsmaður: Jóhann Gunnar Bergþórsson yrði góð- ur bæjarstjóri. m e n n Tjömin heldur ekki vatni. Fyrirsögn í Sunnlenska fróttablaöinu. Vatnsveður hamlar vígslu sundlaugar. Fyrirsögn í Austra. Báðir frambjóðendur eru traustir íhaldsmenn. Margaret Thatcher, aöspurð hvort hún styddi John Redwood gegn John MajoK Mogginn í gær. Hefjast þarf handa um mislæg gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar en þau eru hrikaleg slysagildra. Guömundur J. Guömundsson í Moggagrein í gær. Hvar er hin rómsterka rödd Hrólfs Sveinssonar? Ætlar karl- mennið að láta eintóman kerlinga- vaðal fylla Morgunblaðið án þess að kveða sér hljóðs? Freyr Þórarinsson aö skora á „Hrólf Sveinsson" aö láta aö sér kveöa í ritdeilum Helga Hálfdanar- sonar og ungra femínista. Mogginn í gær. Það er aðeins kvennakirkjan sem iðkar guðfræðilegar vangaveltur innan þjóðkirkjunnar og greinir ekki á um annað en það, hvort guð er karl eða kona. Oddur Ólafsson í Tímanum í gær. Villtir og Vefararnir ■ Það er ofurhugi að nafni Richard Noble sem á gildandi hraðamet farar- taekis á jörðu niðri: 1019,47 kílómetrar á klukkustund. Noble þessi hefur nú sett saman manna hóp sem Richard Noble, hugsuður- ætl a r aÖ jnná bakvið hljóðfráa farar- freista í Ne- tækið Sonic SSC sem aka vada-eyði- mun eftir Nevada-eyði- mörkinni f mörkinni iseptember næst- komandi meö 1368 kiló- metra hraða á klukkustundl september- mánuði að setja nýtt hraðamet - og rjúfa hljóð- múrinn í leiðinni. Hljóðfráa farartækið sem á að slá gamla metið nefnist Sonic SSC og er knúið áfram af tveimur Rolls Royce Spey 505- hreyflum sem áður þjónuðu einni af Phantom-orrustuþot- um breska flughersins. Noble ætlar þó ekki að reyna sjálfur við eigin met, heldur mun herflugmaðurinn Andy Green sjá um þá hættusömu deild í þetta skiptið. Áætlað er að Sonic nái um 1368 kílómetra á klukkustund og tölfræðihausarnir geta glöggvað sig á því, að það mun teljast vera mach 1,15 (0,15 yfir hljóðmúrinn) II! En hvað kem- ur þetta Villtum & Vefurunum við? Jú, tölvufyrirtækið Digital Equipment hefur nú tekið höndum saman við hóp Ri- chard Noble og skapað hina stórkost- legu heimasíðu http://thrustssc .dec.co.uk/ þarsem bókstaflega allar tæknilegar upplýsingar og staöreyndir um framkvæmdina eru gefnar í máli, myndum og hljóði. Þið ykkar sem hafið græjurnar til þess getið síðan heyrt Sonic slá metið f Nevada-eyðimörkinni í september og 24 klukkustundum síðar er áætlað að MPEG-kvikmynd verði komin á Netið. Á meðan getið þið Net- hausarnir sem sjaldan eða aldrei yfir- gefið skjáinn ímyndað ykkur hvernig til- finning það er að ferðast um á jörðu niðri með 1368 kílómetra hraða... TAKE THATI veröld ísaks Kannski verður aldrei vitað með vissu nákvæmlega hversu hryllileg örlög stalímski þrælkunarbúðasósíalisminn bjó þegnum Sovétríkjanna. Þó hafa á síðustu árum verið að myndast glufur á þann þagnarmúr sem Kremlarmenn hafa náð að viðhalda utanum stað- reyndir einsog þá, að áætlað er að hartnær þijár milljónir manna hafi lát- ið lífið í meira en hundrað gullnámu- búðum í Síberíu. Og þrátt fyrir að þessar tilteknu fangabúðir séu al- mennt álitnar versti þáttur hins hræði- lega kerfis, þá eru milljónimar þijár engu að síður aðeins lítill hlutur þess fjölda sem týndi lífinu á ógnarámm kommúnismans. Byggt á Isaac Asimov's Book of Facts.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.