Alþýðublaðið - 28.06.1995, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
SS-ofurstinn Hans Ernst Schneider.
verk fyrirmyndar lýðveldissinnans
og mannúðarstefnumannsins er dá-
ir Heinrich Böil og Willy Brandt,
hlutverkið sem hann er búinn að
leika í 50 ár. En hvernig eigum við
að fara að því að trúa því? Er hægt
að trúa lýðræðislegum sinnaskipt-
um sem byggja á 50 ára lygi?
Manfred Kutsch, sem fylgst hefur
með máli Schwerte fyrir blaðið sitt
Aachener Volkszeitung og hefur
hitt manninn oft, segist ekki trúa
neinu svoleiðis. „Schwerte er fyrst
og fremst tækifærissinni, fær um
að ná frama undir hvaða stjórnar-
fari sem er. I gær voru það nasist-
arnir, en núna eru það sósaldemó-
kratar. Hann hefur aðeins eitt
markmið og það er að sitja í efstu
þrépum þjóðfélagsins.“
f biðsalnum við skrifstofu rekt-
ors í háskólanum í Aachen hangir
andlitsmynd Hans Schwerte uppi í
félagsskap annarra forfeðra. Það
þorir enginn að taka hana niður og
það liggur við að menn séu hissa á
að einhverjum skuli finnast skrýtið
að hún sé þarna ennþá: „Hvort sém
okkur líkar betur eða verr, þá var
hann einn af rektorum okkar. Það
þyrfti aðeins að bæta nafninu
Schneider við með bandstriki.“
Þýsk smásmygli! Það hefur aldrei
hvarflað að Hans Schwerte-Schnei-
der að fara fram á svo mikið! 26.
apríl, daginn sem hann gaf sig
fram, hafði hann fyrst hringt í
starfsfélaga sína til að segja þeim:
„Það sem þið hafið heyrt sagt um
mig er satt: Ég er Schneider. Leik-
urinn hlaut að taka enda einn dag-
inn.“ ■ meó/lepoint
■ Kaupmannahöfn
Gönguferd-
ir á Islend-
ingaslóðir
Það sem af er sumri hafa yfir 500
íslendingar tekið þátt í skipulögðum
gönguferðum um á söguslóðir ís-
lendinga. Gengið er alla sunnudaga
og er þetta þriðja sumarið sem ferða-
skrifstofan In Travel Scandinavia í
Kaupmannahöfn býður slíkar ferðir.
I þessum gönguferðum er gengið
að ýmsum stöðum og byggingum
sem tengjast sérstaklega sögu íslend-
inga í Kaupmannahöfn. Þar má
nefna að gengið er að húsinu sem
Jónas Hallgrímsson bjó í er hann
dó, húsinu þar sem Baldvin Einars-
son bjó og að gömlu stúdentagörð-
unum, háskólanum og Árnasafni.
Gönguferðirnar taka hátt í þrjár
klukkustundir og enda ýmist í húsi
Jóns Sigurðssonar eða á Kóngsins
Nýjatorgi.
Lagt er á stað í gönguna frá Ráð-
húsströppunum klukkan 11 á sunnu-
dagsmorgna með þaulvönum leið-
sögumanni. Þátttökugjald fyrir full-
orðna er 100 krónur danskar.
■ Nú starfa 14 íslenskir
sendikennarar í Evrópu
Vaxandi áhugi
á íslenskunámi
í Evrópu
Víða um lönd er vaxandi áhugi á að
læra íslensku. Þannig verður íslensku-
kennsla aukin við Sorbonneháskóla í
París á næsta hausti og íslenska gerð að
aðalgrein til B.A prófs við Lundúnahá-
skóla. Hins vegar er skortur á kennslu-
bókum og öðmm kennslugögnum í ís-
lensku fyrir útlendinga og dregið hefur
úr framlagi íslenskra stjórnvalda til
kennslunnar á undanförnum árum.
Þetta kom fram á fundi sendikennara í
íslensku erlendis sem haldin var í Hels-
inki. Nú starfa 14 íslenskir sendikenn-
arar í átta löndum Evrópu. Á fundinum
var meðal annars fjallað um lítinn
stuðning íslenskra stjórnvalda við
keimslu í íslensku erlendis. Bent var á
að ljárveitingar til Stofnunar Sigurðar
Nordals, sem hefur umsjón með ís-
lenskukennslu við erlenda háskóla,
væri í engu samræmi við vaxandi um-
svif hennar og hefðu beinlínis rýmað á
undangengnum ámm. Starfsemi stofn-
unarinnar væri orðin þekkt og viður-
kennd víða um heim og því brýnt að
efla hana á öllum sviðum menningar-
samskipta. Á fundinum var samþykkt
ályktun þar sem skorað er á kennara og
forstöðumenn stofnana í norrænum
fræðum erlendis að skipuleggja námið í
greininni þannig að íslenskt nútímamál
verði eðlilegur undanfari náms í fomís-
lensku.
Julie Delpy í Before Sunrise. „Þetta 90 mínútna
óslitna samtal þeirra er vel samið og áheyrilegt,
en samt sem áður ópersónulegt, á stundum
sem dæmigert um viðhorf ungmenna samtíðar-
innar."
Opersónu-
legur Vfn-
arvals
Regnboginn: Before Sunrise
(Jónsmessunótt)
Aðalhlutverk: Ethan Hawke,
________Julie Delpy
★ ★ w
Á leið til Vínar í járnbrautarlest
taka piltur og stúlka tal saman. Næsta
morgun mun pilturinn fljúga þaðan til
Bandaríkjanna, en stúlkan ætlar að
taka þar fyrstu lest til Parísar. Svo vel
fer á þeim, að stúlkan frestar för, og
um kvöldið og alla nóttina ráfa þau
um Vín (og fer fegurð borgarinnar
ekki framhjá kvikmyndatökumönnun-
um). Allan tímann ræðast þau við, og
er samtal þeirra efhiviður myndarinn-
ar.
Þetta 90 mínútna óslitna samtal
þeirra er vel samið og áheyrilegt, en
samt sem áður ópersónulegt, á stund-
um sem dæmigert um viðhorf ung-
menna samtíðarinnar. Aftur á móti
leika Ethan Hawke og Julie Delpy
betur en svo að sýnast dæmigerð ung-
menni, týpur. A óvart kæmi þó ekki,
að á eftir mynd þessari fylgi aðrar af
áþekkri gerð, en persónulegri og sér-
stæðari. - Umsögn um myndina í
Time 27. febrúar 1995 lauk á þessa
leið: ,J gamla daga gaf margur piltur
vinstúlku sinni, til marks um alvöru
sína, eintak af... Spámanni Kahlils
Gibrans. Ef til vill munu piltar á tí-
unda áratugnum gefa vinstúlkum sín-
um vídeó-kassettu af Before Sunrise í
því sama augnamiði...“
Kvikmyndir |
Haraldur
Jóhannesson
hagfræðingur
skrifar
Afturhvarf
til miðalda
Laugarásbíó:
The Hunted (Eftirförin)
Aðalhlutverk: Christopher Lamb-
ert, John Lone, Joan Chen.
★ ★
Á þessum áratug og hinum rnunda
hafa flest ár aðeins ein eða tvær kvik-
myndir frá Asíu náð vinsældum á
Vesturlöndum og þá helst japanskar
eða kínverskar. Kvikmyndataka er þó
mikil í Asíu austanverðri og sunnan-
verðri, á Indlandi meiri en í nokkru
öðru landi. En þar er menningarhefð
önnur, skírskotun til miðaldasagna tíð.
- Kvikmynd þessi, bandarísk (-þýsk),
tekin í Japan, en aðeins með einum
evrópskum leikara, (einum hinum
kunnasta í Hollywood). Leikur sá
mann í viðskiptaerindum, sem tekur
stúlku tali á bar á hóteli þeirra. Að
morgni er hann aðeins rétt kominn út
fyrir dyr herbergis hennar, er leigu-
morðingja ber að, stytta henni aldur
og særa hann. Á sjúkrahúsi er honum
sýnt banatilræði og svo framvegis. - í
mynd þessari er þó ekki vegið með
skotvopnum, heldur með sverðum og
örvum. Virðist henni ætlað að brúa bil
smekks áhorfenda á Vesturlöndum og
í Austur-Asíu, hvemig sem til tekst. ■
aaap&pgg
■ Héðinshúsið fær nýja íbúa
Fróði og Frjálst framtak í sambúð
Bóka- og blaðaútgáfan Fróði hefur nú flutt starfsemi sína bæjarendanna á milli, úr Bíldshöfðanum í Héðinshúsið vestur á
Seljavegi, þar sem bókaútgáfan Iðunn starfaði til skamms tíma. Flutningunum fylgir sameining ritstjómar og aðalskrif-
stofu, þess hluta starfseminnar sem undafarin tíu ár hefur verið til húsa í Ármúlanum. Með Fróða flytur Frjálst framtak,
sem fyrir skömmu fagnaði því að hafa náð að lifa í aldarfjórðung, og ætla þessi tvö fyrirtæki að starfa í sambúð á fjórðu
hæð Héðinshússins frá.