Alþýðublaðið - 15.08.1995, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Hagstæður atvinnuleysisjöfnuður
Mi
Undanfatnar vikur höfum við feng- unum einum saman. Slíkur „lúxus“ er
L
„Hér er komin ný hagfræðiformúia úr fram-
sóknarfjósinu, sem er á þessa leið: Svokallað-
ur atvinnuleysisjöfnuður þjóðarinnar verður
hagstæður ef ríkisvaldið flytur út nógu marg-
ar óánægðar, atvinnulausar og skuldugar fjöl-
skyldur og ef á móti koma aukin höft við inn-
flutningi á erlendu verkafólki."
ið fregnir af því í fjölmiðlum að al-
menningur sé að flýja land í stríðum
straumi. Astandið ininnir helst á
hörmungamar í fyrrum Júgóslavíu þar
sem íbúar hafa nánast verið á flótta
undanfarin fimm ár. En ekki er það
borgarastríð sem hrjáir hina ffiðsælu
íslendinga sem nú þurfa að yfirgefa
átthaga sína. Nei, skýringanna er að
leita í stefnu eða öllu heldur stefnu-
leysi ríkisstjómar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks.
Pallborðið |
Sigurður
Tómas
Björgvinsson
WÉlt Í| skrifar
Ný útflutningsgrein
Samkvæmt nýjustu fféttum þá mun
vera mikil uppsveifla í útflutningi hjá
fyrirtækjum eins og Eimskip og Flug-
leiðum. Það em þó ekki annir vegna
aukins útflutnings á sjávarafurðum
eða iðnaðarffamleiðslu. Nei, ffamtíðin
virðist vera í útflutningi á fólki, svo-
kallaðir búferlaflulningar.
Komið hefur í ljós að það stefhir í
metár hvað varðar flutninga fólks úr
landi. Á síðasta kjörtímabili dró vem-
lega úr landflótta frá íslandi, en nú ótt-
ast menn að í uppsiglingu sé annað
samdráttar- og atvinnuleysistímabil í
líkingu við það sem ríkti á ámnum
1968 til 1970. Á þeim árum flúðu þús-
undir íslendinga atvinnuleysið og leit-
uðu nýrra tækifæra á Norðurlöndum
og sumir fóm alla leið til Ástralíu.
Nýtt vonleysi
Nú ber hins vegar svo við að land-
inn er ekki aðeins að flýja atvinnu-
leysi, heldur einnig lág laun og hátt
verðlag á nauðsynjavömm. Sérhæft
fiskvinnslufólk hefur fregnað að
starfssystkyni þeirra í Danmörku fái
þrefalt hærri laun og þar geti menn lif-
að mannsæmandi lífi á dagvinnulaun-
ekki fyrir hendi hér á landi, þar sem
verkafolk þarf að vinna myrkrana á
milli og er oftast í tveimur til þremur
ólíkum störfum.
Það sem vekur hvað mesta athygli í
fréttunum af þessum nýju íslensku
flóttamönnum, er sú staðreynd að iðn-
aðarmenn og faglært verkafólk segist
vera flýja land vegna þess að það sjái
ekki neina framtíð í því að búa áffam
á Islandi. Þetta fólk sér ekkert fram-
undan í iðnaði og verklegum fram-
kvæmdum. Þetta fólk getur ekki gert
sér von um verulegar launahækkanir á
næstunni. Þetta fólk getur heldur ekki
gert sér neinar vonir um að verðlag á
nauðsynjavörum fari lækkandi, þvert á
móti er það staðfest stefna núverandi
ríkisstjómar að hækka verð á matvör-
um sem mest. Það ríkir fullkomið
vonleysi hjá þjóðinni.
Nýjar blekkingar
Þó svo að afrekaskrá ríkisstjómar-
innar sé afar fátækleg og þvælin þá
skynjar almenningur getuleysið í
stefnunni. Það skortir alla framtíðar-
sýn og kannski ekki við öðm að búast
þegar afturhaldsöflin taka höndum
saman. í stað þess að fjölga nýjum
störfum um 12.000, eins og framsókn-
armenn hafa lofað, þá hafa aðgerðir
ríkisstjómarinnar leitt af sér aukið at-
vinnuleysi. í stað þess að nýta hina
auknu alþjóðlegu samvinnu til hags-
bóta fyrir þegna landsins þá hafa sjálf-
stæðismenn gengið á bak orða sinna
og notfært sér GATT- samninginn til
þess að hækka tolla og torvelda enn
frekar innflutning á matvælum. í stað
þess að leysa vanda skuldugra heim-
ila, eins og lofað var fyrir kosningar,
þá stendur Páll Pétursson bara og
skammast yfir því hvað almenningur
hafi „greiðan" aðgang að peningum.
Er það nema von að fólk flýi land?
Ný hagfræði
En þrátt fyrir þróttleysi ríkisstjóm-
arinnar þá hefúr hún komið frarn með
ýmsar athyghsverðar nýjungar ffam á
sjónarsviðið, sem hagfræðingar ættu
kannski að veita meiri athygh. Nýstár-
legasta hugmyndin er sem sagt að
flytja atvinnuleysið úr landi, með því
að gera íbúum þess lífið fullkomlega
óbærilegt eins og ffam kemur hér að
framan. Þegar þröngsýnin og einangr-
unarhyggjan ráða ferðinni þá sjá hinir
framsýnu íslendingar enga aðra leið
en að flýja land og þar með minnkar
atvinnuleysisvandi ríídsstjómarinnar.
Annað snjallræði, sem að sjálf-
sögðu er ættað ffá PáU Péturssyni, er
að bartna innflutning á erlendu vinnu-
afli til landsins. Utanríkisstefna Fram-
sóknarflokksins felst nefnilega í því
að flytja út óánægða og atvinnulausa
fslendinga, en banna erlendu verka-
fólki að flytjast til íslands. Þessu ætlar
Páll að beita sér fyrir þrátt fyrir að
skortur sé á fiskverkafólki víða á
landsbyggðinni og nokkur sjávarút-
vegsfyrirtæki hafi í raun verið háð er-
lendu vinnuafli. Þá hafa verkalýðsfé-
lögin heldur ekki gert athugasemdir
við þetta starfsfólk.
Hér er komin ný hagfræðiformúla
úr framsóknarfjósinu, sem er á þessa
leið: Svokallaður atvinnuleysisjöfnuð-
ur þjóðarinnar verður hagstæður ef
ríkisvaldið flytur út nógu margar
óánægðar, atvinnulausar og skuldugar
fjölskyldur og ef á móti koma aukin
höff við innflutningi á erlendu verka-
fólki. Vonandi fáum við fleiri bráð-
snjallar hugmyndir af þessu tagi frá
ríkisstjóminni áður en langt um líður.
Höfundur er framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins, Jafnaðarmannaflokks Islands
Það var líf og fjör á laugar-
dagskvöldið þegar Thor
Vilhjálmsson hélt upp á af-
mælið sitt. Margir vinir og
aðdáendur skáldsins heiðr-
uðu það með nærveru sinni.
Líklega hefursjaldan verið
afmælishátíð þarsem svo
margar snjallar tölur voru
fluttar. Meðal ræðumanna
voru Brynja Benedikts-
dóttir leikstjóri, Gísli Sig-
urðsson bókmenntafræð-
ingur, Herdís Þorvalds-
dóttir leikkona, Sigurður
Pálsson skáld, Einar Kára-
son rithöfundur, Halldór
Guðmundsson útgáfustjóri
og Friðrik Þór Friðriksson
kvikmyndaleikstjóri. Snilld-
arflutningur Erlings Gísla-
sonar á kafla úr leikþætti
eftir Thor gladdi líka hlust-
irnar. Þá stigu hinir óborgan-
legu Spaðar á svið og fluttu
nokkur lög með suðuramer-
ískri sveiflu, leiddir áfram af
galvöskum söng Guðmund-
ar Andra Thorssonar. Há-
punktur kvöldsins var náttúr-
lega ávarp afmælisbarnsins.
Thor kvaðst eiga erfitt með
að trúa því að hann væri
orðinn sjötugur; vinir skálds-
ins og júdókappans deildu
þeirri vantrú með honum...
Tíðindi af Morgunblaðinu:
Einar Falur Ingólfsson
hefur verið skipaður yfir-
maður Ijósmyndadeildar
blaðsins, og er þarmeð
langyngsti yfirmaðurinn hjá
blaðarisanum. Einar Falur er
rúmlega þrítugur, menntað-
ur bæði í bókmenntum og
Ijósmyndun, og hefurferð-
ast víða um lönd vopnaður
myndavél og penna...
Háværar umræður fara nú
fram um „kvennakúg-
un" Kvennalistans, í kjölfar
þess að Alþýðublaðib sagði
frá grein Sigríðar Dúnu
Kristmundsdóttur og Ingu
Dóru Björnsdóttur í er-
lendu fræðiriti. í Tímanum á
laugardag er skorinort viðtal
við Sigríði Dúnu þarsem
hún harmar að persóna sín
sé gerð að aðalumræðuefni.
Jafnframt segir hún að
ákveðnar konur falli ekki að
„ímynd" Kvennalistans og
sé þessvegna ekki hleypt
uppá dekk. Sigríður Dúna
segir: „Þær konur sem falla
ekki að myndinni eru til
dæmis barnlausar konur, því
þær hafa ekki reynslu móð-
urinnar, ósiðsamar konur og
„vondar" konur, vegna þess
að ímyndin segir að konur
séu góðar. Ekki heldur lesbí-
ur því kynhneigð þeirra
kemur í veg fyrir að þær geti
fyllt upp í ímyndina." Það er
vandlifað í Kvennó: konurn-
ar verða líka að eiga „rétta"
eiginmenn, eða hreinlega
engan. Sigríður Dúna: „Það
er allt í lagi að eiga engan
eiginmann og eins að eiga
eiginmann sem enginn veit
hver er og blaridar sér ekki í
pólitíska umræðu." Svona
er nú krúttlegt og frjálslegt í
grasrótarflokknum...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson.
Hérna, Smári minn, taktu servíettu. Þú ert með smá
mammút framan í þér.
Guðrún Gunnarsdóttir rit-
ari: Nei, en ég ætla að sjá hana
fljótlega.
Guðný Reynisdóttir eig-
andi myndbandaleigu:
Nei. Ætli ég sjái hana ekki þeg-
ar hún kemur á myndbandi.
Hilmar Jensson nemi: Nei,
en ég hugsa að ég reyni að sjá
hana.
Ingunn Sighvatsdóttir
umboðsmaður: Nei, og ætla
ekki að sjá hana. Mér finnst
hún ekkert spennandi.
Davíð Guðbjörnsson lög-
reglumaður: Nei, ekki enn-
þá. Fer við fyrsta tækifæri.
v i t i m e n n
Eiríki Eyfjörð finnst skítt að hann
skuli aðeins eiga rétt á sjö krónum
úr lífeyrissjóði eftir að hafa greitt í
hann í rúm tvö ár.
Frétt í DV í gær.
Tekjur forstjóra hækkuðu
um 18% milli ára.
Góöæriö loksins komið í leitirnar.
Vikublaöið á föstudaginn.
Ekki skiljum við hversvegna þú
telur það löst á formannsefni
að hafa fylgi langt út fyrir raðir
flokksmanna. Eða að slíkt fylgi
sé til þess fallið að leggja
flokkinn niður.
Fimm stuöningsmenn Margrétar
Frímannsdóttur að svara Einari Gunnarssyni
á síðum Vikublaösins, málgagns Alþýöubanda-
lagsins. Einar skrifaöi haröoröa grein í garö
Margrétar, enda harka tekin aö færast í leikinn.
Greinarhöfundur var eitt sinn
verslunarstjóri hjá Kaupfélagi
Héraðsbúa og heildsalar hringdu í
hann og buðu vaming sinn. Einn af
þeim var Eiríkur Ketilsson, þekkt-
ur heildsali. Hann bauð mér einu
sinni rjóma, með þeim orðum að
þetta værí fínn rjómi, alveg einsog
sá venjulegi, „nema kúnni er
sleppt, þú skilur.“
Jón Kristjánsson ritstjóri og alþingismaöur fór
á kostum í Tímanum á föstudag.
„Kvennabaninn“ vinnur
störf 200 kvenna.
Þessi ógnvekjandi fyrirsögn
var í Mogganum á sunnudag.
Máliö snýst sem betur fer ekki um
stórfelld flöldamorö - heldur nýjar vélar
í rækjuvinnslu.
Sennilegra er að Saddam Hussein
íhugi í alvöru að gera út menn til
að stúta tengdasonunum.
Jóhanna Kristjónsdóttir veltifyrir sér afleiöing-
um hins dramatíska flótta tengdasona Saddams
Husseins til Jórdaníu. Mogginn á sunnudag.
Davíð ekki ósiðlegur.
Fyrirsögn í Mogganum á sunnudag.
Rétt skal vera rétt: Dómari í Hong Kong hefur
kveöiö uppúr meö aö stytta Michelangelos af
Davíö - konungi - sé ekki ósiðleg.
Margir velta því nú fyrir sér hvort
hafið sé nýtt túnabil umtalsverðs
flótta launafólks úr landinu í leit að
atvinnu og bættum kjörum, en slíkt
brotthvarf átti sér síðast stað fyrir
um aldarfjórðungi eða svo.
Elías Snæland Jónsson í leiðara DV í gær.
Vitlaus á
menningarlegur og skella sér á
sjálfa Edinborgarhátíðina? Smelltu
þér á http://www.presence.co.
uk.fringe/ og þú finnur öll gögn.
Hátíðin byrjaði á sunnudaginn og
henni lýkur ekki fyrren 2. septem-
ber; þarna finnurðu allt um málið.
■ Nú geisa ritdeilur á síðum þessa
virðulega blaðs um stríðið á Balk-
anskaga og því er rétt að upplýsa
þá sem vilja alltaf fá nýjustu fréttir
um: http://www.ikon.com/trek/con
voy-bosnia/ ■ Þarna er að finna
glóðvolgar fréttir úr fremstu víg-
línu. ■ Eitt að lokum: Netfræðingar
og -frík deila nú hástöfum um það,
hvort netið muni drepa niður sam-
ræðulistina og gera alla að tölvun-
ördum. úff...
fréttaskot úr fortíð
Dönskátvögl
Danskur maður, Arvid Kvist, hefur
nýlega orðið frægur um öll Bandarík-
in. Hann vann heimsmet með því að
borða 37 stórar pönnukökur á einni
klukkustund. Faðir hans, Anton
Kvist, kom næstur, með 28 pönnu-
kökur. Það vantaði nú bara að
Danimir létu sitt eftir liggja,
þegar um át er að ræða.
Sunnudagsblað Alþýðublaðsins,
9. maí 1937.