Alþýðublaðið - 18.08.1995, Síða 3
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995
ALÞÝÐUBLAÐID
3
s k o d a n
Kynbótatilraunir Höllustaöabóndans
Ég hef komist að þeini niðurstöðu hann almenning um það að stórfelidir
„Nýja aðferðin gengur undir nafninu „Færi-
bandið" og felst í því að færa atvinnulausar,
mannbærar, einhleypar stúlkur úr „spilling-
unni" í Reykjavík yfir í fisk og fléttusaum á
landsbyggðinni."
að við Páll Pétursson erum tengdir.
Það er ekki einungis að við séum
tengdir átthagaböndum úr Norður-
landi vestra, heldur virðast einnig
liggja sterkir andlegir straumar okkar í
millum.
Eins og glöggir lesendur muna þá
skrifaði ég um nýjasta snjallræði Páls
og félaga hans í Framsóknarflokknum
síðastliðinn þriðjudag. Þar leitaðist ég
við að setja aðgerðir félagsmálaráð-
herra, er snúa að landflótta íslending-
Háborðið
i——--------------------*
ggte, Sigurður
Björgvinsson
skrifar
um og andúð á erlendu vinnuafli, upp
í einfalda hagfræðiformúlu. Það var
auðvitað engin tilviljun að sama dag
var hinn andlegi vinur minn mættur á
Rás 2 til þess að útskýra þessi sömu
vísindi fyrir þjóðinni. Þá áttaði ég mig
hins vegar á því að hér er ekki um að
ræða neina einfalda reikningsaðferð,
heldur eru þessar aðgerðir hluti af vel
ígrundaðri hugmyndafræði Höllu-
staðabóndans.
Hreinskilni
Félagsmálaráðherra fór semsé á
kostum í áðumefndu útvarpsviðtali. f
stað þess að snúa út úr og þvæla mál-
ið, eins og sönnum framsóknarmönn-
um sæmir, þá lét Páll í ljós ákveðna
skoðun - og útskýrði hana meira að
segja. Hlustendur áttu auðvitað ekki
von á því að félagsmálaráðherrann
væri í raun og venr á móti atvinnu-
ffelsi útlendinga á íslandi, heldur væri
þetta enn ein tilraunin til þess að mót-
mæla tilvist EES- samningsins, sem
felur í sér áðumefhd réttindi allra íbúa
Evrópska efhahagssvæðisins.
En Páll þurfti hvorki að minnast á
EES né Jón Baldvin. Með gömlu
bændahagfræðina að vopni upplýsti
nauðungaflutmngar væm ffamundan a
ákveðnum þjóðfélagshópi hér á landi.
Félagsmálaráðherrann sagði það full-
um fetum að hann ætlaði að eyða at-
vinnuleysisvandanum sem þegnar
landsins hafa sjálfir komið sér í, með
því að flytja „atvinnuleysingja" frá
Reykjavík til Vestfjarða, eða á þá
staði sem enn er vinnu að fá.
Við skulum gefa Páli sjálfum orðið:
„.. .ég vil láta reyna á það hvort eitt-
hvað af þessu fólki er ekki fáanlegt til
þess að vinna í fiski. Ég er ekki að
ætlast til þess að það sé farið að taka
upp fjölskyldur eða sundra þeim, en á
aldrinum 16-25 ára er mjög stór hópur
af þessum atvinnuleysingjum og það
er nú yfirleitt einhleypt fólk og ég sæi
ekkert eftir því að fara vestur á Flat-
eyri eða aðra staði úti á landi og vinna
þar um tíma.“
Og enn heldur okkar maður áffam:
„.. .mér finnst vel vera bjóðandi upp á
það fýrir einhleypt ungt fólk að dvelja
tímabundið annars staðar heldur en
héma [í Reykjavík]. Það er byggilegur
heimur jafnvel handan við Élliðaám-
ar.“
Þrátt fyrir þá staðreynd að hægt sé
að segja ýmislegt misjafnt um Pál Pét-
ursson félagsmálaráðherra, þá verður
það aldrei frá honum tekið að hann er
afskaplega hreinskilinn.
Vistarbandiö.
En hver er eiginlega gmnntónninn í
þessum kynlegu viðhorfum ráðherr-
ans? Það þarf engan djúpsálarfræðing
til þess að svara því. Ráðherra vinnu-
mála og sveitarstjóma veit að það get-
ur verið stórhættulegt að hleypa út-
lendum spekúlöntum á besta aldri inn
í landið undir því yfirskini að þeir ætli
sér að vinna í fiski. Þessir menn gætu
flengst hér og jafnvel blandast í hinum
,Jireina“ íslenska kynstofni. f þessum
hópi gætu verið Hansakaupmenn,
Flandrarar, Spanjólar og jafnvel blá-
menn, svo ég noti hugtök úr samtfma
Páls Péturssonar.
Páll veit að lausnin er fólgin í ein-
hleypu kvenfólki á barneignaraldri
sem nú dvelst í aðgerðarleysi í
Reykjavík. Mannfræðingar sem rann-
sakað hafa hegðun íslenskra heima-
sæta hafa sagt Páli frá því að mun
fleira kvenfólk búi í Reykjavík en
karlar og hlutföllin séu hins vegar al-
veg öfug á landsbyggðinni. Þetta kem-
ur heim og saman við reynsluheim
Páls frá Höllustöðum, því bóndinn á
næsta bæ „missti" allar sínar dætur í
hákskólanám til Reykjavíkur á meðan
miðaldra synir bóndans á þamæsta bæ
hafa dvalið þar einir með sjálfum sér
og nokkrum skjátum í 60 ár.
Þessi örlög karlpenings á lands-
byggðinni má rekja til þess þegar stór-
bændur, á borð við Pál, þvinguðu
unga vinnumenn til þess að vera í
fastri vist hjá sér, til þess að koma í
veg fyrir það að missa gott vinnuafl á
mölina. Þessi framsóknaraðferð gekk
undir nafninu vistarbandið og var ætl-
að að koma í veg fyrir eðlilega þétt-
býlisþróun á íslandi.
Færibandið
Núverandi félagsmálaráðherra ætlar
ekki einungis að stöðva hjól nútímans
- hann ætlar að snúa því til baka í
þeirri viðleitni að bæta fyrir mistök
forfeðra sinna sem nú eru að skila sér í
skelfilegu kvenmannsleysi á lands-
byggðinni. Nýja aðferðin gengur undir
nafhinu „Færibandið" og felst í því að
færa atvinnulausar, mannbærar, ein-
hleypar stúlkur úr „spillingunni" í
Reykjavík yfir í fisk og fléttusaum á
landsbyggðinni.
Framsóknarmenn eru vanir kynbót-
um, enda hafa þeir eytt stærri hluta af
almannafé í tilraunafjárhús í afdölum
heldur en í fæðingardeildir í þéttbýl-
inu. Þess vegna finnst Höllustaða-
bóndanum upplagt að senda í tilrauna-
skyni eins og 200 menntakonur vestur
á firði til þess að láta á það reyna
hvort þær séu ekki fáanlegar til þess
að vinna fisk við færibandið í ein-
hverju frystihúsinu. Tíminn verður
svo að Ieiða það í ljós hvort þær muni
ekki para sig við einhvem vikapiltinn
áður en fengitíminn byijar?
Hugmyndafræði Höllustaðabónd-
ans er því óðum að taka á sig ákveðna
heildarmynd. Inntakið í henni er á þá
leið að skuldugar fjölskyldur skulu
hraktar á flótta úr landi, blámenn
skulu stöðvaðir í tollinum þannig að
nauðsynlegt verði að flytja atvinnu-
lausar, einhleypar stúlkur í fiskvinnslu
vestur á Flateyri. Er ekki kominn tími
til að félagsmálaráðherra verði leystur
úr hlekkjum hugarfars baðstofumenn-
ingarinnar?
Höfundur er framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins, Jafnaðarmannaflokks íslands.
Pólitísk lognmolla hefur
einkennt sumarið, ef frá
eru talinn formannsslagur
allaballa, en nú er útlit fyrir
að stjórnmálamennirnir okk-
ar séu að rakna úr rotinu.
Þannig er nú vaxandi ólga
innan Framsóknarflokksins
vegna þeirra áforma Finns
Ingólfssonar að breyta rík-
isbönkunum, Búnaðarbanka
og Landsbanka, í hlutafélög.
Fáum blandast hugur um,
að þess verður skammt að
bíða að annar bankinn að
minnsta kosti verði seldur,
og innan Sjálfstæðisflokks-
ins er mikill vilji fyrir því að
selja báða bankana. Guðni
Ágústsson oddviti Fram-
sóknar á Suðurlandi hefur
nú lýst yfir einarðri andstöðu
við málið, og vill ekki einu
sinni leyfa Finni flokksbróður
sínum að breyta bönkunum í
hlutafélög, hvað þá selja þá.
Búnaðarbankinn er Guðna
einkar kær enda hefur hann
verið bankaráðsmaður, og
þar lærði hann vaxtapólitík-
ina sem hann lenti í hnipp-
ingum útaf við Steingrím
Hermannsson um árið. En
semsagt: Búist er við að
ýmsir þingmenn Framsókn-
ar berji í borðið...
Ekkert lát er á sigurgöngu
Steingríms J. Sigfús-
sonar í Alþýðubandalaginu,
en hann fer mikinn þessa
dagana. í gær lýsti Ulfar
Þormóðsson yfir stuðningi
við Steingrím í blaðagrein í
DV. Það munar um minna...
Asunnudaginn verður
Iðnó opið frá klukkan
tvö, en þar stendur yfir
myndlistarsýning Óháðrar
listahátíðar. Um kvöldið
heldur Hörður Torfason
tónleika og hefjast þeir
klukkan 20:30. Auk sýningar-
innar í Iðnó eru myndlistar-
sýningar á vegum hátíðar-
innar á Kaffi Org, 22, í Ráð-
húskaffinu, Listakoti, Stöðla-
koti, Hinu Húsinu og Djúp-
inu...
Oháð listahátíð opnar í
dag og stendurtil 3.
september. Á morgun verða
10 klukkustunda risatónleik-
ar á Ingólfstorgi, þar sem
fram koma meðal annarra
hljómsveitirnar Unun,
Olympía, Kolrassa krókríd-
andi og Leiksvid fáránleik-
ans. Tónleikarnir hefjast
klukkan eitt og standa til
klukkan ellefu um kvöldið...
h i n u m e g i n
Björn Sigurjónsson nemi:
Ég veit það ekki, en ég veit alla
vega hvaða flokka ég kysi
ekki.
Pálína Eggertsdóttir
starfsmaður leikskóla: Að
sjálfsögðu Sjálfstæðisflokkinn
aif því allir hinir eru andstyggi-
legir.
Sigurveig Hafsteinsdóttir
þroskaþjálfi: Sjálfstæðis-
flokkinn af því þeir hafa staðið
við öll sín markmið.
Sigríður Sunna Þorsteins-
dóttir nemi: Alþýðuflokkinn
af því mér líst svo vel á stefnu
hans í Evrópumálum.
Helgi Guðbjartsson sölu-
maður: Sjálfstæðisflokkinn.
Þeir eru bestir.
Mjög fanatískur
gegn reykingum.
Steinar Waage skókaupmaöur
í Tímanum og selur þess vegna bara
Camel til aö ganga á.
Skóli fyrir innfædda.
Björn Bjarnason menntamálaráöherra
hefur staðfest ákvöröun rektors MR um aö synja
nemendum úr Garðabæ um skólavist.
Heimsþekktar náttúruperiur.
Morgunblaðiö lýsir þeirri skoðun sinni í leiöara
í gær að nýja sveitarfélagiö á Suöurnesi skuli
heita Keflavík sem sé álíka þekkt nafn og
Geysir og Hekla utan landsteinanna.
Ég hef margreynt það.
Þegar breski leikarinn Gary Oldman var
spuröur hvers vegna hann skildi viö Umu
Thurman svaraöi hann: Reyndu sjálfur aö
búa meö engli. Þetta stóð í Mogganum
og ekki lýgur hann.
Þeir þurfa væntanlega
ekki tilvísun.
Lára Margrét Ragnarsdóttir
heiöursþingmaður Heimdallar segir
í Tímanum aö þaö megi athuga þaö að taka
viö erlendum flóttamönnum.
Ekki útlendingar
heldur Pólverjar.
Viö erum heldur ekki að útiloka
útlendinga heldur höfum við einungis
neitaö fyrirtækjum að flytja inn
fáeina Pólverja, segir Páll íslendingur
Pétursson í DV í gær.
En það seinna
var þrumugott
Fyrra markiö var slæmt,
segir Ásgeir þjálfari í Mogganum
eftir tapiö gegn Sviss.
Égmissti
af boltanum.
Kristján Jónsson varnarmaöur
útskýrir hvers vegna Svissara skoruöu.
Mér hefur alltaf
líkað afskaplega vel
við þetta fólk.
Þetta segir Jósteinn Kristjánsson
á l_A Café um Tælendinga sem hann
ætlar aö útiloka frá staðnum.
I’am
surprised.
Lars Ake Langrell formaöur
sænska knattspyrnusambandsins í viðtali
viö Helgarpóstinn um baráttukveðjur
FIFA til svissneska landsliösins.
Ég er steinhissa.
Eggert Magnússon formaöur KSÍ
í viötali viö sama blaö af sama tilefni.
Gerí öllum útlendingum
jafn lágt undir höfði.
Við ætlum aö miöa viö 25 ára
aldurstakmark hvort sem það er
Tælendingur, Indverji, Pakistani eöa
Ameríkumaöur, segir Jósteinn Tælendingavin-
ur. íslendingar eru undanþegnir þessum
lágmarksaldri á LA Café.
fréttaskot úr fortíð
Hefiidföður
Bræðumir Edward og Robert Allister
í Detroit erfðu nýlega föður sinn.
Hann hafði skilið eftir sig skóbúð, en
enga peninga. f búðinni vom 28.000
pör af skóm og það var stranglega
tekið fram í erfðaskránni að Robert
ætti að erfa alla hægrifótarskóna en
Edward vinstrifótarskóna. Þetta var
hefnd föðurins fyrir það, að synir
hans höfðu ekki látið sig hag hans
nokkm skipta um mörg ár.
Sunnudagsblað Alþýðublaðsins,
9. maí 1937.