Alþýðublaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 8
» *
WfflEVÓtZ/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Fimmtudagur 21. september 1995
143. tölublað - 76. árgangur
► *
'mmiLU
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Verð i lausasölu kr. 150 m/vsk
■^Formannskjörið í Alþýðubandalaginu
Eg er hóflega
bjartsýnn
- segir Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður.
„Þetta er kosning sem fram fer á rétt-
um forsendum. Það er verið að velja á
milli einstaklinga til þess að gegna til-
teknu embætti. Það hefur farið eins og
ég sagði strax í byijun að það væri eng-
in sérstök ástæða til að reyna að lesa
einhvem málefnaágreining inn í þessa
kosningu," sagði Steingrfmur J. Sig-
fússon alþingismaður í samtali við Al-
þýðublaðið.
.fyrir utan það að vera ágætis um-
ræðuvettvangur um stjómmál og áhersl-
ur og vinstri stefnu þá em þessir kynn-
ingarfundir gott tækifæri fyrir flokks-
menn að kynnast þessum einstakling-
um, heyra þeirra sjónarmið og áherslur
og spyija þá út úr. Það er ffekar fundar-
manna sjálfra að átta sig á því hvort það
kristallast einhver áherslumunur sem
þeir geia eitthvað með. Ég vil koma því
að af gefnu tilefni að á fúndinum á Þórs-
höfn vom um 20 manns sem er gott á
þessum árstíma þegar fólk er önnum
kaftð við haustverkin," sagði Steingrím-
ur.
Hefur ekki komiðfram einhver gagn-
rýni áflokkinn áþessum fundum?
, Jú, það kemur stundum upp og allt í
lagi með það. Við emm hins vegar ekki
með Ólaf Ragnar með okkur þannig að
það er ekki sanngjamt að fara mjög
Iangt út í þær sakir nema hann sé til
svara því honum er málið skylt sem
ábyrgðaraðili fyrir flokknum síðustu
átta árin. í öðm lagi hef ég margsagt að
ég ætla ekki að nota mikið af tíma mín-
um á fundum eða í viðtölum við fjöl-
miðla til að taka innan úr flokknum og
bera erfiðleika hans á torg á opnum
fundum. Það yrði ekki mjög uppbyggi-
leg aðgerð ef við báðir frambjóðendur
notuðum allan tíma okkar í slíkt.“
Hefur þú tilfinningu fyrir því hvemig
að landið liggurfyrirformannskjörið?
,Ég er nú ekki mikið að velta því fyr-
ir mér og er ekki upptekinn af því. Mitt
framboð á sér ákveðinn aðdraganda og
sú ákvörðun var tekin fyrir alllöngu. Ég
er ágætlega bjartsýnn og tel mig fá góð-
ar viðtökur og mæta stuðningi mjög
víða. Ég er ánægður með hvernig þetta
hefur þróast í heild og þær undirtektir
sem ég fæ. Mér finnst hins vegar skipta
mestu máli að þetta skuli vera á góðri
leið með að heppnast mjög vel fyrir
flokkinn. Okkur er að takast að halda ut-
Steingrímur: Ber ekki erfiðleika
flokksins á torg.
an um þetta sjálf og hafa baráttuna á
málefnalegum og uppbyggilegum nót-
um. Þar með afsannast hrakspár um að
Alþýðubandalagið myndi skiptast upp í
stríðandi fylkingar ef að þessi kosning
færi fram. Frá byijun hef ég beitt mér
fyrir því að þetta yrði svona. Eins og þið
Ijölmiðlamenn vitið hef ég verið afar
tregur til að fara að leita uppi einhvem
ágreining milli okkar Margrétar eða fall-
ast á einhveijar skilgreiningar um arma
og fýlkingar. “
Telur þú að fólk sé almennt búið að
gera upp hug sinn?
„Já, ég hugsa að mjög margir séu
búnir að gera það upp með sjálfum sér.
Á síðustu vikum hafa margir hvíslað því
að mér að þeir væiu búnir að ákveða sig
en ætluðu að hafa það fyrir sig. Það er
kannski frekar óvissa um nýtt fólk sem
er að koma til okkar.“
Ertu bjartsýnn á sigur?
,Já, ég er hóflega bjartsýnn," sagði
Steingrímur J. Sigfússon.
Ríó SAGA
hefst á ný laugardaginn 7. október
Þeir eru mættir aftur fullir af fjöri, Ágúst Atlason, Helgi Péturs og ÓIi Þórðar, og
fara á kostum í upprifjun á því helsta úr sögu Ríó triós.
Sigrútt Eva Ármannsdóttir slær á létta strengi með þeim félögum,
tekur lagið og verður til alls vís.
Kvöldið hefst með þríréttaðri, glæsilegri máltíð. Síðan hefst hin óborganlega Ríó saga
með tilheyrandi söngi og gríni. Einnig koma fram hljóðfæraleikararnir Björn
Thoroddsen, Szymon Kuran og Reynir Jónasson. Að skemmtidagskrá lokinni leikur
danshljómsveitin Saga Klass fram á nótt ásamt söngvurunum
Sigrúnu Evu Ármannsdóttur og Reyni Guðmundssyni.
Pantanir og upplýsingar í síma 552 9900.
Kytiniðykkur sértilboð á gistingu á Hótel Sögu.
-þín saga!
■ Formannskjörið í Alþýðubandalaginu
Tel að við séum
nokkuð jöfn
- segir Margrét Frímannsdóttir alþingismaður.
„Þessir framboðsfundir hafa gengið
mjög vel. Þetta hafa verið skemmti-
legir fundir og mæting nokkuð góð,
jafnvel klukkan hálf ellefu á morgn-
ana. Umræður hafa verið líflegar og
ég verð þess vör að formannskjör með
þessum hætti skilar ákveðnu lífi inn í
tlokkinn," sagði Margrét Frímanns-
dóttir alþingismaður í samtali við Al-
þýðublaðið.
Frambjóðendur Alþýðubandalags-
ins til formanns flokksins eru nú á
lokaspretti sameiginlegra kynningar-
funda um landið. Næstu fundir verða á
Akranesi, Grundarfirði, í Vík, á Sel-
fossi og í Vestmannaeyjum. Síðasti
fundurinn verður í Reykjavík næst
komandi mánudag.
Hvernig ftnnst þér þín staða vera
það sem komið er?
„Ég verð ekki vör við annað en hún
sé jiokkuð góð, en það er erfitt fyrir
mig að meta þetta. Þó tel ég að við sé-
um nokkuðjöfn."
Er ekki svolítið erfitt að halda uppi
kosningabaráttu ef lítið skilur ykkur
að hvað varðar málefni?
„Nei, það er ekki svo. Fólk býst
ekki við því að það séu nein stór skil á
milli okkar. Það er kannski fyrst og
fremst um áherslumun að ræða og
eins það sem lítur að flokksstarfinu.
Þar er ákveðinn munur á og þá eink-
um hvað varðar hlutverk varafor-
manns. Ég vil gjaman sjá hann sem
launaðan starfsmann flokksins sem sér
alfarið um innra starf og það útilokar
að sjálfsögðu ákveðinn hóp, það er að
segja þingmenn flokksins og jafnvel
borgaifulltrúa. Ef farið yrði að þessari
tillögu minni þá útilokar það alla vega
þennan hóp frá varaformennsku. Aftur
á móti telur Steingrímur það ekki
verra að varaformaðurinn komi úr
röðum þingmanna."
Það hlýtur að skipta miklu hvemig
fylgið skiptist (Reykjavík. Fór ekk’i þín
barátta seint á stað því það er stult
stðan stuðningsmenn þínir opnuðu
þar skrifstofu?
„Reykjavík ræður úrslitum. Þessi
opnun skrifstofu er ekki merki um að
þá fyrst væm menn að byija að vinna,
Alls ekki. Það vantaði íýrst og fremst
einhvem stað til að hittast á og ræða
saman. Ég hef orðið vör við talsvert
mikinn stuðning í Reykjavík og þar er
Margrét: Þingmaöur verði ekki
varaformaður.
ekki um ræða þessar gömlu skiptingar
innan flokksins í Reykjavík. Fylgið
virðist dreifast milli félaga og aldurs-
hópa.“
Hefur þú það á tilfinningunni að
fólk sé almennt búið að gera upp hug
sinntilframbjóðendanna ?
,Ég held að það sé að því um þessar
mundir. Þann 29. september koma at-
kvæðaseðlamir og ég tel að fólk sé
óðum að gera upp hug sinn þessa dag-
ana. En mín tilfinning er að þetta
standi nokkuð jafnt.“
Er ekkert í augsýn sem skerpir skil-
in á milli ykkar eða hleypir meirafjöri
í baráttuna?
„Þetta hefur verið skemmtilega fjör-
ugt þó að það hafi ekki verið hávaða-
deilur. Það hafa verið ágæt skoðana-
skipti á fundunum bæði okkar í mill-
um og milli okkar og fundarmanna.
Ég býst við að stærsti fundurinn verði
í Reykjavík."
Hefur fólk ekki verið eitthvað að
kvarta um stefnu flokksins eða stefiiu-
leysi?
„Það hefur komið mér á óvart hvað
það hefur verið lítið um það en vita-
skuld hafa komið fram kvartanir.
Menn hafa talið að við þyrftum að
skerpa línur í einstökum málaflokkum
og svo varðandi innra starf flokksins.
Síðan höfum við auðvitað lent í þess-
ari umræðu um kjaramál þingmanna.
Þó hefur það ekki verið eins mikið og
ég bjóst við því fjölmiðlar hafa verið
að fara með rangar tölur. Þegar búið er
að skýra út hvað um er að ræða í raun
og veru þá er þetta ekki eins mikið
hitamál og maður hafði búist við,“
sagði Margrét Frímannsdóttir.