Alþýðublaðið - 16.11.1995, Side 8

Alþýðublaðið - 16.11.1995, Side 8
Fimmtudagur 16. nóvember 1995 175. tölublað - 76. árgangur Verð I lausasölu kr. 150 m/vsk ■ Böðvar Guðmundsson um nýja skáldsögu og rithöfundastarfið Bilað fólk sem fæst við þetta starf Híbýli vindanna - skáldsaga um vesturfarana er nafn á nýrri skáldsögu eftir Böðvar Guðmundsson, en þar segir af Ameríkuferðum Islendinga á ofanverðri síðustu öld. Böðvar er bú- settur í Kaupmannahöfn og Alþýðu- blaðið sló á þráðinn til hans þangað. Er verkið sannsögulegt að ein- hverju leyti ? „Við getum sagt að það sé sannsögulegt að því til að mikið er sótt í bréf frá Vestur íslending- um. Sumar sögupersónur eiga sér fyrirmyndir," sagði Böðvar. ,3fhið hef ég hugsað töluvert um á síðastliðnum árum. Ég hafði eiginlega aldrei hugsað neitt um Vestur- fslendinga, en fyrir tilvilj- un fór ég til Kanada og kynntist þar góðu fólki. Þar rifjaðist upp fyrir mér að langafi minn og lang- amma höfðu á sínum tíma flust til Kanada þannig að ég á þar heilmikið af ættingjum, sem að vísu eru nú orðnir fjarskyldir. Síðan fór ég aftur til Kanada og ferðaðist um íslendinga- slóðir. Áhugi minn var vakinn og ég fór að safna saman bréfum sem fóru á milli langafa- og langömmu í Kanada og afa míns hér heima. Þetta eru göm- ul bréf og í þeim er mikið söguefni." Eru hugmyndir að fleiri verkum að gerjast innra með þér? „Bókin sem nú kemur út er fyrri hluti stórs verks. Ég er að vinna að seinna bindinu. Ef allt gengur sam- kvæmt áætlun vonast ég til að verða búinn með það næsta haust.“ Viðtökur nú hljóta að skipta máli Híbýli vindanna, eftir Böðvar Guðmundsson, er fyrri hluti stórs skáld- verks um Ameríkuferðir Islendinga á síðustu öld. fyrirframhaldið, eða hvað? „Ef ekkert einasta eintak selst fyrir þessi jól þá finnst mér ekki trúlegt að forlagið vilji gefa út annað bindi.“ Ertu nokkuð á leiðinni heim til að fylgja bókinni eftir? „Nei, ég er nú ekki á leiðinni heim. Maður er svolítið langt í burtu, því miður. En það er nú eins og það er, það er dýrt að fara yfir höfin. Flug- miðin kostar svona helminginn af því sem maður fær fyrir skáldsögu." Já, er rithöfundastarfið svo illa launað starf? „Það er ekki betur iaunað starf en svo að það er bara bilað fólk sem fæst við það,“ sagði Böðvar Guðmundsson að lokum. Ráðstefna að Hótel Lind Alnæmi og andlegur stuðningur „Það er gott fólk sem vinnur að þessum málum hér en alltaf spuming hvort nóg er að gert. Alla vega þótti ástæða til að fá þennan sænska prest hingað sem hefur ámm saman unnið við sálgæslu fyrir alnæmissjúka og að- standendur þeirra til þess að segja okkur frá því starfi,“ sagði Garðar Guðjónsson kynningarfulltrúi Rauða krossins í samtali við blaðið. Alnæmissamtökin, Rauði kross ís- lands og fræðslu- og þjónustudeild Þjóðkirkjunnar gangast fýrir ráðstefnu á fbstudaginn um alnæmi og andlegan stuðning. Ráðstefnan verður að Hótel Lind og stendur frá klukkan 10 til 17. Meðal frummælenda á ráðstefnunni verður Lars-Olof Juhlin prestur og alnæmisráðgjafi frá Malmö í Svíþjóð. Hann ræðir meðal annars um sálgæslu meðal HlV-jákvæðra og alnæmis- sjúkra og siðfræðileg sjónarmið í af- stöðu til þeirra. Aðrir fmmmælendur verða Haraldur Briem yfirlæknir á Borgarspítalanum, Petrína Ásgeirs- dóttir félagsráðgjafi á Borgarspítalan- um og Jóna Lísa Þorsteinsdóttir guðfræðingur. Þeir sem vilja taka þátt í ráðstefnunni þurfa að tilkynna þátt- töku til skrifstofu Rauða krossins. Félagsmálaráðherra Grænlands Heldur fyrirlest- ur í kvöld Félags- og atvinnumálaráðherra grænlensku heimastjómarinnar, frú Bencdikte Thorsteinsson, er í heim- sókn hér á landi þessa dagana. í kvöld klukkan 20.30 heldur hún fyrirlestur í Norræna húsinu á íslensku um Græn- land, fólkið í landinu, stjórnmál og framtíðarhorfur. Fyrirlesturinn er á vegum Grænlensk-íslenska félagsins. Einnig verður sýnt stutt myndband frá Grænlandi. Ljósmyndasýning í Myndási Ur litabókinni í dag opnar Kristján Logason ljós- myndasýningu í ljósmyndamiðstöð- inni Myndási Laugarásvegi I. Þetta er fjórða einkasýning Kristjáns en auk þess hefur hann tekið þátt í þremur samsýningum. Að þessu sinni er við- fangsefnið leikur að litum og formi. Allar myndirnar eru teknar á lit- skyggnur og sérstaklega stækkaðar af Ljósmyndaþjónustu Egils til að ná fram sem bestum litgæðum. Sýningin stendurtil 15. desember. Opinn fundur BSRB Frá velferð til ölmusu Opinn fundur verður á vegum BSRB að Grettisgötu 89 á föstudag klukkan 9-11 undir yfirskriftinni: Frá velferð til ölmusu. David Thorp framkvæmdastjóri PSA á Nýja Sjá- landi flytur erindi á fundinum um reynsluna af umfangsmiklum og um- deildum breytingum á ríkisrekstri þar í landi. PSA er samtök starfsfólk ríkis og sveitarfélaga og stærsta verkalýðs- félag landsins. Að erindinu loknu verða fyrirspumir og almennar um- ræður. Fyrirlestur Thorps verður túlk- aður á íslensku og eru allir velkomnir. Aðgangur er ókeypis. Mikill áhugi var á fundinum og komust færri að en vildu. ■ Mikill áhugi stúdenta á fundi um trúarbrögð og bókabrennur „ Það er verið að ræna KHsti" -sagði Davíð Þór Jónsson á mjög fjölmennum fundi með Snorra Óskarssyni í Betel. „Stærsti gallinn við sértrúar söfnuði er sá að þeir hafa getað rekið áróður haturs og mannfyrirlitningar í Jesú nafni á einhvem undarlegan hátt. Þeir eru hneykslunargjamir, sem lýsir sér í því að ef þeim líkar ekki eitthvað brenna þeir það á báli. Um það segir í Mattheusarguðspjalli: Ef hægra auga þitt hneykslar þig þá ríf það út og kasta því frá þér, því að betra er þér að einn lima þinna tortímist en að öllum líkama þínum verði kastað í helvíti. - Betelingar ættu því ekki að stunda bóka- eða geisladiskabrennur heldur augna- og eyrnabrennur samkvæmt orðum frelsarans," sagði Davíð Þór Jónsson guðfræðinemi á gríðarlega fjölmennum fundi háskólafélagsins Vöku í gær. Davíð Þór og Snorri Óskarsson í Betel í Heimaey voru frummælendur: tilefni fundarins vom fréttir af stórfelldum bóka- og geisla- diskabrennum í Eyjum. Stúdentar og aðrir áhugamenn troð- fylltu stofu 101 í Odda og má ætla að nokkuð á þriðja hundrað hafi sótt fundinn, auk fulltrúa ffá flestum fjöl- miðlum landsins. Frétt Alþýðublaðsins á þriðjudag í síðustu viku um brennur á bókum og geisladiskum í Heimaey hefur vakið mikla athygli. En fleira var til umræðu en brennumál Betelinga á fundinum í gær, meðal annars afstaða Snorra Óskarssonar til samkynhneigðra - eða „kynvillinga" einsog trúarleiðtoginn kallar þá. Snorri sagði að vestur í Bandaríkjunum hefðu „kynvillingar" fengið „lækningu" með því að ganga guði á hönd. Snorri sagði ennfremur að íslandi væm árlega framkvæmdar 800 fóstur- eyðingar, og sagði að þar væri um „morð“ að ræða. Davíð Þór ræddi ítarlega um sértrúarsöfn- uði, og sagði meðal annars: ,Ætli það sé ekki þessi einkaréttur á dauða Jesú, á frelsuninni og á fyrirgefningu syndanna, sem þetta frelsaða lið hefur áskilið sér sem er það ljót- asta sem það hef- ur gert. Það er verið að ræna Kristi, sem tók sér stöðu mitt á meðal hinna út- skúfuðu og blandaði geði við þá; sem elskaði alla og fyrirgaf öllum; sem var náungakærleik- urinn og bróðurþelið holdi klætt; sem gaf allt og endingu sjálfan sig til að við mættum lifa.“ Snorri Óskarsson sagði að fjölmiðl- ar hefðu dregið upp af sér þá mynd hann væri æsingamaður - það væri al- rangt; hann boðaði einungis orð Jesú Krists, tært og ómengað. Snorri Óskarsson messar yfir háskólastúdentum: „Fjöl- miðlar draga upp þá mynd af mér að ég sé æsingamað- ur. Það er ekki rétt." ■ Breyttsiglingakerfi Eimskips f I utn i ngstím i Styttri Ákveðið hefur verið að gera um- talsverðar breytingar á siglingakerfi Eimskips í Evrópusiglingum. Mark- miðið er að bæta þjónustu við við- skiptavini félagsins og auka sam- keppnishæfni fslands á tímum vax- andi alþjóðasamkeppni. Áætlunarskipum í Evrópusigling- um verður fjölgað úr fjórum í sex. Tvö þessara skipa munu sigla norður fyrir land og hafa viðkomur á Isaftrði, Ákureyri og Eskifírði á leið sinni til Færeyja, Bretlands og meginlands Evrópu. Tvö skip munu sigla beint frá Reykjavík og Vestmannaeyjum til Bretlands og meginlandsins. Þar til viðbótar munu tvö skip sigla frá Reykjavík til Hamborgar og Skandin- avíu með viðkomu í Færeyjum. Eftir þessar breytingar verður Eimskip með eitt sldp eingöngu í strandsigl- ingum, en auk þess verða landflutn- ingar félagsins efldir enn frekar. Am- eríkusiglingar félagsins verða óbreyttar þar sem tvö skip eru í hálfs- mánaðarlegum siglingum. Með breyttri siglingaáætlun mun þjónusta við þéttbýlisstaði úti á landi aukast og mun flutningstími frá höfn- um úti á landi til erlendra hafna stytt- ast verulega eða frá 7-10 dögum nið- ur í 4-6 daga. Auk þess verður hægt að flytja vörur frá Bretlandi og meg- inlandi Evrópu beint til viðkomustaða hér á landi. í janúar 1996 verða strandsiglingar og millilandasiglingar tengdar saman og munu tvö skip annast þær sigling- ar. Breytingar á siglingum annarra áætlunarskipa verða gerðar í maí á næsta ári þegar tvö ný gámaskip bæt- ast í skipastólinn.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.