Alþýðublaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ1996 ALÞÝÐUBLAÐK) 5 i ð t a I Tónlistin gefur mér lífsfyllingu. Hún auðgar bæði andann og hugmyndaflugið og hún er svo ögrandi - þú getur alltaf gert betur. Þegar maður æfir eitthvert verk er það áskorun um fullkomnum, sem maður nær aldrei. legur í okkar lífi.“ Inga Asta veltir vöngum yfir því hvort fólki almennt þyki þau orð sem oftast eru notuð til að lýsa persónu Péturs ekki nógu jákvæð. „Mér fmnst svolítið skrýtið, að það er stundum sett fram með neikvæðum formerkjum að hann sé hógvær og vammlaus. Þeim kostum hans, sem ég féll fyrir, var stillt upp sem göllum af sumu fólki. Því er ég enganveginn sammála, en þetta mun þjóðin dæma um. Punktur.“ En eru þau ólíkar persónur, Pétur og lnga Ásta? „Ég virka kannski opnari en Pétur,“ segir hún. „Við erum ákaflega ólík. Pétur talar gott íslenskt mál og hugs- unin í hverri setningu sem hann segir kemur oftast fullmótuð. Mér er gjamt að segja hlutina jafnóðum og ég hugsa þá. Við Pétur bætum hvort annað upp, og er það ekki best í hverju hjóna- bandi? Við erum samrýnd og samstiga og höfum yfirleitt sömu skoðanir á hlutunum, en erum samt ólíkar per- sónur.“ Vildi helst vera á skóla- bekk alla ævi Áhugamálin eru mörg, einsog þegar hefur komið fram: hestamennska, skíði og tónlist til dæmis. Hvað fleira? „Allt, sem menntun er fólgin í, heillar mig. Helst vildi ég vera á skólabekk alla ævi, og undanfarin ár hef ég verið að læra meira í tónlist. Við vinkonumar í saumaklúbbnum er- um líka hættar að nenna að sauma en förum í staðinn á endurmenntunar- námskeið í Háskólanum. Á eftir för- um við svo á kaffthús, svo þetta hefur verið bæði skemmtilegt og fróðlegt. Við fómm á námskeið sem Hjörleifur Sveinbjömsson var með um samtíma- sögu Villtra svana og annað hjá Vil- hjálmi Árnasyni heimspekingi, Sið- frœði lífs og dauða. Núna síðast vor- um við á námskeiði hjá Ingólfi Guð- brandssyni um Bach og við höfum áhuga á að fara á íslendingasagna- námskeið hjá lóni Böðvarssyni. Þetta hefur verið ákaflega gefandi og við ætlum að halda þessu áffam.“ Ósýnilegir tónar Mozarts em enn í loftinu og ég spyr Ingu Ástu hvað tón- listin gefi henni. „Lífsfyllingu. Hún auðgar bæði andann og hugmyndaflugið og hún er svo ögrandi - þú getur alltaf gert bet- ur. Þegar maður æfir eitthvert verk er það áskorun um fullkomnum, sem maður nær aldrei. Þótt maður hafi spilað eitthvað verk árum saman er það ekki nema einstöku sinnum sem maður getur verið sæmilega sáttur. Og eftir því sem maður kynnist tónverki betur, sér maður fleiri fleti sem hægt er að bæta og auðga. Þótt það sé gam- an að spila mörg verk er álíka gefandi að spila sömu verkin árum saman. Þessvegna er líka svo skemmtilegt að fara á tónleika og hlusta á sömu tón- smíðina í túlkun mismunandi lista- manna. Það er endalaust hægt að halda áffam, hvort sem maður hlustar eða spilar.“ Það er einhver trúarleg innlifun í röddinni þegar Inga Ásta talar um tón- listina. Ég spyr um trúna. „Já, ég er trúuð.“ Hún hugsar sig um. „Sígilt, íslenskt svar við þessari spumingu er: Já, ég er trúuð og svo tölum við ekki meira um það! Mér finnst að það mætti vera meiri gleði í tránni og hún mætti líka vera opnari. Ég hef kynnst fólki undanfarin ár sem hefur ólíka afstöðu til tráariðkunar. Það hefur verið mér mikils virði að kynnast því, enda hefur það opnað mig í tráariðkun minni.“ Nú förum við senn að segja amen eftir efninu. En ég spyr að lokum hvaða gildi í lífmu Inga Ásta Hafstein metur mest. „Heiðarleika, númer eitt, tvö og þrjú. Heiðarleika í víðustu merkingu sinni: Heiðarleika gagnvart sjálfum sér og skoðunum sínum, og heiðar- leika gagnvart öðrum. Ég hef oft sagt við strákana mína, að ef þeir eru heið- arlegir í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur, þá geti þeim ekki annað en famast vel í lífinu. Það þýðir um leið að þeir geri sitt besta í því sem þeir taka sér fyrir hendur. Sá er heiðarlegur sem gerir eins vel og hann getur.“ ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.