Alþýðublaðið - 21.06.1996, Síða 4

Alþýðublaðið - 21.06.1996, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ1996 ■ Hjalti Rögnvaldsson á Islandi Get verið eðlilegur einfari - segir Hjalti sem á næstunni les meðal annars úr verkum Stef- áns Harðar Grímssonar á kaffihúsum í Reykjavík. „Ég ætla að lesa uppúr einni bók í „Ég áskil mér þau mannréttindi að útskýra ekki hrifningu mína á Stefáni Herði Grímssyni. Það er orðlaus hrifn- ing. Bókmenntaffæðingar geta séð um afganginn," segir Hjalti Rögnvaldsson leikari sem er staddur hérlendis en hann er búsettur í Kaupmannahöfn. Aðdáendur Hjalta og Stefáns ættu ekki að láta sig vanta á Kaffi Óliver næstkomandi þriðjudagskvöld. Þá mun Hjalti lesa upp úr fyrstu ljóðabók skáldsins sem kom út fyrir réttum 50 árum. Ef það gefst vel er hugmyndin sú að ffamhald verði á. Stéttín erfyrsta skrefiö rnn ■ ■■ MiMðúival afhellmn og steinum. Mjðggottverð. fs ýS&aBB % ■ STÉTT HELLUSTEYPA HYRJARHÖFÐI 8 112 REYKJAVÍK SÍMI 577 1700 -FAX 577 1701 einu, byija á fyrstu bókinni og halda svo áfram fram eftir höfundarferli hans. Upplesturinn varir í um hálf- tíma, bara ég einn og bókin. Svo má segja frá því að aðgangur er ókeypis," segir Hjalti. „Það sem er frábrugðið," segir Hjalti um muninn á því að lesa ljóð og að fara með dramatískan texta á sviði, „er að ekki eru leikhljóð, ekki búning- ar, ekki leiktjöld og ekki farði - en þetta er alveg jafh vandað. Þama get ég vera eðlilegur einfari. Svo er ég með textann í höndunum en vel undir- búinn þó.“ Hjalti var ungur þegar hann kynnt- ist verkum Stefáns Harðar og hefur verið með hann í farteskinu allar götur síðan. ,JEtli ég hafi ekki verið rétt innan við fermingu þegar ég féll flatur fyrir honum og hef verið í þeirri stellingu síðan þegar hann á í hlut.“ Ævisaga aldarinnar Ekki er á döfinni að Hjalti stígi á svið á næstunni. Astæðan fyrir dvöl hans hérlendis er sú að hann fékk að sögn rausnarlegan styrk frá Birni Bjamasyni menntamálaráðherra til að lesa fyrir Blindrabókasafnið. „Hlýlega peninga,“ eins og leikarinn orðar það. „Þessar vikumar er ég lesa æfisögu Ama Þórarinssonar. Þórbergur Þórð- arson skráði. Það er mögnuð lesning. Ég er ekki frá því að þetta sé best skrifaða æfisaga aldarinnar. Menn hafa lengi velt fyrir sér hvor hafi verið Hjalti Rögnvaldsson: Það á vel við mig að vera einn með bók og hljóðnema. lygnari og hvor trúgjamari - Þórberg- ur eða Ami. Ami þótti frábær sögu- maður en ég veit náttúrlega ekki hvað Þórbergur hefur klippt og skorið á leiðinni. Það fáum við ekki að vita enda kemur það okkur ekki við.“ Fyrir hálfum mánuði lauk Hjalti við að lesa Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness og þegar hann er búinn með Ama tekur við lestur allra ljóða Jónas- ar Hallgrímssonar. „Ég les þetta í míkrófón. Það er yndislegt. Það á vel við mig að vera einn með bók og hljóðnema. Ég gæti vel hugsað mér æviráðningu við þetta ef fjárveiting fengist. Og meiri upplestur Hjalti ætlar ekki eingöngu að lesa ljóð Stefáns Harðar opinberlega. A miðvikudagkvöld verður hann á Svarta kaffinu við Laugaveg 54. „Þar ætla ég að lesa úr ljóðabók sem kom út fyrir um 30 ámm og heitir Nei. Hún er eftir Ara Jósefsson heitinn. Hann lifði bara að gefa út þessa einu bók. Hann dó ungur, 25 ára gamall, en gaf út þetta þroskaða verk. Einnig mun ég lesa í ljóðabók sem heitir Sólris eftir mann sem einnig dó ungur, fyrir um 25 ámm. Hann hét Rúnar Hafdal Hall- dórsson." Hjalti segist vera orðinn það mikill útlendingur að honum sé ómögulegt að spá fyrir um hvort það sé stemmn- ing fyrir ljóðalestri. „Talað er um að það sé þörf fyrir þetta. Reynslan sker úr um hvort fólk þolir að yfirgefa há- vaðann í 33 mínútur á viku.“ Blaðamaður Alþýðublaðsins þykist greina viðhorfsbreytingu - að fólk sé almennt komið með ofnæmi fyrir þeirri ofurfjölmiðlun sem ríkt hefur undanfarin ár. Hjalti segist vona að svo sé og svarar spurningunni um hvort hugsanlegt sé að íslendingar bú- settir erlendis haldi betur utan um bókmenntaarfmn, á þennan hátt: ,JÞað þarf bara að senda þjóðina úr landi til að halda þessu við. Nei, ég hef ekki hugmynd um það nema ég veit að Böðvar Guðmundsson og Sverrir Hólmarsson hafa staðið fyrir bók- menntakvöldum í Jónshúsi í Kaup- mannahöfn. Þau hafa þótt vel heppn- uð. Það má í það minnsta fullyrða að þeir tveir viðhaldi arfinum af þeim ís- lendingum sem eru þama úti.“ Hjalti verður á Islandi allt þar til hans verki hjá Blindrabókasafninu lýkur og gerir ráð fyrir því að fara út á haustdögum. Launamenn, launagreiðendur, takið eftir! Persónuafsláttur - skattkort - iðgjald í lífeyrissjóð Persónuafsláttur breytist ekki á miðju ári eins og á undanförnum árum. Hann er 24.544 kr. á mánuði allt árið 1996. Uppsafnaður persónuafsláttur, breyttar reglur Ef persónuafsláttur þinn hefur ekki nýst þér eða maka þínum það sem af er árinu, getur þú flutt ónotaða afsláttinn yfir á þau launatímabil sem eftir eru af árinu. Athugið þó að í engum tilvikum má færa persónu- afslátt á milli ára. Reglur um nýtingu persónuafsláttar hafa rýmkað samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi í júníbyrjun. Ríkisskattstjóri annast útgáfu skatt- korta með uppsöfnuðum persónu- afslætti en samkvæmt nýjum reglum er útgáfa skattkorts ekki lengur skil- yrði. Launagreiðandi má taka tillit til þess uppsafnaða persónuafsláttar sem hann hefur óyggjandi upp- lýsingar um að ekki hafi verið nýttur. Það er því mjög mikilvægt að launa- greiðendur gæti þess að skrá nýtingu persónuafsláttar á kortin eins og efni standa til. Þá er ekki lengur skilyrði að helm- ingur af persónuafslætti sé ónýttur til að safna megi honum upp og ekki er heldur lengur skilyrði að upp- söfnunin miðist við 1. júlí. Námsmannaskattkort Reglur um námsmannaskattkort eru óbreyttar og hafa námsmenn fengið sent námsmannaskattkort sem eiga að sýna fjárhæð ónýtts persónu- afsláttar þeirra fyrir fyrstu fjóra mán- uði ársins. Iðgjald í lífeyrissjóð Þá viljum við minna launagreiðendur á þá breytingu sem nú verður við útreikning á staðgreiðslu að frá- dráttarbært iðgjald launþega í líf- eyrissjóð hækkar úr 3% í 4% frá og með 1. júlí nk. Við erum reiðubúin að veita aðstoð við útreikning á uppsöfnuðum persónuafslætti en til þess þurfum við að fá upplýsingar um laun það sem af er'árinu. Við erum við sfmann frá kl. 8 til 16. Síminn hjá RSK er 563 1100. Grænt númer er 800 6311. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI ■ Össur Skarphéðins- son með fyrirlestur um silunga Ævi og ástir stór- urriðans ,J3g hef í vaxandi mæli hneigst að grúski og fræðimennsku á undanfóm- um árum," sagði Össur Skarphéðins- son alþingismaður í samtali við Al- þýðublaðið í gær. „Ég er að skila af mér bók sem kemur út hjá Mál og menningu í haust um stórurriðann í Þingvallavatni. Þar er um alþýðleg sagnfræði með sterku fiskifræðilegu ívafi að ræða. Ég komst yfir gögn sem gera mér kleift að spá með fúrðulegri nákvæmni um lífshlaup þessa tíguleg- asta ránfiskar norðurhjarans." „Hneigist í vaxandi mæli að grúski og fræðimennsku," segir Össur sem í haust sendir frá sér bók um urriðann í Þingvallavatni. Og það em fleiri bækur í bígerð hjá Össuri um alls óskyld málefni. En aft- ur að urriðanum. A laugardaginn 22. júní klukkan 15.00 heldur Össur fyrirlestur í fræðslusetrinu að Alviðm undir Ing- ólfsfjalli, sem fjallar um ævi og ástir stórurriðans í Þingvallavatni. Fyrir- lesturinn er öllum ókeypis, og öllum opinn. Stórurriðinn sem einkenndi áður Þingvallavatn varð á sínum tíma þekktur um alla Evrópu. Um miðja síðustu öld hófu breskir veiðimenn að venja komur sínar til veiða í Sogninu og Þingvallavatni, og innleiddu þann- ig stangaveiði austan fjalls. Langsterk- asti stofninn var í Efra-Sogi, en hann hvarf með virkjun þess árið 1959. Össur er þekktur fyrir skrif sín um stómrriðann í Efra-Sogi. Hann hefur safnað saman öllum tiltækum heimild- um um hann í máli og myndum, og meðal annars skráð frásagnir eftir flestum núlifandi veiðibændum við Þingvallavatn. f erindi sínu rekur hann lífshlaup stómrriðans og rekur vöxt hans og fæðu, og fjallar um hrygning- una, sem er næsta sérstæð. Raktar verða deilur meðal erlendra fræði- manna á síðustu öld um hvort telja bæri stórairiðann í Evrópu til sérstakr- ar tegundar. En íslenski stómrriðinn olli kaflaskilum í þeim deilum og varð til þess að um hríð töldu helstu fræði- ménn erlendis að norræni stórurriðinn væri sérstök tegund og gáfu honum nafn sem tengdist íslandi. í erindinu mun Össur jafnframt setja fram hugmyndir sínar um að Þingvallaurriðinn hafi greinst í marga stofna, og rekja fjölmargar hrygning- arstöðvar hans í vatninu. Væntanlega verður einnig kynnt samantekt hans á stærstu urriðum sem vitað er um að hafi komið úr vatninu, og í því efni gerður grófur samanburður á Þing- vallavatni og öðmm þekktum urriða- vötnum í Evrópu. Össur hefur safnað fjölmörgum gömlum myndum af stórurriðum, þar er meðal annars að finna glæsilega mynd af stærsta urriða sem festur hef- ur verið á filmu hérlendis. Hann var 29 pund og veiddur í net af Símoni Péturssyni í Vatnskoti um 1950. Ef tími vinnst til verða ef til vill til sam- anburðar sýndar myndir af stærstu urriðum sem veiðst hafa á stöng er- lendis, en heimsmetið er 34 punda urriði sem veiddist í Svíðþjóð fyrir nokkmm ámm.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.