Alþýðublaðið - 25.07.1996, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ1996
ALÞYÐUBLAÐK)
3
s k o ð a n i r
Fyrirferðamikið ríki og bjánalegir siðir
Þó að orðunefnd sé furðu hljóð um starfsað-
ferðir sínar þá sést mætavel að ákveðið
áskriftarkerfi er við lýði. Þegar menn hafa
unnið í tiltekinn tíma í innsta hring kerfisins
fá þeir orðu í pósti og síðar aðra stærri
nokkrum árum seinna.
Ríkið er of fyrirferðamikið
I leiðara Viðskiptablaðsins er
fjallað um hlut ríkissjóðs í íslensk-
um fjármálamarkaði:
Það eru ekki ný sannindi að ríkis-
sjóður er of fyrirferðarmikill á íslensk-
um fjármálamarkaði. Ekki aðeins með
beinu eignarhaldi á tveimur af þremur
viðskiptabönkum landsmanna heldur
einnig með beinni samkeppni við inn-
lend fyrirtæki um lánsfjármagn og
sölu verðbréfa með beinum hætti í
samkeppni við sjálfstæð verðbréfafyr-
irtæki.
Önnur
sjónarmið
Neyslukönnun Félagsvísindastofn-
unar um sparnað sýnir þetta, en
kannski með öðrum hætti en áður.
Langflestir þeirra sem spara reglulega
- en þeir eru því miður alltof fáir,
kjósa að ávaxta fé sitt í spariskírtein-
um ríkissjóðs. Liðlega annar hver
landsmaður sem leggur fyrir velur
spariskírteinin samkvæmt könnuninni.
Þetta er í raun napurleg staðreynd sem
undirstrikar við hvaða ofurefli ungur
og ffjáls fjármálamarkaður á við að
etja. Líklega má leita skýringa á vin-
sældum spariskírteina til tíma óða-
verðbólgu þegar sparifé var brennt
upp og fáir aðrir kostir fyrir fólk en að
setja fjármuni í steinsteypu eða spari-
skírteini. Sá tími er sem betur fer lið-
inn og vonandi á hlutur spariskírteina
eftir að minnka í samræmi við það.
Ríkissjóður getur ekki gert út á sölu
spariskírteina í framtíðinni og hann
hefur gert.
Pólitískar ákvarðanir
í Tímanum veltir Oddur Ólafs-
son fyrir sér byggða-, búsetu- og út-
gáfumálum:
Ar eftir ár hverfa fleiri verkfærir Is-
lendingar til útlanda en þeir sem flytja
heim aftur. Enginn sér eftir þeim þar
sem byggðastefnur bítast ekki um þá
og strangt til tekið stafar búsetubreyt-
ing þeirra ekki af pólitískum ákvörð-
unum. Um þá flóttamenn er ekki ann-
að að segja en, fari þeir vel og svo má
hælast um að atvinnuleysi minnkar
þegar fækkar á jötu „atvinnutækifær-
anna“.
Byggðastefnur pólitíkusanna eru
skýrar. Samkvæmt pólitískum ákvörð-
unum á að fjölga í hverju einasta
byggðarlagi landsins og eru reistar
efnismiklar stjómsýslustofnanir og fé-
lagslegar íbúðir til að púkka undir „at-
vinnutækifærin."
Hvernig þau dæmi eiga að ganga
upp vita þeir einir sem myndugleika
hafa til að taka pólitískar ákvarðanir
og rífast svo heiftúðlega um hvar fólk
á að búa og starfa.
Nú standa fyrir dymm miklar breyt-
ingar á útgáfu Tímans og Dags. Af því
að þar er ekki um pólitíska ákvörðun
að ræða valda byggða- og búsetumál
engum vandræðum. Tæknin býður
upp á að menn vinni að sama verkefni
norðan og sunnan heiða og gangi von-
ir eftir mun útgáfustarfsemin einnig ná
austur og vestur þegar fram líða stund-
ir.
Enginn verður fluttur nauðugur og
búseturöskun verður engin. Samt mun
fyrirtækið blómstra og vonandi eiga
sem flestar byggðir eftir að njóta góðs
af á einn hátt og annan. En pólitíkin
þrífst á deilum og eru Landmælingar
ríkisins því óskabam hugsjónamann-
anna þar til þeir koma sér upp nýjum
króga til að rífast um hver á umráða-
rétt yfír.
Orður og annað prjál
í Viðskiptablaðinu fjallar Sigurð-
ur Már Jónsson um orðuveitingar:
Fyrir ekki löngu síðan varð nokkur
umræða í Englandi um orðuveitingar
þar og komst leiðarahöfundur tíma-
ritsins Economist að þeirri niðurstöðu
að þær ættu aðeins við þegar fólk
hefði sýnt óvenju mikið hugrekki eða
fómarlund. Aðrir ættu ekki að fá orður
í nútíma lýðræðisríki.
Þetta er skynsöm stefna og þá ekki
síst vegna þess að orðuveitingar eins
og við höfum séð í seinni tíð ýta undir
rangt gildismat. Að verðlauna embætt-
ismenn eða athafnamenn fyrir það að
hafa mætt í vinnuna og klifið upp met-
orðastigann af sæmilegum röskleika
er bjánalegur siður. Þeir verða ekki
menn að meiri þó þeir geti hengt á sig
riddarakross í kóngaveislum og tekið
þannig þátt í stirðbusalegri upphafn-
ingu á diplómatískum hefðum.
Þó að orðunefnd sé furðu hljóð um
starfsaðferðir sínar þá sést mætavel að
ákveðið áskriftarkerfi er við lýði. Þeg-
ar menn hafa unnið í tiltekinn tíma í
innsta hring kerfisins fá þeir orðu í
pósti og síðar aðra stærri nokkmm ár-
um seinna. Röksemdin hveiju sinni er
svo almenns eðlis að hver og einn get-
ur hafið upp eigin ágiskanir. Oft blasiu
þó við að ástæðan fellst í persónuleg-
um tengslum eða pólitískri góðvild.
Flestum þykir þetta sem betur fer
skoplegar aðfarir sem vinnur ágætlega
gegn teprulegri upphafningunni. Það
er góssentíð hjá skopmyndateiknurum
í kringum orðuveitingar.
JÓN ÓSKAR
V Í t
í kringum 1990 var gert átak í
því að útrýma ómenntuðum.
Jónas Magnússon formaður Landssam-
bands lögregluþjóna gaf þessa athyglis-
verðu yfirlýsingu í Tímanum í gær.
Ég var mjög strekktur fyrir
þetta sund og fór afsíðis fyrir
keppnina og reyndi þar að slaka
vel á. Það getur verið að ég hafi
verið orðinn of rólegur þegar
kom að sundinu.
Sundkappinn Logi Jes Kristjánsson
að útskýra afhverju hann lenti í 40. sæti
af 53 á Ólympíuleikunum.
Stíll Þorgerðar rís hvergi hátt.
Hann er einfaldur og hvers-
dagslegur, jafnvel flatur.
Þröstur Helgason í umsögn um
Ijóðabók eftir Þorgerði Sigurðardóttur.
Mogginn.
Vinur þagnarinnar
og Morgunblaðsins úr Garðabæ
hafði samband við Víkverja
fyrir skömmu og sagði sínar
farir ekki sléttar.
Sígilt upphaf á pistli hins frjóa og vinmarga
Víkverja. Mogginn í gær.
Ég held að það hafi allir
kratar í Hafnarfirði, nema
bæjarfulltrúarnir, talað við
okkur og látið í ljós óskir um
að A-flokkarnir taki upp
meirihlutasamstarf í
bæjarstjórn.
Magnús Jón Árnason foringi
Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði.
DV í gær.
Herforingjastjórnin
kveðst ekki ætla að sitja
til eilífðar.
Risafyrirsögn á forsíðu Morgunblaðsins
í gær um ógnarstjórnina í Búrma.
Það þykir vissulega
of gróft enn sem komið er
að hrinda afa og ömmu fram
af ætternisstapa en það er hægt
að þoka þeim í áttina þangað
með laumulegum hætti.
Árni Bergmann var með
fjölskylduráðgjöf í DV í gær.
Ofbeldi og siðleysi eru
greinar af sama meiði og eigi
að ráða bót á, er ærið verk
að vinna ef siðbótarmenn er
einhversstaðar að finna.
Leiðarahöfundur Tímans var ómyrkur
í máli í gær.
Mér finnst þrautaganga
Tímans orðin nokkuð löng, eftir
að allskonar kálfar, óreyndir
strákar, hafa verið að fljúga
með himinskautum til að gera
einhverjar krúsídúllur með
blað og það tekst ekki.
Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur og fyrr-
um ritstjóri Tímans. Tíminn í gær.
fréttaskot úr fortíð
Leiðrétting
Rangt var það sem sagt var
frá hér í blaðinu um daginn, að Pétur
Ottesen væri yngsti þingmaðurinn.
Gunnar á Selalæk er nær ári yngri.
Hitt - með afturhaldssemina - mun
aftur á móti rétt.
Alþýðublaðið
2. apríl 1921.
hinumegin
"FarSide" eftir Gary Larson
Enn hefur ekkert verið
sagt um hver verður
ritstjóri Dags-Tímans og
á ritstjórnum blaðanna er
alger óvissa. Nokkur tog-
streita og rígur hefur kom-
ið upp millum starfs-
manna á Degi og Tíman-
um. Einkum þykja Norð-
anmenn drýgindalegir og
frá þeim berast þau skila-
boð að hreinasti óþarfi sé
að halda úti alvöru rit-
stjórn í Reykjavík: þeir
geti sem hægast séð um
fréttaöflun frá Akureyri.
Nokkur ókyrrð er
vegna þessa í herbúð-
um Tímans, enda
beinist metnaður þar
að því að gefa út efn-
ismikið og gott blað á
landsvísu...
amla stórveldið,
VJ Fram, leikur nú í
2. deild og trónir þar
á toppnum ásamt
frísku liði Skalla-
gríms. Þangað til í
fyrrakvöld var Fram
taplaust, og markatalan í
siðustu tveimur leikjum
var hvorki meira né minna
en 12-0. En þá fengu þeir
FH-inga í heimsókn, sem
nýverið létu Inga Björn
Albertsson hætta sem
þjálfara vegna slælegs ár-
angurs. FH- ingar virtust
jafnvel á leið ofan í 3.
deild, en Hafnfirðingar
fóru á kostum á Valbjarn-
arvelli og möluðu Fram, 5-
1. Stuðningsmenn Fram
voru ekki upplitsdjarfir
þegar þeiryfirgáfu leik-
vanginn, en í þeim hópi
voru ýmsir skærir menn-
ingarvitar: Einar Kára-
son rithöfundur, Sigurð-
ur Svavarsson fram-
kvæmdastjóri Máls og
menningar, Haukur
Hannesson bókmennta-
fræðingur, Páll Valsson
bókmenntafræðingur,
Hallgrímur Helgason rit-
höfundur og Ámundi
Ámundason auglýsinga-
maður...
Fullvíst er nú talið að
Viðskiptablaðið og Að-
alstöðin fari í eina sæng,
enda samruni fjölmiðla
mjög í tísku um þessar
mundir. Athygli vekur að í
nýju Viðskiptablaði er
heilsíðuauglýsing frá Að-
alstöðinni, þar sem þáttur
Sigurjóns Kjartansson-
ar og Jóns Gnarr er
kynntur. Nú stilla allir for-
stjórarnir væntanlega yfir
á spaugarana...
&) ^r-Plau-bufeLicB.rc... tíckl
i-A.Wer ri... '
Martröð fílsins.
f i m m
förnum veg
Q Gætir þú hugsað þér að flytja til útlanda?
Olga Lísa Garðarsdóttir
kennari: Já, ég gæti það svo
sannarlega, en bara tímabund-
ið.
Guðbjörg Daníelsdóttir
kennari: Já, ég gæti það, til
dæmis til Norðurlanda, ég hef
reyndar búið í Bandaríkjunum
í tvö ár.
Kristján Órn Elíasson ráð-
gjafi: Já, til Rússlands, þar eni
tækifærin.
Theódóra Mathiesen
bankamaður: Já, ég hef búið
í Noregi í fjögur ár, og gæti
hugsað mér að flytja þangað
aftur.
Guðmundur Ólafsson
nemi: Já, hvert sem er. Til
Evrópu, Afríku, Asíu...
m e n n