Alþýðublaðið - 27.08.1996, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 27.08.1996, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 I e i k h ú s Framúrskarandi fíflaskapur Sirkús Skara skrípó Loftkastalinn Hytjendur: Óskar Jónasson, Eva María Jónsdóttir, Ragna Sara Jónsdóttir, Sigutjón Kjartansson og Kristjana Stefánsdóttir. Leikstjóri: Baltasar Kormákur Ljós: Helgi Jóhannesson Leikmynd: Óskar Jónasson Búningar: María Ólafsdóttir Hugmyndin: Klaufski töframaður- inn (og þar með fyndni) er ekki beint ný af nálinni. Það er einsog hún hafi alltaf verið til. En þegar ég hugsa útí það, þá hef ég aldrei séð sýningu sem þessa og man ekki til þess að slfk hafi verið sett upp. I það minnsta ekki hér- lendis allra síðustu áratugina. Sem gerir hugmyndina frumlega? Það skiptir kannski ekki öllu máh. „To be is to do“ sagði Jean-Paul Sartre. Ég er ekki að gera lítið úr hugmyndavinnu þegar ég segi að það sem máh skiptir er ffamkvæmdin. Óskar Jónasson og hans fólk hafa lagt mikla vinnu í þessa hugmynd og uppskera eins og til er sáð. Misgóði töframaðurinn er þakklátt „consept" að því leyti að öll mistök, allan hallærisgang, vandræða- og klaufaskap má afsaka með þeirri staðhæfingu að svona eigi þetta ein- faldlega að vera: töframaðurinn er svo lélegur. Talsverð hætta er á að að- standendur sýningar á borð við Sirkús Skara skrípó kasti til höndum í skjóli þess. Því er ekki til að dreifa hér. Sýningin er framúrskarandi, vand- aður fíflaskapur sem hittir beint í mark. Enn ein rósin í hnappagat Balt- asar Kormáks leikstjóra en það virðist sama hvað hann snertir með sínum leikstjómarputtum, það breytist í gull. Allir vita hvemig Hárið gekk hér um árið en þar var lagður grundvöllur að veldi þeirra Baltasars, Halls Helga- sonar og Ingvars H. Þórðarsonar. Ef að líkum lætur á þessi sýning eftir að ganga í vetur. Ég var staddur á 6. sýn- ingu og stappfullt var og rífandi stemmning. Óskar Jónasson ætti í fullri alvöm að huga að því að snúa sér alfarið að töframennsku og hætta að velta þessu kvikmyndabrölti fyrir sér. Hann er eins og fæddur í þetta hallærislega glimmerhlutverk og er orðinn býsna slyngur töframaður. Altjent sá ég ekki að þama væru brögð í tafli. Það mætti velta því fyrir sér hvort fimi hans á sviði galdra skapi ekki togstreitu við það sem lagt er upp með - misheppn- aða töframanninn. En það er ekki að sjá heldur þvert á móti styrkir það „showið". Óskar verður ömggari með sig á sviði með hveijum deginum. Ég sá Óskar troða upp í Berlín sálugu fyrir nokkram ámm í hlutverki Skara skrípó þar sem hann meðal annars sýndi hið ógeðfellda „smokkabragð“. Hann sem sagt treður smokknum... já. Smokkabragðið hefur fylgt Skara allar götur síðan og er einskonar vömmerki hans. Óskari hefur fleygt fram í hlutverkinu síðan þá. Abrakadabra-systur mynda lauk- rétta gjörð utan um Skara skrípó og fara á kostum. Þær em liprar með af- brigðum, spikk og span og hæfilega sexí aðstoðarmeyjar, dansa eins og englar og gefa Skara ekkert eftir í galdramennskunni. Fallbyssuatriðið var einkar tilþrifamikið og jafnvel betur útfært en hjá Amóri Bjömssyni í hlutverki fallbyssukóngsins í Fúsa froskagleypi sem Leikfélag Hafnar- fjarðar færði upp hér um árið. Senuþjófurinn er að mínu viti Sig- urjón Kjartansson. Einhverra hluta vegna minnir Sigurjón mig alltaf á þýskan klámmyndaleikara. Ég veit ekki hvað er því nú er Sigurjón til dæmis ekki með rytjulegt yfirvara- skegg. Því miður er ég enginn sér- fræðingur í þýskum klámmyndum og hugsanlega er það einmitt þessi skort- ur á sérþekkingu sem veldur því að ég sé hann fyrir mér í þessu hlutverki. Sigurjón gegnir hlutverki sögumanns auk þess sem hann myndar söngdúett ásamt Kristjönu Stefánsdóttur. Hann fer á kostum, einkum í hlutverki rokk- kóngsins Elvisar og virðist kunna sér- staklega vel við sig í þeirri glimmer- veröld sem umgjörð sýningarinnar er. Þá var Sigurjón einkar sannfærandi sem fslenskur smaladrengur. Félagi hans í dúettinum, Kristjana frá Sel- fossi, var einnig sem sköpuð til að vera partur af sýningu á borð við Sir- kús Skara skrípó. Lagavalið vekur athygli. Mestan part em fluttir smellir frá þeim tíma þegar hvað minnst var að gerast í popptónlistinni. Sérstaklega var út- gáfan á meistaraverki Johnny Tem- pest og félaga hans í sænsku þunga- rokkhljómsveitinni Europe vel heppn- uð. Hljómsveitin Kanada var furðu þétt en þar eru meðal annars á ferð synir Kjartans Ragnarssonar og Þór- arins Eldjáms, þeir Ragnar og Ulfur. Ljós, leikmynd og einkum búningar vom vel við hæfi. Að öllu þessu sögðu er ljóst að ég skemmti mér prýðilega á Sirkúsi Skara skrípó og get óhikað mælt með sýningunni við alla þá sem vilja létta lund sína og geð. IEinhverra hluta vegna minnir Sigurjón mig alltaf á þýskan klámmyndaleikara. Ég veit ekki hvað er því nú er Sigurjón til dæmis ekki með rytjulegt yfirvaraskegg.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.