Alþýðublaðið - 23.10.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
■ Fjórir þingmenn Alþýðuflokksins hafa verið orðaðir við formennsku í flokknum. Þegar ákvörðun Jóns Bald-
vins lá fyrir í gær hafði Alþýðublaðið samband við Sighvat Björgvinsson, Guðmund Árna Stefánsson og
Össur Skarphéðinsson. Ekki náðist í Rannveigu Guðmundsdóttur, sem stödd er í útlöndum
Mun gefa kost á mér
- segir Sighvatur Björg-
vinsson
„Ég átti ekki von á því að þessi
staða kæmi upp. Nú er það staðreynd.
Jón Baldvin óskaði eftir því við mig
að ég gæfi kost á mér sem formaður,
og sagði að það væri sín niðurstaða
eftir viðræður við fjöldamarga alþýðu-
flokksmenn, að það væri farsælast. Ég
gerði mér auðvitað ljóst að enginn í
flokknum, af þeim sem nefndir höfðu
verið, væri óumdeildur í þetta embætti
og ég væri það ekki heldur. Eftir að
hafa borið mig saman við ýmsa menn
í flokknum, hef ég tekið ákvörðun um
að svara málaleitan Jóns játandi og
mun gefa kost á mér,“ sagði Sighvatur
Björgvinsson alþingismaður í samtali
við Alþýðublaðið í gær.
Sighvatur kemur af fundi
með Jóni Baldvin, Össuri
og Guðmundi Árna í
gærmorgun: Hef tekið
ákvörðun um að svara
málaleitan Jóns Baldvins
játandi.
Össur og Guðmundur Árni koma af fundinum í gærmorgun. „Á önnur er-
indi brýnni en þau sem felast í starfi formanns Alþýðuflokksins," sagði
Össur en Guðmundur Árni ætlar að hugsa málið og sagði: „Hef fengið
áskoranir frá fjölmörgum síðustu daga."
Guðmundur Árni Stefánsson
Gaumgæfi málin
næstu daga
„Það eru vitaskuld stór tíðindi þegar
fomiaður Alþýðuflokksins til tólf ára
tekur ákvörðun um að hætta leik þá
hæst stendur. Sú ákvörðun er auðvitað
tekin í dag þótt ýmsir hafi lesið þessa
niðurstöðu úr ummælum hans síðustu
vikumar. Mér fmnst eðlilegt í þessu
ljósi að flokksmenn fái ráðrúm til að
ræða og meta þessa nýju stöðu. Ég hef
sem núverandi varaformaður flokks-
ins fengið áskoranir ffá tjölmörgum á
síðustu dögum að gefa kost á mér. Þau
mál mun ég gaumgæfa næstu daga og
taka ákvörðun uppúr næstu helgi,“
sagði Guðmundur Ámi Stefánsson.
Össur Skarphéðinsson
Hef ekki Ijáð máls
á framboði
„Mér hefur um talsvert skeið verið
ljóst að Jón Baldvin hygðist láta af
formennsku. Það er vissulega mikil
eftirsjá að honum, en hann hefur valið
tímann af kostgæfni, því hann skilur
Alþýðuflokkinn eftir á hægu en ör-
uggu skriði, og hefur auk þess skapað
farveg fyrir vemlega uppstokkun á
vinstrivæng," sagði Össur Skarphéð-
insson.
Aðspurður hvort hann muni gefa
kost á sér til formennsku svaraði Öss-
ur: „Ég hef ekki ljáð máls á framboði
við nokkum einasta mann, og ekki
leitað eftir stuðningi nokkurs manns,
enda á ég önnur erindi brýnni næstu
misserin en þau sem felast í starfi for-
manns Alþýðuflokksins."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
„Gerist ekki sjúkir
emir...“
Jón Baldvin Hannibalsson hefur
verið formaður í Alþýðuflokknum í
12 ár og má segja að hann sé búinn að
afplána sinn tíma á formannsstóli.
Þegar menn hafa verið svo lengi í
trúnaðarstöðu má
búast við því að
þeir séu búnir að
áorka því sem þeir
telja sig geta áork-
að, komið sínum
hugmyndum og
baráttumálum á
ffamfæri. Það held
ég að Jón Baldvin
hafi tvímælalaust
gert. Það er viturlegt hjá honum að
hætta á þessum tímapunkti, ella hefði
það þýtt það að hann hefði orðið að
sitja sem formaður framyfir næstu
kosningar og leitt flokkinn þá.
Ef það er satt að hann ætli ekki að
hætta afskiptum af stjómmálum get ég
samglaðst honum og Alþýðuflokkn-
um með þá ákvörðun. Jón hefur ótví-
ræða leiðtogahæfileika en að mínu
mati liggja þeir fremur á hinu hug-
myndalega sviði en hinu praktíska.
Hann hefur komið með heilmikla ný-
sköpun inní íslenska stjórnmálaum-
ræðu og verið í fararbroddi fyrir ýms-
um merkum málum sem hér hafa ver-
ið á dagskrá hvort sem það hefur verið
veiðileyfagjaldi, varðandi landbúnað-
arstefnuna, tengslin við Evrópusam-
bandið og fleira. Hann hefur lagt heil-
mikið af mörkum í stjómmálaumræð-
una. Hins vegar má segja um Jón að
hann sé lagnari við að vekja upp deil-
ur en að setja þær niður. Þar af leið-
andi getur vel verið að flokksfor-
mennska sé lýjandi fyrir hann, mann
þeirrar gerðar. En ég vona sannarlega
að hann hafi ekki sagt skilið við
stjórnmálaumræðuna, að hann muni
þar leggja sitt af mörkum héreftir sem
hingað til. Þar á hann fullt erindi. Svo
ég fari í smiðju til finnsku skáldkon-
unnar Edith Södergran þar sem hún
segir í ljóði sínu Til hinna sterku: Ger-
ist ekki sjúkir emir sem veslast upp í
fjötmm. Mér finnst þessi ljóðlína eiga
vel við þegar Jón á í hlut. Hann hefur
verið glæsilegur stjómmálamaður og
það dapurlegasta sem fyrir slíka menn
kemur er að lifa sjálfa sig. Það finnst
mér hann ekki gera með því að hætta
með þessum hætti.
Ég skil vel að Jón vilji hætta á for-
mannsstóli. Hann hefur skilað miklu
starfi og ég reikna með því að hann
geri það áfram sem pólitískur hug-
myndafræðingur fremur en að taka
þátt í hinu daglega streði. Menn verða
að hafa í huga að mikilvægi stjórn-
málaþátttöku fer ekki endilega eftir
vegtillunum. Flokkar þurfa að eiga
formenn og flokkar þurfa að eiga hug-
myndafræðinga. Það þarf ekki endi-
lega að fara saman.
_____Ólafur Þ. Harðarson_
Hugmyndaríkur
stjómmálamaður
Jón Baldvin Hannibalsson er í hópi
merkustu stjómmálamanna íslendinga
á þessari öld og ásamt Gylfa Þ. Gísla-
syni áhrifamesti leiðtogi Alþýðuflokks
frá upphafi. Áhrif Jóns á íslensk
stjómmál hafa einkum birst í tvennu.
Hann hefur verið sá forystumaður ís-
lenskur sem helst hefur talað fyrir
aukinni samvinnu íslendinga við Évr-
ópu. Forysta hans í EES-málinu hefur
þegar tryggt honum sess í íslenskri
stjómmálasögu. Auk þess er líklegt að
þess verði minnst að hann varð fyrstur
íslenskra stjórnmálaforingja til að
mæla með aðild að ESB.
Jón átti líka ríkan þátt í að endur-
skilgreina stefnu Aljrýðuflokksins í
anda nútímalegrar jafnaðarstefnu, þar
sem áhersla er lögð á markaðslausnir í
efnahagslífi í bland við öflugt velferð-
arkerfi. Raunar var þessi áhersla í
beinu framhaldi af stefnubreytingu
Alþýðuflokksins 1958 í átt til frjáls-
ræðis, sem Gylfi Þ. Gíslason stóð fyr-
ir. Framsetning Jóns þótti hins vegar
býsna róttæk á íslandi, enda hafa ís-
lendingar verið seinni til að nota
markaðslausnir en flest lönd Vestur-
Evrópu. Nú ætti
hins vegar öllum
að vera ljóst að
stefnuáherslur Jóns
frá 1984 em mjög
í takt við áherslur
flestra jafnaðar-
mannaflokka í álf-
unni.
Jón Baldvin hef-
ur verið mjög hug-
myndaríkur stjómmálamaður, kannski
helsti hugmyndabanki íslenskra
stjómmála síðustu 15 árin. Hann telst
til mestu mælskumanna íslenskra
stjórnmálamanna fyrr og síðar. Jón
gerði sig líka gildandi á erlendum
vettvangi, einkum sem utanríkisráð-
herra - það nægir að nefna að hann er
þjóðhetja í Eystrasaltsríkjunum.
Jón Baldvin segist ekki hættur í
stjórnmálum og auðvitað getur hann
tekið virkan þátt þó hann sé ekki
flokksformaður - raunar sinn sumum
verkum betur. Það er hins vegar sjón-
arsviptir af þessum litríka og umdeilda
stjómmálamanni af formannsstóli.
______Einar Karl Haraldsson_____
Með rauða rós á
grænu Ijósi
Jón Baldvin Hannibalsson er ekki
hættur í stjómmálum þótt hann sleppi
stjórnartaumum í Alþýðuflokknum.
Hann ætlar sér um sinn ljósmóðurhlut-
verk fyrir nýja hreyfingu jafnaðar-
manna og þessvegna er engin ástæða
til þess að rita í minningarstíl um pól-
itískan feril hans.
Hér em því aðeins nokkrar ábend-
ingar og ályktanir:
I fyrsta lagi: Svona höfuð hefði átt
að vera á stærri hreyfingu.
I annan stað: Annar eins maður og
Jón Baldvin hefði sómt sér vel að vera
forsætisráðherra, enda lærði hann til
þess að eigin sögn.
í þriðja lagi slær honum enginn við
í málsnilld og rökfestu á Alþingi.
Tungutak hans ber af pólitísku málfari
flestra annarra stjómmálamanna. Þar
er ekki flatneskjan, klifunin og eft-
iröpun merkingarlausra orðaleppa sem
oft er áberandi í pólitískum umræðum.
Jón Baldvin er fyrst og fremst mað-
ur orða og hugmynda. „Með orðum
stjómum við fólkinu", sagði Disraeli
og það skal ávallt metið að formaður
Alþýðuflokksins hefði hefur orðað
hugsun sína skýrt. Hann er að því leyt-
inu stjórnmálamaður eins og Carl
Bildt í Svíþjóð, formaður Hægri
flokksins, áður forsætisráðherra og nú
samningamaður í Bosníu. Maður gat
alltaf dáðst að framsetningu hans,
skýrleika og pólitískri snerpu, enda
þótt maður væri honum oft ósammála.
Það er heil brú í hugmyndum Jóns
Baldvins í efnahags-, atvinnu- og fé-
lagsmálum. Og það er meira en hægt
er að segja um marga aðra stjómmála-
menn. En stundum fannst mér hann
hér áður nota venjur sjötta og sjöunda
áratugarins í nútíðina, og sannar það
þá gömlu setningu Churchills að við
breytum heiminum hraðar heldur en
við náum að breyta okkur sjálfum. Og
það hefui reynst Jóni Baldvin talsverð
þraut að skapa stöðugleika og traust í
kringum sig, eins og stundum vill
verða um menn sem fyrst og ffemst ná
vígstöðu með orðsins brandi.
Barátta Jóns Baldvins gegn fá-
keppni og sérhagsmunastjóm á Islandi
leiddi hann tvisvar í þá gryfju að
mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðis-
flokknum. Hann hélt lengi í þá von að
hægt væri að mynda nýja viðreisnar-
stjóm með tiltölulega ungum mönnum
í forystu Sjálfstæðisflokksins, sem
gæti beitt sér fyrir skynsemisstjóm í
efnahagsmálum. Tilraunin með Þor-
steini Pálssyni 1987 mistókst hrapal-
lega. Og enn erfiðara var að skilja rík-
isstjómina með Davíð Oddssyni. Hún
var mynduð eftir að stjóm Framsókn-
arflokks, Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags 1988 -
1991 hafði sýnt
fram á að ekki var
þörf á Sjálfstæðis-
flokknum til þess
að skapa stöðug-
leika í efnahags-
málum og byrja á
því að breyta
þungurn kerfum
eins og landbún-
aðarkerfinu. Jóni Baldvini stóð til
boða að verða forsætisráðherra 1991.
Margt hefði orðið öðruvísi ef hann
hefði ljáð því eyra en ekki er vert að
ræða um stjómmál í þáskildagatíð.
Fetill Jóns Baldvins sem utanríkis-
ráðherra var að mörgu leyti glæsileg-
ur. Dirfskan sem fólst í viðurkenningu
á sjálfstæði Eystarsaltsríkjanna og ein-
beitnin í EES-málinu eru honum til
hróss, enda þótt það hafi verið af óbil-
gimi að fallast ekki á nauðsyn stjóm-
arskrárbreytingar til þess að mega
framselja þátt í íslensku fullveldi til al-
þjóðlegra stofnana.
Reynslan af Sjálfstæðisflokknum,
reyrðum í viðjar sérhagsmuna, sæ-
greifa og búfursta, hefur gert Jón
Baldvin Hannibalsson sannfærðan um
þörfina á stómm og breiðum jafnaðar-
mannaflokki, sem fyrir eigin vélarafli
geti breytt þjóðfélaginu til hagsbóta
fyrir neytendur og nýjar kynslóðir. Og
nú er ekki farið yfir landið á rauðu
ljósi, heldur er að skipta úr gulu yfir í
grænt. 1 þeirri för verður Jón Baldvin
vonandi í faraibroddi með rauða rós í
mund. ■