Vísir - 23.06.1976, Page 1

Vísir - 23.06.1976, Page 1
Hún naut þess greinilega aöborða Isinn sinn þessi litla dama sem Loftur ljósmyndari VIsis rakst á fyrir skömmu I Hverageröi. Þaö er heldur ekki oft sem þaö gefst svona failegur ís svo þaö er eins gott aö gæta þess aö ekkert fari tii spillis. Ljósmynd VIsis Loftur. „Björn er ekki að berjast fyrir neinum réttindum bænda. Hann reynirað komast undan reglum, sem allir aðrir hlýða umyrðalaust, og skákar i þvi skjóli, að hann á volduga vini og nóg af peningum og hefur þvi efni á að skemmta sér við mála- ferli”. Þetta haföi Jón ísberg. sýslumaöur á Blönduósi, aö segja um kæru Björns á Löngumýri á hendur honum, en lögfræöingur Björns hefur sent Jóni kæru- skeyti, vegna fjárböðunar- málsins, sem skýrt hefur veriö frá áður í blaðinu. „Björn hefur sýnt frekju og yfirgang alla tlð og nú reynir hann að komast upp með að hindra fullkomlega lög- lega lögregluaðgerð.. Þetta mál er hlægilegt og veröi Löngumýrarbónda að góöu, ef hann heldur aö hann eigi skemmtileg málaferli fyrir höndum. Þetta liggur allt ljóst fyrir, Hæstiréttur úrskuröaði aö máliö heyröi undir mig sem lög- reglustjóra.svo aö ég varf fúllum rétti,”sagðiyfirvald húnvetninga aö lokum. —JOH— GEIRFINNSMALIÐ: Rannsóknar- mönnum verð- ur ekki f jölgað ,,Ég get ekki komið auga á þann möguleika að hægt verði að leysa Geirfinnsmálið með þvi að leita aðstoðar erlendra sérfræðinga núna, en öðru máli hefði ef til vill gegnt varðandi það atriði við frumrannsókn máls- ins,” sagði Halldór Þorbjörnsson, yfir- sakadómari, i samtali við Visi i morgun. Halldór kvaðst ekki búast við að fleiri starfsmenn sakadóms og rannsóknarlögreglu yrou látnir vinna að Geirfinnsmálinu á næstunni, en verið hefði að undanförnu. en aftur á móti væri i athugun að fá einhvern liðsstyrk sérstaklega I hin veigaminni mál til þess að jafn margir starfsmenn gætu áfram unnið aö viðameiri málum, sem til rannsóknar eru um þessar mundir. Um þessa hliö málanna hefði verið rætt á fundi með dóms- málaráðherra og rikissaksókn- ara i gær, en ekki taldi yfirsaka- dómari þann fund sérstakt fréttaefni, þar sem þessir aðilar töluðust oft við um starfsemi rannsóknarlögreglu og saka- dóms. Það væri heldur ekki nýtt, að ráðherra og ráðuneytis- stjóri lýstu vilja sinum fyrir þvi, að fengnir yrðu nokkrir starfs- menn til viðbótar til þessara stofnana meðal annars vegna sumarleyfa, og eins vegna þess að umfangsmikil mál eins og Geirfinnsmálið hafa tekið til sin mikið af starfskröftum rann- sóknarlögreglunnar um nokk- urra mánaða skeið. — ÓR Verðbólga 28%, tekjur aukast um 26% — Dýrt að halda uppi fuflri atvinnu Verðbólgan verður sennilega 28% á árinu 1976, segir i nýbirtri skýrslu Þjóðhafsstofn- unar. Kauptaxtar munu hækka um 28% á árinu en ráðstöfunartekjur heim- ilanna þó aðeins um 26% vegna vinnutimastytting- ar frá fyrra ári. Sam- bæriiegar tölur um verð- bólgu eru 53% fyrir 1974 og 37% fyrir siðasta ár. Verðbólgan er þvi greinilega á niðurleið en er ennþá mun hærri en i nokkru ööru landi Evrópu. 1 skýrslunni er bent á þann mikilsverða árangur, að tekist hefur að halda uppi fullri atvinnu. Um leið er bent á, að þessi árangur er dýru verði keyptur. Honum fylgir skuggi sem grúfir yfir þjóðarhag i ár og næstu ár, segir i skýrslunni. Mikill halli varö á rikis- búskapnum vegna þess að rikis- útgjöldin héldu sinu striki, þrátt fyrir minnkandi þjóöartekjur. Samdráttur þjóðarútgjalda i fyrra kom þvi eingöngu fram i minnkandi einkaneyslu og sam- drætti i fjárfestingu fyrirtækja. JOH.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.