Vísir - 23.06.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 23.06.1976, Blaðsíða 3
vism Miðvikudagur 23. júni 1976 3 16 VIL CKKI BLANDA SAAIAN FJÁRMÁLUM 06 VARNARMÁLUM — segir Gylfi Þ. Gíslason „Frá þvi að varnar- samningurinn var gerður 1951 hafa allar rikisstjórnir fylgt þeirri stefnu að blanda ekki saman i fjármálum fslendinga og varnarmálum og þeirri stefnu tel ég aö fylgja eigi áfram.” Þetta segir Gylfi Þ. Gislason I svari sfnu við spurningu VIsis um það, hvort islendingar eigi að krefjast leigu I einu eða öðru formi af bandarikjamönnum vegna varnarstöðvarinnar i Keflavik. Gylfi Þ. Gislason svaraði spurningunni með þessum oröum : „I sjónvarpsviðtali sem fórfram viðformenn þingflokka skömmu eftir þinglok, var ég spurður þeirrar spurningar, hver væri afstaða min til þeirr- ar hugmyndar, sem þá var farið að ræða meir en áður, hvort ís- lendingar ættu að taka leigu- gjald af bandarikjamönnum fyrir afnot herstöövarinnar i Keflavik. Svaraði ég því hik- laust þannig, aö þvi væri ég andvi'gur. Ég teldi slikt hvorki samræmast sjálfstæði né sjálf- virðingu þjóðarinnar. Nú er hins vegar einnig farið aö ræða hugsanlegar fjár- veitingar af hálfu bandarikja- manna til framkvæmda hér á landi, sem menn telja tengda vörnum landsins. Ég er ein- dreginn stuðningsmaður aðildar lslands að Atlantshafsbanda- laginu og varnarsamstarfs við Bandarikin. En ég hef alltaf tal- ið og tel enn að það samstarf eigi að takmarka við hrein varnarmál, þ.e. fyrst og fremst eftirlitsstörf á sjó og i lofti um- hverfis tsland og miðast við sameiginlega varnarhagsmuni okkar og bandalagsþjóðanna. Frá þvi varnarsamningurinn var gerður 1951 hefur það verið stefna allra rikisstjórna á ís- landi að blanda ekki saman fjármálum islendinga og varnarmálum og þeirri stefnu tel ég að fylgja eigi áfram. 1 þessu sambandi má þó minnast þess, að þegar við Hannibal Valdimarsson sem nýkjörnir þingmenn greiddum atkvæöi gegn Keflavikur- samningunum 1946 eða fyrir 30 árum, var það ein aðalástæðan eins og kom fram i tillögu, sem við fluttum, að við töldum varnarliðið eiga að lúta islensk- um lögum eins og islendingar sjálfir, en fyrir þvi var ekki gert Gylfi Þ. Gislason ráð I samningnum. Hins vegar samþykktum við báðir varnarsamninginn við Bandarikin fimm árum siöar vegna þess að þá höfðum við gerst aðilar að Atlantshafs- bandalaginu og ástandiö i heimsmálum hafði breyst veru- lega, en f varnarsamningnum var i öllum meginatriðum gert ráö fyrir núverandi skipan. Ég hef hins vegar oftsinnis vakið athygli á þvi að á þessu sviði ætti að breyta ýmsu i framkvæmd samningsins og er enn þeirrar skoðunar.” —ÞP SENDA ÖLLUM SÓKNAR- BÖRNUM GJAFABRÉF Nú eru i undirbúningi fjár- öflun á vegum Bústaða- sóknar i þvi skyni aö fullgera félagsheimili Bústaðakirkju. Inn- an skamms verða send gjafabréf inn á öll heimili I Bústaðasókn og gefst öllum ibúum i sókninni þannig kostur á að leggja sitt lóð á vogarskálina. Tíu ár eru liðin siðan Fjáröflunaráform eru nú í undir- búningi til þess að unnt verði að fullgera félagsheimili Bústaða- kirkju áður en langt um llður. byggingarframkvæmdir hófust við Bústaðakirkju og félags- heimili hennar. A þeim tima hafa verið lagðir fram tugir milljóna króna i gjöfum og sjálfboðavinnu frá miklum fjölda einstaklinga, stofnana og fyrirtækja. í nýja félagsheimilinu verður m.a. allskonar æskulýösstarf, barnastarf, kynningarkvöld, hljómleikahald og sýningar af ýmsu tagi. Fyrirhugað er að hafa náið samstarf við Æskulýðsráö Reykjavikur um starfrækslu sér- stakrar félagsmiðstöðvar fyrir hverfiö undir sameiginlegri stjórn Reykjavikurborgar og Bú- staðakirkju. ÍBÚARNIR KOMU SJÁLFIR Á FÓT BARNAHCIMILI Nokkur barnanna á hinu nýja barnaheimili. Eins og sjá má eru húsakynnin hin vistlegustu. Ljósm: Loftur ^ -------------------------------------------------------------- ■— ------------------------------------------------------- ' vera talsvertá áttunda hundrað talsins, en það eru mun fleiri ibúar en i mörgum smáþorpum út um landið. Siguröur Flosason, formaður Byggingasamvinnufélagsins flutti stutt ávarp við opnunina, og lýsti aö nokkru aðdraganda að stofnun heimilisins. Kom það m.a. fram, að upphaflega hefði verið ráðgert aö hafa leikher- bergi með gæslu á hverri hæð, en siðar hefði þó verið talið betra að byggja eitt stórt barna- heimili fyrir allt húsið. Afhenti Sigurður siðan formanni hús- stjórnar lyklana að barnaheim- ilinu, en hann aftur forstöðu- konu og bað hana að sýna viðstöddum gestum húsa- kynnin. Viö dagheimilið vinna tvær fóstrur, hvor viö sina deild, tvær aðstoðarstúlkur og matráðs- kona. Enn er ekki fullbókað á leik- skólann, en alls munu rúmast 38 börn á barnaheimilinu. —AH Nýtt barnaheimili hefur veríð opnað að Asparfelli 10 I Reykja- vlk. Er þar um að ræða bæði leikskóia og dagheimili. Heim- ilið er reist að tilhlutan Bygg- ingasamvinnufélags atvinnubif- reiðastjóra, sem byggði hús- eignina, en eigendur barna- heimilisins eru ibúar hússins Asparfell 2 til 12. Telst það til nýlundu hér á landi að ibúar eins húss taki sig þannig saman um byggingu barnaheimilis. Þess má geta að ibúar húseignarinnar munu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.