Vísir - 23.06.1976, Side 6

Vísir - 23.06.1976, Side 6
( Miðvikudagur 23. júni 1976 VISIR Guðmundur Pét Rússar senda nýja Saljut- geimstöð út í geiminn Ný sovésk geimstöð, Saljut-5, er komin á hringsól umhverfis jörðina og þykir flest benda til þess, að rússar ætli sér að slá metið, sem banda- rikjamenn settu, þegar þeir höfðu menn úti i geimnum i 84 daga samfleytt. Tass-fréttastofan skýröi frá þvi i gærkvöldi, aö mannlausri geimstööinniheföiveriö skotiö á loft i gærdag til visindalegra rannsókna og sem hluta af keöju geimstööva, sem koma á fyrir á brautum umhverfis jöröu. Ætla að slú metið Ýmsar getgátur eru uppi um, aö likt og þegar siöustu tveim Saljut-geimstöövunum var skotið á loft, verði geimfarar sendir á eftir upp i þær, tveim eöa þrem vikum seinna. Ekki gat Tass um, hvaö oröiö heföi af Saljut-4, sem siöast fréttist til i mars, þegar geim- stööin sveif undir sjálfvirkri stjórn. — Tveir geimfarar gistu I henni i fyrra. — Menn telja, aö Saljut-4, sem var skotiö á loft fyrir 18 mánuðum, sé senn búin aö renna sitt skeiö á enda og muni brenna upp I gufuhvolfi jarðar. Þeir, sem siðast gistu Saljut- 4 Pyotr Klimuk og Vitaly Savastyanov—sneru aftur til jaröar 26. júli I fyrrasumar og höföuþá dvaliö 63 daga um borö i geimstööinni. Bandarikjamenn voru 84 daga um borö i Skylab árið 1974. Saljut-5 liggur á svipaöri braut og fyrirennarar hennar, i um 210 til 260 km fjarlægð frá jörðu. Tass segir, aö öll tæki stöðvarinnar vinni eins og til sé ætlast. Vísindi eða hernaður? Þetta er fyrsta meiriháttar geimskot rússa siðan Soyuz-20 var skotið mannlausu á loft, meö tilraunadyr, skorkvikindi og jaröargróöur innanborðs. Soyuz-20 var tengt viö Saljut-4 i nóvember siöasta vetur, en sneri aftur til jaröar i febrúar. Sovéskir fjölmiðlar segja, aö geimstöðvarnar þjóni visindunum og niöurstööur rannsókna þeirra geti hugsan- lega leitt til lausnar á efnahags- vandamálum jaröarbúa. — Sér- fræðinga Vesturlanda grunar, að þrær þjóni einnig hernaðar- legum tilgangi. Þá tvo mánuði, sem Klimuk og Sevastyanov voru um borö I Saljut-4 (sem var 19 smálestir) söfnuöu þeir sýnum og ljós- myndum, sem þeir tóku af jörö- unni. Saljut-geimáætlun rússa hefur leitt til merkilegra upp- götvana, þótt sumir áfangar hennar hafi farib úskeiöis. 1971 fórust þrir rússneskir geim- farar eftir þriggja vikna dvöl i Saljut-1. Smyuz-11 geimfar þeirra missti þrýsting, þegar þaö kom aftur inn i gufuhvolf jaröar. Saljut-2geimstööin, sem aö likindum var send upp vorið 1973, mun hafa splundrast í geimnum. Ahöfn Saljut-14 heimsótti Saljut-3 i júli 1974, en ekki tókstaö tengja Saljut-15 viö Saljut-3 tveim mánuöum siöar, og varö Saljut-15 að snúa aftur til jaröar. Ró fœríst yfir S-Afríku Ró hefur nú færst yfir hverfi blökkumanna i útjöðrum Jóhannesar- borgar, eftir blóðug átök undanfarinna daga, þar sem á annað þúsund manna særðust og nær tvö hundruð létu lif sitt. Stjórnvöld hafa brugðist mjög hart við uppþotum og lögregla og herlið gengið hart fram við að kveða þau niður. A efri myndinni sjást blökku- menn grýta lögreglu við Alex- andra á þribja degi óeirðanna, en myndin hér til vinstri var tekin á öðrum stað við uppþot, þar sem einn lögreglumaður lét lifið. ,, Hernaðarástand"' í breska þinginu Andstæöir flokkar i breska þinginu hafa nú hætt „allsherjar- striöi”, sem tafið hefur laga- setningar stjórnar Verkamanna- flokksins um tveggja vikna bil. Fyrir þrem vikum lysti Margret Thatcher, leiötogi ihaldsmanna, þvi yfir, aö stjórnarandstæðingar mundu ekki sýna stjórnarsinnum sam- vinnu i einu eöa neinu, eftir að rikisstjórnin hafði rofiö á þeim samkomulag um atkvæða- greiðslu til þess að ná eins at- kvæðis meirihluta i einni þeirri mikilvægari. i það sinn hafði verið um að ræða frumvarp um þjóðnýtingu flug- og skipasmiðaiðnaðar breta. Eftir þá atkvæðagreiðslu kom til handalögmála i neðri málstof- Unni. Þessar vikur, meðan þingmenn ihaldsflokksins hafa lagt sig alla fram við að reyna aö fella frum- vörp stjórnarinnar, hefur Verka- mannaflokkurinn ekki mátt af neinum þingamanni sjá af þing- fundum. Sjúkir þingmenn hafa jafnvel verið sóttir i sjúkrabilum til að greiða atkvæði. Sumir hafa orðið aö slá utanlandsferöum á frest. — Verkamannaflokkurinn á þrem fulltrúum færra á þingi en allir hinir til samans. Hins vegar koma þeir sinum málum fram með stuðningi nokkurra óháðra þingmanna. James Callaghan, forsætisráö- herra, reyndi að koma á sáttum i gær, þegar hann játaði i ræðu, að stjórnarandstaðan hefði verið borin ráöum við atkvæða- greiðsluna um þjóðnýtingarfrum- varpið. Lofaði hann, að þing- heimur fengi annað tækifæri til aö greiða atkvæði um málið. En ekki fyrr en i næstu viku i fyrsta lagi. Miðstjórn kommúnista rœðir úrslitin á Ítalíu Miðstjórn italska kommúnista- flokksins kemur saman til fundar i dag til aö fjalla um breytt við- horf eftir niðurstööur kosning- anna, þar sem flokkurinn vann mikiö fylgi. Enrico Berlinguer, fram- kvæmdastjóri og leiðtogi flokks- ins, sagði i gærkvöldi, að úrslitin staðfestu nauðsyn þess, að kommúnistar ættu hlut að póli- tiskri handleiðslu þjóðarinnar. — 1 kosningunum bættu kommúnist- ar við sig 49 þingsætum i fulltrúa- deildinni, en 23 i öldungadeild- inni. Hann vildi hins vegar ekkert segja um, hvort kommúnistar mundu krefjast setu i næstu rikis- stjórn, eða hvort þeir mundu fá- anlegir til að styðja stjórn undir forystu kristilegra demókrata. ,,Það verður allt undir þvi kom- ið, hvað kristilegir demókratar leggja til,” sagði hann. Þrátt fyrir fylgisaukningu kommúnista héldu kristilegir demókratar velli sem stærsti stjórnmálaflokkur landsins og juku jafnframt við fylgi sitt frá þvi i sveitarstjórnarkosningunum i fyrra. Sinatra œtlar að reyna hjóna- band í 4. sinn Ein af málpfpum dægur- lagajjoðsins, Frank Sinatra, skýrði frá þvi i gær, að söngvarinn ætlaði að ganga i hjónaband með vinkonu sinni, Barbara Marx, þann tíunda október i haust. Sinatra er sextugur orðinn og þrigiftur (Nancy Barbato, Ava Gardner og Mia Farrow), en Barbara Marx, sem er 44 ára, var áður gift Zeppo Marx, einum hinna frægu Marx- bræðra.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.